Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Blaðsíða 25
Herra Áreiðanlegur
Eins og áður sagði vakti Gómez
fyrst athygli hjá Stuttgart. Hann
stóð sig vel með varaliðinu og
raðaði þar inn mörkum. Hann
fékk fyrst tækifæri með aðal
liðinu leiktíðina 2003 til 2004
en leiktíðina 2005 til 2006 var
hann orðinn fastamaður í aðal
liðinu. Hann skoraði 6 mörk í 30
leikjum þá leiktíð en 14 mörk,
19 og svo 24 næstu þrjár leik
tíðir. Hann hlaut viðurnefnið
„Mr. Zuverlässig“ eða Herra
Áreiðanlegur. Hann var orðinn
of stór fyrir Stuttgart og svo fór
að risarnir í Bayern München
keyptu hann á um 5 milljarða
íslenskra króna í maí 2009, þar
sem hann skrifaði undir fjögurra
ára samning. Gómez er dýrasti
leikmaður sem keyptur hefur
verið í þýsku Bundesligunni.
Draumaframherji
Hann byrjaði ekki nógu vel hjá
Bayern og skoraði aðeins 10
mörk í 29 leikjum fyrstu leik
tíðina. Þrátt fyrir það var hann
fastamaður í byrjunarliðinu
á næstu leiktíð, líklega vegna
meiðsla Ivica Olic, og lék við
hlið þýsku goðsagnarinnar
Miroslav Klose í framlínunni.
Hann sló í gegn og skoraði 28
mörk í deildinni. Hann skor
aði 39 mörk í öllum keppn
um. Síðan þá hefur hann ver
ið óstöðvandi og er einn allra
eftirsóttasti leikmaðurinn í
heiminum í dag.
Mario Gómez hefur allt
til að bera sem prýðir góðan
framherja. Hann getur skor
að mörk með báðum fótum
og þykir einnig góður í loft
inu. „Hann er frábær í því að
klára færin sín og er oftar en
ekki réttur maður á réttum
stað,“ hefur Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal,
látið hafa eftir sér um leik
manninn – í lauslegri þýð
ingu. Gómez þykir einmitt
sérlega lunkinn við að vera
á réttum stað; hann er góð
ur í að lesa leikinn og er þess
vegna draumaframherji allra
þjálfara sem treysta á fyrir
gjafir.
Herra Áreiðanlegur
„Hann er frá-
bær í því að
klára færin sín og er
oftar en ekki réttur
maður á réttum stað.
n Er hálfur Spánverji n Hefur barist fyrir rétti samkynhneigðra
Með kærustunni Gómez hefur þurft að bera til baka rangfærslur um kynhneigð sína.
Sport 25Miðvikudagur 20. júní 2012
Nú sluppu Englendingar
n Úkraínumenn skoruðu mark sem ekki stóð
Þ
að voru Englendingar
og Frakkar sem
tryggðu sér síðustu
sæt in í 8 liða úrslitin á
Evrópu mótinu í knatt spyrnu
sem fram fer í Póllandi og
Úkraínu. Englendingar voru
stálheppnir að leggja Úkra
ínu að velli þegar Wayne
Rooney, sem hafði verið í
banni í fyrstu tveimur leikj
unum, skoraði af stuttu færi
eftir að fyrirgjöf frá sam herja
hans hafði haft viðkomu
í tveimur varnarmönn
um og mark verði Úkra ínska
liðsins. Skömmu síðar skall
hurð sannarlega nærri hæl
um Eng lendinga þegar John
Terry virtist bjarga á línu. Í
endursýningum sást hins
vegar að boltinn fór allur
yfir línuna og hefði markið
því átt að standa. Skemmst
er að minnast þess að á síð
asta Heims meistara móti
sátu Englendingar hinum
megin borðsins; skor uðu
mark gegn Þjóðverjum sem
ekki fékkst dæmt gilt eftir að
Manuel Neuer virtist ná að
verja skotið. Upptökur sýndu
hins vegar að boltinn fór yfir
línuna. Það atvik reyndist
Eng lendingum dýrkeypt en
þess má geta að jafnvel þó
mark Úkraínu hefði staðið
hefðu Englendingar unnið
riðilinn.
Frakkar máttu á sama
tíma þola 2–0 tap gegn Sví
um en það kom þó ekki í
veg fyrir að þeir næðu öðru
sætinu í riðlinum. Zlatan
Ibrahimovic skoraði fyrra
mark Svía sem náðu sér ekki
á strik á mótinu en Sebastian
Larsson hið síðara, skömmu
fyrir leikslok.
Englendingar mæta Ítöl
um í 8 liða úrslitum en Frakk
ar mæta Evrópumeistur
um Spánverja. Þjóðverjar
mæta Grikkjum en Tékkar og
Portúgalar eigast fyrstir við, á
fimmtudaginn.
baldur@dv.is
Úrslit
ÚRSLIT EM
Króatía - Spánn 0-1
0–1 (Navas 87.)
Ítalía - Írland 2-0
1–0 (Cassano 35.),
2-0 (Balotelli 90.)
England - Úkraína 1-0
1–0 (Rooney 48.)
Svíþjóð - Frakkland 2-0
1–0 (Zlatan Ibrahimovic 54.),
2–0 (Sebastian Larsson 90.)
A riðill
1. Tékkland 3 2 0 1 4:5 6
2. Grikkland 3 1 1 1 3:3 4
3. Rússland 3 1 1 1 5:3 4
4. Pólland 3 0 2 1 2:3 2
B riðill
1. Þýskaland 3 3 0 0 5:2 9
2. Portúgal 3 2 0 1 5:4 6
3. Danmörk 3 1 0 2 4:5 3
4. Holland 3 0 0 3 2:5 0
C riðill
1. Spánn 3 2 1 0 6:1 7
2. Ítalía 3 1 2 0 4:2 5
3. Króatía 3 1 1 1 4:3 4
4. Írland 3 0 0 3 1:9 0
D riðill
1. England 3 2 1 0 5:3 7
2. Frakkland 3 1 1 1 3:3 4
3. Úkraína 3 1 0 2 2:4 3
4. Svíþjóð 3 1 0 2 5:5 3
Hetja Rooney sneri aftur
eftir leikbann og skoraði
eina mark leiksins.
Ronaldo
reyndi oftast
að skora
Cristiano Ronaldo, leik
maður Portúgals, átti flestar
marktilraunir í riðlakeppn
inni á Evrópumótinu í
knattspyrnu en henni lauk í
gær. Ronaldo reyndi þrettán
sinnum að skora en Spán
verjinn Andrés Iniesta skaut
tíu sinnum á markið.
Listinn yfir fjölda mark
tilrauna endurspeglar þó
ekki listann yfir markahæstu
mennina. Þannig voru
Þjóðverjinn Mario Gómez,
Rússinn Alan Dzagoev og
Króatinn Mario Mandzukic
markahæstir í riðlakeppn
inni. Þeir skoruðu þrjú mörk
hver. Rússar og Króatar eru
þó úr leik á mótinu. Spán
verjinn David Silva og Rúss
inn Andrei Arshavin lögðu
upp flest mörk eða þrjú hvor.
Ekki verður leikið á miðviku
dag á mótinu en átta liða úr
slit hefjast á fimmtudag.
Golfdagur
haldinn
hátíðlegur
Golfsamband Íslands hef
ur skipulagt svokallaðan
golfdag sem haldinn verð
ur hátíðlegur víða um land
í dag, miðvikudag. Fram
kemur í fréttatilkynningu frá
sambandinu að í tilefni af
Ólympíuviku ÍSÍ standi til að
kynna golf fyrir Íslending
um. Opið verður frá klukkan
16–19 á æfingasvæði golf
klúbba um allt land og býðst
börnum og unglingum að
læra undirstöðuatriði íþrótt
arinnar. Áhugasamir eru
hvattir til að kynna sér golf
klúbba í sínu nágrenni.