Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2012, Page 12
B
andaríska stórsöngkonan
og leikkonan Whitney Eliza-
beth Houston lést laugar-
daginn 11. febrúar, aðeins 48
ára að aldri. Lífvörður henn-
ar kom að henni látinni á hótelher-
bergi í Los Angeles þar sem hún var
stödd vegna Grammy-verðlaunahá-
tíðarinnar sem fór fram á sunnudag.
Houston fæddist þann 9. ágúst
árið 1963 og var ung að árum þegar
hún fór að feta í fótspor móður sinn-
ar, Cissy Houston, sem gospelsöng-
kona. 11 ára gömul var hún farin að
koma fram sem aðalsöngkona með
gospelkórnum í kirkjunni sinni. Go-
speltónlistin var mjög ríkjandi í fjöl-
skyldunni, en móðursystur hennar
voru söngkonurnar Dionne og Dee
Dee Warwick. Þá var Arthea Franklin
guðmóðir hennar.
Frægðarsólin reis hratt
Tvítug að aldri gerði Houston samn-
ing við plötuútgáfufyrirtækið Arista
en gaf þó ekki út fyrstu plötu sína
fyrir tveimur árum síðar, árið 1985.
Mikill tími fór í að finna hin full-
komnu lög sem hentuðu henni en
sú vinna borgaði sig því Houston
sló strax í gegn með plötunni „Whit-
ney Houston“. Platan „Whitney“ sem
fylgdi í kjölfarið tveimur árum síðar
sló einnig í gegn og frægðarsól henn-
ar reis hratt.
Hún varð fyrsta söngkonan í tón-
listarsögunni til að komast í fyrsta
sæti Billboard-listans eftir aðeins
viku í spilun. Þá varð hún fyrsti tón-
listarmaðurinn í sögunni til að ná
efsta sæti á metsölulistum í Banda-
ríkjunum og í Bretlandi á sama tíma.
Þá vann hún til sex-Grammy verð-
launa á ferlinum.
Hætti að vera góða stelpan
Houston átti meðal annars í ástar-
sambandi við grínleikarann Eddie
Murphy á níunda áratugnum. Und-
ir lok áratugarins tók hún saman
við R&B-tónlistarmanninn Bobby
Brown og þau giftu sig árið 1992 ári.
Ári síðar eignuðust þau dótturina
Bobbi Kristinu. Houston og Brown
skildu árið 2007 eftir mjög storma-
samt hjónaband, en hann er sagður
hafa beitt hana bæði andlegu og lík-
amlegu ofbeldi.
Houston hafði ávallt haft á sér
ímynd góðu stelpunnar en eftir að
hún kynntist Brown fór að síga á
ógæfuhliðina hjá henni. Hún sökk
ofan í óreglulíferni og neyslu fíkni-
efna. Í kjölfarið gjörbreyttist hegðun
hennar. Hún varð oft sein í viðtöl og
myndatökur. Þá fór hún einnig að af-
lýsa tónleikum, aðdáendum sínum
til bæði mikillar reiði og vonbrigða.
Sló í gegn í The Bodyguard
Árið 1992 lék Houston í kvikmynd-
inni The Bodyguard ásamt Kevin
Costner. Myndin fékk mjög mis-
jafna dóma en það skipti aðdáendur
hennar engu máli. Myndin sló í gegn
og komst á lista yfir hundrað tekju-
hæstu myndir sögunnar á þeim tíma.
Hún hefur reyndar fallið af þeim lista
í dag vegna hækkunar á miðaverði í
kvikmyndahúsum.
Það er óhætt að segja að Houston
hafi gert gamla Dolly Parton-lagið,
I Will Always Love You, ódauðlegt í
The Bodyguard. En fáar söngkonur
geta náð þeim háu tónum sem hún
fer upp á í laginu. Lagið hefur með
tímanum orðið einkennislag söng-
konunnar.
Houston lék einnig í kvikmynd-
unum Waiting to Exhale og The
Preacher‘s Wife, en platan með tón-
listinni úr þeirri mynd varð mest
selda gospelplata í heimi.
Eftir hafa eytt mestöllum kröftum
sínum í kvikmyndaleik og tónlist í
kvikmyndum, í upphafi tíunda ára-
tugarins, kom Houston aftur sterk
inn á tónlistarmarkaðinn með plöt-
una My Love Is Your Love árið 1998.
Houston gaf út sína síðustu plötu,
I Look To You, árið 2009. Hún náði
fyrsta sæti Billboard-listans og var
jafnframt mest selda plata söngkon-
unnar á fyrstu viku í sölu, frá upphafi.
Stormasamt hjónaband og
fíkniefni
Fljótlega eftir að Houston og Brown
fóru að vera saman spurðust út sögur
af eiturlyfjanotkun hennar. Orðróm-
urinn fékk byr undir báða vængi og
fékkst staðfestur árið 2000 þegar hún
var handtekin ásamt eiginmanni sín-
um á flugvellinum á Hawaii fyrir að
hafa maríjúana í fórum sínum.
Houston viðurkenndi þó ekki eit-
urlyfjafíkn sína opinberlega fyrr en
í viðtali hjá Diane Sawyer árið 2002.
Þar viðurkenndi hún að hafa mis-
notað áfengi og lyfseðlisskyld lyf,
reykt maríjúana og notað kókaín.
Hún þvertók þó fyrir að hafa notað
krakk enda væri það ódýrt fíkniefni.
„Ég þéna of mikið til að reykja krakk,“
sagði hún.
Það var þó ekki fyrr en árið 2004
að talsmenn hennar tilkynntu í fyrsta
skipti opinberlega að hún hefði farið
í meðferð. En hún náði þó ekki tök-
um á vandanum og fór reglulega í
meðferðir. Hún fór síðast í meðferð í
maí í fyrra.
Houston gerði upp samband sitt
við Brown í viðtali hjá Opruh Win-
frey árið 2009, eftir útgáfu plötunn-
ar I Look To You. Í viðtalinu sagði
hún fyrrverandi eiginmann sinn ekki
hafa borið neina virðingu fyrir sér, en
fullyrti þó að hann hefði ekki beitt
hana líkamlegu ofbeldi. Houston
viðurkenndi þó að Brown hefði einu
sinni slegið hana utan undir en hún
hefði launað honum það með því að
slá hann með síma í höfðuð á móti.
Andlega ofbeldið var meira. „Hann
hrækti á mig. Hann hrækti í alvöru á
mig. Og dóttir mín varð vitni að því.“ Í
viðtalinu hjá Opruh viðurkenndi hún
einnig að hafa verið í daglegri neyslu
á meðan hún var með Brown og hafi
ekki verið hamingjusöm.
Skemmti sér kvöldið fyrir
andlátið
Houston hefur verið á tónleikaferða-
lagi undanfarið og töldu margir að
hún væri að komast á beinu braut-
ina. Hún mun þó hafa skemmt sér
ærlega í Los Angeles dagana fyrir
andlát sitt. Kvöldið áður en hún lést
var hún meðal annars að skemmta
sér á Kelly Price and Friends, óraf-
mögnuðum tónleikum, þar sem hún
tók meðal annars lagið Yes, Jesus Lo-
ves Me, og mun það vera síðasta lag-
ið sem hún söng. Sjónvarvottar segja
að Houston hafi sleppt fram af sér
beislinu þetta kvöld, en hún hafi þó
eingöngu sést með áfengi í hönd.
Dánarorsök söngkonunnar er
enn ókunn en fram kemur í Banda-
rískum fjölmiðlum að hún hafi
drukknað í baðkari á hótelinu. Engin
ólögleg fíkniefni munu hafa fundist á
hótelherberginu en þó töluvert af lyf-
seðilsskyldum lyfjum. n
Lífvörðurinn
kom að henni
12 Erlent 13. febrúar 2012 Mánudagur
n Frægðarsól Whitney Houston reis hratt n Sökk niður í óreglu og neyslu
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Minnst með mínútuþögn
Ljóst var að voveiflegt fráfall Houston myndi varpa skugga á Grammy-hátíðina, en Clive
Davis, plötuútgefandi og lærifaðir Houston sagði í ræðu í fyrirpartíi á laugardags-
kvöld að hún sjálf hefði „viljað að tónlistin héldi áfram að óma.“ Davis bað gesti
þó að sameinast í mínútuþögn áður en hann hélt tilfinningaþrungna ræðu um
söngkonuna. „Ég er eyðilagður yfir fráfalli manneskju sem var mér mjög kær. Hún
var full af lífi og hlakkaði til kvöldsins í kvöld. Hún elskaði tónlist og hún elskaði
þetta kvöld þar sem tónlistarmenn eru heiðraðir.“
Einhverjir tónlistarmenn voru þó ekki sammála Davis um að halda partíinu
gangandi þetta kvöld. „Ég ætla ekki í nein fyrirpartí fyrir Grammy-hátíðina, mér
finnst það ekki viðeigandi,“ skrifaði Kelly Osbourne til að mynda á Twitter-síðu
sína. Miley Cyrus var á svipuðum nótum: „Ég ætla bara að vera heima og hlusta á
plöturnar hennar.“
Margar stjörnur hafa látið minningarorð falla um Houston á Twitter-síðum
sínum. Leikkonan Eva Longoria sagði hjarta sitt hafa brostið þegar hún fékk
fréttirnar. Kardashian-systur vottuðu Houston einnig virðingu sína og sendu
dóttur hennar samúðarkveðjur.
„Ég er gjörsamlega miður mín,“ sagði Simon Cowell, en Houston hafði nokkrum
sinnum aðstoðað hann bæði í American Idol og X-Factor.
„Hjartasorg og endalaus tár eftir að ég frétti af skyndilegu fráfalli elsku
vinkonu minnar, Whitney Houston,“ skrifaði söngkonan Mariah Carey.
Bobby Brown mun vera óhuggandi eftir að hann frétti af andláti fyrrverandi
eiginkonu sinnar. Á tónleikum á laugardagskvöld mun hann hafa hegðað sér
mjög óeðlilega og var augljóslega mjög sorgmæddur. Á miðjum tónleikum hætti
hann að syngja og kallaði „Whitney“ út í salinn.
Síðasta kvöldið
Houston kom fram í
galaveislu fyrir Grammy-
verðlaunahátíðina í ár.
Fyrrverandi eiginmaður Söngkonan
með Bobby Brown og dóttur þeirra árið 1998.
Með dóttur sinni Houston með Bobbi
Kristinu árið 2009 í þættinum Good Morning
America.
Grammy-hátíðin 1988 Houston vann til
sex Grammy-verðlauna á ferlinum.