Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2013, Side 16
J
á, 118 rukkar viðskiptavini
minnst um 160 krónur þegar
þeir hringja og biðja um að-
stoð við að finna símanúmer.
Upphafsgjaldið er 85 krónur
en strax á fyrstu sekúndu samtals-
ins bætast 75 krónur við, sem er
mínútugjald fyrir fyrstu mínútuna.
Ef þú biður um að láta tengja
þig við símanúmer, þannig að þú
þurfir ekki að slá það inn í símann
þinn sjálfur, kostar það 50 krón-
ur aukalega. Samkvæmt verðskrá
fyrirtækisins kostar slíkur flutn-
ingur 39 krónur en viðskiptavinur
fær óumbeðið SMS-skilaboð með
númerinu sem kostar 11 krónur.
Samkvæmt athugun DV er við-
skiptavinum ekki gerð grein fyr-
ir þessum kostnaðarauka; hvorki
við flutninginn né SMS-skilaboð-
in. SMS-skilaboðin eru því falinn
kostnaðarauki fyrir viðskiptavini.
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna segir að
ekki eigi að veita viðskiptavinum
SMS þjónustu sem þeir biðja ekki
um og viti í raun ekki að þeir séu
að borga fyrir. „Það er lágmark að
viðskiptavinur geti valið sig frá
því,“ segir hann í samtali við DV.
Hann veltir því einnig fyrir sér
af hverju fólk þurfi SMS skilboðin
þegar það hefur hringt og fengið
tengingu við númerið og bæti við
að 11 krónur fyrir slíka þjónustu
sé í raun falinn kostnaður.
Já.is er upplýsingaveita sem var
stofnuð árið 2005 utan um rekstur
118 og Símaskrárinnar og fjöl-
margir nýta sér þá þjónustu sem
þar er boðið uppá. Það getur hins
vegar verið kostnaðarsamt að hr-
ingja í 118 og sér í lagi ef alltaf er
óskað er eftir því að 118 tengi þig
við númerið sem beðið er um.
Símafyrirtækin bæta ofan á
Með tilkomu netsins má gera ráð
fyrir að færri hringi í 118 en áður.
Upphæðin 160 krónur kann að
virðast lág en þegar hringt er í
hverri viku, eða jafnvel daglega, er
upphæðin fljót að verða há.
Í hvert skipti sem þú hringir
í 118 borgar þú 85 krónur í upp-
hafsverð auk mínútugjalds sem er
75 krónur, eins og áður segir. Fari
símtalið yfir mínútu bætast aðr-
ar 75 við. Rukkað er fyrir hverjar
60 sekúndur. Biðji viðskiptavinur-
inn um áframtengingu kostar það
39 krónur en samkvæmt upplýs-
ingum frá 118 þá kostar 11 krónur
aukalega að fá sendar upplýsingar
um símanúmer með SMS-skila-
boðum. Kostnaðurinn við áfram-
tengingu er því 50 krónur.
Snjallforritin kosta líka
Athygli skal vakin á því að verð-
skráin sem hér er gefin er sú sem
118 rukkar símafyrirtækið sem
viðskiptavinurinn er hjá. Verðskrá
já.is er því einskonar heildsölu-
verð en símafyrirtækin leggja svo
sína álagninu ofan á þá rukkun.
Álagning fyrirtækjanna getur ver-
ið mismunandi.
Já.is býður einnig upp á ja.
is snjallforritið. Það kostar 169
krónur á mánuði eða 2.028 krón-
ur á ári. Eins er boðið upp á 118
snjallforritið en bent skal á að það
er einungis flýtihnappur sem gef-
ur þér samband við þjónustufull-
trúa og kostar það sama og að hr-
ingja í 118.
Ofrukkað?
Jóhannes Gunnarsson segir í
samtali við DV að þar sem Já 118
sé einokunarfyrirtæki, fyrirtæki
sem er eitt á sínum markaði, eigi
fyrirtækið að rukka sannvirði fyr-
ir þjónustuna. „Það er að segja að
þeir rukki það sem það kostar þá
að veita hana.“
DV hefur ekki upplýsingar um
hvað það kostar að veita þjón-
ustuna sem Já gerir. Ljóst er að
eitt örstutt símtal, þar sem þegin
er tenging við númerið sem beðið
er um, kostar 210 krónur.
Ljóst er af dæmunum sem
fylgja greininni að það marg-
borgar að fyrir snjallsímaeigendur
að hlaða niður smáforritinu sem
Já 118 býður upp á. Eftir því sem
DV kemst næst er „appið“ ekki í
boði fyrir iPhone notendur. n
16 Neytendur 10. júní 2013 Mánudagur
Í góðu lagi að frysta grænmeti
n Grænmeti geymist í 10 til 12 mánuði í frysti
G
rænmeti er hollt og við ætt-
um að borða sem mest af því.
Því miður helst grænmeti ekki
ferskt lengi og margir bregða
því á það ráð að frysta bæði græn-
meti og ávexti. Næringarfræðilega
séð hefur frysting á grænmeti ekki
mikil áhrif. Flest grænmeti hentar
ágætlega til frystingar en það þarf þó
að gæta þess að það sé ferskt áður
en það er fryst. Það er því gott ráð að
notfæra sér þegar grænmetistegund-
ir eru á tilboði og kaupa þá ríflega af
því grænmeti og skella því í frystinn.
Um þetta er fjallað á síðunni Leið-
beiningastöð heimilanna en þar seg-
ir að allt grænmeti sem á að frysta
þurfi að forsjóða. Þetta eigi þó ekki
við um papriku og spergilkál.
Forsuðutíminn er misjafn en gef-
ið er sem dæmi að forsjóða þurfi
blómkál í 4 til 5 mínútur, blaðlauk í 2
mínútur og gulrætur í 5 til 6 mínútur
en það fer þó eftir stærð.
Þá þurfi að kæla grænmetið
hratt eftir forsuðuna en það sé gert
með því að láta vatnið renna vel af,
pakka grænmetinu inn, merkja það
og koma strax í frystinn. Auk þess
sé vel hægt að frysta unnið rauðkál.
Geymsluþol grænmetis í frysti sé að
jafnaði 10 til 12 mánuðir.
Það er því tilvalið að rækta sem
mest af grænmeti í sumar og frysta
það eftir að það er tekið upp í sumar.
Heimilið á þá nóg af grænmeti til að
endast í allan vetur. n
gunnhildur@dv.is
246,5 kr. 242,4 kr.
246,3 kr. 242,2 kr.
246,2kr. 242,1 kr.
246,5 kr. 242,4 kr.
248,9 kr. 242,4 kr.
246,3 kr. 242,2 kr.
Eldsneytisverð 10. júní 2013
BenSín DíSilOlía
Sérlega
heillandi
n Matargestur sem snæddi á Grill-
inu á Hótel Sögu hafði samband
og lýsti sérstakri ánægju með
kvöldstund á staðnum. Nýbúið er
að skipta um innréttingar á staðn-
um og hefur það heppnast sérlega
vel. Þessi gamalgróni veitinga-
staður hefur gengið í endurnýj-
un lífdaga og er sérlega
heillandi. Þjónustan og
maturinn var hvoru-
tveggja óaðfinnanlegt.
Eina sem hægt
er að setja út
á er að ekki
var lambakjöt
í boði. Og stað-
urinn er í sjálfri
Bændahöllinni!
Verðlagning
úr takti
n Lastið fær Tokyo
Sushi. „Ég versla
afskaplega mik-
ið hjá þeim, fer
þangað um það
bil einu sinni
í viku, stundum
kaupi ég bara fisk, en
finnst gaman að kaupa
kjúkling líka. Það sem
vekur furðu mína er verð-
lagið en til dæmis er bakki með
fjórum kjúklingabitum, Kjúklinga
katsu á 590 krónur, sem er mjög
sanngjarnt verð. Átta bitar af BBQ
kjúklinga sushi, BBQ maki kostar
890 krónur, sem er líka sanngjarnt
verð. Hinsvegar kostar Kjúklinga
tvenna, sem eru átta bitar með
smá salati, 1.590 krónur. Það
borgar sig þess vegna að kaupa
þrjá Kjúklinga katsu bakka miðað
við þessa verðlagningu. Kostnað-
urinn við þessa átta bita, Kjúklinga
tvennuna, virðist því vera mjög
úr takti við annað á þessum góða
stað.“
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
Grænmeti Tilvalið er að
frysta grænmetið og eiga
í vetur.
Flestir hafa heyrt um ráðið að setja
farsíma sem blotnar í hrísgrjón. Hér
eru nokkur atriði sem ber að forðast:
n Ekki reyna að kveikja á síman-
um. Það getur eyðilagt rafhlöðuna.
n Ekki nota hárblásara á símann.
Síminn þolir ekki svo mikinn hita.
n Ekki setja hann í örbylgjuofninn
Annað örþrifaráð sem gengur
endanlega frá símanum þínum.
n Ekki reyna að flýta fyrir hrís-
grjónaráðinu með því að setja
símann í hrísgrjónum út í sólina.
Það virkar ekki og á mjög heitum
og sólríkum dögum getur hitinn
eyðilagt símann.
Að þurrka síma
n Rukka fyrir SMS án þess að spyrja n Eitt símtal kostar minnst 160 krónur
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Falinn kostnaður
við að hringja í 118
Borgar fyrir
byrjaða mínútu
Þegar DV leitaði til Póst og fjarskipta
stofnunar varðandi gjaldtöku hjá síma
fyrirtækjunum fengust þær upp lýs ingar
að áður hafi fyrsta gjaldtímabilið verið
20 sekúndur og viðbótartímabilið til
dæmis 1 sekúnda hjá Símanum en 10
sekúndur hjá Vodafone. Nú hafi nær öll
fyrirtækin lengt gjaldtímabilin í 60/60
sekúndur. Það þýðir að þegar notandi
hefur talað í 61 sekúndu hefur hann
greitt fyrir tvær mínútur. Greitt er fyrir
hverja byrjaða mínútu. Þessi lenging
gjaldtímabila sem hefur orðið smátt
og smátt á liðnum árum sé í raun dulin
verðhækkun því að meðaltali eigi neyt
andinn ætíð um hálft gjaldtímabil
ónotað þegar hverju símtali lýkur. Neyt
andinn sé þannig rukkaður fyrir þjónustu
sem aldrei er veitt.
Verðskrá 118
Upphafsverð 85 kr.
Mínútuverð 75 kr.
Áframtenging 39 kr.
SMS í kjölfar áframtengingar 11 kr.
Dæmi — 1
Hringir 300 sinnum – 48.000 kr.
20 símtöl fara yfir mínútu – 1.500 kr.
150 áframtengingar (með SMS) – 7.500 kr.
Samtals: 57.000 kr.
Dæmi — 2
Hringir 150 sinnum – 24.000 kr.
50 símtöl fara yfir mínútu – 4.250 kr.
100 áframtengingar (með SMS) – 5.000 kr.
Samtals: 33.250 kr.
Dæmi — 3
Hringir 50 sinnum – 8.000 kr.
10 símtöl yfir mínútu – 750 kr.
40 áframtengingar (með SMS) – 2.000 kr.
Samtals: 10.750 kr.
Dýr þjónusta Það
margborgar sig að finna
símanúmer á netinu
frekar en að hringja í 118.
MynD: PhOtOS.cOM
„Það er lágmark að
viðskiptavinur geti
valið sig frá því.