Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Síða 20
Öruggt kynlíf án hormóna
n Tæki sem lætur þig vita hvar þú ert í tíðahringnum
S
umar konur taka getnað-
arvarnarpilluna nánast öll
sín fullorðinsár án þess að
finna nokkuð fyrir aukaverk-
unum sem henni geta fylgt. En það
eru margar konur sem geta ekki tek-
ið inn hormóna eins og er að finna í
pillunni. Ástæðan fyrir því er oft sú
að þær fá allar aukaverkanirnar sem
varað er við á fylgiseðlinum og fyr-
ir þær konur er þetta ekkert gaman-
mál.
Það er erfitt fyrir konu að fá „með
pillunni“ ógleði, höfuðverk, minni
kynhvöt, bólur, skapsveiflur sem hún
ræður ekki við, að þyngjast, eymsli í
brjóst, höfuðverk, þreytu og grátköst,
allt í þeim tilgangi að geta stundað
kynlíf án þess að óttast það að verða
ófrísk.
Við skulum bara vera heiðarleg:
kynlíf er ekki það fyrsta sem kona
getur hugsað sér þegar hún er búin
að þyngjast, komin með bólur, með
höfuðverk, aum í brjóstunum, pirruð
og þreytt, það er algjörlega af og frá.
Í þessum tilfellum er bara best
að hætta á pillunni og það sem fyrst,
bæði fyrir konuna sjálfa og ekki síst
maka og nána vini.
En það eru ekki margar getnað-
arvarnir í boði fyrir þær konur sem
eru eins og þessar sem lýst er hér.
Það er í rauninni mjög fátt í boði
annað en bara gömlu góðu verjurn-
ar já eða koparlykkjan sem hefur sína
galla sem ekki verður farið nánar út
í hér.
Svo eru til tæki sem konur nota
til að mæla hita sinn um leið og þær
vakna á morgnana, áður en þær fara
fram úr rúminu. Þannig fylgjast þær
með frjósemistímabili sínu, en frjó-
semisdagar eru 6 dagar í mánuði.
Það eru 5 dagar fyrir egglos og svo á
egglosdaginn sjálfan.
Þessi tæki virðast, samkvæmt
athugun DV, ekki vera til á Íslandi,
í það minnsta fundust engin slík til
sölu við vinnslu fréttarinnar. En þau
eru mörg sem hægt er að finna á
netinu á alls konar verði.
Tækið sem DV skoðaði heitir
Lady-Comp. Þetta er lítil handhæg
tölva sem konur geyma í náttborðs-
skúffunni og er líka vekjaraklukka.
Um leið og þær vakna á hverjum
morgni eiga þær að mæla líkamshita
sinn. Tækið fer svo að þekkja kon-
una betur og betur með tímanum
og verður því áreiðanlegra með tím-
anum. Á skjáinn á tækinu koma upp
þrír litir sem segja þér hver staðan er
þann daginn.
-Grænn: Ófrjó
-Rauður: Frjó
-Gulur: Ekki
viss/Er að læra á
hringinn
Gulur er litur
sem með tímanum
kemur æ sjaldnar upp
eftir að tölvan kynnist
þér betur. Hann kemur bara
upp ef einhver óvissa er í gangi
og tækið er samkvæmt heimasíðu
Lady-Comp 99,3 prósent áreiðan-
legt.
Fyrir konur sem hreinlega geta
ekki bætt hormónum í líkama sinn,
hvort sem það er í gegnum pill-
una, hormónalykkjuna, sprautuna,
stafinn eða hringinn þá er þetta al-
veg tilvalin getnaðarvörn. Konan fer
að þekkja tíðahring sinn mjög vel,
það eru engar aukaverkanir og það
eru nokkuð margir dagar þar sem
hægt er að njóta kynlífs án nokkurra
varna. Svo er þetta tæki alveg kjör-
ið líka ef pör eru að reyna að eignast
barn.
20 Lífsstíll 20. júní 2012 Miðvikudagur
Tengsl sykur-
sýki og Alz-
heimers skýrast
Lið vísindamanna segist hafa
fundið mögulegan erfðafræði-
legan hlekk á milli sykursýki og
Alzheimers-sjúkdómsins. Hingað
til hafa vísindamenn ekki vitað af
hverju einstaklingar með sykur-
sýki eru mun líklegri til að þróa
með sér Alzheimers-sjúkdóminn.
Bandarískir vísindamenn rann-
sökuðu bandorma en niðurstöð-
urnar birtust í tímaritinu Genetics.
Þar kemur fram að þekkt Alzheim-
ers-gen hafi einnig áhrif á það
hvernig unnið er úr insúlíni. Sér-
fræðingar í andlegri hrörnun segja
að frekari rannsóknir á mönnum
séu nauðsynlegar.
Bleik ský
Þorbjörg Hafsteinsdóttir sem hef-
ur gefið út bókina Safaríkt líf með
uppskriftum að heilsudrykkjum,
segist ekkert betra vita en að súpa
á slíkum drykkjum og fær sér einn
á hverjum morgni.
Hér er uppskrift að drykknum
Bleik ský, sem Þorbjörg segir vekja
upp sætar sumarminningar. Hún
mælir með því að sá sem hann
lagi sé léttklæddur og beri hann
fram fyrir sinn heittelskaða.
Fyrir tvo
n 300 gr frosin jarðarber
n 1 tsk. vanilluduft
n 2 dl mysuprótínduft
n 3 msk. kaldpressuð hörfræjaolía
n 3 dl sojamjólk eða hrísmjólk
n 1/2 tsk. kanilduft
n 1 msk. lesitín granúlat
n 2–3 þurrkaðar, steinlausar döðlur
n 3–5 tsk. xylitol eða rétt tæp hálf
teskeið af „stevía“-sætuefni
Lady-Comp Tækið mælir
líkamshitann sem segir til
um frjósemi.
M
ín skilgreining á skógar-
jóga er sú að fara í
göngutúr í náttúrunni og
gera standandi jógaæf-
ingar á leiðinni, “ segir
Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir, jóga-
kennari, sjúkraþjálfari og tölvunar-
fræðingur sem hefur nýverið gefið út
bók um skógarjóga með leiðbeining-
um um æfingar.
Ragnheiður lauk jógakennara-
námi hjá Ásmundi Gunnlaugssyni og
sjúkraþjálfun frá Háskólanum 1991.
Undanfarinn áratug hefur hún kennt
leikfimi í Gigtarfélaginu en kennir
nú í félagsmiðstöðinni í Hvassaleiti
56–58. Einnig hefur hún haldið fyr-
irlestra og námskeið um streitu og
slökun og mikilvægi hreyfingar.
Vont veður engin hindrun
Ragnheiði finnst æfingarnar gefa
heilmikla orku og segir að sér finn-
ist ekki síður gefandi að takast á við
vont veður.
„Mér finnast æfingarnar gefa
mér orku og losa um streitu. Mér
finnst góð tilbreyting að komast
út eftir langan vinnudag innan-
dyra og anda að mér fersku lofti
við æfingarnar. Það getur oft gef-
ið manni heilmikla orku að vera í
vondu veðri, að takast á við það gef-
ur manni líka orku þótt það sé líka
yndislegt að ganga úti í góðu veðri.“
Æfingar í fegurð og ró
Byrjað er með léttum upphitun-
aræfingum, að sögn Ragnheiðar,
en eftir það er lagt af stað í göngu-
ferð. Stoppað er nokkrum sinnum
á leiðinni og gerðar standandi æf-
ingar og öndunaræfingar. Loks er
endað með góðum teygjum á upp-
hafsstað. „Mér finnst gott að stoppa
á gróðursælum og fallegum stöðum
og gera æfingarnar þar í ró og næði.“
Ragnheiður segist hrifin af sam-
tvinnuðum áhrifum jóga og úti-
vistar. Jóga auki líkamlegan styrk
og bæti andlega líðan, teygjur lík-
amans auki blóðflæði um allan
líkamann og komi ennfremur
jafnvægi á hormónaflæði, inn-
kirtlakerfið og á meltinguna. Úti-
vistin hafi einnig jákvæð áhrif á
andlega líðan og efnaskipti líkam-
ans. „Með skógarjóga hefur mað-
ur góð áhrif á eiginlega alla líkams-
starfsemi og andlega líðan. Það eru
nokkrir sem hafa komið til mín og
sagt mér frá því að útivistin og jógað
hafi bjargað þeim frá því að finna til
þunglyndis.“
Ragnheiður bendir á að gott sé
að vera klæddur í hlý og þægileg föt
við æfingarnar. „Það er mjög óþægi-
legt að gera æfingar sem þessar ef
manni er kalt. Það er heldur ekki
gott að dúða sig of mikið svo mað-
ur svitni ekki of mikið. Þægilegur og
teygjanlegur fatnaður er nauðsyn
svo það sé hægt að gera æfingarnar.
Ef það er rigning eða vont veður má
fara í fjallgönguskóm en um sum-
artímann er ágætt að vera í striga-
skóm.“
Sækir orku
í náttúruna
n Jóga losar um eiturefni og kemur jafnvægi á hormónaflæði
Slökun í náttúrufegurð Byrjað er á
upphitun. Þá er lagt í gönguferð og gerðar
æfingar á völdum stöðum. Myndir eyþór árnaSon
Helstu kostir jóga
n Eykur líkamlegan styrk og fyrirbyggir
líkamleg og andleg vandamál
n Losar um spennu, streitu og vanlíðan
og eykur orku
n Eykur blóðflæði um allan líkamann
og hefur þannig jákvæð áhrif bæði á
stoðkerfi og innri líffæri
n Kemur jafnvægi á hormónaflæði,
innkirtlakerfi og heiladingul sem og á
meltingu og losun
n Losar um eitur- og úrgangsefni í
líkamanum