Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Blaðsíða 14
Fjölmiðlar leiksoppar Satans n Næst valdamesti maður kaþólsku kirkjunnar ræðst á fjölmiðla T arciso Bertone kardínáli í Vatíkaninu í Róm og næst valdamesti maður kaþólsku kirkjunnar á eftir Benedikt páfa, sakar fjölmiðla um að herma eftir rithöfundinum Dan Brown vegna umfjöllunar þeirra um hið svokallaða „VatiLeaks“ mál. Talið er að einkaþjónn páfans hafi lek- ið gögnum til fjölmiðla sem benda til spillingar í Vatíkaninu vegna við- skipta við ítölsk fyrirtæki sem unnu fyrir Vatíkanið. Þá varpa skjölin ljósi á deilur á milli á kardínála og valda- baráttu innan banka Vatíkansins. Bertoni kardínáli segir í viðtali við ítalskt tímarit að fjölmiðlaumfjöll- unin sé hluti af herferð djöfulsins til þess að sundra kaþólsku kirkjunni. Viðtalið er hluti af fjölmiðlaherferð kirkjunnar til þess að reyna að milda skaðann af umfjöllun fjölmiðla um meinta spillingu og sundurlyndi. Í viðtalinu sakar hann fjölmiðla um að hundsa vísvitandi alla þá góðu hluti sem kirkjan hefur staðið fyrir. „Margir blaðamenn eru að reyna að leika sama leik og Dan Brown,“ seg- ir kardínálinn, en Brown er höfund- ur bóka á borð við Davinci lykilinn og Englar og djöflar. „Blaðamennirn- ir reyna sífellt að skrifa ævintýri og endurtaka flökkusögur,“ segir hann. „Staðreynd málsins er sú að nú er reynt að sundra kirkjunni, það er djöfullinn sem stendur á bak við það.“ 14 Erlent 20. júní 2012 Miðvikudagur Tarciso Bertone Fjölmiðlar eru notaðir af djöflinum til þess að ýta undir sundurlyndi í kaþólsku kirkjunni að mati kardínálans. AlheimsátAk gegn skuldAkreppunni L eiðtogar stærstu iðnríkja heims, G20, sem hittust á ráð- stefnu í Los Cabos í Mexíkó á þriðjudaginn, segja að Evrópuríki verði að grípa til allra mögulegra aðgerða til þess að ná tökum á skuldakrísunni á evru- svæðinu. Talsmaður G20-ráðstefnunn- ar segir að evrukrísan sé „stærsta einstaka hættan sem efnahag- ur heimsins stendur frammi fyrir.“ Jose Manuel Barroso, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins, segir að kreppan sé ekki aðeins vandamál Evrópu heldur heimsins alls. Sigur Nýs lýðræðis í kosningun- um í Grikklandi, sem er stjórnmála- afl sem vill halda í evruna, hefur ekki orðið lyftistöng á mörkuðum eins og vonir stóðu til. Antonio Samaras, leiðtogi flokksins, fundar nú stíft með leiðtogum Sósíalistaflokksins og annars vinstri flokks um myndun samsteypustjórnar í Grikklandi. Samaras hefur sagt að gera þurfi nauðsynlegar breytingar á skilmál- um í samningi Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins og Grikklands til að koma í veg fyrir að efnahagurinn þar í landi leggist endanlega í rúst. Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, leggst hins vegar alfarið gegn því og vill engar breytingar á samkomulaginu. „Hin nýja ríkis- stjórn Grikklands verður að heiðra skuldbindingar sem Grikkland hef- ur undirgengist. Það verður að halda rammann utan um samkomulagið.“ Bíða eftir úrlausn Á fundi G20 á mánudaginn lýstu margir þjóðarleiðtogar áhyggjum sínum yfir því að úrlausn vandans á evrusvæðinu gengi allt of hægt. „Við erum að bíða eftir því að Evrópa segi okkur hvað hún ætlar að gera,“ seg- ir Robert Zoellick, forstjóri Alþjóða- bankans. Pascal Lamty, leiðtogi Al- þjóðaefnahagsráðsins, tekur undir með Zoellick og lýsir yfir áhyggjum sínum af að ef ekki verði brugðist við strax muni krísan á evrusvæðinu smitast til fleiri ríkja utan þess. Stephen Harper, forsætisráð- herra Kanada, hvatti leiðtoga evruríkja til þess að ráðast í rót- tækar breytingar til þess að greiða úr vandanum. Barosso tók hins vegar til varna fyrir Evrópusam- bandið og svaraði spurningum kanadísks blaðamanns, sem spurði hvers vegna Ameríkuríkin ættu að hætta eignum sínum til þess að bjarga Evrópu. „Við erum ekki kom- in á þessa ráðstefnu til þess að fá kennslu í hvernig á að stjórna efna- hag ríkja. Þessi vandi er ekki upp- runninn í Evrópu. Þessi vandi byrj- aði í Ameríku og fjármálakerfið okkar smitaðist af – hvernig á ég að orða það – óhefðbundnum starfsað- ferðum í fjármálakerfinu þar.“ Kalla eftir alheimsátaki Herman Van Rompuy, forseti Evrópuráðsins, var hins vegar var- færnari í tali en kollegi hans hjá framkvæmdastjórninni og sagði að G20-fundurinn sýndi „stuðning og hvatningu fyrir evruríkin og leiðtoga þeirra sem og Evrópusambandið í heild til að ná tökum á vandanum.“ Vandi Evrópu er þó langt frá því að vera eini vandi á fjármálum heimsins. Blikur eru á lofti í efna- hag Indlands og Kína auk þess sem Bandaríkin eru langt frá því að vera komin í gegnum skaflinn. Leiðtogar G20-ríkjanna ætla að gefa út sameiginlega yfirlýsingu í lok ráðstefnunnar þar sem þeir hvetja til þess að ráðist verði í sameiginlegt átak allra stærstu ríkja heims til þess að leysa vandann. Pútín vill höft Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er á öðru máli en leiðtogar Evrópusam- bandsríkja og Ameríkuríkja. Pútín talar fyrir því að ríki sem glíma við mikinn skuldavanda geti í auknum mæli tekið upp verndartolla. „Það er kominn tími til að hætta að þykjast og komast frekar að samkomulagi sem gerir ríkjum kleift að taka upp verndartolla til þess að verja störf á tímum alþjóðlegrar efnahags- kreppu,“ sagði Pútín. „Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir Rússland, þar sem við mun- um ganga í Alþjóðaefnahagsráðið á þessu ári og við ætlum okkur að vera virkir þátttakendur í umræðun- um um hvernig alþjóðaviðskiptum verður háttað í framtíðinni.“ Barack Obama, forseti Banda- ríkjanna, hefur hins vegar lýst sig algjörlega ósammála Pútín og talar fyrir mikilvægi þess að verndartoll- ar og haftastefnur verði ekki teknar upp. „Það er kominn tími til að hætta að þykjast og komast frekar að samkomulagi sem gerir ríkjum kleift að taka upp verndartolla til þess að verja störf á tímum alþjóðlegrar efnahags- kreppu. n Leiðtogar G20-ríkjanna ósammála um hvernig taka eigi á efnahagsvandanum Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is G20 Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill taka upp hafta- stefnu á meðan forseti Banda- ríkjanna berst gegn henni. Ritskoðun á Google Ríkisstjórnir Vesturlanda, þar með talið Bandaríkjanna, virðast vera að herða ritskoðun á niðurstöð- um leitarvélarinnar Google, sam- kvæmt nýrri skýrslu fyrirtækisins. „Þetta veldur okkur áhyggjum, ekki aðeins vegna þess að mál- frelsi á undir högg að sækja, held- ur líka vegna þess að við erum að fá beiðnir frá ríkjum sem fólk telur að stundi ekki ritskoðun,“ segir í skýrslu Google. „Til dæmis fengum við á seinni helmingi síðasta árs, beiðnir frá spænskum yfirvöldum um að fjar- lægja 270 niðurstöður úr leitarvél- inni. Þetta eru tenglar á bloggsíður og blaðagreinar þar sem nafn- greindir einstaklingar á Spáni eru gagnrýndir. Pólsk ríkisstofnun bað okkur um að fjarlægja tengla á síð- ur sem gagnrýna stofnunina.“ Á síðari hluta ársins 2011 ósk- uðu bandarísk stjórnvöld eftir því að Google fjarlægði 6.192 leitar- niðurstöður. Tengsl á milli tedrykkju og krabbameins Karlmenn sem drekka mikið te eru líklegri til þess að fá krabba- mein í blöðruhálskirtli, samkvæmt nýrri rannsókn. Teymi frá háskól- anum í Glasgow rannsakaði heilsu meira en sex þúsund karlmanna á 37 ára tímabili. Niðurstöðurn- ar voru að karlmenn sem drekka meira en sjö bolla af tei á dag eiga í 50 prósent meiri hættu að fá krabbamein heldur en þeir sem drekka ekki te. Í niðurstöðunum er því hins vegar ekki slegið föstu að tedrykkja valdi krabbameini eða hvort að krabbameinið stafi einfaldlega af því að karlarnir hafi náð ákveðnum aldri. Forsætisráð- herra rekinn Hæstiréttur Pakistan hefur úr- skurðað að Yousuf Raza Giliani, forsætisráðherra landsins, geti ekki gegnt embætti lengur. Hann muni einnig víkja af þingi. Sjö manna dómur hefur ógilt afturvirk lög frá 26. apríl síð- astliðnum, sama dag og hann var sakfelldur af ákæru vegna spillingarmála. Fyrir tveimur mánuðum var Gilani dæmdur í hæstarétti fyrir að hlíta ekki dóms- úrskurði. Hann hafnaði því að fara þess á leit við svissnesk stjórn- völd að þau rannsökuðu ásakanir á hendur forseta landsins um að hann væri sekur um spillingu. Gil- iani vildi meina að forsetinn, sem er grunaður um peningaþvætti, nyti friðhelgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.