Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2012, Blaðsíða 14
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 248,6 kr. 256,1 kr.
Algengt verð 248,4 kr. 255,9 kr.
Höfuðborgarsv. 243,8 kr. 255,8 kr.
Algengt verð 248,6 kr. 256,1 kr.
Algengt verð 250,4 kr. 256,3 kr.
Melabraut 248,4 kr. 255,9 kr.
14 Neytendur 13. febrúar 2012 Mánudagur
Inneignarnóta
send norður
n Lofið að þessu sinni fær
Debenhams en viðskipta-
vinur sendi eftirfarandi: „Ég
vil fá að lofa Debenhams en
ég fékk góða þjónustu
hjá þeim þegar ég gat
skilað skyrtu í Reykja-
vík og inneignarnótan
var send til Akureyrar
þar sem eigandi vör-
unnar var staðsettur.“
Mátti ekki
fá götumál
n Lastið fær Kaffitár í Kringlunni.
„Ég fékk ekki götumál fyrir barna-
kakó nema ég yfirgæfi
kaffihúsið. Tveggja
ára barn átti því að
drekka kakó úr bolla
ef við vildum vera
innan ramma kaffi-
hússins,“ segir viðskiptavin-
urinn ósátti.
DV hafði samband við
Mörtu Pálsdóttur, verslunar-
stjóra Kaffitárs í Kringlunni, og bar
lastið undir hana. „Ástæðan fyrir
þessu er að við erum með Svans-
vottun sem er norræn umhverfis-
vottun og bjóðum því ekki upp á
einnota bolla inni á kaffihúsinu. Í
rauninni reynum við að takmarka
notkun á einnota umbúðum eins
og við getum þar sem það er sam-
kvæmt reglum vottunarinnar. Við
erum hins vegar með barnamál fyr-
ir börn sem geta ekki eða eiga erfitt
með að drekka úr venjulegum boll-
um en það hefur fyrirfarist að bjóða
það þetta í skiptið,“ sagði Marta.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Sparaðu með kaupum á netinu
F
atnaður, verkfæri, ýmiss kon-
ar íþróttavörur og barna-
vörur eru þeir hlutir sem má
spara töluvert á að kaupa á
netinu. Netverslun er sífellt
að aukast og Íslendingar eru í meira
mæli farnir að notfæra sér þetta og
kaupa vörur að utan í gegnum net-
ið. Það þarf þó að hafa í huga að
sendingarkostnaður, tollar og skatt-
ar bætast við verðið. DV tók saman
verð á nokkrum hlutum í Bandaríkj-
unum til að athuga hvort netversl-
un sé í raun ódýrari þegar allt er lagt
saman. Signý Sigurðardóttir, rekstr-
arstjóri ShopUSA, útskýrir hvernig
best er að bera sig að þegar kemur
að verslun á netinu.
Getur fundið hvað sem er
„Hvað varðar verslun á netinu al-
mennt þá höfum við á Íslandi verið
lengi að taka við okkur sem er mjög
merkilegt miðað við hvað við erum
alltaf nýjungagjörn. Það virðist þó
vera einhver aukning í þessu núna
og þú getur gert ótrúleg kaup á net-
inu. Ekki einungis getur þú feng-
ið ódýrari vörur heldur er úrvalið
miklu meira. Við erum svo misjöfn
og úrvalið hér heima mjög takmark-
að á mörgum sviðum. Í Bandaríkj-
unum er gert ráð fyrir því að fólk sé
af öllum stærðum og gerðum. Þú
getur fundið hvað sem er þar enda
eru allar stóru verslanirnar farnar
að selja vörur á netinu,“ segir Signý
en bætir við að verslun á netinu sé
ákveðið lærdómsferli. Þetta sé eins
og með margt annað sem er manni
framandi og til að byrja með virð-
ist þetta vera ógurlegur frumskógur
upplýsinga. „Maður þarf að læra á
þetta, síðurnar eru mismunandi en
það er mikil þróun í þessu.“
Fjölmargar leitarsíður í boði
Signý bendir á síðuna froogle.com
sem lykiltæki í þessari leit. „Það eru
til fjölmargar leitarsíður og þær eru
lykillinn að þessum heimi. Um leið
og maður er búinn að fatta leitarvél-
arnar þá gengur þetta betur. Þegar
maður fer netið að leita að ákveðn-
um hlut en veit ekki hvar maður á
leita þá virðist það óyfirstíganlegt.
Með hjálp þessara síðna gengur það
betur. Þú getur sett í leit nánast hvað
sem er og þú færð endalaust úrval og
getur borið saman verð og gæði. Þeir
eru í raun með öll tæki til að gera þér
þetta eins auðvelt og mögulegt er.“
Íþróttavörur og varahlutir
Annað ráð sem Signý gefur er að
taka þessu ekki of hátíðlega og reyna
að stressa sig ekki um of á leitinni.
„Þú þarft að horfa á þetta lógískt og
prófa þig áfram. Þegar hún er beð-
in um að nefna þær vörur sem hag-
kvæmast er að kaupa á netinu nefnir
hún sem dæmi íþróttavörur, skó og
fatnað og ýmiss konar varning fyrir
börn. „Hjá okkur er langmest keypt
af varahlutum og fatnaði. Bílavara-
hlutir eru dæmi um hluti sem þú
getur gert ótrúlega góð kaup á.“
Reiknivél sem
áætlar heildarverð
Sem fyrr segir er Signý rekstrarstjóri
ShopUSA sem er eina íslenska fyr-
irtækið sem veitir þá þjónustu að
sjá um flutning á vörunni heim að
dyrum og innifalið í verðinu eru
öll flutningsgjöld, vöruhúsakostn-
aður í Bandaríkjunum, allir tollar
og skattar og loks dreifingarkostn-
aður á Íslandi. Á síðu fyrirtækis-
ins er reiknivél sem reiknar hve
mikið varan mun kosta þig alla
leið heim að dyrum. „Reiknivél-
in byggir á jöfnun, áætlar heildar-
verð með jöfnunaraðferð. Við tök-
um ekki ákveðna prósentu en það
mundi ekki ganga upp því flutn-
ingskostnaður vörunnar fer eftir
þyngd hennar og rúmmáli.“
Signý tekur fram að með reikni-
vélinni á heimasíðu ShopUSA sértu
með verkfæri til að gera verðsam-
anburð. Þú setur inn innkaups-
verð vörunnar í dollurum og færð
í staðinn upplýsingar um gjöld við
innflutning, sem eru annars veg-
ar flutningsgjöld, opinber gjöld og
umsýslugjöld, og hins vegar heild-
arverð vörunnar. Hún bendir fólki
á að skoða Spurt og svarað á heima-
síðu fyrirtækisins en þar er að finna
mikið af gagnlegum upplýsingum
sem gott er að hafa í huga áður en
maður byrjar.
Íslendingar njóta
bandarísks vöruúrvals
Það sem margir reka sig á þegar
þeir hafa fundið ákveðna vöru er
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
n Margar verslanir selja vörur sínar á netinu n Hægt að gera góð kaup n Meira vöruúrval n Kauptu barnavörur á netinu og sparaðu mikið
Finnur ódýrari hluti á netinu
Jón Kjartan Kristinsson er einn þeirra sem
verslar töluvert á netinu og lætur senda
vörurnar heim. Aðspurður um ástæðuna
segir Jón Kjartan að honum finnist aðallega
skemmtilegt að versla á netinu. „Ég hef keypt
varahluti, verkfæri, ljósmyndavörur, barna-
vörur og margt fleira en ég kaupi bara það
sem mig vantar hverju sinni, það er að segja
ef mig vantar eitthvað þá kanna ég hvort ég
geti fengið það á betra verði með því að panta
að utan. Það þarf að reikna og pæla áður en
maður kaupir eitthvað. Hann segir að suma
hluti borgi sig ekki að kaupa á netinu og láta
senda til Íslands. „Það er mikilvægt að skoða
hlutina vel áður en maður kaupir. Ég heyrði
til dæmis um mann sem keypti barnavagn á
netinu og endaði með þrisvar sinnum dýrari
vagn en ef hann hefði keypt hann hér. Ég tók hins vegar barnavagn að utan sem
kom hingað heim á mjög góðu verði. Það var að sjálfsögðu vegna þess að hann
var á góðu verði úti.“
Jóni Kjartani finnst þægilegt að nota ShopUSA og mælir með því. Aðspurður
hvað fólk eigi að varast þegar kemur að netverslun bendir hann á að gott sé að
hafa í huga að raftæki eru ekki alltaf 230 volt og símtæki frá Bandaríkjunum
virka sjaldnast á Íslandi.
Netverslun Hægt er að gera verulega góð
kaup á netinu. MYND PhOTOS.cOMSigný Sigurðardóttir segir Íslendinga
vera seina í verslun á netinu. Það kemur
henni á óvart.
„Maður þarf að læra
á þetta, síðurnar
eru mismunandi en það er
mikil þróun í þessu.