Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Qupperneq 17
Ég sá eftir
fjölskyldulífinu
Ég er ekki hræddur
við það að deyja
Stelpurnar voru
stórkostlegar
Rithöfundurinn Vigdís Grímsdóttir um viðskilnaðinn við eiginmann sinn. – DVSálfræðingurinn Hugo Þórisson greindist með krabbamein. – DVLandsliðsþjálfarinn Ágúst Jóhannsson um sigur Íslands á Svartfellingum. – Vísir
Hátíð barnanna Gleðin skein úr hverju andliti í árlegu jólakaffi Hringsins, sem haldið var á Broadway á sunnudag. Jólasveinar tóku forskot á sæluna og litu við, en í dag er vika þar til Stekkjastaur kemur til byggða.
mynd Eyþór árnason
Myndin
Mest lesið á DV.is
1 „Heiðursmenn geta misstigið sig“
Egill „Gillzenegger“ Einarsson um
framhjáhald Tiger Woods í viðtali við
Sölva Tryggvasyni í desember 2009.
2 Sveinn Andri um kæruna: „Femínistar hata Egil Gilz.“
„Það er augljóst af þessum skrifum að
femínistar hafa hafið herferð á hendur
Agli Gilz,“ segir lögfræðingurinn.
3 Stærsta padda í heimi þrisvar sinnum þyngri en mús
Maður á Nýja-Sjálandi hefur fundið
stærstu pöddu í heimi.
4 Hetja vill hjálpa veikum börnum
Nikola Dudko, þrettán ára stelpa sem
berst við hvítblæði, vill hjálpa veikum
börnum.
5 Njósnaskjölin: Fylgst með tölvupóstum og farsímanotkun
Njósnaskjölin frá Wikileaks sýna að
njósnað hefur verið um notendur
tölvupóstforrita, staðsetningartækja og
farsíma í lengri tíma.
6 Ólafur Þórðarson er látinnEinn ástælsasti tónlistarmaður
þjóðarinnar, Ólafur Þórðarson, lést á
Grensásdeild Landspítala á sunnudag.
Umræða 17mánudagur 5. desember 2011
Nauðvörn úr launsátri
G
unnlaugur Sigmundsson auð-
maður er viðkvæm sál sem ekki
má vamm sitt vita. Fyrir áratug-
um síðan fjallaði blaðamaður
Morgunblaðsins um þá skemmtilegu
atburðarás sem endaði með því að
fyrirtækið Kögun komst í eigu Gunn-
laugs sem er einn þeirra framsóknar-
manna sem gengið hafa götuna frá
stjórnmálum til allsnægta. Til þess
að fyrirbyggja misskilning og mál-
sókn skal tekið fram að Svarthöfði
trúir því staðfastlega að Gunnlaugur
hafi auðgast með einkar heiðarlegum
hætti og hegðað sér í hvívetna eins og
sæmandi er góðum dreng.
Gunnlaugur er fyrst og fremst
stálheppinn. Sem þingmaður hafði
hann aðgang að ýmsu sem hulið er
almennum borgurum. Og þar sem
hann er skynsamur þá fylgdist hann
með og greip tækifærin sem gáfust.
Á meðal þess var þetta fína fyrirtæki,
Kögun, sem nauðsynlegt var að koma
úr eigu ríkisins og í einkaeigu. Gunn-
laugur nýtti sér það tækifæri með
fullkomlega löglegum og siðsömum
hætti.
Bloggarinn Teitur Atlason sem býr
í Svíþjóð las grein Moggans þar sem
lýst var óhreinu mjöli í pokahorni
Gunnlaugs. Á þeim grunni fjallaði
Teitur um greinina á bloggi sínu. Sá
strangheiðarlegi auðmaður, Gunn-
laugur, stefndi bloggaranum að sjálf-
sögðu fyrir dóm og krafðist aleigu
hans í bætur. Hann þurfti auðvitað
ekki peninga en æran var í húfi. Og
þegar stuðningsmenn Teits í blogg-
heimum og víðar hófu að hrauna
yfir Gunnlaug féllust honum hendur.
Hann hafði auðgast af eigin hyggind-
um og komið sér vel fyrir í lífinu en
sætti árásum.
Gunnlaugur sá sér ekki ann-
að fært en að gera nýja árás á Teit
bloggara til að þagga niður í hon-
um. Hann ákvað að senda hon-
um sms úr leyninúmeri og reka
hann frá Svíþjóð. Þarna var vesa-
lings auðmaðurinn í nauðvörn að
berjast við ósigrandi her bloggara
og mannorðsmorðingja. Þetta var
Davíð gegn Golíat. Prinsessan gegn
drekanum. Auðvitað reyndi Gunn-
laugur að verja æru sína með því að
gera bloggarann bæði gjaldþrota
og hræddan. Hinar nafnlausu hót-
anir voru einungis máttvana tilraun
til að verja heiður sem var á góðri
leið með að fjúka út í hafsauga. Það
hljóta allir menn að skilja. Svarthöfði
ítrekar að Gunnlaugur er stálheiðar-
legur auðmaður sem hótar úr laun-
sátri án þess að meina illt með því.
Hann mun nú halda áfram að sækja
opinberlega að fjárhag bloggarans í
því skyni að gera hann gjaldþrota.
Svarthöfði
Hvað er íslenzk menning?
M
Menning er að gera hlutina
vel, sagði bróðir minn, Þor-
steinn Gylfason prófessor.
Eftir skilgreiningu hans
kynni íslenzk menning að virðast
standa höllum fæti, því svo rammt
kveður að fúskinu, sem einkenn-
ir ýmsa þætti þjóðlífsins. Skýrsla
rannsóknarnefndar Alþingis frá
2010 lýsir vandanum vel. Skýrslan
lýsir opinberri stjórnsýslu, þar sem
varla stendur steinn yfir steini. Einn
þriggja nefndarmanna sagðist í sjón-
varpi hafa verið gráti næst við gerð
skýrslunnar. Skýrsla RNA og aðrir
vitnisburðir lýsa stjórnmála- og við-
skiptalífi, sem er morandi í spillingu.
Byggingabransinn er kapítuli út af
fyrir sig eins og margir vonsviknir
húsbyggjendur hafa vitnað um fyrir
rétti. Ég gæti haldið áfram.
En bíðum við. Þjóðlífið snýst ekki
bara um stjórnsýslu, byggingar og
viðskipti. Í mörgum öðrum greinum
gera margir Íslendingar hlutina vel,
meira að segja mjög vel á heims-
vísu. Tökum sinfóníuhljómsveit-
ina. Þar fær enginn hljóðfæraleikari
stöðu, nema hann eða hún hafi stað-
izt blint próf. Hljóðfæraleikararnir
eru látnir spila á bak við tjald, svo
að valnefndin sjái þá ekki. Þetta er
gert til að girða fyrir klíkuskap. Álit-
legur hluti hljóðfæraleikaranna er
útlendingar. Enginn spyr um flokks-
skírteini.
Söngskólinn í Reykjavík er annað
dæmi (játning: ég sit þar í stjórn).
Söngskólinn hefur frá öndverðu haft
náið samstarf við Konunglegu tón-
listarskólana í Bretlandi „The Asso-
ciated Board of the Royal Schools
of Music“. Öll lokapróf frá skólanum
hafa verið tekin í samvinnu við
ABRSM, prófdómarar þaðan hafa
dæmt prófin og nemendur hlotið
prófskírteini, sem njóta alþjóðlegrar
viðurkenningar. Tónlistarskólarnir
um landið hafa á heildina litið tekið
stakkaskiptum. Fyrir hálfri öld voru
þúsund nemendur skráðir í tónlist-
arskóla, og nú er fjöldi skráðra nem-
enda um fimmtán þúsund. Tónlistin
blómstrar.
Ég get haldið áfram. Heilbrigðis-
þjónusta á Íslandi er að mörgu leyti
til fyrirmyndar þrátt fyrir sáran fjár-
skort. Þetta sést meðal annars á því,
að í aðeins sex löndum heimsins
lifir mannfólkið lengur en á Íslandi
(81,5 ár hér að meðaltali, konur
83,3 ár, karlar 79,7). Þessi sex lang-
lífislönd eru örríkin Liechtenstein
og San Marínó, sem á heimsmetið
(83 ár), og auk þeirra Hong Kong,
Ísrael, Japan og Sviss (heimild: Al-
þjóðabankinn). Margir foreldrar
eru fyrir hönd barna sinna hæst-
ánægðir með leikskólana og grunn-
skólana þrátt fyrir lág kennara-
laun, og þannig mætti lengi telja.
Sonarsonur minn kom uppveðrað-
ur heim úr skólanum, hann var sex
eða sjö ára, og vildi vita meira um
Fjalla-Eyvind og Höllu. Hann er að
læra á barítónhorn. Það er íslenzk
menning.
(Ég var beðinn um 400 orð um ís-
lenzka menningu handa tímariti fyr-
ir útlendinga, sem kemur út á nýju
ári, og niðurstaðan varð þessi.)
„Heilbrigðis-
þjónusta
á Íslandi er að
mörgu leyti til
fyrirmyndar þrátt
fyrir sáran fjár-
skort
Kjallari
Þorvaldur
Gylfason