Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Blaðsíða 6
Sögðu brandara í dómsal n Fagnaðarfundir voru með þeim ákærðu í réttarsalnum Ö nnur fyrirtaka í máli Annþórs Kristjáns Karlssonar og Bark- ar Birgissonar var í Héraðs- dómi Reykjaness á þriðju- dag. Að þessu sinni voru þeir báðir mættir í dómsal til að taka afstöðu til ákærunnar en þeir höfðu ekki mátt mæta við fyrri fyrirtöku málsins þar sem þeir sátu í einangrun grunaðir um morð á samfanga sínum. Gríðarleg öryggisgæsla var við dómhúsið og einnig sátu óeinkennis- klæddir lögreglumenn inni í dómsal. Annþór og Börkur neituðu báðir sök fyrir dómi en þeir eru meðal annars ákærðir fyrir fjölda alvarlegra ofbeld- isverka og fjárkúgun. Málinu var frest- að til 16. ágúst en verjendur ákærðu fengu frest til að skila greinargerð vegna málsins. Samkvæmt heimildum DV báru Annþór og Börkur sig vel í dómsal og fagnaðarfundir voru með þeim og sex öðrum einstaklingum sem einnig eru ákærðir í málunum. Eiga þeir að hafa sagt brandara, yngri vinum sínum og samákærðu til mikillar gleði. Börkur er einnig ákærður fyr- ir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hrækt að dómara í Héraðs- dómi Reykjaness á dögunum. Það mál verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum DV eru líkur á því að allir dómarar við Héraðsdóm Reykjaness muni lýsa sig vanhæfa til að dæma í máli þeirra Annþórs og Barkar þar sem Börkur er ákærður fyrir að ráðast gegn sam- starfsfélaga þeirra. Mun málið þá að öllum líkindum verða sent annað og tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. n Ísland eitt örfárra Evrópulýðvelda með engar takmarkanir á setu forseta Í sland er í hópi fjögurra lýðvelda í Evrópu þar sem engar takmarkanir er að finna varðandi hve lengi þjóð- höfðingi getur setið. Langalgengast er að ríki takmarki setuna við tvö fjögur til sex ára kjörtímabil. Aðeins Ís- land, Aserbaídsjan, Hvíta-Rússland og Ítalía hafa engar takmarkanir á þessu. Ólafur Ragnar Grímsson er nú í framboði til forseta fimmta kjör- tímabilið í röð. Ef hann nær kjöri, sem flest bendir til, mun hann að líkindum sitja samfellt sem forseti Íslands í 20 ár. Fáir setið lengur DV greindi frá því á dögunum að aðeins í einu lýðræðisríki í heim- inum hefur lýðræðislega kjörinn þjóðarleiðtogi setið lengur en Ólafur Ragnar, en það Jean-Claude Juncker, forseti Lúxemborgar, sem hef- ur ríkt í rúm 17 ár. Af 25 þaulsætn- ustu þjóðarleiðtogum heims skera þeir tveir sig því alveg úr. Enginn lýðræðislega kjörinn þjóðarleið- togi Evrópu, eða annarra vestrænna ríkja, hefur nú setið að völdum í 20 ár líkt og Ólafur Ragnar sækist eftir að gera. Arfgengt embætti Í Evrópu eru tólf ríki sem eru kon- ung- eða furstadæmi. Í þeim ríkjum gengur embætti þjóðhöfðingja í arf. Í lýðveldisríkjum eru langflest lönd hins vegar með reglur um að þjóð- höfðingjar geti bara gegnt embætti þjóðhöfðingja í tvö kjörtímabil. Lýð- veldi er tegund stjórnarfars þar sem þjóðhöfðinginn er kjörinn eða út- nefndur. Oftast eru þjóðhöfðingjar kjörnir en sums staðar er það þannig að hann er valinn af þingi eða fá- mennri valdaklíku. Pútín tvisvar forseti Sums staðar, eins og í Rússlandi, er það þannig að sami maðurinn get- ur gegnt forsetaembættinu oftar en einu sinni. Þannig var Vladimír Pútín kjörinn forseti í vor eftir að hafa gegnt stöðunni árin 2000 til 2008. Í milli- tíðinni gegndi hann stöðu forsætis- ráðherra landsins. Í smáríkinu San Marínó ræður sá sem fer með forseta- vald, kjörinn af þinginu, í sex mánuði í senn en hann má stýra landinu oftar en einu sinni. Mun breytast Eins og áður segir er Ísland í hópi fárra landa sem hafa engar tak- markanir á setu þjóðhöfðingja. Þetta kann þó að breytast nái stjórnarskrá stjórnlagaráðs fram að ganga. Þar segir að forseti skuli ekki sitja lengur en þrjú kjörtímabil. Nái frumvarpið um stjórnarskrána fram að ganga er ljóst að Ólafur Ragnar er síðasti for- setinn til að gegna embættinu leng- ur en 12 ár. Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Reglur um þjóðhöfðingja innan Evrópulanda 6 Fréttir 20. júní 2012 Miðvikudagur Konungdæmi/furstadæmiEngar reglur Tvö kjörtímabil (fjögur til sjö ár í senn) Þjóðhöfðingi valinn til hálfs eða eins árs í senn (ótakmarkað oft, en ekki tvisvar í röð) Ólafur Ragnar Grímsson 15 ár Vladimir Putin Rússland, 8 ár Silvio Berlusconi Ítalía, 9 ár Flest ríki banna langa valdasetu Umfjöllun 8. júní 2012 Nursultan Nazarbayev Kasakstan, 22 ár (Fyrsti þjóðhöfðingi landsins. Reglurnar gilda ekki á meðan hann situr.) Alexander Lukashenko Hvíta-Rússland, 17 ár Grunaðir Annþór og Börkur eru ákærðir fyrir ofbeldisbrot. Íslandsbanki styrkir hestamenn Íslandsbanki og Ergó, fjármögn- unarþjónusta bankans, hafa gert samning við Landssam- band Hestamannafélaga sem felur í sér að bankinn verði aðal- styrktaraðili sambandsins næstu þrjú árin. Sambandið er þriðja stærsta sérsambandið innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Bankinn mun í gegn- um samstarfssamninginn styðja Landsmót hestamanna sem fram fer síðar í mánuðinum auk þess sem viðskiptavinir bankans fá 20 prósenta afslátt á dagmiða- verði á Landsmótið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankan- um. Braut glugga á barnaherbergi Á þriðjudagsmorgun fékk lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um að maður væri að berja á glugga í íbúðarhúsi í austurborginni. Þegar lögreglu- menn komu á staðinn var búið að brjóta rúðu í svefnherbergis- glugga þar sem barn svaf fyrir innan. Fyrir utan húsið sat ungur maður í tröppum og var hann illa áttaður vegna vímuefnaneyslu. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangageymslu þar til hægt var að taka af honum skýrslu, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.