Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Page 3
D
aginn eftir að 18 ára stúlka
kærði Egil Einarsson fyrir
nauðgun var hann nafn-
greindur af vefmiðli. Nán-
ast samstundis sneri hann
vörn í sókn og sendi frá sér yfirlýs-
ingu þar sem hann sagðist hafa fal-
ið lögmanni sínum að kæra hana
fyrir falskar sakargiftir. Gaf hann
einnig til kynna að stúlkan hefði
reynt að kúga af honum fé með að-
stoð handrukkara. Sagði hann að
markmið hennar væri að sverta
mannorð hans.
Ljóst er að stúlkan ber Egil al-
varlegum sökum. Nauðgun getur
varðað allt að sextán ára fangelsi.
Þær sakir sem Egill ber á stúlk-
una eru sömuleiðis grafalvarleg-
ar þar sem það varðar allt að sex
ára fangelsisvist að hafa fé af öðr-
um með því að hóta að beita hann
eða nána vandamenn hans líkam-
legu ofbeldi, svipta hann frelsi eða
væna hann um refsiverða eða van-
sæmandi háttsemi. Þá getur það
varðað allt að fjögurra ára fangelsi
að bera mann röngum sökum fyrir
rétti eða stjórnvaldi.
Samkvæmd heimildum DV ber
Egill því við að hann, kærasta hans
og stúlkan sem kærði parið fyr-
ir nauðgun hafi farið í kynlífsþrí-
hyrning og það hafi verið með
fullu samþykki allra aðila.
Umdeild ummæli
Egill hefur alltaf verið mjög um-
deildur og hefur ítrekað þurft að
svara fyrir ummæli sín í garðs
kvenfólks. Margir vilja meina að
þau lýsi kvenfyrirlitningu og eitt
frægasta dæmi um það er færsla
sem Egill skrifaði á bloggsíðu árið
2007. Þar sagði hann meðal annars
um femínista: „gefa þessum leið-
inda rauðsokkum einn granítharð-
an“, „þessar dömur eru flestallar
ógeðslegar auk þess að vera geð-
sjúklingar.“
Um Steinunni Valdísi Óskars-
dóttur sem var þá þingmaður Sam-
fylkingarinnar: „Steinunn (Valdís)
er portkona“, „á hana dugar ekkert
minna en lágmark tveir harðir.“
Um Kolbrúnu Halldórsdótt-
ur, þáverandi þingmann Vinstri
grænna: „munu þessir herramenn
sem Fréttastofan taldi upp áðan
fylla hana eins og hátíðarkalkún.“
Egill sagði seinna að ummæl-
in hafi verið grín og að femínist-
ar væru auðveldur skotspónn því
þær væru „geðstirðar og hátíðleg-
ar í fasi.“
Árið 2006 var Agli sagt upp
störfum sem þáttastjórnandi á út-
varpsstöðinni X-inu þar sem hann
var með þátt sem hét „Með’ann
harðan,“ eftir að hann hringdi í
14 ára stúlku í beinni útsendingu.
Hann þóttist vera á vegum Frjáls-
lynda flokksins og áreitti stúlkuna
kynferðislega. Foreldrar stúlkurn-
ar munu hafa rakið símtalið til út-
varpsstöðvarinnar X-ins 977.
Svæsið svar
Á bloggsíðunni gillz.is kennir
margra grasa og var Egill eitt sinn
spurður ráða af manni sem sagði
konu sína ekki nógu góða í munn-
mökum. Eftir farandi er tekið úr
svari Egils til mannsins: „Þú þarft
að segja henni að leggjast á rúm-
ið með höfuðið hangandi fram
af rúminu. Þú tekur tvö belti og
bindur hendurnar á henni fastar
við rúmið. Síðan þarftu að verða
þér úti um beisli eins og notað er
á hesta og hunda. Þú lætur beislið
upp í munninn á henni, en pass-
aðu þig að meiða ekki prinsessuna,
við verðum alltaf að hugsa vel um
dömurnar. Beislið á eftir að verða
þinn besti vinur héðan í frá því að
núna mun hún ekki getað lokað
munninum. Ef þú gerðir þetta rétt
þá á hún að vera liggjandi á bakinu
á rúminu með hausinn hangandi
fram af rúminu pikkföst og með
galopinn munninn. Núna biðurðu
hana að afsaka þig meðan þú röltir
fram og finnur þer kúrekahatt. Þú
kemur síðan inn í herbergið nag-
andi strá með hann blóðstífan. Síð-
an bara rennurðu honum inn og
„GAGAR“ hana eins og það er kall-
að í klámmyndaheiminum. Eftir
þetta er málið leyst Addi minn. Kv,
G-Maðurinn.“
Á sömu síðu tekur hann við-
tal við konu sem hafði náð góð-
um árangri á fitness-móti. Á með-
al spurninga Egils til konunnar er
hvort að hún hafi einhvern tímann
skellt Merzedes Club-disknum í
og fróað sér, og hvort hún hrífist af
getnaðarlimum svartra manna.
Óljós áhrif á ferilinn
Þó að Egill hafi lengi dansað á lín-
unni er hætt er við því að umdeild
ummæli Egils í gegnum tíðina geti
nú unnið á móti honum. Eins og
fram kom á DV.is á laugardag er
gríðarlega mikið í húfi þar sem
vörumerkið Gillz er mjög verðmætt.
Fyrir jólin gefur Egill út þriðju bók
sína, Heilræði Gillz. Hann er ber að
ofan á öllum prentuðum símaskrám
landsins, er vikulegur gestur Auð-
uns Blöndal í þættinum FM95BLÖ
og þættirnir Lífsleikni Gillz voru um
það bil að fara í sýningu svo eitthvað
sé nefnt.
Ari Edwald, forstjóri 365, vildi
aðspurður ekki tjá sig um það hvort
nauðgunarkæran muni hafa áhrif
sýningu þáttanna Lífsleikni Gillz.
„Það hlýtur að koma í ljós hvað
verður úr þessu með kæru og
annað slíkt.“ Samkvæmt heim-
ildum DV verður Egill ekki í
föstu hlutverki gestastjórn-
enda í útvarpsþættinum
FM957BLÖ á meðan rann-
sókn málsins stendur yfir
en hann hefur stjórnað
þættinum ásamt Auðuni
Blöndal undanfarna
föstudaga.
Einnig er óvíst
hvort málið hafi áhrif
á störf hans sem
einkaþjálfari í Sporthúsinu þar sem
hann hefur aðstöðu. Þar hefur ekki
verið tekin ákvörðun um hvort mál-
ið hafi áhrif á stöðu hans þar. „Þetta
er í skoðun,“ segir Þröstur Jón Sig-
urðsson, eigandi Sporthússins í
samtali við DV.
Almannatengill sem ekki vildi
láta nafn síns getið segir að skað-
inn sé mikill fyrir þá sem eru
búnir að fjárfesta í honum. „Það
er ansi víða. Menn eru til dæm-
is að tala um að það geti verið
um 100 milljónir í þessum sjón-
varpsþáttum hans. Hann er
andlit fjölmargra fyrirtækja.“
Ímyndin bíður alltaf hnekki
Friðrik Eysteinsson, aðjúnkt í
markaðsfræði við Háskóla Ís-
lands, segir stöðu Egils og vöru-
merkis hans ráðast af því hvern-
ig málið þróast; hvort hann verði
sýknaður eða sakfelldur. „Ef fólk
trúir því að hann sé sekur þá mun
þetta hafa langtímaáhrif, annars er
skaðinn aðeins til skamms tíma,“
segir Friðrik. Egill hefur byggt upp
vörumerki sitt út frá vissri ímynd.
„Þetta er fyrst og fremst spurning um
ímynd fyrir hann. Engu að síður er
ljóst að ímynd hans bíður hnekki við
þetta hvort sem hann er sekur eða
saklaus.“
Friðrik segir að það verði erfiðara
fyrir Egil að afla sér tekna út á nafn
sitt og sumt verði honum alveg lok-
að. „Hjá honum snýst þetta fyrst og
fremst um að afla sér tekna út á nafn
sitt og ef það mun leika einhver vafi
á því að hann sé saklaus munu fyrir-
tæki eins og ja.is væntanlega ekkert
vilja með hann hafa.“
Rétt er að taka fram að þó að farið
sé yfir áhrif málsins á ímynd Egils er
skaðinn aldrei sambærilegur skaða
fórnarlambs nauðgunar. Málið er
enn í rannsókn og óvíst hvort gefin
verði út ákæra.
Fréttir 3Mánudagur 5. desember 2011
í samband við konu á Stígamótum.
Ég fékk þá þau skilaboð frá henni
að hún þyrfti tíma til að hugsa sinn
gang, hún væri að fara í gegnum mik-
inn tilfinningarússíbana og vissi ekki
hvað sneri upp eða niður. Hún þakk-
aði mér samt kærlega fyrir stuðn-
inginn. Síðan hef ég bara fylgst með
henni í gegnum dóttur mína.“
Þarf lítið til að koma henni úr
jafnvægi
Dóttir hennar tengist einnig kær-
ustu Egils. Þaðan hefur hún fengið
að heyra að stúlkan sé að ljúga, hún
hafi viljað þetta sjálf. „Ég á svo erfitt
með að trúa því að hún sé að ljúga
þessu miðað við ástandið á henni
þegar við sóttum hana. Hún grét svo
mikið að hún gat varla talað. Og hún
gat varla gengið svo við þurftum í al-
vöru að bera hana inn í leigubílinn.
Ég þekki hana líka og finnst erfitt að
trúa því að hún gæti borið jafn alvar-
legar sakir á mann ef þær eru rangar.
Hún er ein hjartahlýjasta manneskja
sem ég þekki.“
Hún hefur verið í stöðugu sam-
bandi við stúlkuna síðan. „Ég hef
hitt hana nánast á hverjum degi síð-
an þetta gerðist. Hún á mjög erfitt.
Hún fékk „flashback“ þegar við fór-
um að húsi vinkonu okkar og titr-
aði öll. Eins ætluðum við að draga
hana með okkur á Laundromat um
daginn en hún var gráti næst og gat
ekki verið þar,“ segir vinkonan en
Laundromat er við hliðina á Austur
þar sem stúlkan hitti parið sem hún
kærði fyrir nauðgun. „Hún kemst
eiginlega ekkert út, hún er í svo
miklu áfalli að það þarf mjög lítið til
að koma henni úr jafnvægi.“
Málið til rannsóknar
Stúlkan kærði nauðgun á fimmtudag
í síðustu viku. Málið er enn til rann-
sóknar og óvíst hvort ákæra verði
gefin út í málinu. Eins og fyrr segir
neitar Egill sök.
„Ég þekki fullt af
ungum stelpum
í gegnum dóttur mína
og sé það strax ef það
er verið að búa til eitt-
hvað drama. Þessi stelpa
lét ekki þannig, gráturinn
kom frá hjartanu.
„Við grétum með henni“
Egill hefur lengi
dansað á línunni
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
n Umdeild ummæli geta nú unnið gegn honum n Málið hefur neikvæð áhrif á ímyndina
Yfirlýsing Egils
Yfirlýsing í tilefni þess að ég og unnusta
mín höfum verið kærð til lögreglu vegna
nauðgunar.
Það er refisvert að saka fólk ranglega
um lögbrot. Það er jafnframt refsivert
að hafa samband við handrukkara í
þeim tilgangi að kúga fé út úr fólki. Þær
ásakanir sem á mig hafa verið bornar eru
fráleitar og engar líkur á að þær muni leiða
til opinberrar ákæru. Tilgangurinn með
þessum ásökunum er því augljóslega ekki
að ná fram ákæru heldur einvörðungu að
sverta mannorð mitt. Af tillitssemi við
hlutaðeigandi mun ég ekki tjá mig meira
um þessi mál opinberlega að svo stöddu.
Ég hef falið lögmanni mínum að kæra við-
komandi fyrir rangar sakargiftir.
Virðingarfyllst
Egill Einarsson“
Sneri vörn í sókn
Egill hefur lengi gert út á það
að vera harður og fór af fullri
hörku gegn stúlkunni sem
kærði hann fyrir nauðgun.
„Þessar
dömur
eru flestallar
ógeðslegar