Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2012, Síða 11
Ingólfur Árnason: Sæl Lilja, Hvernig
hugsar þú skatt á útflutningsgreinarnar?
Hversu hár á skatturinn að vera og er
hann af brútto útflutningi? Hefur þú hugleitt
afleiðingarnar, það er hættuna á minni
útflutningi?
Lilja Mósesdóttir: Útflutningsgeirinn nýtur
mikils tekjuauka sem er aðeins tímabundinn.
Ef útflutningsfyrirtæki ætla að fjárfesta
miðað við alltof lágt gengi, þá munum við
standa uppi með ónýttar fjárfestingar sem er
kostnaður fyrir samfélagið. Þetta er ástæðan
fyrir því að flestir hagfræðingar mæla með
hvalrekaskatti.
Doddi Gunnars: Sæl Lilja. Ef flokkur
þinn Samstaða kemst til valda, til hvaða
aðgerða til að leiðrétta skuldir
heimilanna yrði gripið til fyrst? Ef einhverra?
Lilja Mósesdóttir: Höfuðstóll lána hefur
hækkað um 40%. Við ætlum að leiðrétta
þessa hækkun, þannig að lán lækki um tæp
20% um leið og við afnemum verðtrygg-
inguna. Þetta er algjört forgangsmál Sam-
stöðu.
Sigurður Sigurðsson: Sæl Lilja og til
hamingju með Samstöðu. Ykkar
stefnumál virðast vera í sama anda og
stefnumál Hreyfingarinnar. Hvers vegna er ekki
meiri „samstaða“ með þér og þeim sem eru nú að
stofna nýja Hreyfingu?
Lilja Mósesdóttir: Hreyfingin hefur verið í
samstarfi við Borgarahreyfinguna og Frjáls-
lynda flokkinn um myndun Breiðfylkingar. Við
vildum ekki vera með í þessum viðræðum fyrr
en við hefðum stjórnmálaflokk. Með því að
stofna flokk gátum við kannað raunveru-
legan stuðning við stefnu okkar.
Svala Jónsdóttir: Hvernig ætlið þið að
fjármagna lækkun á höfuðstól lána?
Hvaðan eiga þeir peningar að koma?
Mun aukin skattheimta ekki bitna á þeim er síst
skyldi?
Lilja Mósesdóttir: Það eru margar leiðir til
að fjármagna leiðréttingu lána. Leiðréttingin
mun kosta um 200 milljarða umfram það
sem gert hefur verið. Hægt væri að skatta
hagnað bankanna sem eru núna um 170
milljarðar. Síðan væri hægt að fara í róttækari
aðgerð sem fæli í sér að taka upp nýjan
gjaldmiðil og skipta froðueignum yfir á lægra
gengi en til dæmis launum.
Fundarstjóri: Ætlið þið að standa fast á
því að halda nafninu Samstaða?
Lilja Mósesdóttir: Já, við munum
gera það. 8 félög heita þessu nafni í fyrir-
tækjaskrá og eitt þeirra er Samstaða í Vestur-
byggð. Við munum því ekki geta boðið fram
undir því nafni í Vesturbyggð.
Ivar Reynisson: Ertu hlynnt
hátekjuskatti?
Lilja Mósesdóttir: Já, en þá vil
ég sjá raunverulegan hátekjuskatt og nota
skatttekjurnar af 4 skattþrepinu til að lækka
skatta á millitekjuhópunum.
Ragnar Eiriksson: Styður þú tillögu um
heimild dómara til að dæma
sameiginlegt forræði og hvernig viltu að
tekið sé á umgengnistálmunum?
Lilja Mósesdóttir: Ég er þeirrar skoðunar að
foreldrar eigi að deila með sér uppeldi barna
sinna og hafa sameiginlegt forræði eftir
skilnað.
Níels Ársælsson: Sæl Lilja. Hver er
afstaða þín til frjálsra handfæraveiða?
Lilja Mósesdóttir: Ég er jákvæð gagnvart
frjálsum handfæraveiðum en óttast að frjáls-
ræðið verði misnotað og að margir fari á slíkar
veiðar. Það þarf að tryggja að svo verði ekki.
Benedikt Traustason: Ertu sammála
þeim rökum Guðmundar Gunnarssonar,
sem komu fram í Silfri Egils, um að
lífeyrisgreiðslur myndu skerðast ef verðtryggingin
yrði afnumin?
Lilja Mósesdóttir: Nei. Ég hef nú meiri trú á
getu forsvarsmanna lífeyrissjóðanna en Guð-
mundur og tel að þeir geti spáð í verðbólgu-
horfur og fjárfest samkvæmt því. Við þurfum
að lækka lífeyri, þrátt fyrir verðtryggingu.
Daði Jónsson: Veist þú hvað stendur
helst í vegi þess að verðtryggingin sé
ekki afnumin?
Lilja Mósesdóttir: Nauðsyn þess að endur-
skipuleggja lífeyriskerfið, þannig að það verði
tvískipt með almannatryggingakerfi sem
tryggi lífeyri fyrir framfærslu og sjóði sem
ávaxta viðbótarlífeyri. Þegar við verðum fyrir
áfalli vegna þess að eitthvað virkar ekki eins
og við héldum, þá viljum við ekki breyta því
sem brást vegna þess að við eigum nóg með
áfallið.
Magnús Jónsson: Hvað finnst þér um
tvöfalt lífeyriskerfi annað ríkistryggt og
hitt háð duttlungum misvitra
stjórnenda?
Lilja Mósesdóttir: Við eigum að hafa
tvískipt lífeyriskerfi til að draga úr áhættu.
Síðan eiga aðeins fulltrúar sjóðsfélaganna að
sitja í stjórnum þeirra til að tryggja arðbærar
en áhættulitlar fjárfestingar.
Baldur Guðmundsson: Ef afdráttarlaus
niðurfelling á lánum heimilanna er
frátalin, hver er skoðanaágreiningur
Samstöðu og VG?
Lilja Mósesdóttir: Vandamál VG er að for-
ystan fer ekki eftir stefnu flokksins og því eru
aðgerðir í litlu samhengi við kosningaloforðin.
Margt gott í stefnu VG en flokkurinn hefur
ekki trúverðugleika. VG leggur til dæmis ekki
jafn mikla áherslu á samvinnufyrirtæki og
atvinnulýðræði (ég gerði það reyndar sem
VG-ingur). VG er ekki með tímamörk á hversu
lengi einstaklingar mega vera þingi.
Svala Jónsdóttir: Nú sýnir sagan okkur
að fleiri framboð gagnast Sjálfstæðis-
flokknum, þar sem fastafylgi hans er
sterkt og annað fylgi dreifist þá á fleiri. Hefur þú
engar áhyggjur af því að þú munir tryggja þeim
völd?
Lilja Mósesdóttir: Nei. Það sem ég hugsa
fyrst og síðast um er að tryggja ákveðnum
málefnum framgang.
Svala Jónsdóttir: Nú segir þú að
framboð þitt sé hvorki til hægri né
vinstri. Í stefnuskrá ykkar segir að
flokkurinn byggi á „grunngildum jafnaðar“ og vilji
„norrænt velferðarkerfi.“ Að hvaða leyti er þetta
ekki vinstri flokkur?
Lilja Mósesdóttir: Við leggjum meira upp úr
þriðju leiðinni, það er að frjáls félagasamtök
fái aukið hlutverk í velferðarþjónustunni.
Auk þess skilgreinir „vinstristjórnin" norrænt
velferðarkerfi rangt. Norrænt velferðarkerfi
tryggir almennan rétt til aðstoðar en ekki
sértækan rétt eins og núverandi stjórnar-
flokkar hafa haldið fram.
Lúðvík Júlíusson: Hvers vegna greiddir
þú atkvæði með lögum sem veita
auðmönnum ívilnun sem losar þá undan
skilaskyldu á fjármagnstekjum sem þeir fá
erlendis? Hvað kostar það okkur mikinn gjaldeyri
á ári?
Lilja Mósesdóttir: Ég hef aldrei fengið botn
í þessa spurningu þína Lúðvík, þrátt fyrir að
hafa beðið um frekari skýringu.
Bjarnþór Aðalsteinsson: Áður fyrr
þegar engin verðtrygging var brann allt
sparifé upp í óðaverðbólgu, engin lán að
hafa nema fyrir útvalda og svo framvegis. Hvað
yrði öðruvísi í dag?
Lilja Mósesdóttir: Fyrir tíma verðtryggingar
var almenningur á Íslandi almennt ekki vel
upplýstur um hvaða áhrif verðbólga hefur á
óverðtryggt sparifé. Við lifum á öðrum tímum
núna.
Ragnar Eiríksson: Styður þú
dómaraheimildina eða ekki? Þetta svar
áðan var ekta stjórnmálamannafroða
finnst mér og vil fá já eða nei.
Lilja Mósesdóttir: Ég vil kynna mér málið
betur áður en ég segi já eða nei. Á ég ekki rétt
á því?
Hrannar Gunnarsson: Lilja, með
hverjum heldur þú í ensku?
Lilja Mósesdóttir: Ég hef lítið vit
á íþróttum og reyni að koma mér undan að
svara spurningum eins og þessari ;)
Ásta Sigrún Magnúsdóttir: Hver er
afstaða flokksins til Evrópusambandsins?
Lilja Mósesdóttir: Að hagsmunum
Íslands sé á þessari stundu best borgið utan
ESB. Kennum okkur við lýðræði og viljum því
klára samningaviðræðurnar og láta þjóðina
kjósa um aðild sem fyrst.
Ásgeir Einarsson: Miðað við
stefnuyfirlýsingar ykkar þá eruð þið
vinstri flokkur, en af einhverjum
ástæðum segið þið að þið séuð það ekki. Hvaða
hægri sjónarmiðum er haldið uppi hjá ykkur.
Lilja Mósesdóttir: Við leggjum áherslu á
einstaklingsfrelsi í atvinnulífinu og viljum
ekki aðeins ríkisrekstur heldur einkarekstur
og samvinnurekstur.
Svala Jónsdóttir: „Það eru margar leiðir
til að fjármagna leiðréttingu lána.“ Er
það ekki staðreynd að þið munið þurfa
að hækka skatta til þess að geta lækkað
höfuðstól lána?
Lilja Mósesdóttir: Nei, það hef ég aldrei lagt
til.
Anna Sverrisdóttir: Sæl Lilja. Hvernig
ætlar þú að fjármagna 20%
niðurfellingu skulda landsmanna?
Lilja Mósesdóttir: Ég hef lagt til að við
tökum upp nýjan gjaldmiðil á mismunandi
skiptigengi. Ég er líka hrifin af hugmynd
Steven Keen um að Seðlabankinn prenti
peninga til að fjármagna leiðréttinguna.
Halla Rut: Hvað finnst þér um hækkun á
tekjuskatti fyrirtækja í 20%. Vilt þú hafa
hann hærri, lægri eða eins?
Lilja Mósesdóttir: Við vorum með lægsta
tekjuskatt fyrirtækja fyrir hrun og ég er sátt
við hann verði áfram 20%. Ég vil hins vegar
lækka tryggingagjaldið til að fyrirtæki geti og
vilji ráða fleira starfsfólk.
Sigurður Sigurðsson: Lilja, styður þú
tillögur stjórnlagaráðs að nýrri
stjórnarskrá. Ef ekki, gætir þú þá
rökstutt svarið eða sagt hvers vegna?
Lilja Mósesdóttir: Ég styð margar tillögur
stjórnlagaráðsins en hefði til dæmis viljað
sjá tillögu um fækkun þingmanna og 3.
stjórnsýslustigið.
Gísli Baldvinsson: Einhvern veginn
týndist svarið þitt um 200 milljarða
lánið. 170 milljarðar með sköttun
bankanna. Ik, en hvað með afganginn?
Lilja Mósesdóttir: 30 milljarða yrði þá að
fjármagna með öðrum hætti eins og peninga-
prentun Seðlabankans (Steven Keen)
Alma Guðmundsdóttir: Hvaða stefnu
hefur X-C varðandi sveitarstjórnarstigið
og völd þeirra. Á sveitarstjórnarstigið að
hafa svo mikið vald yfir staðbundnum
auðlindum?
Lilja Mósesdóttir: Í dag er stjórnsýslan í
málaflokkum sem sveitarfélögin eru með
í Reykjavík og við viljum breyta því með
svæðaþingum. Tekjur af auðlindum og
svæðisbundinni starfsemi á líka að fara aftur
á svæðin til ráðstöfunar
Pétur Jónsson: Hver er afstaða ykkar í
kvótamálum? Ef þið viljið innkalla
hvernig viljið þið endurúthluta?
Lilja Mósesdóttir: Við viljum að gerðir verði
samningar um úthlutun kvóta. Við samnings-
gerðina á að hafa jafnræði, hagkvæmni
og byggðasjónarmið að leiðarljósi. Það er
ætlunin að útfæra þetta betur.
Fundarstjóri: Mjög góð þátttaka hefur
verið á Beinni línu í dag. Margar góðar
spurningar hafa borist sem því miður er
ekki tími til að svara. Þökkum Lilju fyrir svörin og
lesendum DV fyrir spurningarnar.
Umræða 11Mánudagur 13. febrúar 2012
Ætlar að fella niður
200 milljarða skuldir
Lilja Mósesdóttir þingmaður er formaður nýstofnaðs stjórnmálaafls, Samstöðu. Lilja var á Beinni línu á DV.is á sunnudaginn. Hún vill
afnám verðtryggingar strax og ætlar að ráðast í risastórar niðurfellingar á skuldum. Skattar á banka og peningaprentun Seðlabankans
eiga að duga fyrir því.
Nafn: Lilja Mósesdóttir.
Aldur: 50 ára.
Starf: Þingmaður og formaður Samstöðu.
Menntun: Doktorspróf í hagfræði.
Lilja Mósesdóttir
Vandamál VG er að forystan fer ekki eftir stefnu flokksins og því eru aðgerðir í litlu samhengi
við kosningaloforðin.