Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2012, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2012, Blaðsíða 29
Fólk 29Mánudagur 30. júlí 2012 M arilyn Monroe, sem hefur verið kyntákn í um 50 ár, laðaðist líkamlega að kon- um ef marka má nýja bók um hana sem heitir Mari- lyn Monroe: My little secret. Samkvæmt bókinni á Marilyn að hafa átt kynferðislegt samneyti við kvikmyndastjörnur á borð við Joan Crawford, Barböru Stanwyck, Mar- lene Dietrich og Elisabeth Taylor. Þar að auki á hún að hafa táldreg- ið 16 ára stúlku sem stjórnaði aðdá- endaklúbbi stjörnunnar. Stúlkan, Jane Lawrence, og Marilyn Monroe tengdust sterkum vináttuböndum vegna þess hve mikið þær áttu sam- eiginlegt. Þær voru báðar á sama munaðarleysingjahælinu, þó ekki á sama tíma, því Marilyn var 14 árum eldri. Jane var ekki viss um kynhneigð sína og Marilyn var mjög skilningsrík og ræddu þær þetta mikið. Marilyn á að hafa sagt: „Það skiptir ekki máli hvort kynið heillar þig, ást er ást.“ Jane hafði verið með nokkrum stúlkum, en kvöld eitt heimsótti hún Marilyn á heimili hennar í Los Ang- eles til að aðstoða hana með ein- hverjar hillur. Kvöldið þróaðist út í eitthvað allt annað. Þegar hún kom var Marilyn búin að drekka kampa- vín og taka lyfseðilsskyld lyf sem hún sagði að „gerðu hana glaða.“ Jane segir svo að þegar þær voru að hengja upp hillurnar þá hafi Marilyn allt í einu kysst hana á lærið. Þær hafi síðan látið vel hvor að annarri og eytt nóttinni saman, Marilyn hafi verið mjög ástríðufull, mun ástríðufyllri en allar konur sem hún hafði áður ver- ið með. Hún segir að hún haldi að Marilyn hafi ekki verið lesbía heldur bara mjög opin manneskja sem hafi viljað prófa margt. Þær voru miklar vinkonur allt til andláts Marilyn, en hún lést árið 1962 aðeins 36 ára að aldri. Endurnærir og hreinsar ristilinn Í boði eru 60-150 töflu skammtar + Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf 30 = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox www.birkiaska.is Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. 2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni. Bodyflex Strong www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflurn Hefur verið orðuð við fleiri konur Marilyn Monroe átti nótt Með 16 ára stúlku Kynþokkafull Marilyn var helsta kyntákn síns tíma. Jane Lawrence og Marilyn Monroe Áttu saman nokkrar lostafullar nætur. Matthew McConaughey Hér er hann í hlutverki sínu sem Dallas í Magic Mike Bauð við hlutverkinu n Matthew McConaughey ætlaði að hafna aðalhlutverkinu í Killer Joe S jarmatröllið Matthew McCon aughey segir að hann hafi hikað við að taka að sér hlutverk leigumorðingj- ans Killer Joe í samnefndri kvikmynd frá árinu 2011. Hann seg- ist hafa ætlað að hafna hlutverkinu vegna þess hversu mikið ofbeldi var í myndinni. Í viðtali við Hollywood Life segir hann: „Mér bauð við inni- haldi myndarinnar og sá engan húmor í henni. Ég vildi ekki eiga neinn þátt í þessu.“ Hann segist svo hafa rætt þetta við vini sína og síðan hafi hann lesið handritið og séð spaugilegu hliðarn- ar við það. Matthew leikur líka eitt aðalhlut- verkið í kvikmyndinni Magic Mike sem verið er að sýna í bíóhúsum hér á landi þessa dagana, en sú mynd fjallar um karlkyns fatafellur. sonurinn Með blátt hár G wen Stefani og 6 ára gam- all sonur hennar, Kingston, höfðu það gott í hestvagnaferð í Central Park í New York. Athygli vakti að sonurinn var með skrautlega litað blátt hár. Gwen er þekkt fyrir tískuvitund sína og líf- legan klæðaburð og Kingston virð- ist hafa erft þessa eiginlega móður sinnar. Lífleg mæðgin Kingston er bara sex ára og með blátt hár!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.