Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Side 3
É
g hef verið að gera aðventu-
kransa frá því um miðjan
október og svo byrjaði ég
að skreyta fyrir um tveimur
vikum og er alltaf að bæta
við. Svo já, það er alveg orðið jóla-
legt hjá mér,“ segir stílistinn, jóla-
barnið og ritstjóri veftímaritsins
Nude Home, Þórunn Högnadóttir.
Þórunn segir aðra í fjöl-
skyldunni sátta við að byrja svo
snemma að skreyta fyrir jólin.
„Þau eru orðin vön þessu auk þess
sem þau eru líka mikil jólabörn,“
segir hún brosandi og bætir við
að hún muni ekki eftir öðru en að
hafa alltaf hlakkað mikið til jól-
anna. „Mamma bakaði alltaf og
skreytti mikið og jólaboðin hjá
ömmu eru mér minnisstæð. Þessi
jólaáhugi hefur samt bara aukist
með hverju árinu,“ segir hún bros-
andi og bætir við að aðventan sé í
sérstöku uppáhaldi hjá henni.
„Þessi tími, þegar farið er
að rökkva og maður getur far-
ið að kveikja á kertum og kveikt
upp í arninum, er svo yndisleg-
ur. Það er svo margt skemmti-
legt að gerast í desember, matur-
inn, aðventu hlaðborðin, tónlistin
og svo eru næstum allar helgar
bókaðar hjá okkur út desember.
Við hittum fjölskyldu og vini og
höldum í ýmsar hefðir. Ég baka
til dæmis alltaf með systur minni
og mömmu og svo förum við fjöl-
skyldan alltaf á Vox í hádeginu
á Þorláksmessu með mágkonu
minni og hennar fjölskyldu. Svo
höfum við líka farið fimm eða sex
síðustu árin á Geysi í Haukadal
þrjár fjölskyldur saman. Þá leigj-
um bústaði og förum á jólahlað-
borð. Þetta er alltaf jafn gaman og
krakkarnir hlakka alltaf jafn mikið
til.“
Þórunn segist eiga mikið af
jólaskrauti sem hún haldi sérstak-
lega upp á. „Í augnablikinu eru það
loðin hreindýr sem ég var að kaupa
í Tekk. Þetta eru alveg guðdóm-
lega falleg hreindýr og alveg eins
og ekta. Þau eru í sérstöku uppá-
haldi hjá mér þetta árið. Svo þykir
mér alltaf jafn vænt um hreindýr-
ið Rúdolf sem er kertastjaki sem
ég keypti í Ameríku fyrir 14 árum.
Hann er ofsalega fallegur og mér
hafa verið boðnar háar upphæðir
fyrir hann. Sem er fyndið því hann
er alls ekki falur.“
Þegar hún er spurð hvort hún
leyfi krökkunum að skreyta mér
sér hlær hún dátt. „Á meðan
krakkarnir voru litlir fengu þeir
sitt jólatré inn í herbergin sín sem
þeir fengu að skreyta að vild. Þá
fékk ég að hafa mitt stóra tré inni
í stofu eins og ég vildi hafa það. Í
dag eru þau svo stór að þeim er í
rauninni slétt sama en þetta var
góð lending. Þau völdu sitt skraut
og seríu og ég mitt og allir voru
sáttir.“
indiana@dv.is
Aðventan 3Helgarblað 30. nóvember – 2. desember 2012
„Mamma
bakaði
alltaf og skreytti
mikið
„Þetta eru alveg gudóm-
lega falleg hreindýr
Rúdolf Fallegi kertastjak-
inn er frá Pottery Barn.
Ró og friður
Þórunn elskar
aðventuna.
Í uppáhaldi Hreindýrin flottu eru frá Tekk.