Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Síða 19
Ódýrast í Bodrum og Prag Bodrum Tyrkland Bjór á veitingastað (0,5 l): 320 kr. Kók á veitingastað (0,33 l): 210 kr. Cappuccino: 345 kr. Vatnsflaska (0,33 l): 65 kr. Máltíð á McDonald‘s: 790 kr. Máltíð á ódýrum veitingastað: 830 kr. Máltíð fyrir 2 á miðlungs veitingastað (3 rétta): 3.700 kr. Matur og drykkur samtals: 6.260 kr. Flug (2 fullorðnir/2 börn) 24. ágúst– 4. sept- ember: Verð frá 367.600 kr. (Heimsferðir) Hótel (2 fullorðnir/2 börn) 22. –29. ágúst: Verð frá 57.500 kr. Pakkaferð (2 fullorðnir/2 börn) 24. ágúst– 4. september: Verð frá 525.060 kr. (Ferð.is) Neytendur 19Miðvikudagur 20. júní 2012 Vaxtagreiðsluþak Íslandsbanka gagnrýnt n Neytendur einir bera ábyrgð, segir Dögun, málefnahópur um húsnæðismál M álefnahópur Dögunar um húsnæðismál varar neyt­ endur við svokölluðu vaxta­ greiðsluþaki Íslandsbanka. „Á ferðinni er flókin fjármálaafurð, afleiða, sem í raun verðtryggir óverð­ tryggð lán með þeim afleiðingum að heildarendurgreiðsla neytenda vegna slíkra lána eykst. Óásættanlegt er að velta allri áhættu af þróun vaxta yfir á neytendur þegar kemur að viðskipt­ um með lánsfé. Eðlilegt er að lánveitandi og lán­ takandi deili tilfallandi kostnaði vegna virðisrýrnunar gjaldmiðils. Neytend­ ur geta ekki einir borið ábyrgð á þeim efnahagslega óstöðugleika sem hlýst af peningamálastefnu stjórnvalda,“ segir í tilkynningu frá málefnahópnum sem krefst þess að verðtrygging á neyt­ endalánum verði afnumin tafarlaust og að almenn leiðrétting húsnæðis­ lána nái fram að ganga. „Markmið og tilgangur vaxta­ greiðsluþaksins er að létta greiðslu­ byrði þeirra viðskiptavina sem eru með óverðtryggð húsnæðislán í óhag­ stæðara vaxtaumhverfi og að auðvelda viðskiptavinum að velja óverðtryggða lánaskilmála þrátt fyrir hærra vaxta­ stig,“ segir Guðný Helga Herbertsdótt­ ir, markaðsstjóri hjá Íslandsbanka. „Líkt og hjá öðrum bönkum taka vextir óverðtryggðra lána hjá Íslands­ banka mið af vaxtastiginu í landinu og þar með stýrivöxtum Seðlabanka Íslands. Rétt er að árétta að vaxta­ greiðsluþakið er valkvæð þjónusta þar sem lántakendur velja sjálfir sitt vaxtagreiðsluþak sem þó verður að vera yfir 7,5%. Þannig getur viðskipta­ vinurinn stillt vaxtagreiðsluþakið af miðað við sína greiðslugetu. Með tilkomu vaxtagreiðsluþaksins verða óverðtryggð húsnæðislán raunveru­ legur valkostur fyrir stærri hóp lán­ takenda til framtíðar litið. Um 90% lántakenda hjá Íslands­ banka hafa valið óverðtryggð hús­ næðislán síðustu misseri. Bæði verð­ tryggð og óverðtryggð lán hafa kosti og galla sem þarf að vega og meta eftir því hvert markmiðið er hverju sinni. Eignamyndun er hægari hjá þeim sem hafa verðtryggð lán, hluti fjármagnskostnaðar bætist við höf­ uðstól lánsins í hvert skipti sem hann fellur til, það er að segja verð­ bæturnar. Óverðtryggðu húsnæðis­ lánin hafa þyngri greiðslubyrði í upp­ hafi lánstímans samanborið við þau verðtryggðu og sveiflurnar í greiðslu­ byrðinni eru meiri. Þar eru nafnvext­ ir greiddir jafnóðum, vaxtabreytingar hafa því strax áhrif á greiðslur lántak­ andans. Hins vegar er eignamynd­ un hraðari hjá þeim sem hafa þessi lán. Fjármagnskostnaður er greiddur að fullu í hvert skipti sem hann fell­ ur til og því engu bætt við höfuðstól. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að kynna sér kosti og galla beggja láns­ forma.“ Flókin fjármálaafurð „Á ferðinni er flókin fjármálaafurð, afleiða, sem í raun verðtryggir óverðtryggð lán með þeim afleiðingum að heildarendurgreiðsla neytenda vegna slíkra lána eykst,“ segir málefnahópurinn Dögun. Köben Danmörk Bjór á veitingastað (0,5 l): 920 kr. Kók á veitingastað (0,33 l): 455 kr. Cappuccino: 720 kr. Vatnsflaska (0,33 l): 320 kr. Máltíð á McDonald‘s: 1.470 kr. Máltíð á ódýrum veitingastað: 2.330 kr. Máltíð fyrir 2 á miðlungs veitingastað (3 rétta): 12.340 kr. Matur og drykkur samtals: 18.555 kr. Flug (2 fullorðnir/2 börn) 22.–29. ágúst: Verð frá 105.310 kr. (Wow air) Hótel (2 fullorðnir/2 börn) 22.–29. ágúst: Verð frá 89.250 kr. Pakkaferð (2 fullorðnir/2 börn) 23.–27. ágúst: Verð frá 325.600 kr. (Icelandair) London Bretland Bjór á veitingastað (0,5 l): 650 kr. Kók á veitingastað (0,33 l): 250 kr. Cappuccino: 460 kr. Vatnsflaska (0,33 l): 190 kr. Máltíð á McDonald‘s: 950 kr. Máltíð á ódýrum veitingastað: 2.440 kr. Máltíð fyrir 2 á miðlungs veitingastað (3 rétta): 9.150 kr. Matur og drykkur samtals: 14.090 kr. Flug (2 fullorðnir/2 börn) 22. ágúst–29. ágúst: Verð frá 100.440 kr. (Wow air) Hótel (2 fullorðnir/2 börn) 22. ágúst–29. ágúst: Verð frá 72.750 kr. Pakkaferð (2 fullorðnir/2 börn) 24.–26. ágúst: Verð frá 309.940 kr. (Icelandair) New York Bandaríkin Bjór á veitingastað (0,5 l): 625 kr. Kók á veitingastað (0,33 l): 220 kr. Cappuccino: 450 kr. Vatnsflaska (0,33 l): 195 kr. Máltíð á McDonald‘s: 890 kr. Máltíð á ódýrum veitingastað: 1.650 kr. Máltíð fyrir 2 á miðlungs veitingastað (3 rétta): 9.900 kr. Matur og drykkur samtals: 13.930 kr. Flug (2 fullorðnir/2 börn) 22.–29. ágúst: Verð frá 410.430 kr. (Icelandair) Hótel (2 fullorðnir/2 börn) 22.–29. ágúst: Verð frá 100.900 kr. Pakkaferð (2 fullorðnir/2 börn) 25. ágúst– 1. september: Verð frá 687.300 kr. (Icelandair) Barcelona Spánn Bjór á veitingastað (0,5 l): 430 kr. Kók á veitingastað (0,33 l): 290 kr. Cappuccino: 310 kr. Vatnsflaska (0,33 l): 220 kr. Máltíð á McDonald‘s: 1.070 kr. Máltíð á ódýrum veitingastað: 1.700 kr. Máltíð fyrir 2 á miðlungs veitingastað (3 rétta): 7.500 kr. Matur og drykkur samtals: 11.520 kr. Flug (2 fullorðnir/2 börn) 22.–29. ágúst: Verð frá 252.542 kr. (Iceland Express) Hótel (2 fullorðnir/2 börn) 22.–29. ágúst: Verð frá 93.600 kr. Pakkaferð (2 fullorðnir/2 börn) - Engin pakkaferð fannst í lok ágúst. Rhodos Grikkland Bjór á veitingastað (0,5 l): 375 kr. Kók á veitingastað (0,33 l): 160 kr. Cappuccino: 475 kr. Vatnsflaska (0,33 l): 80 kr. Máltíð á McDonald‘s: 950 kr. Máltíð á ódýrum veitingastað: 1.880 kr. Máltíð fyrir 2 á miðlungs veitingastað (3 rétta): 6.350 kr. Matur og drykkur samtals: 10.270 kr. Flug til London (2 fullorðnir/2 börn) 22.–31. ágúst: Verð frá 144.462 kr. (Iceland Express) Flug London-Rhodos (2 fullorðnir/2 börn) 22.–30. ágúst: 211.388 kr. (Easy Jet) Hótel í Rhodos (2 fullorðnir/2 börn) 22.–30. ágúst: Verð frá 88.450 kr. Hótel á Gatwick-flugvelli 30.–31. ágúst: Verð frá 11.800 kr. Pakkaferð (2 fullorðnir/2 börn) - Engin pakkaferð fannst í lok ágúst. Bjór á veitingastað (0,5 l): 800 kr. Kók á veitingastað (0,33 l): 280 kr. Cappuccino: 440 kr. Vatnsflaska (0,33 l): 215 kr. Máltíð á McDonald‘s: 1.135 kr. Máltíð á ódýrum veitingastað: 1.400 kr. Máltíð fyrir 2 á miðlungs veitingastað( 3 rétta): 8.960 kr. Matur og drykkur samtals: 13.230 kr. Reykjavík til samanburðar 1 87 6 9 10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.