Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Blaðsíða 14
14 Aðventan 30. nóvember – 2. desember 2012 Helgarblað
Felldu eigið tré
n Finndu jólatréð í jólaskóginum
Þ
að er að verða hluti af jóla-
undirbúningi hjá mörgum að
höggva jólatréð sjálfir en það
má gera til dæmis í Grýlu-
skógi í Heiðmörk. Þar gefst fólki færi
á að höggva sitt eigið jólatré. Skóg-
urinn verður opnaður þann 8. des-
ember og verður opinn um helg-
ar fram að jólum. Það verður Jón
Gnarr borgarstjóri sem heggur fyrsta
tréð á opnunardaginn. Eigi fólk í
erfið leikum með að finna tréð sem
það leitar að þá getur það leitað til
skógarvarðarins. Jólaskógurinn er
opinn frá klukkan 11 til 16 og er þar
boðið upp á kakó og kaffi.
Í Heiðmörk verður einnig jóla-
markaður sem verður staðsettur
við Elliðavatnsbæinn. Markaður-
inn verður opnaður nú um helgina
og verður opinn frá klukkan 11 til 16
um helgar á aðventunni. Þar verður
kaffisala, upplestur rithöfunda, tón-
listaratriði, handverksfólk selur
vörur sínar auk þess sem afskor-
in jólatré verða til sölu. Það verður
því varla hægt annað en að komast í
jólaskap í Heiðmörk á aðventunni.
Dásamlegt
eftirmiðdegi
Nú þegar aðventan gengur í
garð, það húmar að og kólnar
hafa margir gaman af því að hafa
það notalegt heima við eitt eftir-
miðdegi. Einhverjir vilja jafnvel
skreyta heimili sitt með heima-
gerðum gersemum og ekki er
verra ef þær eru ætar. Hér á eftir
fer ágætis piparkökuuppskrift , en
piparkökur eru tilvaldar til þess
að baka og skreyta þær svo með
glassúr eftir hugmyndaflugi hvers
og eins. Með þessu má galdra
fram alls kyns kynjaverur sem geta
glætt heimilið hátíðlegum blæ.
Það sem er kannski ekki verra er
að þeir sem ekki kunna að meta
jólaskrautið geta skorið út eitthvað
allt annað og sýnt í verki mótmæli
sín. Hér ræður hugmyndaflugið.
Piparkökur
n 600 gr hveiti
n 1½ dl síróp
n 75 gr smjörlíki
n 1½ dl sykur
n 1½ dl púðursykur
n 1½ dl mjólk
n 3 tsk. kanilduft
n 2 tsk. engiferduft
n 3 tsk. negulduft
n ½ tsk. pipar
n 4 tsk. natrón
Smjörlíki og síróp er brætt saman við
mjög vægan hita. Það er síðan hrært út
í hin hráefnin og deigið slegið saman.
Nauðsynlegt er að kæla deigið og
best er að ná að kæla það yfir nóttu.
Piparkökurnar eru svo flattar út í litlum
skömmtum og hafðar frekar þunnar,
en þó ekki um of. Þær eru svo bakaðar
í nokkrar mínútur í ofni við 180–200°C.
Nauðsynlegt er að fylgjast með kökunum
vel þar sem bökunartími er misjafn eftir
stærð og þykkt. Ekki gleyma að gera
lítið gat efst á kökuna til þess að þræða
snæri eða borða. Þá er hægt að hengja
kökurnar upp.
Glassúr
Það er einfalt og þægilegt að búa til
glassúr, en hann er þó hægt að kaupa til-
búinn í búð. Best er að nota frekar þykkan
glassúr til að skreyta kökurnar og ekki er
vitlaust að setja hann í plastpoka, klippa
lítið gat á eitt horn pokans og nota sem
rjómasprautu. Hér er ágætis uppskrift að
glassúr.
n 100 gr flórsykur
n ¼ tsk. vanilludropar
Nokkrir dropar sjóðandi vatn og matar-
litur þangað til þeirri þykkt er náð sem er
ákjósanleg. Ef glassúrinn er of þunnur þá
má bæta við flórsykri.
Skemmtilegt spil
fyrir alla aldurshópa
n Teiknararnir Hugleikur, Halldór og Lóa bregða á leik
Texti Halldórs Baldurssonar
við mynd Hugleiks
4 potta af mjólk
½ normalbrauð
Stóra dós af Ora-fiskbúðingi
Grænar baunir
3 pela af rjóma
Hálfan sekk af rófum
og hamsatólg fyrir afganginn.
Texti Hugleiks
við mynd Lóu
„Velkomin í mennta-
málaráðuneytið.
Má ég bjóða
þér kannabis?“
S
krípó er nýtt borðspil eft-
ir höfunda Fimbulfambs.
Í þessu sprenghlægilega
spili hafa skemmtileg-
ustu skopmyndateiknar-
ar landsins lagt til teikningarnar
en þátttakendur semja brandar-
ana.
DV fékk teiknarana Hugleik
Dagsson, Halldór Baldursson og
Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur til þess
að semja brandara fyrir hvers
annars teikningar.
„Mér fannst þetta svo
skemmtileg hugmynd að ég sló
bara til,“ segir Lóa um tilurð
spilsins. Hún er mikill aðdáandi
spilsins Fimbulfambs en höf-
undarnir eru þeir sömu.
„Ég spila enn Fimbulfamb með
ungri frænku minni, hún er svo
flink í spilinu. Það er svo gaman að
spili sem er fyrir alla aldurshópa
og þeir yngri og eldri eiga jafna
möguleika á sigri,“ segir hún.
kristjana@dv.is
Texti Halldórs við
mynd Sigmúnds
„Þremillinn!! …
Var þetta Lindsay
Lohan!?!“
Texti Hugleiks við
mynd Sigmúnds
„Ég hata þjóðhátíð
í Eyjum“
Texti Lóu við mynd
Halldórs Baldurssonar
„Ekki þreyta litlu putt-
ana þína á tölvuspilinu
því þú þarft að bera á
mig kremið á eftir.“
Lóa bregður á leik „Það er gaman að
spili sem er hannað fyrir alla aldurshópa,“
segir Lóa sem bregður hér á leik í vinnustofu sinni. Mynd KoLFinna MjöLL