Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2013, Blaðsíða 17
Neytendur 17Miðvikudagur 7. ágúst 2013
Allt að 200.000 króna sparnaður Eiga að krefjast endurútreikninga
n Lántakar með bílasamning hjá Lýsingu
Þ
eir neytendur sem eru með til
tekna gerð bílasamninga við
Lýsingu hf. eru hvattir til að
gera kröfu um endurútreikn
inga. Þetta kemur fram á heimasíðu
Neytendastofu en þar segir að með
ákvörðun nr. 34/2010 hafi stofnun
in úrskurðað að Lýsing hafi brotið
gegn lögum um neytendalán með því
annars vegar að tilgreina ekki í samn
ingi að íslenskur hluti höfuðstóls
væri verðtryggður og hins vegar með
því að tilgreina ekki að vextir af þeim
hluta samningsins væru breytilegir
og við hvaða aðstæður og með hvaða
hætti þeir gætu breyst.
Samningurinn sem um ræðir sé
blandaður á þann hátt að 50 pró
sent sé í erlendri mynt og 50 prósent
í íslenskum krónum. Snéru bæði at
riðin að íslenska hluta samnings
ins en í hægri haus samnings komi
fram að um sé að ræða samning í er
lendri mynt en ekki sé tekið fram að
íslenskur hluti hans sé verðtryggður. Í
4. grein samningsins komi fram að 50
prósent hans sé í íslenskum krónum
en ekki að sá hluti sé verðtryggður eða
hver grunnvísitala samningsins er.
Bent er á að Hæstiréttur hafi kom
ist að sömu niðurstöðu með dómi nr.
672/2012 en samkvæmt þeim dómi
skuli Lýsing endurgreiða viðkomandi
neytanda verðbætur sem greidd
ar höfðu verið af samningnum og
breytilega vexti umfram það sem til
greint var í samningnum.
Lýsing sendir frá sér tilkynningu
þar sem skorað er á þá sem telja sig
hafa samið um lægri kjör en markaðs
kjör á þeim hluta lánsins sem er í ís
lenskum krónum að gera skriflega
athugasemd fyrir 1. september næst
komandi og óska eftir leiðréttingu á
greiðslum.
Neytendastofa segir að vilji Lýs
ing ekki verða við kröfum neytenda
megi leita með ágreininginn fyrir úr
skurðarnefnd í viðskiptum við fjár
málafyrirtæki, sem hýst er hjá Fjár
málaeftirlitinu, eða fyrir dómstóla. n
Svona er best að
geyma ávextina
n Án þess að nota plastfilmu eða plastílát
Á
vexti er vel hægt að geyma án þess að
plastílát komi við sögu. Flestar tegundir
geymast ágætlega við stofuhita, sum
ar ættu að vera á svalari stað og
aðrar er best að setja í bréfpoka.
Hér má sjá geymsluaðferðir fyrir nokkr
ar tegundir. Leiðbeiningarnar birtust í
Washington Green Grocer.
gunnhildur@dv.is
Melónur Heilar melónur
geymast best á svölum, þurrum
stað og fjarri sólarljósi og má
geyma þær þannig í allt að tvær
vikur. Melónur sem búið er að
skera ættu að vera í ísskápnum,
helst í opnu íláti.
Ferskjur Eins og flesta
ávextir með steini þá skal einung
is geyma þær í ísskáp ef þær eru
þroskaðar. Ef þær eru enn harðar
er betra að hafa þær á eldhús
borðinu.
Jarðarber Það
fer illa með þau að vera í
raka. Best er að setja þau
í bréfpoka og í ísskápinn.
Athugið pokann annan
hvern dag, hvort hann
sé orðinn rakur og skipt
ið þá um.
Apríkósur
Hafið á svölum
stað eða á eldhús
borðinu. Ef þær eru
orðnar vel þroskað
ar er best að setja
þær í ís
skáp
inn.
Kirsuber Setjið í loftþéttar
umbúðir. Ekki þvo þau fyrr en rétt
áður en þeirra er neytt því allur
raki ýtir undir myglumyndun.
Fíkjur Fíkjur eru ekki hrifnar af raka svo
það er ekki góð hugmynd að setja þær í lokað
ílát. Bréfpoki virkar vel til að draga í sig rakann
en best er að láta þær liggja á diski í ísskáp.
Þannig geymast þær í allt að viku. Passið bara
að láta þær ekki liggja ofan á hver annarri.
Ber Ekki gleyma að ber eru
viðkvæm og því mikilvægt að stafla
þeim ekki of mikið. Bréfpoki er góð
ur til að geyma þau í. Ekki þvo fyrr
en rétt fyrir neyslu.
Nektarínur Hafið þær í ísskáp ef þær
eru orðnar þroskaðar. Takið þær út einum til
tveimur dögum áður en ætlunin er að neyta
þeirra. Þannig mýkjast þær við stofuhitann.
Epli Best er að geyma þau
á svölum stað í allt að tvær
vikur. Til að láta þau endast
enn lengur er best
að setja þau í
pappakassa
og inn í
ísskáp.
Bílasamningar Lýsingar
Neytendastofa telur að Lýsing
hafi brotið gegn lögum um
neytendalán.