Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Blaðsíða 3
Fréttir 3Miðvikudagur 20. júní 2012
KEYPTI BLOKKIRNAR
Á BRUNAÚTSÖLU
„Einfalt reiknings-
dæmi leiðir í ljós að
gangi áform Steinþórs og
félaga í South Properties
upp, muni þeir græða háar
fjárhæðir á viðskiptunum.
n Landsbankinn afskrifaði hundruð milljóna svo að Steinþór gæti keypt blokkir
ir fyrirtækisins voru samkvæmt
ársreikningi árið 2010, rúmar fjór
ar milljónir króna. Samkvæmt upp
lýsingum úr fyrirtækjaskrá var fyr
irtækið stofnað þann 1. september
2008 en fyrirtækið Hringbraut kom
að stofnun þess. Stjórnarformað
ur Hringbrautar er Sverrir Sverris
son og framkvæmdastjóri Sverrir
Gunnarsson. Þá á South Properties
meðal annars 48 prósenta hlut í
Gullmolanum ehf.
Sakaður um aðstöðubrask
Fyrirtækið Hringbraut ehf. komst
í fréttirnar í maí 2010 þegar Sverr
ir Örn Olsen sakaði flokksbræður
sína í bæjarstjórn Reykjanesbæjar
um klíkuskap og misbeitingu valds
í þágu Hringbrautar sem þá var að
hluta til í eigu Steinþórs Jónsson
ar. Í frétt Jóhanns Haukssonar í DV
um málið kom fram að Hringbraut
hefði komið sér fyrir í 3.000 fermetra
iðn aðar húsnæði á Keflavíkurflug
velli. Sverrir taldi að Steinþór og
félagar hefðu keypt húsnæðið fyr
ir smánarlega lága upphæð af
Þró unar félagi Keflavíkurflugvall
ar. Þar sat Árni Sigfússon bæjar
stjóri í stjórn. Sverrir bar upp skrif
lega kvörtun við umhverfisráðherra
vegna málsins.
Leigusali var fyrirtækið Base
ehf., en Steinþór var einnig hlut
hafi í því félagi í gegnum Hótel
Keflavík. Base hafði keypt umrætt
atvinnuhúsnæði af Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar, en það annað
ist sölu á fasteignum á Keflavíkur
flugvelli sem féllu þjóðinni í skaut
þegar Bandaríkjaher yfirgaf her
stöðina á Miðnesheiði árið 2006.
Húsið var veðsett fyrir 26,2 milljón
ir króna samkvæmt þinglýsingar
vottorði og tók Base ehf. þá upp
hæð að láni með tryggingabréfi í
Sparisjóðnum í Keflavík í janúar
árið 2009. Í stjórn sjóðsins sat þá
Þorsteinn Erlingsson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
K
rabbinn hefur kennt mér
alveg svakalega mikið. Ef
ég hugsa um það þá hefði
ég sennilega ekki viljað
sleppa því að fá krabba
mein. Ég er miklu betri mann
eskja fyrir vikið. Kærleiksríkari og
opnari, jákvæðari og sé lífið í allt
öðru ljósi,“ segir Davíð Örn Arnars
son sem berst við krabbamein
sem læknar telja ólæknandi. Því er
hann ekki sammála og hefur leitað
sér lækninga á óhefðbundinn hátt.
Ætlar sér að sigra
Davíð var fyrst greindur með
krabbamein í hálsi árið 2008. Þá
fór hann í tvær skurðaðgerðir og
geislameðferð. Eftir stranga bar
áttu töldu læknarnir að meinið
væri farið. Tveimur árum seinna,
árið 2010, hafði meinið tekið sig
upp á ný. Nú hafði það dreift sér
og var komið lengra á veg. „Ólækn
andi“ töldu læknar en Davíð segist
aldrei hafa trúað því. Hann vinnur
að því að ná bata. „Ég er þannig
þenkjandi að mér finnst að það
eigi ekki að fullyrða að eitthvað sé
ólæknandi þegar að dæmin hafa
sýnt annað.“
Áfall að vera greindur
í annað sinn
„Það var meira áfall þegar ég var
greindur í annað sinn. Þá varð ég
mjög veikur með tíðar sýkingar
í hálsi. Þá kom í ljós að það hafði
tekið sig upp aftur og komið mun
lengra í þetta skiptið. Það varð að
opna sitthvorum megin á háls
inum og þá voru þar fjarlægðir
krabbavefir og eitlar. Í þessari að
gerð fékk ég lungnasýkingu, í fram
haldi af því var tekin mynd og þá
kom í ljós að krabbinn var kominn
í lungun líka,“ segir hann.
Davíð ákvað fljótlega að hann
skyldi taka ábyrgðina í sínar hend
ur og afþakkaði lyfjameðferð.
Þess í stað ákvað hann að reiða
sig á lækningarmátt náttúrunnar
og gjörbreytti mataræði og hugar
fari sínu.
Vildi ekki lyfjameðferð
„Læknarnir sögðu mér að þetta
væri ólæknandi en þeir gætu reynt
að halda þessu í skefjum með lyfja
meðferð. Ég taldi líkama minn ekki
ráða við lyfjameðferð og ákvað því
að byggja hann upp í stað þess
að brjóta hann enn meira niður.“
Hann breytti um lífsstíl og tók upp
lífrænt mataræði. Nokkuð sem
hann telur hafa gjörbreytt sínu
lífi. „Þegar ég greindist fyrst þá lét
ég þetta í hendurnar á læknunum.
En í þetta sinn ákvað ég sjálfur að
taka ábyrgðina. Ég breytti algjör
lega um lífsstíl. Áður lifði ég ágæt
lega heilsusamlegu lífi en þarna
hætti ég að drekka áfengi og lifði
nánast eingöngu á hráfæði og líf
rænum djús. Líkaminn á mér er
gjörbreyttur þrátt fyrir að krabba
meinið sé enn til staðar. Ofnæmi
sem ég var með hefur ekki tekið
sig upp, húðin er betri, slímhúð
in í hálsinum er betri og meltingin
er allt önnur. Þau lyf sem ég var að
taka inn voru ekki að skila tilætluð
um árangri og kölluðu yfirleitt bara
á önnur lyf. Líkaminn var óstarf
hæfur í þessu standi,“ segir hann.
Náttúruþenkjandi náttúrubarn
Davíð ákvað sjálfur að leita sér leið
til lækninga og hefur fengið hjálp
frá lækninum Hallgrími Magn
ússyni í Hveragerði. „Ég vel góða
næringarkosti og leita helst í mína
nánustu náttúru. Lukka í Happi
hefur verið mér gríðarlegur styrk
ur og hjálpað til við næringu. Hún
er mikill viskubrunnur og mikill
styrkur í baráttunni. Einnig hefur
Jóhanna í Lambhaga og hennar
fólk reynst mér æðislega vel. Það
er ekki hlaupið að því að fá ferskt
grænmeti og ávexti á Íslandi,“ seg
ir Davíð. Hann segist alltaf hafa
pælt mikið í eiginleikum náttúr
unnar og haft mikla trú á henni.
Þegar hann greindist í annað sinn
tók hann sig algjörlega í gegn. „Ég
hef verið náttúruþenkjandi og mik
ið náttúrubarn og hef endalaust trú
á náttúrunni. Fyrst þegar ég grein
ist þá gafst mér ekki tími til að
staldra við og hugsa málið, þetta
var allt bara keyrt í gegn. En undir
liggjandi var ég þó alltaf að hugsa í
þessa áttina,“ segir hann.
Hann er viss um að það hafi
hjálpað sér mest í baráttunni að
taka ábyrgðina sjálfur. „Það hefur
hjálpað mér mest að taka ábyrgð á
líkama mínum. Árið 2010 fór ég á
kvíðastjórnunarnámskeið og vann
mikið með huga minn og fór með
al annars í heilun auk þess sem ég
lærði margt í sambandi við matar
æði. Þetta hefur hjálpað mér mik
ið, ég finn rosalegan mun á líkam
anum og hef varla verið veikur að
undanskildu krabbameininu. Sýk
ingarendurtekningin hætti gjör
samlega. En svo breytti maður líka
bara líferninu enda var ég komin
á fullt út í fjölskyldulífið á þessum
tíma,“ segir hann.
Yndisleg upplifun að verða faðir
Að baki Davíð standa fjölskylda
hans og vinir og segist hann vera
óendanlega þakklátur fyrir góðan
stuðning þeirra. Eiginkona hans,
Karen Björk Guðjónsdóttir, hefur
staðið þétt við bak hans. Þau eiga
saman eina fimm mánaða dóttur
og fyrir á Karen eina fjögurra og
hálfs árs dóttur. „Við konan ákváð
um á síðasta ári að skella okkur í
barneignir,“ segir hann. Hann seg
ir það hafa verið yndislega upplif
un að verða faðir. „Þetta er yndis
legt í alla staði og hefur hjálpað
mér gríðarlega mikið í baráttunni.
Maður fyllist kærleik og það er það
besta í baráttunni,“ segir hann.
Erfiðar síðustu vikur
Davíð hefur verið mikið veikur
undanfarnar þrjár vikur í kjölfar
sýkingar sem hann fékk á skurð
svæði. „Þetta hafa verið erfiðar vik
ur. Þetta byrjaði á því að ég fékk ein
hvers konar kast, það er ekki vitað
hvað það var, blóðtappi hefur verið
nefndur,“ segir hann og viðurkenn
ir að auðvitað verði hann smeykur
við svona kringumstæður.
Davíð hefur búið alla sína ævi í
Grafarvoginum og er þekktur með
al Grafarvogsbúa sem margir hverj
ir bera honum vel söguna. Þeir
sem blaðamaður töluðu við sögðu
Davíð vera algjört ljúfmenni sem
setti ávallt aðra í fyrsta sæti, þrátt
fyrir að það væri hann sem væri
veikur. Davíð hlær þegar hann er
spurður út í Grafarvogstenginguna.
„Það er frábært fólk þar og ég finn
að ég fæ mikinn stuðning þaðan
enda hef ég búið þar alla ævi. Það
er mikið lím í Grafarvoginum.“
Á morgun, fimmtudag, eru
styrktartónleikar fyrir Davíð og
fjölskyldu sem fram fara í Austur
bæ. Veikindin hafa ekki bara verið
erfið líkamlega heldur líka fjár
hagslega. Davíð hefur ekki get
að sinnt fullri vinnu síðan hann
greindist fyrst árið 2008. Það hef
ur því eðlilega tekið sinn toll af
fjárhag heimilisins. Auk þess er líf
ræna mataræðið ekki niðurgreitt
en það kostar sitt. „Því miður er
þetta ekki viðurkennd leið en von
andi breytist það. Eins og er þá er
þetta er ekki niðurgreitt eins og
lyfin væru,“ segir hann.
Vinir og velunnarar Davíðs
standa að baki tónleikunum en
þar í fararbroddi er Gunnar Sverr
isson, móðurbróðir Davíðs. Á
þeim koma margir af þekktustu
tónlistar mönnum landsins fram.
Meðal annars Björgvin Halldórs
son sem er fjölskylduvinur Davíðs
og Karenar, Bubbi Morthens,
Brimkló, en faðir Davíðs er gítar
leikari í þeirri sveit, KK, Sálin hans
Jóns míns og hljómsveitin Illgresi
sem er Davíð afar kær en æsku
vinir hans eru í því bandi. „Ég er
gríðarlega ánægður með alla þá
listamenn sem koma fram. Er mér
það einkar hugleikið að vinir mín
ir í Illgresi ætli að taka þátt en ég
hef verið í kringum bandið síðan
það var stofnað,“ segir hann þakk
látur fyrir stuðninginn sem honum
er sýndur.
Ætlar að ná bata
Davíð er langt frá því að vera á
þeim buxunum að gefast upp. „Ég
sé ekki dauða minn fyrir framan
mig, ég hugsa bara ekki þannig. Ég
er í baráttu og ég ætla að ná bata.
Og ég trúi að það sé hægt á þenn
an hátt. Með huga og líkama. Mað
ur hefur séð ótrúlegustu kraftaverk
og þessu trúi ég.“ n
Ætlar að sigra meinið
n Berst við ólæknandi krabbamein n Beitir óhefðbundnum aðferðum
„Þegar ég grein-
ist fyrst þá læt
ég þetta í hendurnar á
læknunum. En í þetta
sinn ákvað ég sjálfur að
taka ábyrgðina.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Svona getur
þú hjálpað
n Þeir sem ekki geta mætt á tónleikana
en vilja styrkja Davíð og fjölskyldu er
bent á styrktarreikning 0324-26-
171105, kennitala 171180-5549.
Fjölskyldan Davíð segist ekki ætla að gefast upp heldur ætlar hann að ná bata. Hér er hann ásamt eiginkonu sinni, Karen, og dætrum þeirra.
M
Y
N
d
G
u
N
N
a
r
S
V
Er
r
iS
So
N