Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2013, Side 23
Fólk 23Miðvikudagur 17. apríl 2013
Þ
að hefur nú verið þó nokkur
áhugi eftir RFF. En við erum
að vega og meta. Við viljum
fara inn í réttu búðirnar,“ segir
fatahönnuðurinn Guðmundur Jör-
undsson sem á föstudaginn í síðustu
viku opnaði búðina JÖR að Lauga-
vegi 89 þar sem seldur er fatnaður
sem hann hannar undir sama nafni.
Íslendingar hafa tekið opnun
búðarinnar fagnandi og vel hef-
ur verið látið af hönnun hans sem
frumsýnd var á RFF.
Að sögn Guðmundar var tals-
verður undirbúningur fyrir opnun-
ina. „Já, þetta tók nú sinn tíma. En
hefði svo sem alveg getað unnist
hraðar, við opnuðum í raun um leið
og allar vörur voru komnar í hús. Þá
small allt saman inni í versluninni
um leið. Langi Seli (Axel Hallkell Jó-
hannesson) hannaði verslunina og
gerði það listilega vel og leiddi alla
vinnu,“ segir Guðmundur. Hann er
ekki einn að baki merkinu þrátt fyrir
að vera hönnuður þess og andlit út
á við. „Við erum tveir í þessu, enda
gæti ég aldrei nokkurn tímann gert
þetta einn. Við Gunnar Örn Petersen
stofnuðum JÖR saman en Gunnar
er menntaður lögfræðingur og starf-
aði sem slíkur áður en hann vatt sér í
JÖR ævintýrið,“ segir hann.
Guðmundur hannaði áður fyr-
ir Kormák og Skjöld og vakti mikla
athygli fyrir hönnun sína þar. Eftir
að hann fór frá þeim félögum og yfir
í eigin rekstur hóf hann einnig að
hann kvenfatnað, líkt og sjá mátti
á Reykjavík Fashion Festival nú á
dögunum. „Það hefur verið tekið
mjög vel í dömulínuna, en hún kem-
ur í sölu í haust. Þannig að við sjá-
um kannski fyrst þá hvernig þetta
gengur. En frá og með næsta hausti
verðum við alltaf með tvær kven-
línur á ári og tvær fyrir herra,“ segir
Guðmundur.
viktoria@dv.is
n Erlendir aðilar áhugasamir um JÖR n Nýja búðin vinsæl
„Erum að vega og meta“
Nóg að gera Mikill áhugi er fyrir nýju línunni
hans Guðmundar. Erlendir aðilar hafa haft
samband og vilja selja JÖR. MyNd sigtryggur ari
Að verða
„langamma“
„Þessi litla rófa er að gera mig að
langömmu! Ekki seinna vænna
– ég er nú að detta í þrítugt! Til
hamingju Tóta og Depill í næsta
húsi – höhömm …“ skrifar Manu-
ela Ósk Harðardóttir undir mynd
sem hún birti á Instagram-síðu
sinni. Á myndinni heldur hún á
kettinum sínum og hafði þá ný-
lega komið í ljós að köttur dóttur
hennar er kettlingafullur og því
er Manuela að verða „langamma“
eins og hún segir sjálf frá.
„Eða ég
fjarlægi þig“
Ritstjóri menn.is sagði á Facebook-
síðu sinni frá skemmtilegri uppá-
komu sem hann varð fyrir í World
Class Laugum þegar Kári Stefáns-
son kom upp að honum og spurði
hvort hann ætti mikið eftir. Helgi
sagði svo vera. „Þá gekk hann alveg
upp að mér, þannig rétt mátti muna
rakvélarblaði á milli andlita okkar.
K:„Þú verður að hætta í þessu tæki
núna,“ sagði hann ógnandi. H: „Nei
það geri ég ekki.“„Þú gerir það með
fúsum og frjálsum vilja - eða ég
fjarlægi þig.“ Við horfðum nú djúpt
í augu hvor annars - og ég spurði:
„Ertu að meina þetta?“ Þá spratt sá
gamli fram í mikinn hlátur,“ seg-
ir Helgi á síðunni og Kári svaraði:
„Nei, ég er ekki að því – en mað-
ur verður að gera eitthvað til að
skemmta sér hérna.“
n Jón stóri hefur breytt um lífsstíl n „Þetta var erfitt fyrst“
Þ
að gengur bara mjög vel hjá
mér, mér hefur ekki liðið
betur í mörg ár. Ég var bú-
inn að reyna að verða edrú
í tvö ár. Mér bauðst síðan
að fara til Grundarfjarðar til vinar
míns sem hjálpaði mér í gegnum
þetta. Það skiptir rosa miklu máli
að komast út úr borginni, losna við
áreitið og komast í kyrrðina úti á
landi,“ segir Jón H. Hallgrímsson,
betur þekktur sem Jón stóri. Jón er
nýkominn aftur til borgarinnar eft-
ir að hafa dvalið tæpar sjö vikur á
Grundarfirði þar sem hann þurrkaði
sig upp með hjálp góðs vinar síns.
Nú fer hann eftir AA-bókinni og seg-
ist aldrei hafa verið sælli.
Jón hefur rætt opinskátt um
handrukkanir, fíkniefni og fleira
en segist nú vera kominn á beinu
brautina, hann sé allavega búinn að
segja skilið við fíkniefni og áfengi en
segist ekki vilja tjá sig um rukkanirn-
ar. Hann segir að neyslan hafi verið
farin að stjórna lífi hans og hann hafi
viljað losna. Jón hefur einnig tjáð sig
um steranotkun sína en hann seg-
ist vera að trappa sig niður af þeim
að læknisráði því fráhvörfin séu svo
mikil.
„Ég hef nú lengi verið að mæta
á fundi en ég prófaði að fara í þetta
AA-prógramm, sporin og svona, og
er alveg búinn að sjá að það er það
eina sem virkar,“ segir Jón. Hann
segist vera afar hamingjusamur með
að vera orðinn edrú. „Þetta var erfitt
fyrst, ég svaf eiginlega bara í viku,“
segir hann. Á Grundarfirði sagði
hann ekki bara skilið við neysluna
heldur breytti hann mataræðinu,
fór í fjallgöngur og stundaði íþrótt-
ir. „Ég hef ekki verið jafn hamingju-
samur lengi. Ég vaknaði á morgn-
ana, fékk mér hafragraut, síðan
stundaði maður útiveru, fór á æf-
ingar og svo lét ég tékka á mér öllum
hvort ég væri í lagi. Ég er ótrúlega
vel á mig kominn miðað við ald-
ur og fyrri störf, ég slapp mjög vel.
Ég gæti ekki verið sáttari og þakk-
látari en ég er í dag,“ segir hann.
„Ég er enn að taka til í hausnum á
mér, maður er enn að ná lendingu
og venjast þessu öllu,“ segir Jón og
viðurkennir að hann reyni að halda
sig frá freistingum. Hann umgangist
helst vini sem eru á sömu braut og
hann og ætli að halda sig frá látun-
um í miðbænum. Hann segir alla þá
sem hafi viljann að vopni geti kom-
ið sér upp úr neyslu. „Ef þú ferð í
prógrammið og vilt þetta nógu mik-
ið þá er þetta alveg hægt. Það eru
gefin loforð í AA-bókinni um að ef
þú fylgir þessu prógrammi þá muni
það halda,“ segir hann. Móðir Jóns
er afar ánægð með son sinn. „Hún
hefur alltaf staðið að baki mér eins
og klettur og vill að sjálfsögðu ekki
sjá son sinn eins og ég var,“ seg-
ir Jón sem segist ekki hafa liðið vel
í neyslu. „Nei, að sjálfsögðu ekki.
Það líður engum vel í mikilli neyslu
sem er búinn að vera í neyslu lengi,
þetta er ekkert líf. Þannig að ég er
ánægður með að hafa sloppið vel út
úr þessu. Ég ætla að vona að ég haldi
því, ég er heppinn.“ n
„
Hefur
ekki
liðið
betur í
mörg ár
Edrú og alsæll
Kominn í útivistina Jón
hefur tekið líf sitt í gegn og verið
án áfengis og fíkniefna í tæpar sjö
vikur. Hann fór til Grundarfjarðar til
þess að þurrka sig upp, stundaði þar
útivist og fjallgöngur meðal annars.