Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Page 19
Skrýtið 19Vikublað 21.–23. janúar 2014
Framleiðsla hafin
á byssu fyrir konur
n Nefnd eftir fórnarlambi n Deilt um hvort konur séu öruggari með byssur
Y
firvöld á Indlandi hafa sett
á markað byssu sem er
hönnuð fyrir konur. Byssan
er nefnd eftir konunni sem
var hópnauðgað í Nýju-
Delí í desember árið 2012 og lést af
áverkum sínum. Er því haldið fram
að byssan muni hjálpa konum að
verja sig en gagnrýnendur hafa stig-
ið fram og sagt byssuna vera móðg-
un við minningu fórnarlambsins.
Fjallað var um málið á vef breska
ríkis útvarpsins, BBC, í síðustu viku
en þar var byssan sögð vera létt og
auðveld í notkun og með viðarskafti
sem á að heilla augað. Þeir sem
kaupa byssuna fá hana í dumbrauð-
um skartgripakassa.
„Indverskum konum líkar við
skraut,“ sagði Abdul Hameed, yf-
irmaður hergagnaverksmiðju Ind-
lands, við BBC. Byssan er
nefnd Nirbheek
sem er samheiti
yfir nafnið Nir-
bhaya sem ind-
verskir fjölmiðlar
gáfu fórnarlambi
hópnauðgunar-
innar. „Við trú-
um því að konur
verði óttalaus-
ar með þessa
byssu,“ sagði Ha-
meed. Starfsmenn
verksmiðjunn-
ar höfðu unnið
að hönnun
byssu fyr-
ir kon-
ur fyrir
árásina í Nýju -Delí. Vinnan komst á
flug eftir þessa hrottafengnu árás þar
sem fórnarlambinu var nauðgað og
misþyrmt með járnstöng áður en því
var fleygt út úr strætisvagni á ferð.
230 þúsund krónur
Hameed heldur því fram að byssan
muni gera mögulega nauðgara frá-
hverfa því að ráðast á konur vegna
þess að þeir geti með engu móti vit-
að hvaða kona er með byssuna á sér.
Byssan kostar sem nemur 230 þús-
und krónum og hafa tíu byssur verið
keyptar þegar þetta er ritað.
Tilkoma þessarar byssu hef-
ur vakið upp umræður á Indlandi
um hvort konur séu ör-
uggari séu þær vopnaðar skotvopni.
Ram Krishna Chaturvedi, lögreglu-
stjóri borgarinnar Kanpur, telur svo
vera. „Þetta er góð hugmynd. Ef þú
ert með skráð vopn þá eykur það
sjálfstraust þitt og vekur ótta í huga
glæpamanna,“ sagði Chaturvedi við
BBC.
Á meðal þeirra kvenna sem
vilja kaupa Nirbheek-byssuna er
húsmóðirin og nemandinn Prati-
bha Gupta. Hún segir byssuna hins
vegar full dýra fyrir sig og það sé
erfitt að verða sér út um leyfi fyrir
henni en hún tekur fram að byssan
gæti fært henni ákveðið vald. „Ef
manneskjan fyr-
ir framan mig veit að ég er með
byssu þá er hún hikandi við að
nálgast mig. Byssan verður fylgis-
maður minn, vinur minn og styrk-
ur,“ sagði Gupta við BBC.
Skömmu eftir nauðgunina í
Nýju-Delí lögðust stjórnvöld í
vinnu við að gera konur öruggari
á Indlandi. Ný lög um nauðg-
anir voru innleidd í landið, lög-
reglumönnum fjölgað og settar
upp hjálparlínur fyrir konur í
nokkrum borgum. Fjölmargar kon-
ur sóttu sjálfsvarnarnámskeið og
var piparúði hamstraður í landinu.
Ásamt þessu sóttu margar um
byssu leyfi.
Ein á 22 mínútna fresti
Þrátt fyrir þessar aðgerðir berast enn
skelfilegar fregnir af hópnauðgun-
um í landinu, nú síðast af danskri
konu sem var á ferðalagi í landinu
þegar hópur manna réðst á hana og
nauðgaði henni. Talið er að einni
konu sé nauðgað á 22 mínútna fresti
í landinu að meðaltali.
Framleiðendur Nirbheek telja
því markað fyrir þessa byssu
sem framleidd er fyrir konur,
en ekki eru allir sammála því.
Binalakshimi Nepram er stofn-
andi samtaka kvenna sem lifðu
af skotárásir. Hún segir það vera
á ábyrgð stjórnvalda að tryggja
öryggi kvenna í landinu. „Það er
fáránlegt að heyra að ríkið ætli
að vígbúa konur. Með þessu er
ríkið að viðurkenna að það hef-
ur brugðist indverskum kon-
um,“ sagði Nepram við BBC.
Nepram segir þessar byssur ekki
tryggja öryggi kvenna í landinu.
„Okkar rannsóknir sýna fram
á að manneskja er tólf sinnum
líklegri til að látast í skotárás ef
hún er vopnuð.“ Hún segir nafn
byssunnar vera móðgun við
fórnarlamb hópnauðgunarinn-
ar í Nýju-Delí því það hefði ekki
haft efni á þessu vopni. „Meðal
árslaun eru lægri í landinu en
andvirði byssunnar.“
Þá hefur verið bent á að
byssur séu ekki leyfðar á op-
inberum stöðum í Indlandi. Þurfa
til að mynda þeir sem ætla sér inn
á opinberar skrifstofur, verslunar-
miðstöðvar, kvikmyndahús, leik-
hús og markaði, að ganga í gegnum
málmleitarhlið til að fá inngöngu.
„Ég keypti byssu til að tryggja öryggi
mitt, en ég má ekki vera með hana á
flestum stöðum. Hún safnar því ryki
í læstum skáp heima hjá mér,“ sagði
Anita Dua, sem berst fyrir réttindum
kvenna í Kanpur, við BBC. n
Sögð létt og falleg
Nirbheek byssan er ætluð
konum og er sögð létt og
falleg. Mynd SkjáSkot af vEf BBC
Birgir olgeirsson
birgir@dv.is
Skýr skilaboð Þessi mót-
mælandi flutti skýr skilaboð
á mótmælum á Indlandi. „Til
að varna nauðgun, refsið
þeim sem kenna konum um
nauðgun.“ Mynd REutERS
Ostaperrinn
handsamaður
Lögreglan í Mayfair-hverfi í Penn-
sylvaníu í Bandaríkjunum hefur
haft hendur í hári öfugugga sem
er sérlega hrifinn af svissneskum
ostum. Christopher Pagano, 41
árs, var handtekinn á fimmtudag
eftir glæpahrinu en hann hefur
ekið um og berað sig fyrir ótal-
mörgum konum í Mayfair. Bauð
hann þeim pening fyrir að horfa á
sig nudda berum kynfærum sín-
um upp við svissneskan ost.
Hann náðist meðal annars á
myndband þar sem kona spyr hann
hvers vegna hann sé með ost í bíln-
um. „Hann sagði mér að honum
þætti gott að setja ost á kynfæri
sín,“ sagði sjónarvottur í samtali við
NBC News. „Mér líður frekar illa,
núna þegar ég veit að þetta var ekki
brandari.“ Pagano verður ákærð-
ur en fyrir liggur vitnisburður all-
nokkurra kvenna. Meðal annars
einnar konu, hinnar tvítugu Gabby
Chest, en Pagano sendi henni skila-
boð í gegnum stefnumótasíðuna
OKCupid, þar sem hann bauðst til
að borga henni fyrir að vefja sviss-
neskum osti utan um getnaðarlim
hans, og fróa honum síðan.
„Saurga
góðan orðstír
satanismans“
„Ég hef ætlað að enda líf mitt
frá því ég var 25 ára gamall. Því
ég mun að endingu deyja, og ég
vil taka þá með
mér sem saurga
góðan orðstír
satanismans með
mér,“ segir í skila-
boðum á Face-
book sem lög-
reglan í Bangkok
segir að Prakarn Harnphanbusa-
korn standi á bak við.
Prakarn er grunaður um
hrottafengið morð á tónlistarmann-
inum Samong „Avajee“ Traisattha,
sem fannst myrtur á heimili sínu
í Bangkok 8. janúar síðastliðinn.
Samong var 36 ára og söngvari í
dauðametalhljómsveitinni Sur-
render of Divinity. „Satan er ekki
leikfang. Ekki kalla þig satanista ef
þú trúir ekki á hann!!“ segir Prakarn
enn fremur. Lögreglan í Taílandi
leitar nú að Prakarn.
Örlitlir
reimleikar
„Ég reyndi að orða þetta á örlítið
kíminn hátt. En það virðist ekki
vera að hjálpa mikið við markaðs-
setninguna,“ segir Greg Leeson, 35
ára eigandi 113 ára gamals húss í
Dunmore í Pennsylvaníu í Banda-
ríkjunum. Leeson og eiginkona
hans Sandi settu húsið á sölu og
skrifuðu í auglýsinguna að það
væru „örlitlir reimleikar“ í því: „En
ekkert alvarlegt“. Það hefðu þau
betur látið ógert. „Það eru ekkert
sérstaklega margir áhugasamir
kaupendur að láta sjá sig. Mest-
megnis einhverjir ruglhausar,“
segir Greg. Hafa draugabanar og
aðrir áhugamenn um hið dulræna
ónáðað hjónin upp á síðkastið.
Sjálf segist Sandi sannfærð að
draugur sé í húsinu.