Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Blaðsíða 20
N’Zogbia í skammarkróknum
n Sektaður og fékk ekki að spila gegn Man. United
V
ængmaðurinn Charles
N’Zogbia er búinn
að koma sér í vand-
ræði hjá Alex McLeish,
knattspyrnustjóra Aston Villa.
N’Zogbia mætti ekki einu
sinni til sjúkraþjálfara í vik-
unni sem áttu að hjálpa hon-
um vegna eymsla sem hann
fann fyrir í fæti. Þar sem hann
mætti aldrei sektaði McLeish
Frakkann og hafði hann ekki
einu sinni í hóp gegn Manc-
hester United þegar Eng-
landsmeistararnir komu í
heimsókn á laugardaginn.
Gestirnir fóru með 1–0 sigur
af hólmi þar sem Phil Jones
skoraði sitt fyrsta mark fyrir
Manchester United.
N’Zogbia er þekktur fyrir
að fá stjóra sína upp á móti
sér á einhverjum tímapunkti
en frægt varð atvikið þegar Joe
Kinnear kallaði hann „Charl-
es Insomnia“ hjá Newcastle
fyrir tveimur árum. Varð það
til þess að hann yfirgaf félagið
fyrir Wigan.
„Charles mætti aldrei í síð-
ustu viku þegar hann átti að
mæta og hann verður því að
taka þessu. Nú er það undir
honum komið að sýna okkur
hversu öflugur leikmaður
hann er,“ segir Alex McLeish,
stjóri Aston Villa.
N’Zogbia hefur engan veg-
inn náð að sýna þá takta sem
hann sýndi hjá Wigan eftir
komu sína til Aston Villa en
undir lok tímabilsins bjargaði
hann Wigan nánast einn síns
liðs frá falli.
„Það hefur enginn í lið-
inu geta litið í spegil og sagt
við sjálfan sig: „Ég er búinn
að standa mig frábærlega fyr-
ir stjórann og hann getur ekki
sleppt því að hafa mig með í
liðinu.“,“ segir McLeish. „Við
höfum átt góða frammistöðu
nokkrum sinnum en ég er að
leita að mönnum sem þrá að
spila í hverri viku og gera allt
til þess að svo verði. Þannig
virkar alvörufótboltalið.“
20 Sport 5. desember 2011 Mánudagur
Áfall fyrir
Newcastle
Steven Taylor, miðvörður
Newcastle, þarf að fara í upp-
skurð vegna meiðsla á há-
sin og verður líklega frá út
tímabilið. Þetta eru hræðileg
tíðindi fyrir Newcastle sem
er í baráttunni um Meistara-
deildarsæti eins og staðan
er í ensku úrvalsdeildinni.
Taylor hefur spilað frábær-
lega við hlið Argentínumanns-
ins Fabricio Collocini en
vörn Newcastle hefur verið
að stórum hluta ástæða góðs
gengis liðsins. Vonast er til að
aðgerðin verði til þess að fjar-
vera Taylors verði styttri en
talsmaður félagsins sagði á
sunnudaginn að miðvörður-
inn yrði líklega frá út tíma-
bilið.
Anelka á
förum
Franski framherjinn Nicolas
Anelka hefur sætt sig við að
vera úti í kuldanum hjá Chel-
sea og ætlar að yfirgefa félagið
um leið og félagaskiptaglugg-
inn opnar í janúar. „Ég hef vit-
að í þó nokkurn tíma hvar ég
verð 2. janúar,“ segir Anelka.
„Chelsea ætlar sér að vinna í
framtíðarleikmönnum félags-
ins og ég sem sannur atvinnu-
maður tek því.“ Ekki er vitað
hvar Anelka lendir en ekki er
ólíklegt að hið nýríka franska
félag Paris Saint-Germain
reyni við landsliðsframherj-
ann. Anelka hefur lítið komið
við sögu hjá Andre Villas-
Boas, stjóra Chelsea undan-
farið.
Sektaður N’Zogbia þarf að borga
fyrir trassaskapinn. Mynd ReUteRS
Ragna gaf
leikinn
Badmintonkonan Ragna
Ingólfsdóttir gaf úrslita-
leikinn á alþjóðlega velska
mótinu sem hún keppti á um
helgina. Ragna tognaði í læri
og fékk því mótherji hennar,
Nicole Schaller frá Sviss,
sigurinn á silfurfati. Ragna
fer því ekki á alþjóðlega írska
mótið um næstu helgi eins
og til stóð. Næsta mót sem
Ragna keppir á er alþjóðlega
sænska mótið 19.–22. janúar
næstkomandi.
Rándýrt en
spennandi
Þ
að lá mikil spenna í
loftinu,“ segir Hannes
S. Jónsson, formað-
ur Körfuknattleiks-
sambands Íslands,
um dráttinn í Evrópukeppni
landsliða sem fram fór í höf-
uðstöðvum FIBA Europe á
sunnudaginn. „Það var tvennt
sem við vorum að horfa til.
Hversu löng ferðalög myndu
bíða okkar og hversu sterkum
þjóðum við myndum mæta,“
segir Hannes. Því var fljótsvar-
að þegar kom að drættinum.
Ferðalögin gátu vart verið mik-
ið lengri en Ísland dróst í rið-
il með Serbíu, Svartfjallalandi,
Ísrael, Slóvakíu og Eistlandi.
„Þetta er ótrúlega spennandi
en krefjandi samt sem áður. Ég
segi að það sé frábært að mæta
Serbum sem er og hefur verið
ein fremsta körfuboltaþjóðin
til margra ára. Það er frábært
tækifæri að fá Serbíu heim og
mæta henni úti. Þetta verður
erfitt verkefni en ótrúlega
spennandi,“ segir Hannes.
Urðu að vera með
Ekki er langt síðan landsliðið
var endurvakið eftir tveggja
ára hlé. Var það meðal ann-
ars vegna þess að Ísland er ein
þeirra þjóða sem hefur barist
hvað harðast fyrir breyting-
um á keppnisfyrirkomulaginu.
Hingað til hefur þjóðum verið
skipt niður í A-, B- og C-deild-
ir og hefur því minni þjóðum
aldrei gefist kostur á að spila
við stóru strákana. Með kjöri
Ólafs Rafnssonar sem forseta
FIBA Europe hefur það breyst
og er keppnisfyrirkomulagið
nú svipað og þekkist í fótbolt-
anum – undanriðlar og styrk-
leikaröðun.
Hannes viðurkennir að Ís-
land sé að fara taka á sig erf-
iðan pakka fjárhagslega séð
en ekki hafi verið annað hægt
en að taka þátt. „Keppnisfyr-
irkomulagið er búið að vera
mikið baráttumál hjá okkur og
það er ein helsta ástæða þess
að við skráðum okkur aftur til
leiks. Þetta mun kosta okkur
ansi mikið en þar sem þetta
hefur verið okkur svo mikið
kappsmál rann okkur einfald-
lega blóðið til skyldunnar,“ seg-
ir Hannes.
Reyna að hagræða ferðum
Hannes er ytra að ræða við hin
liðin í riðlinum og reyna að
komast að samkomulagi um
leikdaga og tíma en allir leik-
irnir verða spilaðir á milli 15.
ágúst og 11. september á næsta
ári. Vegna fjölda ferðalaga þarf
Hannes að reyna að raða þeim
upp á sem hagstæðasta mát-
ann. „Óskadæmi fyrir okkur er
til dæmis að spila við Serbíu og
Svartfjallaland í sömu ferðinni
en ekki koma til dæmis heim
á milli þeirra leikja. Það væri
best til að gera ferðalagið sem
ódýrast,“ segir Hannes en þær
viðræður eru Íslandi mikil-
vægari en öðum þjóðum.
„Það er frekar mikilvægt
fyrir okkur en þá þurfa nátt-
úrulega allar þjóðirnar í riðl-
inum að vera samstíga. Hver
og ein þjóð þarf að taka þátt
í þessu. Þetta kemur ekkert í
ljós í dag heldur á næstu dög-
um,“ segir Hannes sem gælir
við þriðja sætið í riðlinum.
„Leikirnir gegn Serbíu, Ísrael
og Svartfellingum verða erf-
iðir en við eigum að geta unn-
ið Slóvaka og Eista. Mér finnst
við allt eins geta stefnt á þriðja
sætið í riðlinum.“
Ríkið þarf að hjálpa til
„Við erum að taka ansi mikla
áhættu með þessu,“ segir
Hannes um fjárhagslegu hlið-
ina og bætir við að þessi Evr-
ópukeppni sé pakki upp á að
minnsta kosti 20 milljónir ís-
lenskra króna. Hingað til hefur
KKÍ verið duglegt að minnka
hjá sér skuldirnar er nú á
henda sér aftur í djúpu laug-
ina og til þess þurfi hjálp. „Við
þurfum að treysta á að fyrir-
tækin heima á Íslandi hjálpi
okkur. Sérstaklega þarf svo rík-
isvaldið að fara að endurskoða
sín mál varðandi hvað það er
að setja í afreksíþróttir,“ segir
Hannes og fullyrðir að Ísland
sé að fá langminnst þjóðanna
í kringum okkur, samt séu þær
þjóðir sumar hverjar að kvarta.
„Við eigum alltaf að taka
þátt í mótum bestu þjóða en
fáum aldrei pening til þess.
Það er bara grín það sem er í
gangi núna miðað við aðrar
þjóðir í kringum okkur. Ég er
alls ekki að segja að ríkisvaldið
eigi að borga allt saman, okk-
ur ber skylda til að finna styrki,
en það er hægt að gera miklu
meira. Það er orðið áhyggju-
efni þegar stjórnmálamenn
hafa engan áhuga á afreks-
íþróttum nema þegar árangur
næst. Það er ekkert alltaf hægt
að ná árangri með ekkert á
milli handanna,“ segir Hannes
S. Jónsson, formaður KKÍ.
n Ísland í erfiðum riðli í evrópukeppni landsliða í körfubolta
n 20 milljóna króna pakki n Vantar meiri aðstoð frá ríkinu
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Körfubolti
Mæta toppliði Ísland fær Serba, sem er ein allra stærsta og besta
körfuboltaþjóðin, í heimsókn. Mynd AMe
Vill meiri aðstoð Hannes Jóns-
son, formaður KKÍ, vill að ríkið styðji
betur við bakið á afreksíþróttum.