Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Page 12
„Ég er hundrað prósent á því“ 12 Fréttir 20. júní 2012 Miðvikudagur E ndurskoðendafyrirtækið Deloitte stendur við mat sitt á virði eignasafns Sparisjóðs- ins í Keflavík í ársreikningi sjóðsins árið 2008 og telur að eignir hans hafi ekki verið ofmetnar. Þetta segir Þorvarður Gunnarsson, endurskoðandi og forstjóri Deloitte. „Ég kannast ekki við að eignirnar hafi verið ofmetnar í árslok 2008.“ RÚV hefur undanfarið greint frá svartri skýrslu PwC um starfsemi sjóðsins þar sem meðal annars er fjallað um lánveitingar og afskrift- ir á lánum til stjórnenda Sparisjóðs- ins í Keflavík, skyldmenna þeirra og starfsmanna hans. Myndin sem dregin hefur verið upp af starfsemi Sparisjóðsins í Keflavík er að hann hafi verið kominn að fótum fram fyrir hrunið 2008 vegna slæmra lán- veitinga og lélegra veða sem tekin voru fyrir þeim. Í ársreikningum taldi Deloitte eiginfjárstöðu sparisjóðsins, mis- muninn á eignum og skuldum, vera jákvæða um rúma fimm milljarða króna en samkvæmt mati Íslenskra endurskoðenda ehf. í apríl 2010 var eiginfjárstaða sjóðsins neikvæð um rúma sautján milljarða króna. Rúm- lega 22 milljarða króna munur var því á mati Deloitte á eignum spari- sjóðsins í árslok 2010 og á mati Ís- lenskra endurskoðenda ehf. í apríl 2010, þegar nýr sparisjóður í Keflavík var reistur á grunni hins gamla eftir yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á sjóðn- um. Ábending um stöðuna Þorvarður bendir á það að Deloitte hafi áritað ársreikning Sparisjóðs- ins í Keflavík fyrir árið 2008 með ábendingu um rekstrarhæfi sjóðsins í ljósi þess að eiginfjárstaða sjóðsins hafi einungis verið jákvæð um 7,06 prósent þrátt fyrir að lögbundin eig- infjárstaða fjármálafyrirtækja eigi að vera 8 prósent hið minnsta. „Við vekj- um sérstaka athygli á skýringu 43 í ársreikningnum þar sem fram kem- ur að eiginfjárhlutfall sparisjóðs- ins sé undir hinu lögbundna 8 pró- senta hlutfalli.“ Svo sögðum við: „Ef aðgerðir stjórnar ganga ekki eftir og ríkisvaldið ákveður að aðstoða ekki Sparisjóðinn í Keflavík, ríkir óvissa um framtíðarhorfur sparisjóðsins.“ Er það ekki dálítill fyrirvari?“ segir Þorvarður. Hann telur að ábending Deloitte um stöðu sparisjóðsins í árslok 2008 hafi verið það „alvar- leg“ að Fjármálaeftirlitið hefði átt að bregðast við. „Sjóðnum var leyft að starfa í tvö ár eftir þetta og síðan áfram undir öðru nafni. Á þessum tíma átti sér stað innlánssöfnun sem á endanum skapar þetta mikla tap ís- lenska ríkisins, tap á innlánum sem ríkið ábyrgðist.“ Blaðamaður spyr Þorvarð þá hvort ekki sé líklegt að eftirlitsaðilar hefðu frekar brugðist við stöðu Sparisjóðsins í Keflavík ef viðvaran- ir Deloitte hefðu verið meiri og ef niðurstaða fyrirtækisins hefði verið að eiginfjárstaða sjóðsins hefði ver- ið orðin verulega neikvæð í árslok 2008. „Það er svo ofboðslega auðvelt að horfa í baksýnisspegilinn,“ segir Þorvarður þá. Talsverður munur Blaðamaður bendir Þorvarði þá á þann talsverða mun sem var á þeirri niðurstöðu Deloitte að eiginfjárstaða Sparisjóðsins í Keflavík væri jákvæð um rúm prósent og að eigið fé hans væri fimm milljarðar króna, og þeirri niðurstöðu Íslenskra endurskoð- enda að eiginfjárstaða hans væri nei- kvæð um rúma 17 milljarða. Á heimasíðu fjármálaráðuneyt- isins, í samantekt um sögu Spari- sjóðsins í Keflavík eftir hrunið 2008 og yfirtöku ríkisins á honum í apr- íl 2010, segir meðal annars að staða sparisjóðsins hafi verið miklu verri en áður hafi verið talið í gögnum um fjárhagsmálefni sjóðsins. „Þessar tölur sýna að efnahagur Sparisjóðs- ins í Keflavík reyndist langtum verri en áður var talið. Ljóst var að virði eignasafnsins hafði verið stórlega ofmetið, innviðir sparisjóðsins voru veikari en áður var talið, staða fyrir- tækja og atvinnuástand á starfssvæði sjóðsins slæmt og orðspor sjóðsins stórlega laskað.“ Þá er einnig bent á það að gengis- lánadómur Hæstaréttar Íslands í júní 2010 hafi rýrt verðmæti útlánasafns sparisjóðsins. Í kjölfar þess dóms vann Ernst og Young verðmat á eign- um sparisjóðsins þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að eiginfjárstað- an væri neikvæð um 11,2 milljarða. Á heimasíðunni segir enn frem- ur að eftir yfirtöku Landsbankans á sparisjóðnum í fyrra hafi bankinn lagt sjálfstætt mat á mismun á eign- um og skuldum sjóðsins og komist að því í júní 2011 að sá mismunur næmi tæpum 30 milljörðum króna. Svo segir: „Mismunur á mati stjórn- enda SpKef sparisjóðs og Lands- bankans var því tæplega 17 mia. kr.“ Íslenska ríkinu var svo gert, fyrir skömmu, að greiða Landsbankanum rúmlega 19 milljarða króna vegna yf- irtökunnar á sparisjóðnum. Segir endurskoðunina góða Þegar Þorvarður er spurður að því hvernig hann réttlæti verðmat Deloitte á eignastöðu Sparisjóðs- ins í Keflavík í árslok 2008 þar sem munurinn á mati ólíkra endurskoð- enda hafi verið jafn mikill og raun ber vitni, segir hann að langur tími hafi liðið á milli matanna á eignun- um, gengislánadómur Hæstaréttar Íslands hafi rýrt verð eigna sjóðsins og svo framvegis. Þessi rök Þorvarð- ar má til sanns vegar færa en þeir atburðir sem hann vísar til áttu vissulega þátt í að rýra eignasafnið. Spurningin er hins vegar sú hvort þessir atburðir nægi til að útskýra þann mikla verðmun sem var á eign- um sjóðsins. Þorvarður segir: „Þetta er í árs- lok 2008. Á þessum tímapunkti var þetta niðurstaðan að talan væri þessi […] Við unnum bara okkur endur- skoðendavinnu eins og við áttum að gera og ábendingin í ársreikningn- um 2008 var að okkar mati fullnægj- andi. Ég er hundrað prósent á því. En þú verður að athuga að á þessu tímabili sem leið frá okkar mati og mati annarra endurskoðenda gerð- ist ýmisleg sem hafði neikvæð áhrif á eignasafnið. Atvinnuástand á Suðurnesjum, virði veðanna lækkar, húsnæðisverð á Suðurnesjum lækk- ar, gengi krónunnar lækkar, geng- islánadómurinn […] Það sem gerist eftir þetta hafði stórkostleg áhrif á eignasafn sjóðsins.“ Byggt á mati stjórnenda Blaðamaður spyr Þorvald þá hvort þessar ástæður sem hann nefni séu nægjanlegar til að réttlæta mismun- inn á matinu á verðmæti eignasafns Sparisjóðsins í Keflavík og hvort verðmat Deloitte á eignum sjóðs- ins hafi eingöngu verið byggt á mati stjórnenda hans, með öðrum orð- um hvort mat endurskoðandans hafi verið hlutlaust og sjálfstætt. „Já, við náttúrulega framkvæmum endur- skoðun á því verðmati sem stjórn- endur sjóðsins koma með.“ Aðspurður hvort verðmat Deloitte hafi tekið einhverjum breytingum við endurskoðun Deloitte á eignasafni Sparisjóðsins í Keflavík í árslok 2008 segir Þorvarður að hann geti ekki svarað því. „Ég er nú ekki alveg inni í því hvernig vinnan fór fram þarna og hvort verðmatið hafi breyst eitthvað við okkar vinnu. En ég fullyrði að við unnum okkur vinnu eins og við átt- um að gera og ábendingin í ársreikn- ingnum sýnir fram á það.“ Deloitte byggði því mat sitt á eignasafni Sparisjóðsins í Keflavík á mati stjórnenda sjóðsins á því. Ekki liggur fyrir, eftir samræðurn- ar við Þorvarð, hversu miklum breytingum þetta verðmat stjórn- enda sjóðsins tók í meðförum Deloitte. n n Deloitte ver sig út af Sparisjóðnum í Keflavík n 22 milljarða munur á verðmati „Sjóðnum var leyft að starfa í tvö ár eftir þetta og síðan áfram undir öðru nafni Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Fréttaviðtal Skuldaslóð Birgis Í apríl 2010 námu lán- veitingar til Birgis Más Runólfssonar, stjórnar- manns í Sparisjóðnum í Keflavík, rúmlega 800 milljónum króna. Lán til Birgis, og annarra stjórnarmanna, voru oft og tíðum veitt án sam- þykkis stjórnarinnar. Standa við ársreikninginn Þorvarður Gunnarsson segir að Deloitte hafi unnið sína vinnu við ársreikning Sparisjóðsins í Keflavík eftir bestu vitund. 22 milljarða munur var á verðmati Deloitte á eignum sjóðsins í árslok 2008 og annars endurskoðenda í apríl 2010. Mynd GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.