Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Page 3
Vikublað 21.–23. janúar 2014 Fréttir 3
Eitt stærsta gjaldþrotið
Guðmundur á Núpum skuldaði 3,8 milljarða þegar hann vildi greiðsluaðlögun
G
jaldþrot Guðmundar A.
Birgissonar, sem oftast er
kenndur við Núpa í Ölfusi,
er eitt af stærri gjald-
þrotum einstaklinga hér
á landi. Hann var umsvifamik-
ill í fjárfestingum fyrir efnahags-
hrunið haustið 2008 og var áber-
andi athafnamaður. Árið 2011 sótti
Guðmundur um greiðsluaðlögun
hjá umboðsmanni skuldara en
var neitað. Hann sótti þá aftur um
greiðsluaðlögun en var hafnað að
nýju. Hann kærði báðar niðurstöð-
urnar. Skuldir Guðmundar námu
3,8 milljörðum króna. Auglýst hef-
ur verið eftir kröfum í þrotabúið og
ekki ljóst hversu háar kröfur verða
gerðar.
Stjórnaði milljarðasjóði
frænku sinnar
Guðmundur var einn sjóðsstjóra
Sonja Foundation, minningarsjóðs
Sonju Zorilla, einnar auðugustu
konu Íslands, sem lést árið 2002.
Sjóðurinn nam milljörðum króna
en Sonja efnaðist á fjárfestingum
í Bandaríkjunum. DV greindi frá
því árið 2009 að átta dögum eftir
að hús Sonju, sem var frænka Guð-
mundar, rann inn í minningarsjóð-
inn hafi hann fært það yfir á sitt eig-
ið nafn. Skömmu eftir bankahrunið
flutti hann svo húsið yfir á sam-
býliskonu sína. Það var ekki eina
fasteignin sem færð var yfir á nafn
hennar heldur hátt í tuttugu aðrar
einnig.
Lítið hefur spurst til sjóðsins eft-
ir að hann var stofnaður en hlutverk
hans átti að vera að styrkja langveik
börn á Íslandi og í Bandaríkjunum.
Í bókinni Ríkir Íslendingar voru
eignir Sonju metnar á 9.500 millj-
ónir króna, eða tæpa tíu milljarða
króna, árið 2001, ári áður en sjóð-
urinn var stofnaður. Guðmundur
hefur ekki viljað tjá sig um sjóðinn
þegar eftir því hefur verið leitað.
Áberandi í viðskiptalífinu
Guðmundur átti eignarhlut í mörg-
um áberandi fyrirtækjum áður en
hann lenti í fjárhagsvandræðum
í kjölfar hrunsins og má meðal
annars nefna HB Granda, Hótel
Borg, Bang & Olufsen á Íslandi og
Sláturfélag Suðurlands. Hann var
einnig einn af forsvarsmönnum
Lífsvals sem keypti talsvert af jörð-
um fyrir hrun. Lífsval endaði í fangi
Landsbankans árið 2012 eftir að
bankinn hafði árið áður farið fram
á nauðungarsölu á fjórum jörðum í
eigu félagsins.
Í upplýsingum sem kærunefnd
um greiðsluaðlögun birti í kjölfar
þess að Guðmundur kærði synj-
un um greiðsluaðlögun kom fram
að hann var með tugmilljónir í
mánaðarlaun fyrir hrun. Árið 2008
var hann með 85 milljarða tekjur
á mánuði eftir skatta en strax eft-
ir hrun, árið 2009, voru tekjurn-
ar komnar niður í fimm milljón-
ir á mánuði. Árið 2010 var hann
svo með rúmar tvær milljónir á
mánuði. n
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Upp og niður Guðmundur var áberandi fyrir hrun og fjárfesti víða. Nú er hann gjaldþrota.
n Málið enn hjá ríkissaksóknara n Óviðkomandi aðilum blandað inn í mál Tony Omos
S
tefanía Óskarsdóttir, lektor í
stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, telur að það geti
haft alvarlegar afleiðingar
fyrir Hönnu Birnu ef ekki tekst að
svara stóru spurningunum í leka-
málinu með fullnægjandi hætti.
„Ef ríkissaksóknari kýs að fara
áfram með þetta þá hlýtur þetta að
verða stórmál fyrir Hönnu Birnu,“
segir hún.
Stefanía er fyrrverandi vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins og
því má ætla að hún þekki ágætlega
til innan hans. Hvaða áhrif telur
hún að trúnaðarbresturinn hafi á
stöðu Hönnu Birnu innan flokks-
ins? „Nú eru mörg ár síðan ég hef
starfað með Sjálfstæðisflokknum,
svo það er erfitt fyrir mig að svara
þessu. En ég held að viðbrögð ráð-
herra skipti talsverðu máli,“ segir
Stefanía og bendir á að svara þurfi
þeim spurningum sem vaknað
hafa vegna lekans. Eins og DV hef-
ur áður greint frá hafa svör ráðu-
neytisins verið mótsagnakennd
og loðin. Aðstoðarmaður Hönnu
Birnu hefur viðurkennt að skjalinu
hafi verið lekið út úr ráðuneytinu
en Hanna Birna sjálf hefur ítrek-
að synjað beiðnum DV um viðtal.
Hins vegar hefur hún hringt í rit-
stjóra og gert því skóna að blaða-
menn eigi við geðræn vandamál
að stríða.
Hanna Birna og Þórey Vil-
hjálmsdóttir, aðstoðarkona henn-
ar, hafa haldið því fram að DV sé
í pólitískri herferð gegn ráðherra.
Hvað finnst Stefaníu um það þegar
fólk í valdastöðum lýsir umfjöllun
um sig með þessum hætti? „Það
er auðvitað eðlilegra að svara rök-
um með rökum. Svona tal um póli-
tískar árásir koma oftast bara út
eins og viðkomandi geti ekki svar-
að fyrir sig. Sigmundur og stjórn-
arliðar töluðu mikið á þennan veg
fyrst eftir að þeir tóku við, en mér
sýnist þeir vera að hætta þessu.
Stjórnmálamenn verða auðvitað
að þola að fjölmiðlar sinni eftirlits-
skyldu sinni,“ segir hún en tekur
jafnframt fram að hún hafi ekki
kynnt sér framvindu lekamálsins
í þaula.
Gæti orðið stórmál
fyrir Hönnu Birnu
Brýnt að spurningum verði svarað með tæmandi hætti
Íslensk kona nafngreind
í minnisblaði ráðuneytis
Heimilisprýði Hallarmúla - Sími 553 8177 - heimilisprydi@simnet.is www.brunstad.no / www.heimilisprydi.is
Verð 850.000 kr. Tilboð 680.000 kr. Meðan birgðir endast
Pan
sófaborð
Úrval af norskum sófaborðum
Verð 135.000 kr.
Gæða sófar
frá Ítalíu Evo 3+2