Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2013, Blaðsíða 22
22 Fólk 8. maí 2013 Miðvikudagur
Gaf Sigmundi lukkuskeifu
n „Kýs að hafa trú á þér og þínu fólki“
L
istakonan og hönnuðurinn
Herdís Stefánsdóttir ákvað að
gleðja Sigmund Davíð Gunn-
laugsson, mögulega næsta
forsætisráðherra landsins, í síð-
ustu viku. Hún arkaði heim til hans
í strigaskóm, gallabuxum og her-
mannabol og færði honum lukku-
skeifu sem hún hafði sjálf smíð-
að. Herdís segir frá glaðningnum á
Facebook-síðu sinni og hvetur Sig-
mund til góðra verka. „Ég kaus ekki
Framsókn en ég kýs samt að hafa
trú á þér og þínu fólki, og síðast en
ekki síst treysta á þig,“ segir hún.
„Mín ósk er sú að þú kjósir að verða
vinsælasti ráðherra allra tíma með
því að koma hreint fram við fólkið í
landinu og trúa á okkur eins og við
munum trúa á þig.“
Herdís biður Sigmund um að
fella úr gildi ný lög um lyfjakaup
og hlusta á öll þau ólíku sjónarmið
sem fram munu koma á þinginu.
Hún segist hafa ákveðið að gefa
honum skeifuna í grænum poka til
að minna Sigmund á einstaka nátt-
úrufegurð Íslands og vara hann við
frekari stóriðjuframkvæmdum.
Það hefur ekki væst um Sigmund
Davíð eftir að Framsóknarflokk-
urinn vann stórsigur í þingkosn-
ingunum þann 27. apríl. Lukku-
skeifan er svo sannarlega ekki eini
glaðningurinn sem Sigmundur
hefur fengið, því eins og fréttamiðlar
landsins hafa greint frá síðustu daga
hafa Bjarni Benediktsson og Svan-
hildur Hólm, aðstoðarkona hans,
töfrað fram vöfflur og pönnukökur
handa Sigmundi. n
johannp@dv.is
Þ
essi sería er kannski öðru-
vísi að því leytinu að hún er
aðeins vandaðri, við erum
orðnir aðeins sjóaðri,“ segir
sjónvarpsmaðurinn Andri
Freyr Viðarsson sem hefur undan-
farna mánuði unnið að upptökum
á annarri þáttaröð af Andralandi.
Þáttaröðin verður frumsýnd á RÚV í
enda mánaðarins en þetta er fjórða
sjónvarpsþáttaröðin sem Andri gerir
og hefur sama teymi staðið að baki
þeim öllum. Segja má að Andri hafi
svo sannarlega heillað landsmenn
í þáttunum og eflaust margir sem
bíða nýju þáttanna. Þar er af
nægu að taka og fá áhorfendur
að kynnast ýmsu skemmtilegu.
„Ég vona að flest af þessu
sé skemmtilegt. Við fáum að
kynna okkur félag múslima á
Íslandi sem er mjög áhugavert.
Ég bjóst nú ekki við að fara
nokkurn tímann þangað,“ seg-
ir Andri sem er sífellt að kynn-
ast nýjum stöðum, siðum og
að læra eitthvað nýtt, í hverj-
um þætti. „Þarna lærði ég að
þeir gera algjört eðalte og þeir
eru ekkert smá góðir í borð-
tennis. Bara um leið og bæna-
kallið er búið þá draga þeir
fram borðtennisborðið,“ segir
Andri sem viðurkennir að hann
hafi ekki haft roð við þeim sem
hann spilaði við. „Hann Samir,
sem var okkar innsti koppur í búri
þarna, var rosalegur í borðtennis.
Besti sem ég hef séð,“ segir hann.
Í þáttunum fylgdust þeir líka
með fitness-hjónum á keppn-
isdegi. „Við vöknuðum með þeim
sex um morguninn á keppnisdegi,
fórum með þeim í brúnkusprautun
um morguninn og fylgdum þeim
eftir allan daginn alveg þangað til
þau kepptu um kvöldið. Þetta er al-
veg geðveikur heimur og ég ber
miklu meiri virðingu fyrir þessari
íþrótt en ég gerði, ég vissi ekkert um
fitness áður, en þetta ætti að vera
partur af „extreme sports“.“ Andri
prófaði líka að syngja í kór og líkaði
vel. „Ég söng með Hinsegin kórn-
um og það var rosalega skemmtilegt.
Það voru samkynhneigðir að syngja
saman og ég,“ segir hann og viður-
kennir að hann væri alveg til í að
spila með hinu liðinu svo hann gæti
fengið að gerast kórfélagi. „Ég
vildi óska þess, það er svo gam-
an hjá þeim. Ég veit reyndar
ekki hvort það sé af því að þetta
er hinsegin kór eða hvort það
sé alltaf svona gaman hjá kór-
um,“ segir hann á gamansöm-
um nótum.
Andri er þekktur fyrir að
kynnast í þættinum fólki sem er
óhefðbundið á einhvern hátt. Í þessari
þáttaröð er engin breyting þar á og fá
áhorfendur meðal annars að kynn-
ast íslenskri konu sem safnar skeggi.
„Hún er alveg yndisleg. Hún er að
vinna í sjoppunni á horninu hjá mér,“
segir Andri og viðurkennir að það hafi
kannski verið örlítið vandræðalegt að
spyrja hana út í það hvort hún væri að
safna skeggi. „Þú getur rétt ímyndað
þér. En hún tók vel í það og skammast
sín ekki fyrir það. Hún er komin með
flott skegg, þú getur tosað í það og farið
með höndina í gegnum það.“
Andri slær ekki slöku við því farið
verður í upptökur á Andra á flandri
í ágúst. „Þá förum við til Færeyja og
tökum Andra á flandri í Færeyjum.“
Þættirnir verða sýndir á fimmtudags-
kvöldum og fyrsti þátturinn verður
frumsýndur þann 23. maí næstkom-
andi. n
Líf og fjör Nýja þáttaröðin
verður frumsýnd seinna í þessum
mánuði. Andri er spenntur og
segist vera orðinn sjóaðri en áður.
n Andri kynnist heimi fitness, múslimum á Íslandi og syngur með Hinsegin kórnum
Hittir konu sem
safnar skeggi
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Hún er
komin
með flott
skegg, þú
getur tosað í
það og farið
með höndina í
gegnum það.
Fitness Andri kynnist ýmsu í nýju þáttaröðinni.
Meðal annars kynnist hann heimi fitness-íþr
óttarinn-
ar og hér sést hann með tveimur fitness-kep
pendum.
Berndsen
orðinn pabbi
Tónlistarmaðurinn Davíð Bernd-
sen er orðinn faðir. Davíð og
kærasta hans, Guðrún Harðar-
dóttir, eignuðust dóttur á mánu-
dag. Þetta er fyrsta barn þeirra
beggja en þau hafa verið saman
um nokkurt skeið. Berndsen hef-
ur vakið athygli fyrir tónsmíðar
sínar og sent frá sér marga vin-
sæla smelli. Guðrún vakti athygli
þegar fjallað var í Nýju Lífi um
bréf sem Jón Baldvin Hannibals-
son sendi henni en hann er mað-
ur frænku hennar.
Í upptökum Hér sést Andri í upptökum en þær hafa staðið yfir síðustu mánuði. Hér er hann staddur á Laugarásvideó.
Made In Iceland
Partíið Made In Iceland var
haldið í sjötta sinn í Los Angeles
á dögunum, en það er framleið-
andinn Lanette Phillips sem hefur
veg og vanda af þeim samkomum.
Phillips er mikil áhugakona um ís-
lenska tónlist og hefur unnið ötul-
lega að því að koma henni á fram-
færi í kvikmyndaborginni. Hún er
einn virtasti framleiðandi tónlist-
armyndbanda í heiminum. Með-
al gesta voru tónlistarmennirnir
Sigtryggur Baldursson, Svala
Björgvinsdóttir og Pétur Ben sem
meðal annars tók lagið í boðinu.
Safndiskurinn Made in Iceland VI
er líka kominn út en á honum má
heyra allt það heitasta í íslenskri
tónlist.
Gleður Sigmund Herdís
Stefánsdóttir listakona
hvetur Sigmund Davíð til
dáða.
Með skegg Andri
segir að það hafi verið
örlítið vandræðalegt
að spyrja hvort konan
væri að safna skeggi.
Nýtt fólk
til LA
Ingibjörg Huld Haraldsdóttir
leikstjóri og Hilmir Jensson leik-
ari hafa verið ráðin til Leikfélags
Akureyrar. Ingibjörg mun leik-
stýra Sek, nýju verki eftir Hrafn-
hildi Hagalín sem frumsýnt verð-
ur í október hjá leikfélaginu og að
auki mun hún vera aðstoðarleik-
stjóri í Gullna hliðinu sem frum-
sýnt verður um miðjan janúar.
Hilmir mætir til starfa í upphafi
næsta leikárs, en hann útskrif-
aðist úr leiklistar- og dansdeild
Listaháskóla Íslands vorið 2010.
Hann hefur leikið í Þjóðleikhús-
inu og tók meðal annars þátt í
uppsetningu á Vesalingunum,
Dýrunum í Hálsaskógi og
Macbeth.