Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Side 24
H
ann hefur skorað 121
mark í 215 leikjum
í þýsku Bundeslig-
unni. Hann spil-
ar með Þjóðverjum
á EM og er aðalmarkaskorari
liðsins. Hann er hæverskur,
myndarlegur og hálfur Spán-
verji. Konurnar dýrka hann.
Mario Gómez García sló fyrst í
gegn með Stuttgart. Þegar liðið
varð þýskur meistari, tímabil-
ið 2006/2007, skoraði hann 14
mörk og lagði upp sjö. Hann
var kjörinn leikmaður ársins
í Þýskalandi, aðeins 21 árs að
aldri.
Markahæstur í mótinu
Mario Gómez er sá leikmað-
ur á EM sem veðbankar sögðu
fyrir mót að væri líklegastur til
að verða markakóngur keppn-
innar. Það gæti gengið eft-
ir þegar mið er tekið af því að
hann skoraði þrjú mörk í riðla-
keppninni. Enginn hefur skor-
að fleiri mörk en eins og Þjóð-
verjar hafa spilað eru þeir afar
líklegir til að leika til úrslita á
mótinu. Þeir mæta Grikkjum í
átta liða úrslitum, sem að öllu
jöfnu ættu ekki að verða mikil
fyrirstaða, og mæta svo Portú-
gal eða Tékklandi í undanúr-
slitum. Ef mið er tekið af því
hversu auðveldlega Þjóðverjar
fóru í gegnum riðilinn er lík-
legt að Gómez og félagar fari
alla leið í úrslit.
Þegar allir helstu veðbankar
heims eru skoðaðir kemur
einmitt í ljós að Þjóðverjar eru
líklegastir til að vinna EM og
Mario Gómez er enn líkleg-
astur til að verða markahæstur.
Næstur á eftir honum er Spán-
verjinn Fernando Torres.
Styður baráttu
samkynhneigðra
Mario Gómez er aðeins 26 ára.
Hann er fæddur í Riedlingen
í Þýskalandi og alinn upp í
Baden-Württemberg, sem er
sambandsland í suðvestur-
hluta Þýskalands, um 95 kíló-
metra frá borginni Stuttgart.
Gómez á spænskan föður en
þýska móður og hefur tvöfalt
ríkisfang. Hann ákvað, Þjóð-
verjum til mikillar ánægju, að
velja að leika með landsliði
Þýskalands.
Gómez hefur ekki bara vak-
ið athygli fyrir knattspyrnu-
hæfileika. Hann þykir afar
myndarlegur, ekki síst á með-
al karlmanna. Hann hef-
ur einmitt látið sig réttindi
samkynhneigðra varða og
hefur barist fyrir því að fót-
boltaheimurinn endur-
skoði viðhorf sitt til samkyn-
hneigðra knattspyrnu manna.
Hann hefur hvatt menn í
sportinu til að koma út úr
skápnum og tala opinber-
lega um kynhneigð sína. Þess
vegna hefur honum verið leg-
ið á hálsi fyrir að vera hommi.
Hvað sem þeim vangaveltum
líður er staðfest að Gómez er
í föstu sambandi með Silviu
Meichel.
Herra Áreiðanlegur
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
n Mario Gómez líklegastur til að verða markakóngur
Mario Gómez
Þýskaland
Staða: Framherji
Fæðingardagur: 10.7. 1985 (26 ára)
Treyja númer: 23
Félagslið: Bayern München
Ferill
Félag Tímabil leikir mörk
Stuttgart 2003–09 121 63
B. München 2009–12 94 64
Þýskaland 2007–12 55 25
Kóngurinn Gómez, sem er
aðeins 26 ára, hefur skorað
þrjú mörk á Evrópumótinu.
24 Sport 20. júní 2012 Miðvikudagur
Harðari refsing fyrir auglýsingu
n Króatar sektaðir fyrir gróft kynþáttaníð í garð Balotelli
Á
kvörðun knattspyrnu-
sambands Evrópu, UEFA,
um að dæma Nicklas
Bendtner framherja
danska landsliðsins til hárr-
ar fjársektar fyrir að girða niður
um sig stuttbuxurnar til þess að
sýna nærbuxur sínar með aug-
lýsingu frá veðmálasíðu, hefur
vakið mikla athygli. Bendtner var
sektaður um tæpar 16 milljónir
króna fyrir að brjóta gegn banni
við því að leikmenn auglýsi fyr-
irtæki inni á vellinum á mótinu.
Það sem hefur hins vegar vak-
ið furðu er að knattspyrnusam-
band Króatíu var sektað um
lægri upphæð en Bendtner eða
tæplega 13 milljónir króna í kjöl-
far grófs kynþáttaníðs stuðn-
ingsmanna liðsins í garð Mario
Balotelli framherja ítalska lands-
liðsins. Segja má að stuðnings-
mennirnir hafi látið öllum illum
látum því þeir voru einnig staðn-
ir að verki við að kveikja í flugeld-
um í stúkunni.
Samkvæmt skýrslu um hegð-
un stuðningsmannanna hermdu
um 300 Króatar eftir öpum með
tilheyrandi búkhljóðum og lát-
bragði í hvert skipti sem Balot-
elli snerti boltann. Þá hafa stuðn-
ingsmennirnir verið sakaðir um
að kasta banana í átt að Balot-
elli. Þetta er ein þyngsta fjár-
sekt sem UEFA hefur beitt vegna
kynþátta níðs, en svo virðist
sem sambandið líti auglýsinga-
mennsku danska framherjans
alvarlegri augum miðað við sekt-
ina sem hann fékk. valgeir@dv.is Hörð refsing Það kostaði Bendtner 16 milljónir að sýna þessar nærbuxur.
Lífstíðarbann
frá knattspyrnu
Þrettán leikmenn og þjálf-
ari í Suður-Kóreu og Króat-
íu voru nýlega dæmdir í
lífstíðarleikbann af FIFA,
alþjóða knattspyrnusam-
bandinu, fyrir að hagræða
úrslitum knattspyrnuleikja.
Á meðal þeirra sem fengu
lífstíðarbann er fyrrver-
andi landsliðsmaður Suður-
Kóreu, Kim Dong-Hyun, og
Króatarnir Mario Darmopil
og Daniejel Madaric. Enginn
hinna dæmdu má aftur
koma nálægt neinu sem
tengist knattspyrnu hvar
sem er í heiminum.
Komnir í 18
liða úrslit
Íslenska landsliðið í bridds
er komið í 18 liða úrslit á
Evrópumótinu en úrslita-
keppnin hefst í dag, mið-
vikudag. Níu efstu sveitirnar
úr riðli A og B komust áfram,
en Ísland lenti í 9. sæti í B-
riðli með 255 stig. Íslenska
landsliðið skipa Aðalsteinn
Jörgensen, Bjarni Hólmar
Einarsson, Þorlákur Jóns-
son, Jón Baldursson, Magn-
ús E. Magnússon og Þröstur
Ingimarsson.
„Spennandi
leikmaður“
Ég er mjög ánægður með að
við höfum náð samkomulagi
um kaupin á Birni,“ lét Stale
Solbakken, knattspyrnu stjóri
Wolves, hafa eftir sér þegar
félagið hafði staðfest kaupin.
„Hann er ungur og spennandi
leikmaður sem hefur til að
bera hæfileika sem geta hjálp-
að okkur að ná markmið-
um okkar,“ sagði hann enn
fremur. Everton hafði líka
borið víurnar í leikmanninn
en Wolves hafði betur í bar-
áttunni. Hjá Úlfunum leikur
einnig annar ungur íslenskur
leikmaður; Eggert Gunnþór
Jónsson.