Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Blaðsíða 22
n Útgáfupartí Mannlífs á Ölstofunni
É
g er mjög ánægð með blað-
ið og fyrstu viðtökur hafa
farið fram úr björtustu von-
um,“ segir Hrund Þórsdótt-
ir, nýr ritstjóri karlatímaritsins
Mannlífs. Fyrsta tölublaðið und-
ir hennar ritstjórn kom út í síð-
ustu viku og blásið var til heljar-
innar útgáfupartís á Ölstofunni
síðastliðinn fimmtudag í tilefni
þess. Á sama tíma var árs af-
mæli Mannlífs sem karlatíma-
rits fagnað. Fullt var út úr dyr-
um og þegar blaðamann bar að
garði voru allir með nefið ofan
í blaðinu. „Fólk hlýtur að hafa
verið ánægt með blaðið því það
kláraðist á staðnum og fjöldi
fólks gerðist áskrifendur,“ segir
Hrund sem er í skýjunum með
vel heppnað blað. solrun@dv.is
22 Fólk 5. desember 2011 Mánudagur
Jólasveinninn
Geðgóður
Jón Gnarr borgarstjóri skellti
sér í jólasveinabúning til
styrktar verkefninu Geðveik
Jól. Jólasveinn þessi hefur
fengið nafnið GEÐgóður og
hefur verið ráðinn kosninga-
stjóri keppninnar. „Það lá
beinast við að ég tæki þetta
að mér enda oft verið kallað-
ur jólasveinn og jafnvel tæp-
ur á geði,“ segir Jón geðgóður
í jólasveinabúningi.
„Mér finnst nauðsynlegt
að henda mér reglulega í
jólasveinabúning því í mínu
starfi er enginn einkennis-
búningur. Það er þó klárlega
eitthvað sem þarf að skoða.
Ef allir eru geðgóðir þá verða
þetta án efa geðveik jól,“
segir Jón jólasveinn kátur í
bragði.
Verkefnið gengur út á
starfsmenn 15 fyrirtækja
hafa tekið áskorun um að
velja eða semja jólalag og
framleiða myndband því til
stuðnings. Jólalögin verða
þeirra framlag inn í jólalaga-
keppnina Geðveik Jól 2011
sem hefst 7. desember, með
frumflutningi á lögunum í
opinni dagskrá Skjás Eins kl.
19.30. Hvert atkvæði kostar
1.000 krónur og fara þeir fjár-
munir sem safnast í upp-
byggingarstarf Geðhjálpar.
B
jór er mikið áhuga-
mál hjá mér,“ segir
Garðar Gunnlaugs-
son knattspyrnumað-
ur en fyrirtæki Garð-
ars, Icelandic Spirits, hefur
hafið sölu á bjórnum Krumma
í helstu vínbúðum landsins.
„Þetta er lagerbjór með góðu
eftirbragði, malt- og hunangs-
keim. Hann er með löngu eftir-
bragði og er mjög auðveldur til
drykkju. Þessi bjór hefur verið
bruggaður í Lettlandi frá 1850
svo hann hefur virkað vel þar
og nú höfum við fengið þessa
uppskrift lánaða. Eigandi
bruggverksmiðjunnar lætur
sjálfur bora 120 metra niður í
jörðina eftir vatninu sem not-
að er í bjórinn og í honum eru
aðeins eðalhumlar. Svo það
er mikið lagt í framleiðsluna,“
segir Garðar og bætir við að
Krummi sé í anda vinsælustu
bjóra frá Austur-Evrópu.
Markaðsstarf framundan
Garðar segir félaga sinn hafa
fengið þessa hugmynd og að
hann hafi ákveðið að slá til.
„Þessi maður er viðskiptafé-
lagi minn í dag en hann hefur
mjög góð sambönd í Eystra-
saltslöndunum,“ segir hann en
bætir hlæjandi við að hann sé
ekki næsti Björgólfur Thor. „Ég
myndi nú ekki ganga svo langt
að líkja mér við hann. Við eig-
um alla vega ekki bruggverk-
smiðjuna þarna úti. Alla vega
ekki ennþá en við sjáum til.“
Garðar gerði árssamning
við ÍA í vikunni og mun því
geta einbeitt sér að bjórsöl-
unni með boltanum. „Ég hef
verið að stússast í þessu með
öðru síðasta árið en nú fer ég í
þetta af fullum krafti. Nú hefst
markaðsstarf og annað sem á
eftir að taka góðan hluta af des-
ember. Íslendingar versla mik-
ið af áfengi yfir hátíðarnar svo
ég hugsa að ég hafi ekki getað
byrjað á betri tíma,“ segir hann
og bætir við að þótt hann eigi
eftir að búa hér á landi muni
eiginkonan, Ásdís Rán, dvelja
hér og í Búlgaríu til skiptis.
Nýtur stuðnings
eiginkonunnar
Þau hjónakornin veigra sér
ekki við að stofna fyrirtæki
þrátt fyrir kreppu og bölmóð.
„Maður verður að reyna að
gera eitthvað í lífinu – reyna
að koma sér áfram. Ásdís hef-
ur náttúrulega alltaf verið dug-
leg að finna sér eitthvað að
gera og það er ekki verra ef
mér tekst það líka. Hún hefur
þegar smakkað bjórinn og þótt
hún sé ekki mikið fyrir bjór þá
fannst henni Krummi góður,
svo ég hef fullan stuðning frá
henni.“
Garðar segir Krumma ekki
hinn dæmigerða jólabjór en að
hann stefni á að flytja inn fleiri
tegundir í framtíðinni. „Við
höfum þegar fundið bjór með
þessu maltbragði sem ein-
kennir jólabjór og sá bjór verð-
ur okkar jólabjór á næsta ári.
Við munum koma með fleiri
tegundir, það er ekki spurning.
Markið er sett hátt en það er
alltaf best að byrja smátt.“
indiana@dv.is
Ekki næsti
Björgólfur
n Garðar flytur inn bjór frá Austur-Evrópu n Fluttur heim og spilar með ÍA en Ásdís er úti
Setur markið hátt Garðar
segir eiginkonuna alltaf hafa verið
duglega að finna sér eitthvað að
gera og vonast til þess að hann hafi
skapað sér atvinnu með bjórnum
Krumma. MyNd Eyþór ÁrNASoN
Börn í partíi
Auglýsingastofan Fíton
hélt bæði útgáfu- og inn-
flutningspartí á föstudag
síðustu viku. Góður rómur
var gerður að veislu þeirra
og mikið um óvæntar upp-
ákomur. Þormóður Jónsson
framkvæmdastjóri stofunnar
mætti í gervi Kolbeins kaf-
teins og athygli vöktu börn í
gervi þeirra Skafta og Skapta
og Tinna. Eins og sjá má er
gervi hins unga blaðamanns
Tinna með ólíkindum vel
gert.
Ánægð með blaðið Hrund Þórsdóttir ásamt kærasta sínum, Óskari
Páli Elfarssyni. Þau voru í skýjunum með nýútkomið blað.
„Blaðið kláraðist“
Hressir Baggalútsmenn voru hressir á Ölstofunni, en þeir prýða forsíðu nýjasta tölublaðs Mannlífs.
Íslenskt tón-
listarfólk
tilnefnt
Fjöldi íslenskra listamanna
er tilnefndur til verðlauna hjá
þýska blaðinu Honk Maga-
zine en kosningin fer fram á
netinu. Myndband Steed Lord
við lagið 123, If You Want Me
er tilnefnt sem myndband
ársins en myndband Bjarkar,
Crystaline, er einnig nefnt.
Jónsi og GusGus koma til
greina sem listamenn ársins.
Hægt er að kjósa á síðunni
honk-mag.com.