Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2013, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2013, Side 9
Fjölskyldan sundruð vegna valdabaráttu Fréttir 9Miðvikudagur 8. maí 2013 n Kaffihúsið GÆS opnar í Tjarnarbíói n Tækifærum fatlaðra fjölgað n Barnabarn Gunnars biður sér griða n Yfirgaf Krossinn fyrir afa n Saknar fjölskyldunnar É g er fædd inn í Krossinn og sakna fjölskyldunnar,“ segir Camilla Rut Arnardóttir. Hún er dóttir Jóhönnu Gunnars- dóttur og barnabarn Gunnars Þorsteinssonar eða Gunnars í Krossinum eins og hann er kallaður. Hún segir að fjölskyldan sé í sárum eftir ásakanir um kynferðisbrot á hendur afa sínum og valdabaráttu innan Krossins í kjölfarið og biður um grið. Erfið umræða „Það eru að verða tvö ár síðan þetta gerðist,“ segir Camilla, „en umræðan er svo mikil og neikvæð. Niðurstaða löggjafarvaldsins skiptir engu máli og afi er nánast réttdræpur úti á götu því Íslendingar eru búnir að dæma hann. Íslendingar skilja ekki að þeir eru líka að særa okkur, aðstandendur, með þessum athugasemdum. Ég þarf að fara í skólann og vinnuna og svara fyrir þetta, mál sem ég hef ekki einu sinni trú á að sé rétt af því að ég svaf í fanginu á afa í mörg ár og hann gerði mér ekkert. Þetta særir hjarta mitt svo ofboðslega mikið. Þetta er fjölskyldan mín og þessar konur sem ásaka afa minn eru frænkur mínar sem ég ólst upp með. Þetta eru konur sem lágu við fætur hans, konur sem hann tók að sér og hélt vel utan um. Ég veit ekki hvað gerðist, af hverju þær bera þess- ar sakir á hann, ég hef engan skiln- ing á því. En ég er ekki reið, ég er bara virkilega vonsvikin og sár.“ En það eru ekki aðeins ásakanirnar og umræðan í kringum þær sem særir. Camilla segir það einnig sárt að sjá afa sinn missa tökin í trúfélaginu sem hann stofn- aði og byggði upp. Sjö konur sökuðu Gunnar um að hafa brotið gegn sér með kynferðislegri áreitni eða mis- notkun og þegar umræðan um hin meintu brot stóð sem hæst sagði hann af sér sem forstöðumaður í Krossinum. Dóttir hans, Sigurbjörg Gunnarsdóttir, tók þá við starfinu. „Afi var svo brotinn að hún ákvað að taka við kaleiknum. Þegar afi var tilbúinn til þess að snúa aftur var hins vegar tekið fyrir það og honum meinuð endurkoma. Þá fékk ég nóg.“ Óvenjuleg barnæska Camilla Rut hefur verið virk í safnaðar starfi Krossins frá unga aldri. Fram til þessa hefur hún ekki þekkt lífið án þess. „Barnæska mín var náttúrulega verulega skrýtin. Þegar ég var tíu ára þá þurfti ég að svara fyrir skoðanir afa á samkyn- hneigðum. En fjölskyldan sá svo vel um sína að ég hafði allt sem ég þarfnaðist og nóg af ást. Íslendingar eru svo harðir og hrokafullir að það eru ekki mörg börn sem alast upp við það að fá að heyra það daglega að foreldrar þeirra elski þá eins og ég gerði. Ég er þakklát fyrir það því ef það hefði ekki drifið mig áfram þá hefði ekkert gert það. Það að vera í Krossinum og eins þessi klofningur sem varð á sínum tíma þegar Betanía var stofnuð, það var erfitt.“ Hún segir að fjölskyldan hafi alltaf verið meðvituð um að fólk fylgdist með henni og dæmdi hana harðar en aðra. „Síðan ég var lítið barn hef ég alltaf þurft að vera þessi fullkomni engill fyrir fjölmiðla og annað fólk. Ég man að þegar ég var lítil þá voru börn alltaf að hlaupa um salinn eða lita í litabækur á samkom- um en ég sat alltaf kyrr hjá mömmu með mitt ljósa hár. Eins byrjaði ég seinna að drekka en jafnaldrar mín- ir því mamma vildi ekki að fólk sem dæmdi okkur sæi mig á djamminu. Enda var ég litin hornauga á sunnu- dagssamkomunni þegar ég hafði far- ið í mitt fyrsta starfsmannapartí. En það var líka ákveðin umhyggja í því.“ Hætti í Krossinum Þrátt fyrir þessi sterku tengsl við söfn- uðinn kom þó að því að hún, til þess að sýna afa sínum stuðning, hætti að mæta á samkomur. „Ég fæddist inn í Krossinn og hef verið þar alla tíð. Ég er búin að syngja þarna síðan ég var tólf ára. Ég er búin að vera að leiða lofgjörð. Kærastinn minn var tónlistar stjóri. Þannig að það eitt að hætta í Krossinum var ótrúlega erfitt, að vakna á sunnudögum og vita ekki hvernig ég ætti að verja deginum, því fylgir mikið eirðarleysi. Öll vikan snerist um söfnuðinn. Á laugardögum leiddi ég samkomu, á sunnudögum söng ég á samkomu, á þriðjudögum líka, á miðvikudög- um var bænastund sem ég mætti stundum á og á fimmtudögum líka og á föstudögum var alltaf eitthvað að gerast sem allir tóku þátt í. Svo var þetta tekið frá mér út af einhverri valdabaráttu. Þetta er trú- félag og þegar ég var hætt að trúa á predikanirnar þá gat ég ekki verið þar lengur. Fyrir mér var þetta ekki bara áfram Biblían, jú auðvitað líka, en ekki bara það. Þetta var ekki heldur bara spurning um að ég væri meðlimur fjölskyldunnar og safnað- arins heldur innihélt þetta allt sem ég þurfti, kærleika og andlega nær- ingu. En það var allt hrifsað burt með pólitík og valdabaráttu.“ Fjölskyldan splundruð Átök hafa verið innan kirkjunnar um það hver eigi að veita henni forystu og fjölskyldan er klofin vegna máls- ins. Camilla hefur lítið sem ekkert rætt við móðursystur sína síðustu mánuði og ekki ömmu sína heldur. „Hún stendur á bak við Sibbu og ég styð það ekki. Ég hleypi ekki fólki nálægt mér sem ég treysti ekki og þegar þetta mál fór af stað hætti ég sjálfkrafa að hafa samskipti við þær. Það var alveg nóg fyrir mig að halda utan um afa og systkini mín, ég þurfti ekkert að efna til samræðna eða rifrildis við þessar konur, ég var ekkert að höndla það.“ Hún rifjar upp æskuárin og tímann sem hún varði með ömmu sinni og afa. Hún á margar góðar minningar þaðan. „Ég geymi þessar stundir og þessar minningar í gull- kistu í hjarta mínu. Ég kann að meta það sem amma hefur gert fyrir mig. Hún er úti í Bandaríkjunum núna, ég hitti hana daginn áður en hún fór út þegar hún kom að versla í Kosti þar sem ég er að vinna. Þegar ég hitti þetta fólk þá forðast ég að tala um þetta því það býður ekki upp á neitt nema grátur eða rifrildi. Þannig að ég reyni bara að vera al- mennileg. Ég sakna fjölskyldunnar minnar ótrúlega mikið ef ég á að vera hrein- skilin.“ Vill afa aftur í Krossinn Eitt eftirminnilegasta augnablik síð- ustu ára var þegar hún tók á móti móður sinni eftir safnaðarfundinn stóra þar sem Gunnar ákvað að stíga til hliðar sem forstöðumað- ur. „Hann hefur unnið að því í rúm þrjátíu ár að byggja upp þetta starf og nú var það hrifsað af honum. Hann á ekki að fá neitt og á bara að ganga út með bækurnar sínar í ferðatösku. Það er það sem særir mig mest í öllum heiminum því afi er yndisleg- ur maður. Sama hvað hefur geng- ið á í mínu lífi þá hef ég alltaf get- að hringt í hann og hann er alltaf tilbúinn til þess að ýta öllum sín- um vandamálum til hliðar og kalla mig litlu, ljúfu, sætu, góðu. Hann hefur grátið með mér og staðið sem klettur við hlið mér. Ég lít á afa sem engil. Hann setur okkur alltaf í fyrsta sætið og hefur alltaf gert. Ég elska þetta fólk, ég elska afa minn og eins vonsvikin og ég er með framgöngu Sibbu í þessu máli þá grætur hjarta mitt því ég sakna hennar svo mikið. En mér finnst að afi eigi að fá Krossinn aftur, söfn- uðinn sem hann stofnaði og byggði upp. Það talar enginn um Sibbu í Krossinum en það þekkja allir Gunnar í Krossinum.“ n Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Ég elska afa minn og eins vonsvikin og ég er með framgöngu Sibbu í þessu máli þá grætur hjarta mitt því ég sakna hennar svo mikið. Lítur á afa sem engil Camilla segir sárt að sitja undir neikvæðri umræðu um afa sinn en í hennar huga er hann algjör engill. Mynd SiGTryGGur ari Fjölskyldan Þessi mynd var tekin skömmu eftir að ásakanir um kynferðisbrot komu fram og fjölskyldan stóð enn saman. Með Gunnari á myndinni eru Jónína Benediktsdóttir eiginkona hans, börn hans og makar þeirra. Jóhanna, móðir Camillu, stendur vinstra megin við Gunnar en Sigurbjörg er honum á hægri hönd. Hún fer með völdin í Krossinum núna. Mynd rÓbErT rEyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.