Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2013, Blaðsíða 10
Samfélagið er
lamað af Sorg
10 Fréttir 7. ágúst 2013 Miðvikudagur
Nýskráningar
standa í stað
Sala á nýjum bílum frá 1. janúar
til 31. júlí á þessu ári helst nán-
ast í hendur við sama tímabil árið
2012 en fjöldi nýskráðra fólksbíla á
þessu tímabili er 5.439 bílar.
Er það fjölgun í nýskráningum
um 11 bíla miðað við sama tímabil
árið 2012, eða 0,2 prósent. Frá 1.
júlí til 31. júlí sl. voru nýskráðir
635 fólksbílar og er það fjölgun
um 61 bíl, eða 10,6 prósent, miðað
við sama mánuð árið 2012.
„Nýskráningar bíla eru á hægri
uppleið en töluvert er þó enn í
land með að náist að snúa við þró-
un hvað varðar aldursamsetningu
á bílaflota landsmanna sem er
orðinn með þeim elstu í Evrópu,
eða 12 ár. Það jákvæða er að það
er aukning í nýskráningum á bíl-
um hér á landi meðan enn hallar
undan fæti hvað varðar nýskrán-
ingar í Evrópu,“ segir Özur Lárus-
son, framkvæmdastjóri Bílgreina-
sambandsins, í tilkynningu.
Ljósmóðir gaf
tæpa milljón
Fæðingadeild Sjúkrahússins á
Akur eyri barst á dögunum vegleg
gjöf frá Margréti Þórhallsdóttur
ljósmóður. Um var að ræða 900
þúsund krónur sem ætlaðar eru til
tækjakaupa á deildinni. Margrét er
öllum hnútum kunnug á fæðinga-
deildinni því hún starfaði þar í 40
ár; hóf störf þar árið 1955 og hætti
árið 1995. „Við erum henni afar
þakklát fyrir starf í þágu deildar-
innar og þetta höfðinglega framlag
hennar kemur til með að skipta
miklu máli fyrir konur sem fæða á
deildinni,“ segir í frétt um málið á
vef Sjúkrahússins á Akureyri.
Óhagstætt
tíðarfar
Tíð var óhagstæð um landið sunn-
an- og vestanvert lengi framan af
júlímánuði og einkenndi úrkoma
og sólarleysi fyrri part mánaðar-
ins. Þetta kemur fram á vef Veður-
stofu Íslands. Meðalhiti mældist
10,9 stig í Reykjavík. Það er 0,3
stigum ofan meðaltals áranna
1961 til 1990, en 1,4 undir með-
allagi síðustu 10 ára. Úrkoma
mældist 72,2 mm í Reykjavík og
er það nærri 40% umfram meðal-
lag og það mesta í júlí síðan 2001.
Sólarlítið var í Reykjavík framan
af mánuðinum en síðari hlutinn
bætti það upp þannig að heildar-
sólskinsstundafjöldi mánaðarins
varð 164, 7 stundum undir meðal-
lagi áranna 1961 til 1990 en aftur á
móti 37 stundum færri en að með-
altali síðustu tíu júlímánuði.
M
ennirnir tveir sem létust
í flugslysi á mánu-
dag hétu Páll Steindór
Steindórsson, flugstjóri,
til heimilis að Pílutúni 2
á Akureyri og Pétur Róbert Tryggva-
son, slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
maður, til heimilis að Rútsstöðum 2
í Eyjafjarðarsveit. Páll lætur eftir sig
sambýliskonu og tvær dætur. Pétur
var ókvæntur en lætur eftir sig tvö
börn.
Samfélag í sárum
Páll var annar flugmanna vélar-
innar en Pétur var sjúkraflutninga-
maður. Hinn flugmaður vélarinnar
komst lífs af. Mennirnir voru allir
búsettir á Akureyri. Mikil sorg ríkir í
bænum vegna slyssins og fjölmargir
hafa þegið áfallahjálp. „Þetta eru
allt saman vinir okkar og samstarfs-
menn til langs tíma. Þetta er lítið fyr-
irtæki og þetta er lítið samfélag. Það
er ekki bara fyrirtækið heldur allt
samfélagið fyrir norðan sem finn-
ur fyrir þessu,“ segir Sigurður Bjarni
Jónsson, flugöryggisfulltrúi Mýflugs,
í samtali við DV. Mennirnir höfðu
starfað lengi saman að sjúkraflugi
en rannsókn stendur yfir á tildrög-
um slyssins. „Þetta voru allt saman
reyndir menn,“ segir Sigurður
Bjarni.
„Einstakur persónuleiki“
„Hann var frábær maður. Slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamaður
hér til marga ára og einstakur
persónuleiki,“ segir Björn Heiðar
Sigurbjörnsson, starfandi slökkvi-
liðsstjóri á Akureyri, um samstarfs-
félaga sinn Pétur Róbert. Þeir höfðu
starfað lengi saman hjá slökkvi-
liðinu á Akureyri. Hann segir Pétur
hafa verið afar vandaðan mann og
góðan starfskraft. „Hann var vin-
sæll, greiðvikinn og brosmildur. Að
öllum öðrum ólöstuðum var hann
meðal minna bestu manna en við
höfum gott fólk heilt yfir,“ segir
hann. Pétur var einnig virkur í Björg-
unarsveitinni Dalbjörg. „Björgunar-
störf áttu hug hans allan,“ segir
Björn. Pétur var virkur í ferðaklúbbi
og fór mikið á fjöll. „Hann var mjög
virkur í því, fór mikið á fjöll og naut
þess að vera á fjöllum. Bæði á jepp-
um, snjósleðum og jafnvel hjólum.“
Pétur lætur eftir sig tvö börn og seg-
ir Björn hann hafa verið góðan föð-
ur. „Hann var virkilega góður pabbi
og naut þess að vera með börnun-
um sínum.“
Samfélagið lamað af sorg
Björn segir samstarfsfélaga þeirra
Péturs og Páls vera harmi slegna
vegna slyssins. Slökkviliðið hefur
unnið undanfarin ár í nánu sam-
starfi við Mýflug um sjúkraflutn-
inga en einn sjúkraflutningamað-
ur frá slökkviliðinu er í sjúkraflugi
hverju sinni. Því er mikið og náið
samstarf þarna á milli. Slökkvi-
liðsmenn frá höfuðborgarsvæðinu
komu norður eftir slysið til þess að
leysa norðlenska kollega sína af.
„Þessi stétt er hálf lömuð eftir þetta.
Þó að þetta sé mikið ábyrgðarstarf
og áhættustarf mikið þá er ekki al-
gengt að menn farist við störf. Og
við áttum alls ekki á von á þessu.
Samfélagið er eiginlega bara lamað
en okkar vinna heldur áfram, við
getum aldrei stoppað. Við feng-
um mikinn liðstyrk frá slökkviliði
höfuð borgarsvæðisins. Þeir buðu
okkur aðstoð og ég þáði hana strax,
ég vildi geta gefið mínum mönn-
um frið meðan þeir eru að ganga í
gegnum það versta,“ segir Björn.
Hjálpsamur og mikill fagmaður
Helgi Schiöth, aðstoðarvarðstjóri
hjá slökkviliðinu á Akureyri og vara-
maður í stjórn Bílaklúbbs Akureyrar,
þekkti bæði Pál og Pétur. Helgi hitti
Pétur fyrst þegar sá síðarnefndi var
fjögurra ára gamall. „Ég hef þekkt
fjölskyldu hans mjög lengi og það
er bara allt gott um hann að segja.
Hann var snilldarmaður og vandað-
ur. Geysilega vinmargur og hrókur
alls fagnaðar.“
Helgi þekkti Pál minna en Pétur.
Hann hafði þó töluverð kynni af
honum á fleiri en einum vettvangi.
Þeir kynntust fyrst árið 1996 þegar
Páll leigði af honum æfingahús-
næði fyrir hljómsveitina Míröndu
sem hann var meðlimur í. „Svo var
hann mótorhjólamaður alveg fram í
fingurgóma og við þekkjumst þaðan
líka. Hann var mikill fagmaður, lús-
iðinn og mjög hjálpsamur.“ Þá flaug
Helgi stundum með Páli. „Ég er bú-
inn að fljúga með honum í nokkur
ár og það hefur aldrei fallið skuggi á
það samstarf.“ Páll tók við sem gjald-
keri Bílaklúbbs Akureyrar á þessu
ári og höfðu þeir Helgi því eitthvað
starfað saman á þeim vettvangi líka.
Þrátt fyrir að Páll hafi verið mikill
mótorhjólamaður þá var hann
orðinn meiri bílamaður í seinni tíð,
að sögn Helga.
Mikil mildi
Flugvélin sem mennirnir voru í, var
að koma úr sjúkraflugi frá Reykja-
vík þegar hún brotlenti við keppn-
issvæði Bílaklúbbs Akureyrar. Fjöl-
mörg vitni voru að slysinu sem átti
sér stað klukkan hálf tvö eftir há-
degi en á keppnisbrautinni var að
hefjast götuspyrnukeppni um það
leyti sem vélin brotlenti. Mikil mildi
þykir að fólk á jörðu niðri hafi ekki
slasast en brak úr vélinni þeyttist
í allar áttir þegar hún skall niður.
„Flugvélin virðist ætla að fljúga yfir
svæðið en eitthvað gerist sem verð-
ur þess valdandi að hún missir hæð
og rekur annan vænginn í og í fram-
haldi af því kviknar í henni og hún
ferst þarna og dreifist þarna um
stórt svæði og fer út fyrir endann á
brautinni sem þarna er,“ sagði Dan-
íel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn
á Akureyri, í samtali við Morgun-
útvarp Rásar 2 á þriðjudag.
Nauðlending
Í tilkynningu frá Mýflugi segir að
flugmenn vélarinnar TF-MYX, sem
var sérútbúin sjúkraflutningavél,
hafi hætt við lendingu skömmu
áður en slysið varð og hafi verið að
fljúga hring í kringum flugvöllinn
fyrir annað aðflug. Þá virðist sem
ákveðið hafi verið að nauðlenda
á akstursíþróttabraut Bílaklúbbs
Akur eyrar við Hlíðarfjallsveg. Annar
vængur vélarinnar virðist hafa rekist
í brautina í nauðlendingunni með
þeim afleiðingum að vélin fórst.
Á þriðjudag hittust starfsmenn
Mýflugs og Slökkviliðs Akureyrar
á fundi. Samkvæmt tilkynningu
sem Mýflug sendi frá sér í kjölfar-
ið var mikill samhugur á fundinum
og eindreginn vilji manna að láta
þann harmleik sem nú hefur orðið
ekki skyggja á það góða starf sem
byggt hefur verið upp í sjúkraflugi
frá Akur eyri.
Þar kom jafnframt fram að rætt
hefði verið við þriðja manninn sem
liggur nú á spítala. Hann var á gjör-
gæsludeild en líðan hans var stöð-
ug og hann var ekki talinn vera í lífs-
hættu.
Margir þáðu áfallahjálp
Í kjölfar slyssins var opnuð fjölda-
hjálparmiðstöð Rauða krossins í
n Páll Steindór og Pétur Róbert létust í hræðilegu flugslysi n Mikil sorg ríkir á Akureyri vegna slyssins
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Frá slysstað Myndin er tekin á slysstað á mánudag. MyNd VöluNdur JóNSSoN / AkurEyri VikublAð
Mikil sorg Mikil sorg ríkir á Akureyri vegna
slyssins. Mynd frá slysstað.
MyNd VöluNdur JóNSSoN / AkurEyri VikublAð