Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2013, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2013, Page 3
Fréttir 3Miðvikudagur 8. maí 2013 É g vil gera það rétta í málinu,“ segir buguð, fyrrverandi ást- kona annars grunaðs höfuð- paurs í stóra IKEA-málinu, rétt áður en hún leitaði til lög- reglunnar til að skýra sína hlið máls- ins. Hún segir helsta höfuðpaur málsins hafa beitt sig blekkingum. Hún skilaði fyrir hann vörum í IKEA en grunaði hann aldrei um græsku. „Ég vissi ekki hvað hann var að gera,“ útskýrir hún og brestur í grát. „Þetta er ógeðslegt, að notfæra sér traust annarra eins og hann gerði. Hann var bara að nota mig til þess að stela. Maður skammast sín. Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Hann bað mig oft um að skila fyrir sig hlutum og ég gerði það. Ég treysti honum og mér datt aldrei í hug að hann væri að stela.“ Leitaði sér sálfræðiaðstoðar Eins og greint var frá í DV á mánu- daginn þá tóku kærustur og fjöl- skyldumeðlimir þátt í meintum stórfelldum þjófnaði úr IKEA um margra ára skeið. „Ég treysti honum, ég var kærastan hans. Hann er fullkom- lega siðblindur og fór mjög illa með mig. Ég var bara heilaþvegin í raun- inni og þurfti að leita mér sálfræði- aðstoðar eftir að ég náði að slíta sambandinu. Það er mjög erfitt að tala um þetta,“ segir fyrrverandi ást- kona hans og röddin brestur. Ég hef haldið áfram með mitt líf og mennt- að mig. Ég vil ekki að þetta fylgi mér.“ Erfitt að slíta sambandinu Umrædd kona var í sambandi með meintum höfuðpaur í rúmt ár. Það reyndist henni erfitt að slíta sam- bandinu. Hann hafi verið stjórn- samur og ekki viljað sleppa af henni tökunum. Hún lánaði honum tals- vert fé og notaði hann skuldina við hana til þess að freista þess að hitta hana. Að hennar sögn kom í ljós að hann beitti svipuðum aðferðum á fyrrverandi kærustur sínar. „Ég var í sambandi við hann í heilt ár og náði að losa mig við hann. Það var mjög erfitt. Hann elti mig og fylgdist með mér í dálítinn tíma. Ég talaði við aðra stelpu sem hann var með á undan mér. Hún sagði sömu sögu. Hann eltist við hana þangað til hann fann sér aðra kærustu. Þá varð friður,“ segir hún. „Ég þurfti að fara í felur á Facebook og gefa upp sem minnstar upplýs- ingar. Hann hringdi stöðugt. Hann skuldar mér talsvert fé og nýtti sér það. Sagðist myndu borga mér aftur ef ég hitti hann. Ég fékk aldrei peningana til baka.“ Skammast sín Hún hefur aðeins einu sinni haft samband við meintan höfuðpaur eftir að hún náði að slíta sam- bandinu. „Ég hafði samband við hann einu sinni til þess að ljúka mínum málum andlega. Ég gat ekki trúað því að til væru svo illa innrættar manneskjur. Ég varð að fá staðfestingu á því. Að ég væri ekki geðveik.“ Hún segist ein í raunum sín- um. Hún skammist sín svo mikið fyrir að hafa látið glepjast af fyrr- verandi unnusta sínum. Hún fer til lögreglunnar í von um að það verði til þess að hún nái sér betur á strik eftir sambandið. „Ég verð að ljúka þessu alveg. Ég ætla að fara til lög- reglunnar.“ n „Hann notaði mig til þess að stela“ n Fyrrverandi kærasta segir sögu sína n Vissi ekki af þjófnuðunum Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is Forráðamenn IKEA hafa gagnrýnt hversu langan tíma það tók lögreglu að hefja rannsókn á málinu. „Málið fékk í forgang umfram mörg önnur eldri mál. Það er nóg að gera hér og mörg mál sem bíða,“ segir Hafliði Þórðarson, yfirmaður fjármunadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur verið gagnrýnt af stjórnendum IKEA að þeir sem grunaðir eru um að standa að þjófnuðunum hafi ekki verið teknir til yfirheyrslu á sama tíma. Brynjar Níelsson, lögmaður IKEA í þessu tiltekna máli, bað um fjöldayfirheyrslu og húsleit vegna umfangs málsins. Þetta kemur fram í gögnum þeim er DV hefur undir höndum. „Þeir stjórna ekki rannsókninni. Þessi leið var farin að kalla einn og einn til yfirheyrslu, að taka fjölda manns í einu til yfirheyrslu er talsvert mikil aðgerð og þetta mál kallaði ekki á það.“ En hvenær má búast við að rannsókn ljúki? „Málið er í rannsókn og hún er langt komin,“ segir Hafliði. Lögreglan svarar gagnrýni: „Það er nóg að gera hér“ Nóg að gera Það er nóg að gera hér og mörg mál sem bíða,“ segir Hafliði Þórðarson, yfirmaður fjármuna- deildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Bugaðist Fyrrver- andi kærasta annars höfuðpaursins segir frá misnotkun hans. Hún var grunlaus um þjófnaðina í IKEA en játar að hafa skilað fyrir hann ýmsum vörum. Hún er buguð eftir sambandið og leitar nú til lögreglunnar til að skýra sína hlið málsins. „Hann er fullkom- lega siðblindur Segir sögu sína eftir umfjöllun í DV Fyrrverandi kærasta meints höfuðpaurs er forviða eftir uppljóstranir DV.„Ég verð að ljúka þessu alveg. Ég ætla að fara til lög- reglunnar. Hirti leigutekjur af einstæðri móður Ingvar Arnar Ingólfsson sem vakti athygli á skuldavandræðum sín- um í pistli á vef Eyjunnar á mánu- dag þáði 105 þúsund krónur í hverjum mánuði í heilt ár frá ein- stæðri móður sem leigði af honum húsnæði á Akranesi. Sjálfur hafði hann hætt að greiða af láninu og það fór svo að íbúðin var boðin upp. Það kom hinni einstæðu móður, Þórunni Maríu Örnólfs- dóttur, í opna skjöldu. Hún sagði frá raunum sínum í Fréttablaðinu á þriðjudag og benti á að Ingvar hefði gleymt að minnast á leigu- tekjurnar sem hann hafði þegar hann skrifaði pistilinn á Eyjuna. Ingvar flúði til Noregs og sagði að Kaupþing/Arion banki hefði elt hann uppi í innheimtutilraunum sínum. Í samtali við Fréttablaðið sagð- ist hann ekki hafa ætlað að skaða Þórunni Maríu með neinum hætti og segist hafa látið hana vita með smá fyrirvara í gegnum samfélags- miðilinn Facebook hvert stefndi. Hann segist hafa notað peningana sem hann fékk frá Þórunni til að borga upp annað lán. Lögðu hald á kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun á tveimur stöðum í austurborginni um hádegis bil á mánudag, en hald var lagt á nokkra tugi kannabisplantna. Í báðum tilvikum var um að ræða ræktun í íbúð í fjölbýlishúsi. Karl á þrítugsaldri var handtekinn á öðr- um staðnum og maður á sama aldri var handtekinn á hinum. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að fyrrnefndar aðgerðir séu liður í að spyrna gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafn- laust til að koma á framfæri upp- lýsingum um fíkniefnamál. Fíkni- efnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Tundurduflaslæðarar til Íslands: Almenningi boðið að skoða Fimmtudaginn 8. maí er von á heimsókn flota tundurdufla- slæðara Atlantshafsbandalags- ins til Íslands. Skipin verða við Skarfabakka meðan á dvölinni stendur og er almenningi boð- ið að koma í heimsókn um borð um helgina og aftur um þar næstu helgi Flotinn samanstendur af fimm tundurduflaslæðurum frá aðildarríkjum Atlantshafs- bandalagsins sem fyrst og fremst sinna mannúðarstarfi. Einnig sinna þeir slökkvistörfum og sjúkraflutningum þegar á þarf að halda. Skipin munu starfa með Landhelgisgæslunni, æfa tund- urduflavarnir og fleira meðan á dvöl þeirra hér á landi stendur. Einnig verður almenningi og viðbragðsaðilum boðið að kynn- ast starfsemi skipanna, haldið verður fótboltamót og fleira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.