Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2012, Síða 13
Erlent 13Mánudagur 13. febrúar 2012
65 aftökur
á 40 dögum
Milljarða
eyðslufyllerí
n Dæmd í fangelsi fyrir ótrúleg fjársvik
R
ick Santorum, sem sækist eft
ir útnefningu Repúblikana
flokksins fyrir forsetakosn
ingarnar í Bandaríkjunum
síðar á árinu, er á hvín
andi siglingu þessa dagana. Santor
um, sem hefur staðið í skugganum
af mótframbjóðendum sínum, Mitt
Romney og Newt Gingrich, til þessa
sigraði í forkosningum flokksins í
þremur ríkjum í síðustu viku; Minne
sota, Missouri og Colorado.
Í skoðanakönnun sem fram
kvæmd var meðal kosningabærra
repúblikana í Pennsylvaníu fyr
ir sex vikum naut Santorum fjór
tán prósenta stuðnings. En í könn
un sem framkvæmd var dagana 2.
til 6. febrúar, eða nokkrum dögum
fyrir forkosningarnar í síðustu viku,
naut hann þrjátíu prósent stuðnings.
Á sama tíma jókst fylgi Romneys en
fylgi Gingrich snarminnkaði.
Á móti hjónabandi samkyn-
hneigðra
Rick Santorum er 53 ára og er stjórn
mála og lögfræðimenntaður. San
torum er mjög íhaldssamur og hefur
hann sjálfur lýst því yfir að mótfram
bjóðendur hans, Mitt Romney og
Newt Gingrich, séu ekki sannir
íhaldsmenn. Helstu stuðningsmenn
hans eru einmitt mjög íhaldssamir
repúblikanar. Hann hefur látið ýmis
ummæli falla sem ekki hafa fallið í
kramið hjá öllum. Hann er á móti
hjónabandi samkynhneigðra en sjö
ríki Bandaríkjanna leyfa hjónaband
samkynhneigðra. Washington var
síðasta ríkið til þess en ríkisstjórinn,
Christine Gregoire, tilkynnti á föstu
dag að hún muni undirrita lög þess
efnis á næstunni. Santorum sagði til
að mynda í viðtali við Foxsjónvarps
stöðina í október síðastliðnum að
samkynhneigðir hermenn væru til
vandræða fyrir aðra hermenn. Það sé
bæði erfitt að búa með þeim og aug
ljóslega vandræðalegt að fara með
þeim í sturtu. Þá hefur Santorum lýst
því yfir að fjölskyldan sé mikilvæg
og lög ættu að vera í gildi sem gera
framhjáhald refsivert.
Á móti fóstureyðingum
Afstaða Santorum til hjónabands
samkynhneigðra er ekki eina um
deilda skoðun hans. Hann er einn
ig á móti fóstureyðingum og sagði í
sjónvarpsviðtali í janúar að Barack
Obama, núverandi forseti Bandaríkj
anna, ætti einnig að vera á móti þeim
– af því að hann er svartur á hörund.
Þá hefur hann látið þau orð falla að
læknar sem framkvæma fóstureyðing
ar ættu að eiga refsingu yfir höfði sér
og getnaðarvarnir séu af hinu slæma.
Þá vill Santorum að yfirvöld fækki
matarmiðum sem dreift er til almenn
ings, en talið er að fimmtán prósent
Bandaríkjamanna reiði sig á matar
miða til að eiga til hnífs og skeiðar.
Ástæðan fyrir því að Santorum vill
útrýma matarmiðunum er sú að of
stórt hlutfall Bandaríkjamanna glímir
við offitu. Santorum hefur einnig lýst
því yfir að trúin skipti miklu máli fyrir
bandarísku þjóðina en sjálfur er hann
strangtrúaður kaþólikki.
Sankar að sér fé
Velgengni Santorum í síðustu þrem
ur forkosningum hefur gert það að
verkum að miklir peningar hafa
safnast í kosningasjóð hans á und
anförnum dögum. Styrktaraðilar
virðast hafa trú á að velgengni hans
haldi áfram en hann safnaði 2,2
milljónum dala, eða 268 milljónum
króna, á aðeins tveimur dögum í síð
ustu viku. Þetta er hærri upphæð en
safnaðist í kosningasjóð hans allt
árið 2011. Mitt Romney er enn með
feitasta sjóðinn af þeim frambjóð
endum repúblikana sem enn eru í
baráttunni. Romney hefur sömu
leiðis unnið langflesta kjörmenn,
eða 106. Newt Gingrich hefur unn
ið 35 og Santorum 34. Til að öðlast
útnefningu flokksins þarf að vinna
1.144 kjörmenn. Næstu forkosning
ar Repúblikanaflokksins fara fram
í Arizona og Michigan þann 28.
febrúar næstkomandi. 29 kjörmenn
eru í boði í Arizona og 30 í Michigan.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Það sé bæði erfitt
að búa með þeim
og augljóslega vand-
ræðalegt að fara með
þeim í sturtu.
Skólavörðustíg 2 • Sími 552 5445
Íslenskt skart á
Valentínusardaginn
H
in 43 ára gamla Rajina Subram
anian, sem búsett er í Ástral
íu, hefur verið dæmd fyrir að
stela hvorki meira né minna en
5,8 milljörðum króna af fjármálafyrir
tækinu ING Holdings sem hún starf
aði hjá. Um er að ræða stærsta fjár
svikamál einstaklings í sögu Ástralíu
en dómur í málinu, sem hefur verið til
meðferðar hjá dómstólum í Nýja Suð
urWales, var kveðinn upp á föstudag.
Var Subramanian dæmd í fimmtán
ára fangelsi en hún þarf að afplána að
minnsta kosti sjö ár.
Samkvæmt því sem kom fram við
meðferð málsins fyrir dómstólum fór
Subramanian, sem var bókari hjá fyr
irtækinu, á gríðarlegt eyðslufyllerí þar
sem hún eyddi hundruðum milljóna
króna í hús, föt og rándýra skartgripi.
Þá gaf hún þjónum á veitingahúsum
sem hún snæddi á ansi ríflegt þjórfé,
í sumum tilfellum mörg hundruð þús
und krónur.
Breska blaðið Daily Mail greinir frá
því að hún hafi til að mynda keypt 200
Chanelilmvatnsflöskur og rándýran
fatnað frá tískufyrirtækjum á borð við
Armani og Hugo Boss. Þá keypti hún
að minnsta kosti sex hundruð skart
gripi fyrir fleiri tugi milljóna króna og
nokkur hús nærri Bondi Beach fyrir
samtals 2,3 milljarða króna.
Þegar upp komst um málið gerði
lögregla húsleit á vinnustað henn
ar. Undir skrifborði hennar fundust
yfir tuttugu kassar sem voru fullir af
skartgripum og dýru Dom Perignon
kampavíni.
Við meðferð málsins fyrir dómstól
um kom einnig fram að Subramanian
hefði haldið við yfirmann sinn með
vitneskju eiginmanns síns.
Stórtæk Rajina Subramanian stal
ótrúlegum upphæðum af fyrirtækinu sem
hún starfaði hjá. Peningana notaði hún í að
kaupa alls konar lúxusvarning.
Umdeildur en á
mikilli siglingu
n Rick Santorum unnið þrjár forkosningar í röð n Á móti hjónaböndum samkynhneigðra
Meðbyr Rick Santor-
um er á mikilli siglingu
þessa dagana. Hann
er umdeildur og til
að mynda á móti
hjónabandi samkyn-
hneigðra og telur að
getnaðarvarnir séu af
hinu slæma. MynD ReuteRS
Sextíu og fimm írakskir fangar
voru teknir af lífi á fyrstu fjörutíu
dögum ársins. Þar af voru þrjá
tíu og fjórir teknir af lífi sama
daginn, þann 19. janúar síðast
liðinn. Tvær konur voru í þeim
hópi. Þetta kemur fram í yfirlýs
ingu mannréttindasamtakanna
Human Rights Watch sem lýsa
miklum áhyggjum af þróun mála
í landinu. Samtökin hafa kallað
eftir því að íröksk yfirvöld afnemi
dauðarefsingar og endurskoði
réttarkerfi landsins.
„Íröksk yfirvöld virðast hafa
gefið dómstólum grænt ljós á að
dæma fólk til dauða að vild,“ segir
Joe Stork, deildarstjóri Human
Rights Watch í MiðAusturlönd
um, í samtali við CNN.
Stork gagnrýnir harðlega
hversu ógagnsætt réttarkerfi
landsins er. Þannig sé ómögu
legt að fá upplýsingar um hversu
margir fangar séu á dauðadeild og
hvers vegna þeir hlutu dauðadóm.
Talið er að tólf hundruð manns
hafi verið dæmdir til dauða í Írak
frá árinu 2004 en óvíst er hversu
margir hafa verið teknir af lífi nú
þegar. Afbrotamenn þurfa í raun
ekki að fremja mjög alvarlega
glæpi til að eiga yfir höfði sér
dauðadóm. Þannig gera lög lands
ins ráð fyrir að þeir sem dæmdir
eru fyrir skemmdarverk á eigum
yfirvalda geti átt von á því að fá
dauðadóm samkvæmt frétt CNN.
Dómsmálaráðuneyti Íraks gaf
frá sér yfirlýsingu vegna málsins
fyrr í þessum mánuði. Þar kom
fram að íröksk yfirvöld stæðu
frammi fyrir harðri baráttu við
hópa hryðjuverkamanna sem
hefðu gerst sekir um alvarlega
glæpi, meðal annars morð á
óbreyttum borgurum. Ekkert sé
við dómskerfi landsins að athuga.
n Frægðarsól Whitney Houston reis hratt n Sökk niður í óreglu og neyslu