Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2013, Blaðsíða 3
Fréttir 3Miðvikudagur 7. ágúst 2013
n Matthildur gekk á milli lækna í sjö ár n Var sögð þunglynd og lögð inn á geðdeild n Loksins greind með krabbamein
„Ég var alltaf að
reyna að kalla á hjálp“
mesta hamingju, að vera stjórn
andinn í mínu eigin lífi. Ég veit ekki
hvað allir héldu, að mig langaði bara
að liggja og sofa. Þau geta bara étið
þessi geðlyf sín sjálf.“
Vill fá bætur
Baráttu Matthildar er þó ekki alveg
lokið, en hún hefur aldrei fengið það
viðurkennt að mistök hafi verið gerð
við meðhöndlun hennar innan heil
brigðiskerfisins.
Hún er komin með lögfræðing í
málið og reynir hann nú að fá Sjúkra
tryggingar Íslands til að viðurkenna
að mistök hafi átt sér stað og að hún
eigi rétt á bótum vegna þess. „Þeir
berjast hryllilega á móti því og það
virðist sem þetta verði aldrei viður
kennt. Þeir segja að þetta sé eðlilegt
ferli. Ég hef líka talað við marga inn
an heilbrigðiskerfisins sem ypptu
öxlum og sögðu að þetta væri alltaf
að gerast. Þeir vildu gera svo lítið úr
þessu,“ segir Matthildur. Hún telur
sig hafa orðið fyrir tjóni og finnst
réttlátt að hún fái bættan þann miska
sem hún varð fyrir. n
„Ég reyndi að útskýra fyrir lækninum að ég
gæti ekki einu sinni keyrt. Ég sofnaði alltaf
undir stýri. Þá sagði hann mér bara að sitja upp-
rétt og hafa gluggann opinn.
L
andey ehf. sem er fasteigna
félag í eigu Arion banka á í
dag helmingshlut í félaginu
Akraland ehf. sem á land í
Garðabæ sem oftast hefur
verið nefnt Jónsland í höfuðið á
Jóni Ólafssyni, vatnsútflytjanda og
stofnanda Skífunnar. Akraland er í
eigu félaganna AB 106 og AB 113
en svæðið sem félögin eiga nefnist
í dag Arnarnesland.
Baugssamstæðan með
helmingshlut
AB 106 var áður í eigu félags
ins Þyrpingar sem heyrði undir
Landic Property, fasteignafélags
Baugssamstæðunnar. Samkvæmt
rannsóknarskýrslu Alþingis
skuldaði AB 106 Kaupþingi 443
milljónir króna við fall bankans.
Fasteignafélagið Landic Property,
sem AB 106 heyrði undir, skuldaði
Kaupþingi hins vegar 50 milljarða
króna. Hlutur Akralands heyrir
reyndar enn undir félagið Þyrp
ingu ehf. en það er alfarið í eigu
Landeyjar, fasteignafélags Arion
banka. Oddur Víðisson, þáverandi
framkvæmdastjóri Þyrpingar, sat í
stjórn Akralands fyrir hönd félags
ins. Arion banki yfirtók Þyrpingu
árið 2009. Í ársreikningi Þyrpingar
ehf. fyrir árið 2012 kemur fram að
félagið sé með neikvætt eigið fé
upp á nærri sex milljarða króna á
móti eignum sem nema einung
is hálfum milljarði króna. Verður
að teljast líklegt að bankinn verði
að afskrifa umrætt sex milljarða
króna neikvæða eigið fé félagsins
ef ætlunin er að gera það rekstrar
hæft.
Atafl átti einnig helmingshlut
Hinn hluthafinn á móti Landey í
Akralandi heitir AB 113 ehf. eins
og áður kom fram. Eigendur þess
félags eru Íslandsverktakar sem
heyrðu undir Atafl ehf. sem áður
hét Keflavíkurverktakar. Akraland
ehf. var stofnað í desember 2003
og eignuðust þá Þyrping og
Keflavíkurverktakar (síðar Atafl)
svokallað Arnarnesland. Árið
2006 var greint frá því að Akraland
ætti 10,5 hektara af landi þar sem
byggja ætti 550 íbúðir. Einbýli,
raðhús og fjölbýlishús upp á alls
80 til 85 þúsund fermetra.
Akraland skilaði góðum hagn
aði á tíma góðærisins en hann var
mestur árið 2005 eða nærri 1.300
milljónir króna. Árið 2006 nam
hagnaðurinn hins vegar einungis
60 milljónum króna og um 100
milljónum króna árið eftir. Þá
seldi félagið lóðir fyrir 880 millj
ónir króna árið 2006 og fyrir 750
milljónir króna árið 2007.
Greiddu sér 1.400 milljónir í arð
Akraland greiddi hluthöfum sín
um einnig góðan arð eða 670
milljónir króna árið 2006, 580
milljónir króna 2007 og 185 millj
ónir króna 2008 eða alls rúmlega
1.400 milljónir króna. Í árslok
2007 seldi síðan Þyrping félaginu
AB 106 sinn hlut í Akralandi og
Atafl sinn hlut til AB 113. Kaup
þing veitti félögunum AB 106 og
AB 113 830 milljóna króna lán fyr
ir kaupunum og losaði þar með
fyrri hluthafa undan sínum skuld
um eftir að þeir höfðu greitt sér
1.400 milljónir króna út í arð. Með
þessu varð AB 106 nýtt dótturfélag
Þyrpingar og AB 113 nýtt dóttur
félag Atafls.
Eigendur Atafls enn við stjórn
Í dag eiga Akraland ehf. og félög
in AB 106 og AB 113 síðan eign
ir upp á um 1.200 milljónir króna
en skulda á móti um 1.570 millj
ónir króna. Samkvæmt hluthafa
skrá sitja þeir Kári Arngrímsson,
núverandi framkvæmdastjóri
Atafls, og Bjarni Pálsson, aðal
eigandi Atafls, nú í stjórn Akra
lands. Ingi Guðmundsson, fram
kvæmdastjóri fasteignafélagsins
Landeyjar, sat um tíma í stjórn
Akralands en sagði sig úr stjórn fé
lagsins haustið 2012. Arion banki
hefur ekki yfirtekið AB 113 ehf.
sem á helmingshlut í Akralandi.
AB 113 er hins vegar með neikvætt
eigið fé upp á 255 milljónir króna
en eignir félagsins eru metnar á
um 600 milljónir króna. Þá skuld
ar AB 113 Arion banka 670 millj
ónir króna og kom fram í árs
reikningi AB 113 fyrir árið 2011 að
afborganir og vextir af lánum fé
lagsins hjá Arion banka séu í van
skilum og að bankinn hafi heim
ild til að gjaldfella lánin en ekki sé
búið að endursemja um þau.
Bjarni Pálsson og faðir hans,
Páll Ólafsson, sátu í stjórn félags
ins KV verktakar sem átti helm
ingshlut í Akralandi þar til í árs
lok 2007 en KV verktakar fengu
700 milljónir króna af þeim 1.400
milljónum sem Akraland greiddi
sér í arð á árunum 2006 og 2007.
KV verktakar voru síðan í eigu Ís
landsverktaka sem eiga AB 113 í
dag. Bjarni og faðir hans sátu líka
í stjórn Íslandsverktaka á þeim
tíma sem arðurinn var greiddur
en Íslandsverktakar eiga AB 113 í
dag. n
1.400 milljóna
arðgreiðslur
n Arion banki er eigandi að Akralandi
Arnarnesland Akraland ehf.
eignaðist árið 2003 alls 10,5 hekt-
ara á Arnarneslandi sem líka hef-
ur verið nefnt Jónsland í höfuðið
á Jóni Ólafssyni vatnsútflytjanda
sem átti það áður.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar annas@dv.is
Sat í stjórn Oddur Víðisson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Þyrpingar, sat í stjórn
Akralands.