Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Page 4
Leiðrétta
launamun
Innanríkisráðuneytið hefur ákveðið
að leiðrétta kynbundinn launamun
í ráðneytinu en við jafnlaunaúttekt
kom í ljós 2,0 prósenta óútskýrð-
ur launamunur meðal sérfræðinga
ráðuneytisins. Þetta kemur fram á
heimasíðu ráðuneytisins.
Við könnun í innanríkisráðu-
neytinu kom í ljós að kynbund-
inn launamunur milli kvenna og
karla í sérfræðingsstöðum var allt
að 3,6 prósentum. Að teknu tilliti til
menntunar, starfsaldurs og reynslu
var óútskýrður launamunur 2,0
prósent. Ekki kom fram launamun-
ur varðandi fasta yfirvinnu.
Á vefsíðu ráðuneytisins stendur
einnig að ráðuneytið telji óviðun-
andi að konur og karlar njóti ekki
sömu launa fyrir sömu störf og
fagni úttektinni sem gefi tæki-
færi til að leiðrétta þessa skekkju.
„Ráðuneytið hefur brugðist við
þessum niðurstöðum með því að
leiðrétta muninn. Í því skyni var
launum nokkurra starfsmanna
breytt og hlutaðeigandi tilkynnt
um það í dag.“ Þetta mun vera í
fyrsta sinn sem fram fer jafnlauna-
úttekt í Stjórnarráðinu og er hún
framkvæmd innan allra ráðuneyta.
Samkvæmt jafnréttisáætlun ber að
kanna árlega hvort fyrir hendi sé
kynbundinn launamunur og jafn-
framt er yfirstjórn gert að skýra frá
því hvernig hún hyggist bregðast við
honum.
n Vilja breyta veiðigjaldi til fyrra horfs eftir kosningar
Þ
ingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins, þeir Árni Johnsen og
Einar K. Guðfinnsson, hafa
lýst því yfir að fyrirkomu-
lagi veiðileyfagjaldsins
verði breytt til fyrra horfs ef Sjálf-
stæðisflokkurinn kemst til valda eft-
ir kosningar. Í samtali við DV segir
Árni Johnsen að mest allt sem komi
frá ríkisstjórninni í fiskveiðistjórn-
unarmálum sé tómt bull: „Þetta
er mismunun og valdbeiting og
skemmdarverk á íslenskum sjávar-
útvegi.“ Um veiðileyfagjaldið segir
Árni að það sé einna verst af öllum
þeim breytingum sem fyrirhugað-
ar eru í fiskveiðistjórnunarmálum.
Einar K. Guðfinnsson lýsti yfir svip-
uðum sjónarmiðum og Árni í samtali
við fréttastofu Ríkisútvarpsins.
Þegar DV leitaði eftir viðbrögðum
frá Merði Árnasyni, þingmanni Sam-
fylkingarinnar, sagði hann að mál-
flutningur Einars og Árna kæmi hon-
um ekki á óvart: „Það hefur ekki
verið neinn samningsvilji um eitt né
neitt. Ég efast hins vegar um að þeir
standi við þetta. En þetta er alveg
rökrétt framhald af afstöðu sjálfstæð-
ismanna í málinu.“
Samkomulag hefur náðst um
breytingar á frumvarpi um veiði-
gjöld, en samkvæmt þeirri tillögu
sem nú liggur fyrir verður gjaldið
á næsta fiskveiðiári föst krónutala.
Gert er ráð fyrir að það skili tæp-
um 13 milljörðum króna. Mun svo
veiðigjaldið miðast við skatthlutfall
af rentu og fara stighækkandi. Sam-
kvæmt Jóhönnu Sigurðardóttur for-
sætisráðherra verður arður þjóðar-
innar af fiskveiðiauðlindinni um
40–50 milljarðar á næstu þremur
árum. Ef úr því rætist verður unnt að
framfylgja þeirri fjárfestingaráætlun
er ríkisstjórnin kynnti fyrr í vikunni.
4 Fréttir 20. júní 2012 Miðvikudagur
E
ignarhaldsfélagið Stím hefur
verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Þann 24. maí síðastliðinn var
kveðinn upp úrskurður þess
efnis í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra. Þetta kemur fram í
Lögbirtingablaðinu. Skiptastjóri er
Árni Pálsson, hæstaréttarlögmað-
ur á Akureyri. Aðspurður segir Árni
að slitastjórn Glitnis hafi óskað eftir
gjaldþrotaskiptunum.
Stím var einkahlutafélag í eigu
Glitnis, Saga Capital, Gunnars Torfa-
sonar, Jakobs Valgeirs Flosason-
ar og fleiri aðila sem keyptu hluta-
bréf í Glitni og FL Group fyrir um 25
milljarða króna í nóvember 2007. Þar
af voru tæpir 20 fengnir að láni frá
Glitni. Um var að ræða kúlulán til 12
mánaða á 20 prósenta vöxtum. Fé-
lagið keypti í Glitni fyrir tæpa 16,5
milljarða og í FL-Group fyrir rúma
6,5 milljarða. Viðskiptin hafa verið til
rannsóknar hjá embætti sérstaks sak-
sóknara vegna gruns um að viðskiptin
hafi verið markaðsmisnotkun og hef-
ur verið framkvæmd húsleit í tengsl-
um við rannsóknina.
Erfið fæðing
Áður en endanlegur hluthafahóp-
ur Stíms varð til var leitað til ým-
issa aðila um kaupin á hlutabréfum
í FL Group og Glitni, meðal annars
til Samherja og fjárfestingarfélags-
ins Gnúps. Í viðtali við DV í sept-
ember 2009 sagði Þorsteinn Már
Baldvinsson, forstjóri Samherja, að
útgerðarfélagið hefði íhugað kaup
á hlutabréfum í Glitni og FL Group
á þessum tíma. „Við skoðuðum ein-
hvern tímann einhver mál sem sjálf-
sagt síðar meir kunna að hafa orðið
að Stími. En það voru ekki forsend-
ur fyrir okkur að fara út í það …
Við skoðuðum kaupin á bréfunum
en keyptum ekki bréfin í þessu til-
felli.“ Á endanum, þegar stórir fjár-
festar, eins og Samherji, höfðu hætt
við að taka þátt í fjárfestingunni,
var að mestu leitað til einstaklinga
sem voru í viðskiptum við eigna-
stýringardeild Glitnis og þeim seldir
hlutir í Stím.
Sátu uppi með bréfin
Bréfin í Glitni og FL Group sem seld
voru inn í Stím komust í eigu Glitn-
is um vorið og sumarið 2007 þegar
verðbréfadeild bankans keypti þau. Á
þessum tíma, þar til í apríl 2007, stóð
yfir barátta um yfirráðin yfir Glitni
sem endaði með því að FL Group, fjár-
festingarfélag Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar og tengdra aðila, náði Glitni á
sitt vald. Eftir að FL Group náði yfir-
ráðum yfir bankanum reyndist hins
vegar erfitt að selja hlutabréfin með
hefðbundnum hætti á markaði, Sam-
herji datt úr skaftinu og fleiri aðil-
ar, og því voru bréfin seld inn í Stím
á endanum þar sem bankinn sjálf-
ur var stærsti hluthafinn. Glitnir ætl-
aði reyndar að selja hlut sinn í Stími
en enginn kaupandi fannst fram
að bankahruninu 2008 enda lækk-
uðu hlutabréf í Glitni jafnt og þétt frá
sumrinu 2007. Aðkoma Glitnis sjálfs
að sölu og kaupum hlutabréfanna er
markaðsmisnotkunarþátturinn sem
til rannsóknar er í viðskiptunum.
Jón Ásgeir sagður hafa skipulagt
viðskiptin
Í stefnu slitastjórnar Glitnis gegn
nokkrum af fyrrverandi stjórnend-
um Glitnis og FL Group frá árinu 2010
kemur fram að Jón Ásgeir hafi verið
maðurinn á bak við Stím-viðskiptin.
Þar segir meðal annars: „Hinn stefndi
Lárus, samkvæmt skipunum Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar, ýtti mjög á eft-
ir Stím-viðskiptunum.“ Samkvæmt
þessu virðist skilanefndin vera að
segja að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi
í raun verið maðurinn á bak við Stím-
viðskiptin enda eru rakin fjölmörg
dæmi um það í stefnunni að Jón Ás-
geir hafi stjórnað Lárusi nánast í einu
og öllu.
Til dæmis segir í stefnunni á ein-
um stað: „Í tölvupósti til Jóns Ásgeirs
þann 20. júní 2007 viðurkenndi Lár-
us hvernig sambandi þeirra væri hátt-
að þegar hann kvartaði undan skip-
unum þeim sem Jón Ásgeir hafði sent
honum með því að segja að Jón Ásge-
ir kæmi fram við hann „frekar eins og
útibússtjóra en forstjóra“.“ Í viðtali við
DV í nóvember 2010 neitaði Jón Ásge-
ir því að hafa komið að viðskiptunum
með Stím. „Ég var ekki að selja bréf fyr-
ir Glitni eða fyrirskipa sölu til Stíms.“
n Viðskiptin til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara
Stím gjaldþrota
„Ég var ekki
að selja bréf
fyrir Glitni eða fyrir-
skipa sölu til Stíms
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Sagður hafa skipulagt
Jón Ásgeir var sagður hafa lagt
á ráðin um Stím-viðskiptin í
stefnu slitastjórnar Glitnis gegn
honum og öðrum stjórnendum
Glitnis og FL Group.
Keyptu land
í Naíróbí
Íslensku hjálparsamtökin ABC
barnahjálp hafa hafið framkvæmd-
ir við nýjan skóla í Pakistan og fest
kaup á sinni fyrstu lóð í Naíróbí.
Þórunn Helgadóttir og samstarfs-
fólk hennar í Kenýa vinna nú að því
að koma upp bráðabirgðahúsnæði
fyrir skóla og heimavist. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu frá hjálpar-
samtökunum en þar kemur einnig
fram að miklir fjármunir sparist við
að koma upp starfseminni á eigin
landi. Söfnun hefur verið hrundið
af stað til að styðja við uppbyggingu
samtakanna í Kenýa og afhenti Erna
Kristín Stefánsdóttir, sem rakaði af
sér hárið gegn áheitum, fyrsta fram-
lagið í söfnunina á þriðjudag.
„Veiðileyfagjaldið einna verst“
Óánægður Árni Sakar ríkisstjórnina um
valdbeitingu og skemmdarverk.
Hluthafalisti
eignarhalds-
félagsins Stíms
32,5% Félag stofnað af gamla Glitni sem
ætlað var til endursölu
15% Gunnar Torfason
10% SPV fjárfesting hf.
10% BLÓ ehf. – félag að fullu í eigu Ósk-
ars Eyjólfssonar
10% Ofjarl ehf. – félag að fullu í eigu Jak-
obs Valgeirs Flosasonar og Ástmars Ingv-
arssonar
8,75% Viðskiptavinir Saga Capital fjár-
festingabanka
6,25 % Saga Capital fjárfestingabanki
2,5% Jakob Valgeir Flosason
2,5% Ástmar Ingvarsson
2,5% Flosi Jakob Valgeirsson