Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2012, Blaðsíða 4
þeirra komst í flotgalla og eru því
engar líkur taldar á að þeir séu á lífi.
Fyrsta ferð með togaranum
Mennirnir fjórir voru að sigla sína
fyrstu ferð með togaranum, en þeir
höfðu ráðið sig í gegnum skipasölu
til þess að ferja skipið til Noregs, þar
sem það átti að fara í brotajárn.
Ljóst er að öryggismálum um
borð í skipinu var ábótavant, því
einn þeirra sem saknað er náði
einnig að klæða sig í flotgalla, en
hann lak og var því í raun ónýtur.
Mennirnir tveir sem komust í flot-
galla lentu báðir í sjónum og hefur
talsmaður norsku strandgæslunnar
það eftir Eiríki að þeir hafi barist um
í brjáluðu veðri og mikilli ölduhæð.
Þá hafi á endanum rekið frá hvor
öðrum.
Brást hárrétt við aðstæðum
Eiríkur Ingi var lagður inn á sjúkra-
hús í Álasundi í Noregi, en var út-
skrifaður eftir hádegi á fimmtudag.
Í norskum fjölmiðlum er haft eftir
flugstjóra björgunarþyrlunnar sem
bjargaði Eiríki, að hann hafi brugðist
hárrétt við aðstæðum.
Hann segir að vindhviður á svæð-
inu hafi verið svo öflugar að réttast
væri að tala um fellibyl. „Við fundum
brak og muni úr skipinu, björgunar-
bát, björgunarhringi og ljóskastara,“
segir Olver Arness við norskan fjöl-
miðil.
Áhöfn þyrlunnar kom síðan auga
á Eirík Inga þar sem hann rak um í
sjónum. Myrkur var skollið á, aftaka-
veður og aðstæður því mjög erfiðar
til leitar. Áhöfn björgunarþyrlunnar
notaði öflugan ljóskastara til að lýsa
upp hafflötinn. Eiríkur var ekki með
ljós á sér en endurskinsmerki á gall-
anum varð til þess að áhöfnin kom
auga á hann.
Flugstjórinn segir að Eiríkur Ingi
hafi verið í ótrúlega góðu ásigkomu-
lagi. „Þegar við náðum honum
um borð gat hann sagt okkur hvað
hafði gerst. Hann hafði mjög góða
yfirsýn.“
Flugstjórinn segir að Eiríkur hafi
klætt sig í flotbúninginn áður en
skipið sökk og eftir að hann lenti í
sjónum hafi hann notað alla orku
sína til þess að halda sér á floti.
Eiríkur lýsti því síðan hvernig
ofsaveðrið feykti skipverjunum í sjó-
inn og hvernig björgunarbátinn rak í
burtu frá þeim, án þess að þeir næðu
að komast um borð í hann. n
4 Fréttir 27.–29. janúar 2012 Helgarblað
Tangabryggja 14-16, 110 Rvk.
S. 567 4840 www.hofdahollin.is
RÝMINGARSALA!
E
iríkur Ingi Jóhannsson, skip-
brotsmaðurinn sem bjargað-
ist eftir að togarinn Hallgrím-
ur SI sökk á miðvikudag, lýsti
því fyrir norsku strandgæsl-
unni að skyndilega um miðjan dag
hafi komið mikill leki að skipinu. Það
hafi síðan sokkið hratt með hávær-
um skellum og brestum. Eiríkur er 36
ára, fjögurra barna faðir og var lang-
yngsti skipverjinn um borð.
Hinir mennirnir þrír, sem tald-
ir eru af, eru allir um sextugt. Þeir
eru Magnús Daníelsson, skipstjóri
á skipinu, Gísli Garðarsson og Ein-
ar Gunnarsson, fyrrverandi kenn-
ari í Stýrimannaskólanum, allir
þrautreyndir sjómenn með áratuga
reynslu.
Kraftaverk má teljast að Eiríkur
hafi lifað af, en hann náði að klæða
sig í flotgalla sem bjargaði lífi hans.
Skipið sökk um klukkan 14.30 á mið-
vikudag og bjargaðist Eiríkur úr sjón-
um um klukkan 18. Hann hafði því
verið í ísköldum sjónum í um þrjár
og hálfa klukkustund. Eiríkur hefur
starfað sem tækniköfunarkennari og
hefur því góða reynslu af því að vera
í köldum sjó. Ölduhæðin á svæðinu
var 15 til 18 metrar.
Hann lýsti því fyrir björgunar-
mönnum að hann hafi séð tvo af
skipverjunum, sem báðir voru vin-
ir hans, hverfa í sjóinn. Hvorugur
n Eiríkur sá félaga sína hverfa í sjóinn n Togarinn nýkominn með leyfi
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
„Við fundum brak
og muni úr skipinu,
björgunarbát, björgunar-
hringi og ljóskastara.
Hallgrímur S I77
FÆRE YJAR
S K O T L A N D
Í S L A N D
N O R E G U R
Á miðju Atlantshafi
Ölduhæð var 15 til 18
metrar þegar skipið fórst.
Neyðarkall barst frá
Hallgrími SI 77 kl. 13.
14 að íslenskum tíma.
Togarinn var þá um
150 sjómílur norð-
vestur af Álasundi.
Neyðarkall
Á l a s u n d
kraftaverk
að hann
lifði af
Fékk nýtt
skírteini
í ársbyrjun
Siglingastofnun gaf út nýtt haf-
færiskírteini fyrir Hallgrím SI þann
5. janúar síðastliðinn með gildis-
tíma til 2. maí. Gamla haffæri-
skírteinið rann út fyrir nokkrum
mánuðum síðan. Fullyrt er við
DV að síðasta sumar hafi verið
gerðar margar athugasemdir við
ástand skipsins. Skipið var því án
haffæriskírteinis í nokkurn tíma.
Til þess að skip geti fengið haf-
færiskírteini þarf það að standast
skoðun. Helgi Jóhannesson er
forstöðumaður stjórnsýslu-
sviðs Siglingastofnunar. Hann
segir að engar athugasemdir
hafi verið gerðar við skipið við
síðustu skoðun, en það er ekki
á forræði Siglingastofnunar
sjálfrar að skoða skipin heldur eru
það sjálfstæðar skoðunarstofur
skipa og flokkunarfélög sem sjá
um það. „Það var skoðað í byrjun
árs og gefið út haffæriskírteini í
framhaldi af því með gildistíma til
2. maí,“ segir Helgi. Ekkert liggur
hins vegar fyrir um hvernig sú
skoðun fór fram.
Áður en haldið er úr höfn er
skipstjórum skylt að ganga frá
lögskráningu á skipinu, þar sem
áhafnarmeðlimir eru skráðir á
vefsíðu Siglingastofnunar. Helgi
hjá Siglingastofnun staðfestir að
lögskráning skipsins hafi verið í
lagi og það því nægilega mannað.
Á haffæriskírteininu sem gefið
var út 5. janúar á þessu ári kemur
fram að útgerðarfélagið Ásvellir
ehf. á Siglufirði sé skráður eigandi
skipsins. Framkvæmdastjóri
og stjórnarformaður útgerðar-
innar er Arnar Sverrisson. Hann
segist í samtali við DV hafa selt
skipið „bara núna á allra síðustu
dögum“, eins og hann orðaði það.
Þrátt fyrir að hafa verið ítrekað
spurður hver væri kaupandinn
að skipinu vildi hann ekki gefa
það upp og bar fyrir sig trúnaði
– jafnvel þó skipið hefði farist.
Útgerðarmaðurinn neitar því að
gefa upp hver eigandinn sé og því
er eignarhaldið á huldu ennþá.
Hann vildi heldur ekkert ræða
um hvernig skoðunin fór fram,
en fullyrti að öll öryggisatriði um
borð í skipinu hefðu verið í lagi.
Hann vildi að öðru leyti ekkert
tjá sig.
Hallgrímur SI Var í sinni lokaferð yfir hafið
þegar hann sökk.
Minnisblað lögfræðings Alþingis:
Ekki tími fyrir
stjórnarskrána
Aðallögfræðingur Alþingis hafði
ekki tíma til að meta hvort álita-
mál er varða stjórnarskrá lands-
ins heimiluðu óbreyttum þing-
mönnum að leggja til að fallið
yrði frá landsdómsákæru. Þetta
kemur fram í minnisblaði aðal-
lögfræðings frá því 16. desember
sem unnið var fyrir forseta þings-
ins. Þess sama og ítrekað hefur
verið vitnað í sem rökstuðning
fyrir heimild Alþingis til að taka
þingsályktunartillögu um að falla
frá landsdómsákæru á hendur
Geir H. Haarde til þinglegrar með-
ferðar.
Í niðurlagi álitsins segir að eftir
standi það álitamál hvort þingið
hafi heimild til þess að falla frá
málshöfðun á hendur ráðherra,
nema þá að fyrir liggi tillaga með
samþykki þingsins um að atbeina
forseta verði leitað fyrir niðurfell-
ingu saksóknar. „Tímans vegna
er ekki leitast við að svara þessu
álitamáli hér,“ segir í álitinu en
vitnað er til 29. greinar stjórnar-
skrárinnar. „Forsetinn getur
ákveðið, að saksókn fyrir afbrot
skuli niður falla, ef ríkar ástæður
eru til. Hann náðar menn og veitir
almenna uppgjöf saka. Ráðherra
getur hann þó eigi leyst undan
saksókn né refsingu, sem lands-
dómur hefur dæmt, nema með
samþykki Alþingis. “
Þrátt fyrir tímaleysi lögmanns
kemst aðallögfræðingur Alþing-
is ofar í minnisblaðinu að þeirri
niðurstöðu að málið sé í höndum
Alþingis. „Samkvæmt framan-
sögðu er það Alþingi sem fer með
saksóknarvaldið og er gengið út
frá því að það sé í valdi þess að
gera breytingar á ályktun þess um
málshöfðun á hendur ráðherra.“
Vitnað er í úrskurð landsdóms
frá 3. október vegna frávísunar-
kröfu lögfræðinga Geirs. „Telji
[saksóknari Alþingis] rétt að tak-
marka eða auka við ákæruatriðin,
sem fram koma í þingsályktun-
inni, verður hann að beina því til
Alþingis að samþykkja nýja þings-
ályktun með þeim breytingum,
sem hann telur rétt að gera. Sak-
sóknari Alþingis hefur því hvorki
ákæruvald í málinu né hefur hann
forræði á því hvers efnis ákæran
er,“ segir í álitinu.
Flotgallinn
bjargaði
Eiríkur brást
rétt við að-
stæðum í þessu
hörmulega
slysi. Myndin er
af Facebook.