Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Blaðsíða 13
Mikil reiði Leiðtogar Afríkuríkja voru ekki par hrifnir af ummælum Davids Cameron, forsætisráðherra Breta. Mynd ReuteRs Erlent 13Mánudagur 5. desember 2011 Bílaverkstæði Varahlutaverslun Smurstöð Dekkjaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa www.bilaattan.is Allt á einum stað N ígeríska þingið samþykkti nýverið bann við hjóna­ vígslum samkynhneigðra. Eru nígerísk yfirvöld sögð ögra breskum yfirvöldum sem hótuðu að hætta allri aðstoð við þjóðir sem brjóta gegn réttindum samkynhneigðra. Í frumvarpinu sem þingið sam­ þykkti kveður á um að refsing fyrir hvern þann sem er sakfelldur fyrir samkynhneigð skuli vera fjórtán ára fangelsisdómur. Þá á hver sá sem að­ stoðar samkynhneigð pör, til dæmis með því að halda kynhneigð þeirra leyndri, yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi. Frumvarpið fer fyrir fulltrúadeild nígeríska þingsins áður en það verð­ ur afhent forsetanum, Goodluck Jonathan. Refsað fyrir að vernda samkynhneigða „Fjöldi fólks mun eiga yfir höfði sér refsingu fyrir að vernda vini og vanda­ menn í Nígeríu,“ segir í tilkynningu Amnesty International. Frumvarpið var samþykkt á þriðju­ dag nærri einum mánuði eftir að for­ sætisráðherra Breta, David Cameron, hótaði að stöðva alla aðstoð til þjóða sem brytu gegn mannréttindum sam­ kynhneigðra. Þessi ummæli Camerons féllu ekki vel í kramið hjá leiðtogum Afríkuríkjanna sem sökuðu hann um nýlendutilburði. Samkynhneigð er bönnuð í flestum löndum í Afríku, en bannið er fengið úr lögum sem Bretar kynntu afrísku þjóð­ unum, á meðan þær voru á valdi Breta. Refsingarnar í heimsálfunni eru misþungar, ýmist fjársektir eða fang­ elsisvist. Í síðustu viku kallaði Robert Mug­ abe, forseti Simbabve, David Came­ ron „djöfullegan“ fyrir ummæli hans um að krefjast réttinda fyrir samkyn­ hneigða í Afríku. „Látið ekki freistast“ „Látið ekki freistast af þeirri geðveiki. Ef þið farið þá leið, þá munum við refsa ykkur. Þetta er bannað samkvæmt náttúrunni. Þetta þekkist ekki á með­ al skordýra og þess vegna hef ég sagt samkynhneigða vera verri en svín og hunda,“ var haft eftir Mugabe í síðustu viku. Talsmaður ríkisstjórnarinnar í Úg­ anda, Fred Opolot, sagði ummæli Camerons verða til þess að þjóðin reyndi að verða sjálfbærari til þess að þurfa ekki að fara að tilmælum Came­ rons. „Við vinnum að því að minnka þörf okkar á aðstoð erlendra ríkis­ stjórna út af þessu,“ var haft eftir hon­ um. „Yfirlýsing Camerons er vitlaus. Okkar menning og siðferði viðurkennir ekki samkynhneigð.“ Þora ekki að tilkynna ofbeldisglæpi Málið hefur valdið samkynhneigðum Nígeríumönnum miklum áhyggjum. Einn þeirra er Rashidi Williams, 25 ára samkynhneigður karlmaður, sem var laminn á hrottalegan hátt ásamt kær­ asta sínum í fyrra. Ástæða árásarinnar var kynhneigð þeirra. Williams segir í samtali við AP­fréttastofuna að árásir sem þessar séu ekki óalgengar í Níger­ íu. Samkynhneigðir einstaklingar þori ekki að tilkynna slíkar árásir til yfir­ valda af ótta við frekari barsmíðar. „Ég fór á sjúkrahús eftir árásina en ég þorði ekki að segja frá því sem hafði gerst. Þessi mál eru ekki tilkynnt til yfirvalda í Nígeríu. Það þýðir samt ekki að vanda­ málið sé ekki til staðar. Fólk er drepið vegna kynhneigðar sinnar.“ n nígeríska þingið samþykkti frumvarp um bann við samkynhneigð n Forsætisráðherra Breta ærir leiðtoga Afríkjuríkja með hótun „Ekki freistast af þeirri geðveiki“ „Okkar menning og siðferði viðurkennir ekki samkynhneigð. Birgir Olgeirsson blaðamaður skrifar birgir@dv.is Barn sakað um kynferðislega áreitni Sjö ára gamall drengur er sakaður um kynferðislega áreitni eftir að hafa sparkað í hreðjar annars drengs. Drengurinn er frá Boston í Bandaríkjunum, en í samtali við dagblaðið Boston Globe segir móðir drengsins hann hafa verið að verja sig fyrir hrotta sem var að stríða honum. Móðirin sagði atvikið hafa átt sér stað í skólarútu í síðasta mán­ uði. Hún segir hinn meinta hrotta hafa kæft son sinn í rútunni og stolið af honum hönskunum. Sonur hennar hafi því varið sig með því að sparka í pung kvalara síns. „Ég held að sonur minn hafi verið í fullum rétti,“ sagði móð­ irin, Tasha Lynch, í samtali við Boston Globe. „Hann gerði ekk­ ert annað en að verja sjálfan sig.“ Þegar Lynch ákvað að grennslast fyrir um málið hjá skólayfirvöld­ um komst hún að því að sonur hennar hefði verið sakaður um kynferðislega áreitni. Yfirstjórn skólans hefur neitað að tjá sig um málið en lét hafa eftir sér að litið væri á hvers konar óviðeig­ andi snertingu sem kynferðislega áreitni. Hættur við framboð Herman Cain hætti við fram­ boð sitt til forseta í Bandaríkj­ unum um liðna helgi. Ákvörð­ unina kynnti hann sjálfur í ræðu á laugardag sem hann hélt fyrir fjölda stuðningsmanna. Í ræð­ unni neitaði hann ásökunum um kynferðislega áreitni en sagði að ásakanirnar hefðu tekið sinn toll hjá sér og fjölskyldunni og að þær hafi jafnframt dregið athyglina frá markmiði hans og boðskap. „Ég er í sátt við guð. Ég er í sátt við eiginkonu mína og hún er í sátt við mig,“ sagði Cain meðal annars í ræðu sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.