Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2012, Page 35
Ættfræði | 35Helgarblað 27.–29. janúar 2012
T
óta fæddist á Siglufirði og
ólst þar upp fyrstu fimm árin
en síðan í Keflavík og loks
í Njarðvík. Þá var hún mik-
ið hjá afa sínum og ömmu
á Siglufirði og á Akureyri á sumr-
in á æskuárunum. Hún var í Barna-
skólanum í Njarðvík, lauk landsprófi
við Gagnfræðaskólann í Njarðvík og
stundaði nám við Menntaskólann á
Akureyri. Hún stundaði síðan nám
við Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands og lauk þaðan prófum af ný-
listadeild.
Tóta stofnaði, ásamt fleirum,
matstofuna Á næstu grösum, við
Laugaveg, árið 1978. Þá hafði að
vísu Náttúrulækningafélag Íslands
rekið góðan grænmetisveitingastað
í Reykjavík um árabil, en með mat-
stofunni, Á næstu grösum, var sleg-
inn nýr tónn og rudd braut fyrir nú-
tíma grænmetis- og náttúrufæði.
Tóta hefur sinnt búningahönn-
un hátt í þrjá áratugi og hannað fyr-
ir Þjóðleikhúsið, Borgarleikhús-
ið, Óperuna, ýmsa frjálsa leikhópa,
kvikmyndir og auglýsingar. Hún hef-
ur margoft verið tilnefnd til Grímu-
verðlauna fyrir hönnun sína og
tvisvar hlotið verðlaun fyrir bestu
búninga ársins auk þess sem hún
hannaði búninga fyrir tvær barna-
sýningar ársins.
Tóta hélt sína fyrstu einkamynd-
listarsýningu hjá Nýlistasafninu árið
1984. Hún hefur síðan haldið einka-
sýningar í Reykjavík og á Akureyri
en Gerðuberg hélt sérstakt Sjónþing
um myndlist Tótu árið 2001. Þá hef-
ur hún tekið þátt í ýmsum samsýn-
ingum.
Tóta er auk þess þekkt fyrir út-
saumsteppi sín sem hún hefur hann-
að og saumað um árabil. Auk þess
hefur Tóta sinnt hönnun á töskum,
húfum og skartgripum eins og sjá má
á heimasíðu hennar á: tota-art.com.
Fjölskylda
Eiginmaður Tótu er Tómas Jóns-
son, f. 22.7. 1950, grafískur hönn-
uður. Hann er sonur Jóns Tómas-
sonar, póst- og símstöðvarstjóra í
Keflavík, og Ragnheiðar Eiríksdóttur
húsmóður.
Börn Tótu og Tómasar eru Jón
Tómasson, f. 26.10. 1969, læknir í
Bandaríkjunum; Rut Tómasdóttir,
f. 27.3. 1973, kennari við Verslunar-
skóla Íslands; Ari Tómasson, f. 20.3.
1981, nemi í verkfræði við Háskóla
Íslands; Anna María Tómasdóttir, f.
12.2. 1986, sjónlistafræðingur.
Systkini Tótu eru Jón Sveinsson,
f. 24.12. 1952, búsettur í Reykjavík;
Kristján Sveinsson, f. 6.12. 1954, bú-
settur í Reykjanesbæ; Hulda Sveins-
dóttir, f. 30.7. 1961, búsett í Reykja-
nesbæ.
Foreldrar Tótu eru Sveinn Her-
mann Jakobsson, f. 20.7. 1931, húsa-
smíðameistari í Reykjanesbæ, og
k.h., Margrét Jónsdóttir, f. 21.9. 1934,
húsmóðir.
27. janúar
30 ára
Anna Joanna Jura Austurbrún 2, Reykjavík
Kristíana Kristjánsdóttir Álftahólum 2, Reykjavík
Svanhildur Þóra Jónsdóttir Klukkubergi 34, Hafnarfirði
Bjarni Guðni Jóhannesson Vindakór 9, Kópavogi
Arnar Smári Brynjarsson Engjaseli 65, Reykjavík
Pétur Þór Jónasson Reyrengi 10, Reykjavík
Ása Hrönn Ásmundsdóttir Heiðarvegi 38, Vestman-
naeyjum
Róbert Óli Skúlason Fossvogsbrún 4, Kópavogi
40 ára
Magnús Kristinsson Esjugrund 62, Reykjavík
Lilja Guðlaug Ingólfsdóttir Fellsbraut 3, Skagaströnd
Bjarni Antonsson Kleifakór 3, Kópavogi
Ágúst Sæland Stórakrika 14, Mosfellsbæ
Hlín Albertsdóttir Skíðbakka 1, Hvolsvelli
Sigríður María Reykdal Hlíðartúni 1, Mosfellsbæ
Auður Dagný Jónsdóttir Miðtúni 44, Reykjavík
Linda Þorvaldsdóttir Mávahlíð 28, Reykjavík
Stefanía Bergmann Magnúsdóttir Safamýri 49,
Reykjavík
50 ára
Sólborg Alda Pétursdóttir Skeljatanga 28, Mosfellsbæ
Ríkarður Rúnar Ríkarðsson Dynskógum 3, Reykjavík
Jón Einarsson Hraunbæ 76, Reykjavík
Jónína Guðjónsdóttir Freyjuvöllum 17, Reykjanesbæ
Ársæll Aðalbergsson Skjólsölum 6, Kópavogi
Ingibjörg L. Sigurðardóttir Blikahöfða 8, Mosfellsbæ
Ólafur Hvanndal Álfaskeiði 123, Hafnarfirði
Hlín Baldursdóttir Fögrubrekku 23, Kópavogi
Þórdís Baldursdóttir Réttarholtsvegi 3, Reykjavík
Dana Lind Lúthersdóttir Álfhólsvegi 18a, Kópavogi
Haraldur Jón Ásgeirsson Skeljatanga 22, Mosfellsbæ
60 ára
Elsa Tangolamos Melgerði 24, Kópavogi
Tanja Rut Georgsdóttir Njarðargrund 3, Garðabæ
Krystyna Jadwiga Laskowska Hafnargötu 29, Grindavík
Finnbogi Halldórsson Hrauntúni 45, Vestmannaeyjum
Stefán Jónsson Óðinsvöllum 8, Reykjanesbæ
Ragna Bachmann Egilsdóttir Stígprýði 3, Garðabæ
Ólafur Guðmundsson Hraunbæ 138, Reykjavík
Björn Björnsson Fannafold 169, Reykjavík
Gunnar Örn Hákonarson Kjalarlandi 27, Reykjavík
Ingibjörg Kristín Dalberg Nesbala 60, Seltjarnarnesi
Margrét Bjartmarsdóttir Sandhólum, Húsavík
Sigfús Sigfússon Hlíðargötu 3a, Neskaupstað
Svavar Garðarsson Sunnubraut 11, Búðardal
Guðmundur Bjarnason Baldursson Kirkjuferju
70 ára
Jón Þórarinn Eggertsson Eyri, Akranesi
Viktor Þór Úraníusson Klapparhlíð 18, Mosfellsbæ
75 ára
Jón Guðbjörnsson Strikinu 12, Garðabæ
Agla Tulinius Ásholti 38, Reykjavík
80 ára
Matthildur Friðriksdóttir Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík
Elín Óladóttir Kirkjusandi 1, Reykjavík
85 ára
Kristvin Guðmundsson Valsholti, Borgarnesi
Sigríður Pálsdóttir Urðarbraut 2, Blönduósi
Baldur G. Bjarnasen Birkigrund 9b, Kópavogi
90 ára
Ólafía Sigurðardóttir Miðtúni 42, Reykjavík
Petra Guðrún Stefánsdóttir Austurvegi 5, Grindavík
28. janúar
30 ára
Guðbjörg Hall Vilborgardóttir Snægili 30, Akureyri
Sara Albrechtsen Hverfisgötu 29, Hafnarfirði
Björn Jónatan Ómarsson Sigtúni 25, Patreksfirði
Kjartan Árni Sigurðsson Hringbraut 103, Reykjavík
Beata Maria Nowak Skólastíg 19, Bolungarvík
Gunnar Þórisson Holtabrún 16, Bolungarvík
Þórður Sigurel Arnfinnsson Ásabraut 15, Reykjanesbæ
Thelma Rut Kristinsdóttir Suðurhólum 6, Reykjavík
Ingólfur Finnbogason Viðjugerði 12, Reykjavík
Þórunn Helga Felixdóttir Kjarrmóum 17, Garðabæ
Hrafnhildur Sigmarsdóttir Álfheimum 11a, Reykjavík
Íris Dögg Lárusdóttir Vallarbarði 13, Hafnarfirði
Hlynur Þór Þorleifsson Mjóuhlíð 10, Reykjavík
Sigríður Drífa Þórólfsdóttir Tröllatungu, Hólmavík
40 ára
Jelena Pani Barðastöðum 17, Reykjavík
Jóhann G. Thorarensen Rauðagerði 60, Reykjavík
Óskar Hersir Harðarson Lómatjörn 26, Reykjanesbæ
Bragi Guðmundsson Suðurhólum 6, Reykjavík
Sigríður Anna Emilsdóttir Hamravík 84, Reykjavík
Hanna Lóa Friðjónsdóttir Ægisgrund 15, Garðabæ
Sigurgeir Arnarson Laufskógum 21, Hveragerði
Þóra Guðný Baldursdóttir Huldugili 62, Akureyri
Jón Torfi Halldórsson Stapasíðu 9, Akureyri
Bjarni Snorrason Skólabrú 2, Höfn í Hornafirði
Svanhildur S. Valdimarsdóttir Steðja, Reykholt í
Borgarfirði
Margrét Jósefsdóttir Vallargötu 16, Reykjanesbæ
50 ára
Soffía Guðbjörg Þorsteinsdóttir Álfatúni 12, Kópavogi
Hulda Finnsdóttir Austurvegi 1, Vík
Haukur Arason Grenimel 11, Reykjavík
Ragnhildur Birna Jónsdóttir Litlagerði 8, Hvolsvelli
Steinþór Vigfús Tómasson Skógarási 15, Reykjavík
Unnur Berglind Svavarsdóttir Jörfagrund 2, Reykjavík
Sesselja Unnur Vilhjálmsdóttir Traðarbergi 23,
Hafnarfirði
Guðmundur Jónas Haraldsson Laugavegi 20a, Reykjavík
Friðný Möller Þrymsölum 1, Kópavogi
Egill Birkir Stefánsson Miðstræti 23, Neskaupstað
Arnþór Jónsson Geirastöðum, Bolungarvík
Dóra Fanney Gunnarsdóttir Vatnsholti 4c, Reykjanesbæ
60 ára
Ana Rupina Ferjubakka 14, Reykjavík
Guðmundur Rafn Gunnarsson Herjólfsgötu 2, Vestman-
naeyjum
Björg Þorsteinsdóttir Lindasmára 39, Kópavogi
Guðný Bjarnadóttir Laugarásvegi 13, Reykjaví
70 ára
Bjarni Kristófersson Fossi 2a, Kirkjubæjarklaustri
Pétur Jónsson Austurbergi 38, Reykjavík
Hrefna G. Tómasdóttir Hólagötu 37, Vestmannaeyjum
Sigrid Dagný Kristjánsdóttir Torfufelli 6, Reykjavík
Guðrún Björnsdóttir Ingunnarstöðum, Mosfellsbæ
Elías Guðmundsson Vatnsholti 14, Reykjanesbæ
75 ára
Helga Jóhannsdóttir Hrafnabjörgum 1, Akureyri
Hrafn Sveinbjörnsson Suðurhvammi 25, Hafnarfirði
Bernharður Guðmundsson Blásölum 22, Kópavogi
Guðmundur Þórir Tryggvason Hryggjarseli 20, Reykjavík
80 ára
Guðríður Erna Aradóttir Álfhólsvegi 74, Kópavogi
Kristján Þór Þórisson Lönguhlíð 3, Reykjavík
85 ára
Guðbjörg Þ. Blöndal Frostafold 14, Reykjavík
29. janúar
30 ára
Sara Thi Huong Vu Lautasmára 14, Kópavogi
Aleksandra Maria Cieslinska Eggertsgötu 12, Reykjavík
Ernestas Juska Laugavegi 159a, Reykjavík
Christine Grill Lindarbraut 2, Seltjarnarnesi
Jóhann Björn Birkisson Neshaga 5, Reykjavík
Daði Garðarsson Kelduhvammi 24, Hafnarfirði
Lilja Erla Jónsdóttir Hvassaleiti 20, Reykjavík
Lea Valdís Bergsveinsdóttir Skógarvegi 18, Reykjavík
Guðmundur Stefán Guðmundsson Vestri-Skógtjörn,
Álftanesi
Margeir Lárusson Jórufelli 8, Reykjavík
Sigurlaug Dagsdóttir Eggertsgötu 10, Reykjavík
Jón Smári Eyþórsson Baldursheimi 3, Mývatni
Sigríður Aðils Magnúsdóttir Grænuhlíð 18, Reykjavík
Magni Eduardo Júlíusson Heiðarvegi 47, Vestmannaeyjum
Jose Omar Serralde Monreal Skipholti 27, Reykjavík
Frederik Ömark Laulund Nönnugötu 7, Reykjavík
40 ára
Ljubica Boloban Skagabraut 20, Garði
Ana Maria Fernandez Perez Þorláksgeisla 35, Reykjavík
Magano K. Shiimi Ásmundsson Ljósvallagötu 30,
Reykjavík
Daiva Marusauskiene Bröttuhlíð 16, Mosfellsbæ
Unnar Erlingsson Eyjólfsstöðum, Egilsstöðum
Erlendur Árnason Skíðbakka 3, Hvolsvelli
Iðunn Harpa Gylfadóttir Hamravík 26, Reykjavík
Einar Ingi Marteinsson Njörvasundi 19, Reykjavík
Ólöf Ásta Stefánsdóttir Köldukinn 14, Hafnarfirði
Katý Bjarnadóttir Grundargarði 4, Húsavík
Soffía Inga Axelsdóttir Álsvöllum 4, Reykjanesbæ
Hilmar Jensson Hlíðarhjalla 14, Kópavogi
Anna María Burgess Skálatúni Litluhlíð, Mosfellsbæ
50 ára
Dagný Alda Steinsdóttir Túngötu 18, Reykjanesbæ
Sigurður Arnarsson Gautavík 35, Reykjavík
Guðrún Birgisdóttir Snægili 7, Akureyri
Hulda Haraldsdóttir Norðurtúni 26, Álftanesi
Haraldur Valbergsson Lágseylu 16, Reykjanesbæ
Einar Mathiesen Strýtuseli 10, Reykjavík
Lise Krolykke Sörensen Vesturbergi 96, Reykjavík
60 ára
Anna Kristrún Jónsdóttir Laugavegi 105, Reykjavík
Kristján I. Jóhannesson Hróarsstöðum, Akureyri
Pálmar Sölvi Sigurgeirsson Daltúni 28, Kópavogi
Þorsteinn Bjarnason Litlagerði 11, Reykjavík
Þorsteinn Hermannsson Fannborg 1, Kópavogi
Rósant Aðalsteinsson Þrastarási 44, Hafnarfirði
Ólafur B. Kristjánsson Heiðarbraut 15, Reykjanesbæ
Hafdís Lilja Pétursdóttir Skógarási 3, Reykjavík
Ómar Garðarsson Grundartanga 21, Mosfellsbæ
70 ára
Engilbert Engilbertsson Ársölum 5, Kópavogi
Kristján Sigurðsson Steinási 11, Reykjanesbæ
Jónas Þór Jakobsson Mávabraut 3e, Reykjanesbæ
Hansína Þórarinsdóttir Skipalóni 8, Hafnarfirði
75 ára
Stefán Ólafsson Norðurbakka 15, Hafnarfirði
Guðrún Ragna Pálsdóttir Lautasmára 1, Kópavogi
Erla Jóhannsdóttir Skógarseli 15b, Egilsstöðum
80 ára
Herborg Vernharðsdóttir Fjarðarstræti 19, Ísafirði
Ásgeir Karlsson Reynimel 80, Reykjavík
85 ára
Gunnar Ingimarsson Sléttuvegi 13, Reykjavík
Sigurlaug Jóhannsdóttir Valshólum 2, Reykjavík
Margrét Guðjónsdóttir Kirkjuhvoli, Hvolsvelli
Jónína Marteinsdóttir Lindasíðu 2, Akureyri
S
vavar fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp og í Garpsdal í
Gilsfirði. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræða-
skóla Austurbæjar 1949,
kennaraprófi 1952, myndmennta-
kennaraprófi 1953 og fór námsferð
til Danmerkur 1952. Hann stundaði
dansnámskeið við Íþróttakennara-
skóla Íslands 1962 og 1965, stundaði
enskunám við Georgetown Univer-
sity í Washington DC 1966 og nám
í æfingakennslu og dansi við Uni-
versity of Nebraska og Provo School
of Utah og víðar í Bandaríkjunum
1966–67, auk þess sem hann hefur
sótt fjölda námskeiða hér heima og
erlendis.
Svavar var kennari við Miðbæjar-
skólann í Reykjavík 1952–64, við Æf-
inga- og tilraunaskóla Kennaraskóla
Íslands og Kennaraskóla Íslands
1964–70 og síðan við Æfingaskóla
Kennaraháskóla Íslands frá 1970–
2000. Eftir að Svavar hætti hefðbund-
inni bekkjarkennslu við skólann
sinnti hann stuðningskennslu fyrir
einstaka nemendur og hópa skólans.
Svavar var á yngri árum einn af
aðalkennurum Þjóðdansafélags
Reykjavíkur og kenndi þar dans af og
til um áratugaskeið.
Svavar sat í stjórn Kennarafélags
Miðbæjarskólans 1954–56, í stjórn
Stéttarfélags barnakennara í Reykja-
vík 1956–58 og í stjórn Þjóðdansafé-
lags Reykjavíkur 1953–55 og 1957–59.
Hann er einn af stofnendum Félags
áhugamanna í steinafræði og var rit-
ari þess 1983–86 og einn af stofnend-
um Steinfróða, félags áhugamanna
um jarðfræði og steinafræði við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja.
Fjölskylda
Svavar kvæntist 8.9. 1964 Rósu Guð-
mundsdóttur, f. 26.9. 1929, sér-
kennara. Hún er dóttir Guðmundar
Magnússonar, bónda á Eyjólfsstöð-
um í Fossárdal í Berufirði, og k.h.,
Margrétar Guðmundsdóttur hús-
freyju.
Dóttir Svavars og Rósu er Margrét
Svavarsdóttir, f. 6.4. 1965, félagsfræð-
ingur, kennari og stuðningsfulltrúi,
búsett í Reykjavík, var gift Guðjóni
Steingrími Birgissyni, f. 22.6. 1965,
einleikara og tónlistarkennara og eru
börn þeirra Tumi Steingrímsson, f.
13.12. 1987, Viktor Steingrímsson, f.
9.1. 1993, Ísak Steingrímsson, f. 9.1.
1993, og Emma Sóley Steingríms-
dóttir, f. 7.3. 2001.
Bróðir Svavars var Helgi Guð-
mundsson, f. 25.10. 1936, d. 30.11.
1984, bankaritari og listmálari í
Reykjavík, var kvæntur Hrafnhildi
Maríu Thoroddsen, f. 27.7. 1935,
bókara og eru börn þeirra Guð-
mundur Kristinn, f. 1.4. 1955, d. 21.9.
1980, Mjöll, f. 20.11. 1959, M.Sc. í
stjórnun, Helgi Hrafnkell, f. 9.9. 1961,
rafeindaverkfræðingur, Atli Guðjón,
f. 7.3. 1967, hdl., Steinar, f. 8.1. 1969,
endurskoðandi, og Drífa Jenný, f.
17.5. 1971, sálfræðingur.
Foreldrar Svavars: Guðmundur
Ingólfur Guðjónsson, f. 14.3. 1904, d.
22.4. 1971, skólastjóri Æfinga- og til-
raunaskóla KHÍ og höfundur fjölda
forskriftarbóka, og f.k.h, Jenný Schi-
öth Lárusdóttir, f. 8.5. 1909, d. 17.4.
2005, húsmóðir í Reykjavík.
Ætt
Guðmundur var sonur Guðjóns, b.
í Arnkötludal í Strandasýslu Guð-
mundssonar, b. í Arnkötludal Sæ-
mundssonar, b. á Gautshamri
Björnssonar, pr. í Tröllatungu, lang-
afa Margrétar, langömmu Sighvats
Björgvinssonar, fyrrv. ráðherra.
Björn var bróðir Jóns í Skálholts-
vík, forföður Lýðs Björnssonar sagn-
fræðings og Þórs Magnússonar, fyrrv.
þjóðminjavarðar. Björn var sonur
Hjálmars, ættföður Tröllatunguætt-
ar Þorsteinssonar. Móðir Sæmundar
var Valgerður Björnsdóttir, systir
Finnboga, verslunarmanns í Reykja-
vík, langafa Finnboga Rúts prófess-
ors, föður Vigdísar Finnbogadóttur.
Móðir Guðmundar var Helga Jó-
hannsdóttir frá Svanshóli.
Jenný var dóttir Lárusar, b. á Hliði,
síðast í Selskarði á Álftanesi Ásbjarn-
arsonar, b. og hómópata á Urriðaá
á Mýrum Magnússonar, b. í Hamra-
koti í Andakíl Magnússonar. Móðir
Ásbjarnar var Kristín Sigurðardótt-
ir. Móðir Lárusar var Guðrún, systir
Jóns í Hákoti á Akranesi, langafa Ás-
mundar Stefánssonar, fyrrv. forseta
ASÍ og bankastjóra. Guðrún var dótt-
ir Ásmundar, b. í Miðvogi Jónssonar.
Móðir Ásmundar í Miðvogi var Guð-
rún Ásmundsdóttir, b. á Elínarhöfða
Jörgensen Klingenberg, ættföður
Klingenbergættar. Móðir Jörgensen
Klingenberg var Steinunn Ásmunds-
dóttir, systir Sigurðar í Ásgarði, lang-
afa Jóns forseta og Tómasar Sæ-
mundssonar Fjölnismanns.
Móðir Jennýjar Schiöth var Helga
Guðrún Sigurðardóttir, steinsmiðs
í Reykjavík, þess sem steypti fyrsta
kalksteypuhúsið á Norðurlöndum að
Görðum á Akranesi og fyrsta stein-
steypuhúsið á Íslandi í Sveinatungu
í Norðurárdal, Hanssonar, í Reykja-
vík Jónssonar. Móðir Hans var Kar-
en Schiöth á Kumbaravogi, ættuð frá
Sjálandi. Móðir Sigurðar var Guðríð-
ur Aradóttir. Móðir Helgu Guðrúnar
var Guðbjörg Guðmundsdóttir.
Svavar verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Páll Svavar Schiöth
Guðmundsson
Kennari
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
Myndlistarmaður og búningahönnuður
60 ára á laugardag
80 ára á föstudag
Afmælisbörn helgarinnar
Til hamingju!
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík