Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Blaðsíða 4
Vikublað 21.–23. janúar 20144 Fréttir
Kæru Baldurs
vísað frá
Mannréttindadómstóll Evrópu
hefur vísað frá máli Baldurs
Guðlaugssonar, fyrrverandi
ráðuneytisstjóra í fjármála-
ráðuneytinu. Baldur var
dæmdur í tveggja ára fangelsi
í nóvember 2011 vegna inn-
herjasvika og brota í opinberu
starfi. Seldi Baldur hlutabréf
sín í Landsbankanum skömmu
fyrir hrun bankans. Dómurinn
yfir Baldri var síðan staðfestur í
Hæstarétti árið 2012.
RÚV greindi frá því á mánu-
dag að lögmaður Baldurs, Karl
Axelsson, hefði staðfest að máli
Baldurs hjá Mannréttindadóm-
stólnum hafi verið vísað frá. Er
málinu þar með lokið.
Í lífshættu
Ungur karlmaður, sem slasað-
ist í bílslysi við Fornahvamm í
Norðurárdal um síðustu helgi,
er enn í lífshættu. Honum
er haldið sofandi í öndunar-
vél á gjörgæslu Landspítal-
ans. Pilturinn, sem er átján ára,
var ökumaður bifreiðar sem
lenti í árekstri við flutningabif-
reið sem var að koma úr gagn-
stæðri átt á Vesturlandsvegi
við Fornahvamm í Norðurár-
dal fyrir rúmri viku. Stúlka sem
var farþegi í bílnum, Anna Jóna
Sigurbjörnsdóttir, lést í slys-
inu. Á sunnudag rúntuðu vinir,
skólafélagar og aðrir bæjarbúar
í minningu hennar. Síðastliðinn
sunnudag hefði hún orðið
sautján ára og því fengið bílpróf.
Lögðu til sjö
milljarða mark
Fimmtíu milljarða talan komin frá þingmanni Framsóknarflokksins, Frosta Sigurjónssyni
E
nginn lagði til hærra en sjö
milljarða frískuldamark
vegna sérstaks bankaskatts
í álitum sem skilað var
til efnahags- og við-
skiptanefndar. Nefndin ákvað hins
vegar, með óljósum leiðum, að
leggja til að markið yrði 50 millj-
arðar króna, eða sjöfalt hærra en
þær hugmyndir sem komið höfðu
fyrir nefndina. Bent hefur verið á
að markið komi sér sérstaklega vel
fyrir einn viðskiptabanka af fjór-
um, MP banka, sem sparar sér hátt
í þrjú hundruð milljónir króna á
árinu, miðað við síðasta birta árs-
reikning bankans. Flestir spari-
sjóðir á landinu, ef ekki allir, koma
einnig vel frá skattinum vegna
frískuldamarksins, sem virkar eins
og skattleysismörk.
Upphæðin kom frá Frosta
Upphæðin fimmtíu milljarðar
kemur fram í breytingartillögu sem
efnahags- og viðskiptanefnd lagði
fram við tekjuaðgerðarfrumvarp
ríkisstjórnarinnar í tengslum við
fjárlög 2014. Engin skýring er gef-
in á hvernig upphæðin var fundin
út en í samtali við DV um helgina
sagði Frosti Sigurjónsson, formað-
ur nefndarinnar, að fimmtíu millj-
arða tölunni hafi verið velt upp í
nefndinni en að fyrst hafi verið talað
um að frískuldamarkið yrði ein-
hvers staðar á bilinu þrír til hund-
rað milljarða. Frosti hefur áður sagt
að talan hafi komið frá fjármála- og
efnahagsráðuneytinu en því vísaði
Bjarni Benediktsson ráðherra á bug
í kvöldfréttum Stöðvar 2 um helgina
og sagði að starfsmenn ráðuneyt-
isins hafi lagt fram útreikninga um
áhrif skattsins en ekki nefnt neina
tölu.
Fundað var um málið í efnahags-
og viðskiptanefnd á mánudag eft-
ir að fjallað hafði verið um málið í
fjölmiðlum. Viðurkenndi Frosti á
þeim fundi að talan hefði sannar-
lega orðið til í meðförum meirihluta
nefndarinnar á málinu en ekki frá
fjármálaráðuneytinu eins og hann
hafði áður haldið fram.
Klæðskerasniðið
fyrir MP banka?
Spurningar hafa vaknað um
frískuldamarkið vegna þess
hversu hagstætt það er fyrir MP
banka. Stjórnendur bankans eru
tengdir ríkisstjórninni bæði í
gegnum Sigmund Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra og
Bjarna. Sigurður Atli Jónsson,
forstjóri MP banka, er kvæntur
Nönnu Margréti Gunnlaugs-
dóttur, systur Sigmundar Davíðs,
og Sigurður Hannesson, náinn
ráðgjafi forsætisráðherra og for-
maður hóps um höfuðstólslækk-
un verðtryggðra húsnæðislána,
er framkvæmdastjóri hjá bankan-
um. Þá er annar tveggja aðstoðar-
manna Bjarna fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri hjá bankanum.
Í svari við fyrirspurn DV til for-
sætisráðherra fyrir helgi hafn-
aði aðstoðarmaður hans, Jó-
hannes Þór Skúlason, því að
Sigmundur Davíð hafi komið ná-
lægt ákvörðuninni um frískulda-
markið og hafnaði því að tengsl
ráðherrans við stjórnendur MP
banka, hvort sem er núverandi
eða fyrrverandi, hafi haft áhrif
á ákvörðunina. Þá benti hann á
að hópurinn sem Sigurður leiddi
hafi ekki komið með neinar tillög-
ur varðandi fjármögnun skulda-
aðgerðanna. n
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Formaðurinn Frosti er formaður efnahags- og viðskiptanefndar þingsins sem lagði til breytinguna á bankaskattinum og frítekjumarkið.
Mynd SigtryggUr Ari
Þ
inghald í máli karlmanns
sem ákærður er í svokölluðu
„shaken baby“-máli verður
opið samkvæmt niðurstöðu
Hæstaréttar. Sem kunnugt er
hefur ríkissaksóknari ákært mann-
inn, Scott James Carcary, fyrir stór-
fellda líkamsárás. Hann er sakaður
um að hafa að kvöldi 17. mars 2013,
á heimili sínu „hrist dóttur sína sem
þá var 5 mánaða gömul, svo harka-
lega að stúlkan hlaut mikla innanbast-
blæðingu í hægra heilahveli, mikinn
heilabjúg með útflöttum heilafelling-
um, bráða taugasímaáverka í heila,
innanbastblæðingu í kringum sjón-
taug í hægra auga, miklar blæðingar í
sjónhimnu hægra auga og að nokkru
leyti í vinstra auga, blæðingu inn á
hjartahimnu við hjartaoddinn, mar
í handarkrikum, á upphandleggj-
um, baki, vinstri vanga, vinstra eyra,
hnakka, vinstra læri og hægri kálfa, en
stúlkan lést nokkrum klukkustundum
síðar af völdum áverkanna,“ að því að
fram kemur í ákæru.
Í fyrirtöku málsins fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur á mánudag var hart
tekist á, sérstaklega á milli dómara og
verjanda mannsins. Fyrir hið fyrsta
voru skjöl sem verjandi, Víðir Smári
Petersen, lagði fram á ensku. Það
þótti ekki rétt að leggja þau fram sem
dómskjöl, heldur urðu þau að fylgja
greinargerð lögmannsins sem fylgi-
skjöl eða þá að verða þýdd.
Að auki gerði Víðir þá kröfu að
einkaréttarkröfu móður barnsins yrði
vísað frá þar sem hún hefði ekki verið
lögð fram við þingfestingu og að verj-
anda hefðu ekki borist gögn um einka-
réttarkröfuna, önnur en ákæruna.
Þessu mótmæltu bæði ríkissaksóknari
og réttargæslumaður móður barns-
ins. Óhætt er að segja að dómari máls-
ins hafi snuprað verjandann og var
mjög ósáttur við frávísunarbeiðni lög-
mannsins. „Þetta eru ótrúlegir útúr-
snúningar,“ sagði dómarinn. Málinu
hefur nú verið frestað en búast má við
því að aðalmeðferð fari fram á vor-
mánuðum. n astasigrun@dv.is
„Ótrúlegir útúrsnúningar“
Scott James Carcary er ákærður fyrir að hafa hrist barnið sitt
Miklir áverkar Telpan hlaut mikla áverka
og hefur faðir hennar nú verið ákærður.