Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Page 22
22 | Fólk 26. september 2011 Mánudagur Svala og Sonya eru vinkonur n Steed Lord sendir frá sér nýtt myndband Í slenska hljómsveitin Steed Lord, með Svölu Björgvins í fararbroddi, gaf nýlega frá sér tónlistarmyndband við lagið Bed Of Needles. Mynd- bandið var tekið upp í mars og apríl en var svo unnið og klippt í júlí og ágúst. Hljóm- sveitin starfaði að tónlistar- myndbandinu með heims- frægum danshöfundi, Sonyu Tayeh, sem hefur gert það gott í dansþáttunum vinsælu So You Think You Can Dance. Þetta er í annað sinn sem Svala og félagar starfa með Sonyu en danshöfundurinn er náin vin- kona þeirra. Svala og Sonya eru báðar flottar og öðru- vísi týpur sem fara eigin leið- ir í fatasmekk. Í viðtali við DV fyrr á árinu sagðist Svala elska „vintage“-föt. „Þegar ég klæði mig þá er ég að tjá svolítið sjálfa mig og hvernig mér líður. Fatastíll er form af tjáningu en ég er líka alltaf að prófa mig áfram í fatastíl og elska að uppgötva nýja hönn- uði og nýa nálgun á tísku. Ég tek þetta samt ekkert of alvar- lega, þetta eru bara föt.“ Sonya lýsir sínum sérstaka dansstíl sem „stríðs-djassi“. „Minn stíll er stuttaralegur, ögrandi og grípandi. Jafnvel þegar dansinn er rólegur. Ég er alltaf tilbúin fyrir bardaga.“ Fimm stjörnu ferð Handknattleiksmaðurinn fyrr- verandi Logi Geirsson fór með unnustu sinni, Ingibjörgu Elvu Vilbergsdóttur, á nýja veitinga- staðinn hennar Hrefnu Rósu Sætran, Grillmarkaðinn, um helgina. Silfurdrengurinn Logi var vægast sagt ánægður með ferðina en á Facebook skrifaði hann: „Maturinn, þjónustan og staðurinn fá fimm stjörnur.“ Logi tilkynnti í sumar að hann væri hættur handknattleiks- iðkun aðeins 29 ára vegna þrá- látra meiðsla á öxl. Hann verð- ur því að láta sér það duga að horfa á sína menn í FH þegar þeir hefja titilvörn sína gegn Fram í N1- deildinni í kvöld. Gimsteinarnir í útvarpinu Netheimar loguðu á laugar- dagskvöldið þar sem fólk var vægast sagt reitt vegna sjón- varpsdagskrár RÚV. Mesta reiðin beindist að nýjum grínþætti RÚV, Kexvexmiðj- unni, sem féll ekki í kram- ið hjá mörgum en eins voru ýmsir sem höfðu horn í síðu Spaugstofumanna og fannst þeir þreyttir. Tónlistargúrúinn og morgunhaninn á X-inu, Ómar Eyþórsson, var þó ekki að stressa sig mikið og benti fólki á annan valmöguleika. „Hlustið á útvarp gott fólk, þar eru gimsteinarnir,“ segir hann en Ómar stýrir morgunþætt- inum sem titlaður er eftir hon- um sjálfum alla virka morgna á X-inu. Bubbi hakkaður „Svo virðist sem einhverjir aumingjar hafi hakkað sig inná síðuna Bubbi.is og eyði- lagt þar hluti,“ ritar popp- kóngurinn Bubbi Morthens á Facebook-síðu sína en bubbi. is liggur nú niðri og er Bubbi hræddur um að mikið af efni hafi glatast. „Þessi síða er eins- konar síða fyrir þá sem vilja vita allt um feril minn. Þarna eru allir textar, allar plötur og tímalína frá fæðingu,“ ritar hann en Bubbi er eðlilega ekki ánægður með þetta. „Mikið er sorglegt hvernig mannskepn- an getur látið,“ skrifar hann. Þ að fyndna er að Evert Víglundsson, yfirþjálf- ari hjá Crossfit Reykja- vík, kom í viðtal til okk- ar í morgunþáttinn og skoraði á okkur að prófa. Ekkert okkar, hvorki ég, Gassi eða Sigga vorum að fara í þessa íþrótt. Sjálfur hafði ég reykt hálfa æv- ina og hafði lítið gefið því gaum að fara hreyfa mig enda hélt ég alltaf að ég væri í fínu lagi. Það er að segja þangað til ég mætti á fyrstu æfingu og komst að því að ég var alls ekki í lagi,“ segir Sig- valdi Kaldalóns, betur þekktur sem útvarpsmaðurinn Svali, en Svali starfar einnig sem crossfit- þjálfari. Svali segist hafa kolfallið fyrir íþróttinni. „Ég ákvað að prófa í þrjá mánuði og sjá svo til. Fram- farirnar voru gífurlegar og því ákvað ég að taka næstu þrjá mánuði. Þannig hólfaði ég þetta niður þangað til ég var allt í einu farinn að geta hlaupið um allt. Mér hefur aldrei fundist leiðin- legt á æfingu og það sem heill- aði mig mest var að ég, sem hef alltaf verið frekar lítill og mjór, var farinn að geta gert upphíf- ingar og einnig að fólkið í kring- um mig var líka farið að geta það.“ Svali segir íþróttina einfald- lega hafa breytt hans lífi. „Ég sé ekki lífið í dag án hreyfing- ar, ég einfaldlega kæri mig ekki um það. Ég hef alltaf verið mjög grannur og er ennþá grannur en er ekkert að stíga á vigtina. Það er miklu betra að mæla árang- urinn með því sem maður get- ur á æfingu. Nú hef ég allt í einu orku afgangs eftir langan vinnu- dag. Ég get leikið við krakkana, hlaupið í búðina og haldið á þungum innkaupapokunum án þess að slíta af mér hend- urnar og svo hleyp ég upp á fjöll í stað þess að keyra upp á þau og finnst það gaman,“ segir Svali sem var á leið í sumarbú- stað þegar blaðamaður náði tali á honum. „Auðvitað eru ketil- bjöllurnar með í skottinu. Það þýðir ekkert að slaka á.“ indiana@dv.is Einar og Svala Þau búa í Los Angeles þar sem þau gera það gott með hljómsveit sinni Steed Lord. Sonya Tayeh Sonya og Svala eru báðar þekktar fyrir sinn sérstaka stíl. n Útvarpsmaðurinn Svali kolféll fyrir crossfit og er orðinn þjálfari. Í góðu formi Svali segist alltaf hafa verið grannur. Hann er ennþá grannur en mælir árangurinn ekki með vigtinni. Kominn í þ usufor „Sjálfur hafði ég reykt hálfa ævina og hafði lítið gefið því gaum að fara hreyfa mig enda hélt ég alltaf að ég væri í fínu lagi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.