Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2012, Blaðsíða 4
Félag Finnboga
og Samherja í þrot
Ánægður með helgina
n Jóhannes Jónsson opnaði Iceland á laugardag
Þ
etta gekk svoleiðis ljómandi vel,“
segir Jóhannes Jónsson sem
fyrrum var kenndur við Bónus
en vill nú láta kalla sig Jóhannes
í Iceland. Matvöruverslun Jóhannesar,
Iceland, opnaði í Engihjalla í Kópavogi
síðastliðinn laugardag. Jóhannes var
glaðbeittur þegar DV leitaði til hans og
sagði að fullt hefði verið út úr dyrum
frá opnun til lokunar bæði á laugardag
og sunnudag. Jóhannes heilsaði við-
skiptavinum með handabandi og hélt
stutta tölu við opnunina.
Fyrr í mánuðinum lýsti Jóhann-
es því yfir í samtali við Fréttablaðið
að eignarhlutur Iceland á Íslandi yrði
skipt til helminga milli hans sjálfs og
Malcolm Walker, stofnanda og for-
stjóra Iceland keðjunnar í Bretlandi.
Sunnudagsblaðið The Observer ger-
ir opnun búðarinnar á Íslandi að um-
fjöllunarefni um helgina. Þar er við-
skiptasaga Bónus-feðganna rakin
stuttlega og fjallað um það hvernig
bankahrunið feykti fjölskylduveldinu
um koll. Þá hafi Malcolm Walker náð
yfirráðum yfir Iceland keðjunni á ný
en nú hafi Walker launað Jóhannesi
greiðann. „Nú freistar Jóhannes þess
að reka matvöruverslunina Iceland
í beinni samkeppni við Bónus, sem
áður var í hans eigu,“ segir í pistlinum.
Um 70 prósent af vörum versl-
unarinnar eru framleiddar hér á
landi en Malcolm Walker, meðeig-
andi Jóhannesar, sér versluninni fyr-
ir aðfluttum vörum. Í mars eignaðist
Walker Iceland verslunarkeðjuna á ný
þegar hann keypti 77 prósenta hlut af
slitastjórn Landsbankans. Fram kom
á Reuters.com að Walker hefði aflað
lánsfjár til kaupanna frá bönkunum
Credit Suisse, Deutsche Bank, HSBS,
Nomura og Royal Bank of Scotland.
Samtals voru lánin jafnvirði um 175
milljarða króna en þau voru veitt í
pundum og evrum. Að sögn Jóhann-
esar er Malcolm Walker traustur bak-
hjarl Iceland á Íslandi.
4 Fréttir 30. júlí 2012 Mánudagur
n Fékk milljarða afskrifaða n Keypti hlut í Icelandic Group fyrir hrun
F
élagið Eldar ehf. sem var í
eigu Finnboga Baldvinssonar
og Samherja hefur verið tekið
til gjaldþrotaskipta. Finnbogi,
sem er bróðir Þorsteins Más
Baldvinssonar, forstjóra og stærsta
hluthafa Samherja, átti 78 prósenta
hlut í Eldum. Hlutur Samherja var
hins vegar 19 prósent.
Að sögn Svanhvítar Yrsu Árna-
dóttur, skiptastjóra Elda, voru það
hlutabréfakaup Elda í Icelandic
Group sem leiddu félagið fram
af hengifluginu. Á árunum fyr-
ir hrun gegndi Finnbogi bæði hlut-
verki forstjóra og stjórnarmanns í
Icelandic Group, en Eldar fóru með
20 prósenta hlut í félaginu í gegnum
félagið FAB gmbh. Svanhvít segir að
gjaldþrotaskiptin á Eldum ehf. séu
skammt á veg komin og talsvert sé
eftir af kröfufrestinum. Þá segir hún
einnig: „Engar kröfur eru komnar í
búið svo ekki er hægt að segja hverj-
ar heildarkröfurnar verða.“
Um 10 milljarðar afskrifaðir
Í febrúar árið 2010 fjallaði Kastljós
um afskriftir Finnboga Baldvins-
sonar og Elda. Þá hafði Nýi-Lands-
bankinn létt af Finnboga persónu-
legum ábyrgðum upp á tæpan einn
og hálfan milljarð, en jafnframt kom
fram að tæplega tíu milljarða skuld-
ir Elda yrðu afskrifaðar þar sem
engar eignir væru eftir í félaginu.
Þegar litið er á ársreikninga félags-
ins má sjá að félagið var gríðarlega
skuldsett á árinu 2008, en þá nam
neikvætt eigið fé Elda rúmlega 6,4
milljörðum. Í fyrra skulduðu Eldar
aðeins 18 milljónir.
Fékk annað lán eftir
afskriftirnar
Um þessar mundir er Finnbogi for-
stjóri þýska sjávarútvegsfyrirtækisins
Leuchtturm Beteiligungs- und Hold-
ing Germany. Hann á 40 prósenta
hlut í fyrirtækinu ásamt Ingvari Ey-
fjörð, fyrrverandi aðstoðarforstjóra
Icelandic Group og öðrum millistjórn-
endum sem áður unnu með þeim hjá
fyrirtækinu Pickenpack, dótturfélagi
Icelandic Group. Athygli vakti þegar
Arion banki veitti fyrirtæki Finnboga
og samstarfsmanna hans lán upp á
28 milljónir evra, jafnvirði 4,7 millj-
arða króna. Þessu greindi fjölmiðill-
inn IntraFish frá en Finnbogi hafði
áður neitað að greina frá fjárhæðun-
um sem fyrirtækið fékk að láni.
Vill jákvæðari fréttir
um viðskiptalífið
Finnbogi er búsettur í Þýskalandi
um þessar mundir. Hvorki náðist í
hann né stjórnarmenn Samherja við
vinnslu fréttarinnar en Ingvar Eyfjörð,
samstarfsmaður Finnboga til margra
ára, fullyrti að fjárfestingarnar í Þýska-
landi væru alls ótengdar Eldum ehf.
Jafnframt hrósaði hann Finnboga:
„Veltið þessu fyrir ykkur: Icelandic
Group var gjaldþrota, Finnbogi setur
hlutinn sinn í að snúa fyrirtækinu við
og tapar tugum milljarða króna, missir
allt sitt og fer á kúpuna. Svo fer hann af
stað með nýtt fyrirtæki og fær fjárfesta
sem er alveg magnaður árgangur.
Fjallið um þetta í staðinn fyrir að tala
viðskiptalífið niður.“ Hann kallar eftir
jákvæðari fréttum um viðskiptalífið og
segir: „Aðalmálið er að hér eru menn
bara farnir í gang aftur. Það væri svo-
lítið kúl að segja: eigum við ekki bara
einhverja menn sem gera eitthvað af
viti? Menn sem stofna fyrirtæki, koma
rekstri í gang og kaupa fisk og vinna
aftur á þessum hreina grunni. Það
væri gaman að sjá jákvæðari fréttir um
viðskiptalífið. Við ætlum nú ekki að
vera í hruninu alla tíð.“
„Aðalmálið er að
hér eru menn bara
farnir í gang aftur.“
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
Finnbogi Baldvinsson Félag Finnboga var nýlega úrskurðað gjaldþrota en nú fjárfestir
hann af krafti í Þýskalandi.
Þorsteinn Már Baldvinsson Þorsteinn
er bróðir Finnboga og forstjóri Samherja
sem átti 19 prósenta hlut í Eldum ehf.
Glaðbeittur Jóhannes Jóhannes í
Bónus vill nú láta kenna sig við verslunina
Iceland. Hann er ánægður með helgina.
Stunginn í
Höfðatúni
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu fékk rétt um klukkan átta á
laugardagskvöld tilkynningu um
slasaðan einstakling í Höfðatúni.
Hafði maðurinn verðið stunginn
með eggvopni og var síðar fluttur
á slysadeild. Meiðsl hans eru ekki
talin alvarleg. Í kjölfarið voru þrír
aðilar handteknir vegna rann-
sóknar málsins og voru færðir í
varðhald og stóð til að yfirheyra þá
á sunnudag.
Jóhanna ræður
sjálf sínum málum
Mörður Árnason, þingmað-
ur Samfylkingar, gefur lítið fyrir
vangaveltur þess efnis að Jóhanna
Sigurðardóttir, formaður flokksins,
sé komin á endastöð með flokk-
inn. Í pistli á heimasíðu sinni gerir
Mörður vangaveltur á vef Eyjunn-
ar, þess efnis að ef Jóhanna hætti
ekki í bráð ætli örvæntingarfullur
hópur þingmanna og þingmanns-
efna að stofna nýjan Alþýðuflokk,
að umtalsefni. „Hvort sem mönn-
um er ljúft eða leitt er staðan ein-
faldlega þannig að hún ræður sjálf
sínum málum fram að landsfundi
sem líklega verður í febrúar. Gefi
Jóhanna kost á sér áfram, með
skýrum áherslum um árangur og
áfanga næstu árin, fengi hún hik-
lausan stuðning, meðal annars frá
yðar einlægum,“ segir Mörður.