Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2013, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2013, Blaðsíða 23
Lífsstíll 23Miðvikudagur 8. maí 2013 Gervikærustur slá í gegn n Valkostur fyrir hégómagjarna karlmenn G ervikærustur á internetinu njóta nú síaukinna vinsælda í Bretlandi og Bandaríkjun- um. Fjöldi vefsíðna býður upp á þjónustu kvenna sem þykj- ast vera unnustur einmana eða hé- gómagjarnra karla. Stuart Heritage, pistlahöfundur á Guardian, seg- ir frá reynslu sinni, en skömmu eft- ir að hann fjárfesti í gervikærustu á Facebook skildi hún eftir skilaboð á veggnum hans þar sem stóð: „Ég man eftir öllu sem þú sagðir. Geggj- að, lol ;)“. Þetta harmar hann inni- lega: „Nú halda allir að ég hafi fall- ið fyrir konu sem segir lol. Þetta er skelfilegt. Það gæti tekið orðspor mitt mörg ár að braggast.“ Af þessu má ljóst vera að gervikærustur á internetinu eru tvíeggja sverð. Því hefur verið haldið fram að gervikærustugeirinn þrífist á öfund. Menn kaupi þjónustu þeirra til að gera konur sem þeir hafa augastað á hrifnari af sér. Gervikærusturnar grípa til ýmissa ráða. Stundum gefa þær viðskiptavinum undir fótinn á Twitter eða breyta hjúskaparstöðu sinni á Facebook. Sumar ganga jafn- vel svo langt að hringja í viðskipta- vini sína þegar þeir eru í vinnunni til þess eins að þeir geti hrópað: „Ég er í vinnunni, elskan mín!“ og skellt á. Á meðal þeirra sem bjóða upp á þjónustu á borð við þessa er fyrir- tækið Fiverr, en þar kostar allt að- eins fimm dollara. Þar finnast gervi- kærustur af öllum stærðum og gerðum sem bjóðast til að leika ýmis hlutverk og skrifa furðulegustu hluti á Facebook-veggi viðskiptavinanna. Pistlahöfundurinn á Guardian segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigð- um með þá þjónustu sem honum var veitt. Enginn virtist hafa tekið eftir ástarævintýrum hans, að undan- skildum einum Facebook-vini sem spurði hvort hann væri að slá sér upp með internettrölli. n johannp@dv.is Gervikærustur Konur sem þykjast vera unnustur manna á Facebook njóta síaukinna vinsælda. Vorverkin í garðinum: Bera áburð á blóm og gras „Nú er tíminn til að raka saman sölnuð lauf frá liðnu hausti og greinastubba sem fallið hafa í grasið. Í leiðinni er gott að raka upp mosa en hann er laus í gras- inu núna. Þeir sem ekki nenna að raka upp mosann geta leigt sér mosatætara og farið yfir gras- ið með honum. Hann gatar flöt- ina og rífur mosann upp,“ segir Steinunn Reynis- dóttir, garðyrkju- fræðingur hjá Garðheimum. DV bað Steinunni að gefa garðeigendum nokkrar hugmyndir um hvernig þeir gætu notað næstu daga til að vinna í garðinum sínum. „Í öðru lagi er komin tími til að bera áburð á grasfleti. Hægt er að nota annaðhvort lífrænan áburð eða þann tilbúna. Hver og einn velur fyrir sig það sem honum hugnast að nota. Í þriðja lagi þarf að hreinsa ofan af blómabeðum og klippa niður dauða stöngla svo ný lauf- blöð sem eru að reyna að skjóta upp kollinum fái næga birtu. Þegar búið er að hreinsa ofan af beðunum er gott að bera áburð á blómabeðin. Annaðhvort lífrænan eða tilbúinn. Í fjórða lagi er hægt að nota helgina til að klippa tré, runna og rósir. Oft þarf að fjarlægja hluta af stórum trjám til þess að þau fái betri birtu. Stundum þarf líka að klippa til að hleypa birtu að krónum trjáa. Það sama gildir um runna og rósir, það þarf að klippa þá svo sólargeislar vors og sumars nái að leika um þá. Í fimmta lagi er í lagi að planta trjáplöntum í pottum út í garð. Fyrstu sumarblómin eru á leið í verslanir en það er kannski aðeins of snemmt að planta þeim út. Það fer þó eftir veðri,“ segir Steinunn. Að spræna eða ekki spræna Þ etta er ekkert feimnismál, segir Þorgrímur Þráins- son léttur í bragði spurður hvað honum finnist um það að pissa sitjandi. „Ég hef hvatt karla til þess að pissa sitj- andi, fyrst og fremst vegna þess sóðaskapar sem fylgir því þegar menn eru sprænandi út um allt. Það er líka miklu þægilegra! Ég hef ekki rætt um það að pissa sitjandi eða standandi út frá heilsusjónar- miðum. Mér finnst þetta almenn kurteisi.“ Standandi þvaglát og sænsk stjórnmál Fræg er orðin tillaga sveitarstjórnar mannsins sænska Viggos Hansen sem lagði það til fyrir ári að allir karlmenn pissuðu sitjandi þyrftu þeir að nota salerni í umdæmisskrifstofu Södermand- land. Sveitarstjórnin gaf sér ár til að afgreiða tillöguna og hefur ekki enn fengist niðurstaða í málinu. Hansen studdi tillögu sína þeim rökum að með því að skikka karla til að pissa sitjandi megi auka hreinlæti og bæta heilsu. Sagði hann að rannsóknir sýndu að með því að pissa sitjandi mætti minnka hættu á vandamálum í blöðruháls- kirtli og bæta kynlífið. „Engar rannsóknir virðast styðja það afdráttarlaust að betra sé að pissa sitjandi,“ segir Vilhjálmur Ari Arason heimilislæknir. „Það hefur ekki verið hægt að sýna fram á að blaðran tæmist betur þótt menn sitji,“ segir hann. „Sumum karl- mönnum finnst þeir tæma blöðr- una betur sitjandi en öðrum ekki.“ Strýkur yfir klósettið Nýlega kvartaði Jón Jónsson, tón- listarmaður og ritstjóri, í leiðara Monitor yfir óhreinlæti vinnufélag- anna á salerninu. „Ég hef nánast alla tíð passað mig að strjúka yfir klósettið með pappír til að tryggja að ég skilji ekki eftir mig dropa. Þetta geri ég líka til dæmis á kló- settinu í vinnunni bara til að ganga úr skugga um að aðkoman verði sem best fyrir þann sem á eftir mér kemur. Og hér kem ég mér loks að efninu því almenningssalerni eru mér ofarlega í huga þessa vikuna. Vissulega er fólk sem fær borgað fyrir að þvo þau en hafa ber í huga að fólkið kemur ekki eftir klósett- ferð hjá hverjum og einum.“ Hönnun salerna ábótavant En vilja karlmenn pissa sitjandi? Þorgrímur segist ekki geta svarað þeirri spurningu en telur þó eldri karla síður vilja láta segja sér fyrir verkum. Þá sé hönnun salerna fyrir karla á opinberum stöðum ekki til þess fallin að þeir geti tekið upp þá iðju í stórum stíl. „Ég skil sjónar- mið karla sem fara út að skemmta sér og geta hreinlega ekki sest. Því meira sem talað er um þetta, því meiri líkur eru á því að við séum að ala upp nýja kynslóð með bætt- ari siði.“ n n Þorgrímur Þráinsson hefur lengi hvatt karla til að pissa sitjandi Mæður gegn standandi þvagláti n Telja sprænuna sundra fjölskyldum Þótt ótrúlegt megi virðast þá eru nokkur samtök starfrækt sem hafa það að sínu eina baráttumáli að karlar pissi sitjandi. Í Bandaríkjunum eru þekktust samtökin, MAPSU, Mothers Against Peeing Standing Up. Þau framleiða veggspjöld, merki, töskur, hatta og boli með áróðri fyrir því að karlar setjist á setuna. Samtökin bjóða körlum að fá sér sæti á klósettsetunni og ganga svo langt að segja að standandi þvaglát karla sundri fjölskyldum. „Hver þrífur klósettið á þínu heimili?“ spyrja sam- tökin á heimasíðu sinni mapsu.com. „Mamma þín? Konan þín?“ Karlmenn eiga að pissa sitjandi Þor- grímur Þráinsson segir það almenna kurteisi karla að pissa sitjandi. Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is Ritstjóri kvartar undan sóðaskap Jón Jónsson, hinn geðþekki tónlistarmaður og ritstjóri Monitor, skrifaði nýlega pistil um sóðalegar klósettferðir vinnufélaganna. Ekki óhollt að deila snuði Árum saman hafa heilbrigðis- starfsmenn ráðlagt foreldrum að sleikja hvorki né stinga upp í sig snuði barna. Hingað til hefur það verið talið skaðlegt í ljósi þess að börnin smitist af sýklum úr for- eldrunum, en ný rannsókn bendir til hins gagnstæða. Á mánudaginn síðastliðinn greindi tímaritið Pedi- atrics frá því að börn sem deildu snuðum sínum með foreldrunum væru líkleg til að þróa með sér færri ofnæmi en önnur. Jafnframt drægi þetta úr líkunum á exemi og astma. Niðurstöðurnar eru í takt við vísbendingar sem fram hafa komið um að hollt sé fyrir ungbörn og ónæmiskerfi þeirra að komast í tæri við sýkla. Við það þrói líkaminn með sér öflugri varnir gegn ýmsum kvillum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.