Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Qupperneq 21
Umræða 21Vikublað 21.–23. janúar 2014 S íðastliðinn sunnudags­ morgun vildi svo til, að bæði í þætti Sigurjóns Egilsson­ ar á Bylgjunni og í þætti Gísla Marteins á ríkissjón­ varpinu sátu fyrir svörum tveir af forystumönnunum í ríkisstjórn­ arsamstarfinu. Báðir voru spurð­ ir sömu spurningar um hvað liði hugsanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna Íslands við Evrópusambandið. Báðir svöruðu skýrt og afdráttarlaust og voru al­ gerlega sammála. Þetta voru þau Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár­ laganefndar, og Sigrún Magnús­ dóttir, formaður þingflokks Fram­ sóknarflokksins. Hvorugar gripu til þess ráðs að fara loðmullulega kringum viðfangsefnið eins og kettir í kring um heitan graut. Báðar gáfu þær skýr og afdráttarlaus svör. Báð­ ar sögðu þær að þjóðaratkvæða­ greiðsla um framhald viðræðna væri ekki á dagskrá hjá ríkisstjórn­ inni. Til hennar myndi ekki koma. Líka íhaldið Þessar tvær framsóknarkonur eru síður en svo einu forystumenn ríkis­ stjórnarinnar, sem svo skýrt hafa talað. Það hefur líka sjálfstæðis­ þingmaðurinn Birgir Ármannsson gert, formaður utanríkismálanefnd­ ar. Einnig ritstjóri Morgunblaðsins, Davíð Oddsson, sem örugglega hef­ ur ráðið einna mestu um myndun núverandi ríkisstjórnar og áherslu­ efni hennar. Þó utanríkisráðherrann hafi verið margsaga um hin marg­ víslegustu efni eru síðustu ummæli hans afdráttarlaus. Engin þjóðarat­ kvæðagreiðsla um áframhald við­ ræðna. Engar viðræður á hans vakt. Besti kosturinn? Í báðum flokkunum, Framsóknar­ flokki og Sjálfstæðisflokki, eru stórir minnihlutar sem líta svo á að ljúka eigi aðildarviðræðum við ESB og bera niðurstöðuna undir þjóðarat­ kvæði. Sá er eindregið þeirra vilji því þeir telja að ef kostur sé á að­ ild með ásættanlegum kjörum þá ráði það algerum úrslitum um framtíðarvelferð þjóðarinnar og um lausn á annars illleysanlegum vandamálum eins og nær ókleifum múr gjaldeyris hindrana og reglu­ bundins gengishruns. Í hópi þessa stóra minnihluta eru meðal annarra flestir forystumenn í atvinnurekstri þjóðarinnar; nærfellt allir aðr­ ir en útgerðarmennirnir, sem eiga Morgunblaðið. Sá hópur hefur fram til þessa verið mikils ráðandi í báð­ um stjórnarflokkunum, einkum Sjálfstæðisflokknum, en nú er ekkert á þá hlustað. Jafnvel hæðst að þeim á opinberum vettvangi umfjöllunar. Atkvæðin tryggð Til þess að tryggja núverandi stjórnar flokkum atkvæði og atfylgi þessa hóps og annarra þeirra, sem fylgt hafa stjórnarflokkunum en fylgja þeim ekki í fjandskapnum við ESB, voru fyrir kosningar gefin út þau loforð, að gengið yrði til þjóðar­ atkvæðagreiðslu um hvort samn­ ingum við ESB yrði fram haldið og niðurstaða þeirrar atkvæðagreiðslu yrði látin ráða. Formaður Sjálfstæð­ isflokksins var algerlega ótvíræð­ ur í því loforði. Gaf meira að segja í skyn að vel mætti hugsa sér slíka atkvæðagreiðslu samfara sveitar­ stjórnarkosningum, sem fram eiga að fara eftir nokkra mánuði. Einn áberandi flokksmanna hans, Bene­ dikt Jóhannesson, fullyrti í grein í Fréttablaðinu að því loforði væri óhætt að treysta. „Sjálfstæðismenn efna loforð sín,“ sagði hann. Fyrr­ verandi formaður flokksins, Þor­ steinn Pálsson, skrifar vikulega pistla í Fréttablaðið þar sem hann hermir margnefnt loforð upp á arf­ taka sinn í formannsstólnum. Nú verður gengið til margumræddra sveitarstjórnarkosninga eftir fáa mánuði. Samkvæmt ítrekuðum yf­ irlýsingum hvers forystumanns rík­ isstjórnarsamstarfsins á fætur öðr­ um verður hvorki þá né heldur síðar efnt loforðið sem þeir Benedikt og Þorsteinn segja að ekki verði svikin Og hvað þá? Óhætt að svíkja? Gangi það eftir – verði loforðið ekki efnt – þá er það einfaldlega vegna þess, að forysta beggja flokka tel­ ur sér það vera óhætt því hvorki Benedikt né Þorsteinn né for­ ystumennirnir í íslensku atvinnu­ lífi muni hvort eð er nokkurn tíma annað gera en að halda áfram að kjósa Flokkinn – hvort heldur sem er Framsókn eða Sjálfstæðisflokk. Í næsta pistil sínum ætti Þorsteinn að velta upp sinni sýn á það. Er það rétt mat hjá félögum hans í forystunni að óhætt sé að gleyma loforðinu sem honum og skoðanabræðrum hans var gefið því þeir hvorki geti né vilji bregðast við? Þeir fylgi Flokkn­ um fremur en sannfæringunni? Úr­ slit málsins eru algerlega í höndun­ um á þessum tiltölulega stóra hópi viðræðusinna í bæði Framsóknar­ flokknum og Sjálfstæðisflokknum. Þá fyrst þegar og ef flokksforystan telur vera ástæðu til þess að óttast þá mun hún standa við loforðið, sem hún gaf þeim. Fyrr ekki. Í því tafli á svartur nú leik. Fellir hann kónginn – og gefst upp eins og for­ ystan býst við? Eða teflir hann til vinnings? Hvað segja þeir Benedikt og Þorsteinn? Sífellt styttist í sveitar­ stjórnarkosningar. Umþóttunartím­ inn styttist. Þögn er samþykki – við mat forystunnar. n Svartur á leik Sighvatur Björgvinsson Fyrrverandi ráðherra Kjallari „Þó utanríkisráð- herrann hafi verið margsaga um hin marg- víslegustu efni eru síð- ustu ummæli hans af- dráttarlaus. Forystu konur í Framsókn Sigrún Magnúsdóttir og Vigdís Hauks Mynd Sigtryggur Ari Í Fréttablaðinu í liðinni viku birt­ ist örlítil frétt, með fyrirsögninni Ójöfnuðurinn hættulegastur. Þar er bent á að meginviðfangsefni alþjóðlegrar efnahagsráðstefnu nú í vikunni eru skaðleg áhrif auk­ ins ójöfnuðar og bent á að hin ógn­ vekjandi gjá sem er á milli ríkra og fátækra í heiminum sé einn mesti áhættuþáttur efnahagslífs heimsins. Í aðdraganda efnahagshrunsins, ekki hvað síst á Íslandi, jókst mis­ skipting og ójöfnuður hröðum skrefum. Kaupgeta allra versnaði síðan gríðarlega við hrunið. Fyrri ríkisstjórn reyndi að tryggja afkomu þeirra tekjulægstu betur en þeirra sem meira höfðu og auka jöfnuð. Tekið var upp þrepaskattkerfi og sett var sérstök framfærslutrygging fyrir þá sem lifðu eingöngu á greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins. Skatt­ ar voru hækkaðir á hærri tekjur og þeir nýttir til að verja betur kjör þeirra lægst launuðu. Of mörg heimili undir lágtekjumörkum Strax eftir hrun var sett á stofn „velferðarvakt“ á vegum velferðar­ ráðuneytisins, með aðkomu fjöl­ margra aðila. Í lokaskýrslu í des­ ember síðastliðnum bendir vaktin á að eftir hrun hafi á langflestum sviðum tekist vel að sporna gegn alvarlegum afleiðingum krepp­ unnar. Börnum líði almennt vel á Íslandi og jafnvel betur en fyrir hrun. Engu að síður er brýnt að vekja athygli á að þó Ísland standi vel í alþjóðlegum samanburði þá sé með öllu óásættanlegt að sjá hve mörg heimili eru undir lág­ tekjumörkum en talið er að allt að tíunda hvert barn búi á heimili undir þessum mörkum. Það er því engin tilviljun að fyrsta tillaga velferðarvaktarinnar í lokaskýrslunni er að: „Stjórnvöld, ríki og sveitarfélög setji fram heild­ stæða tímasetta aðgerðaráætlum um hvernig vinna skuli bug á fá­ tækt á Íslandi“ og því er fylgt eftir með tillögu um að tryggja betur en nú er gert velferð og afkomu efna­ lítilla barnafjölskyldna, sérstak­ lega einstæðra foreldra og barna þeirra. Farsæld – reisn og virðing „Samstarfshópur um enn betra samfélag“, sem Velferðarsvið Reykja­ víkurborgar ýtti af stað með full­ trúum frá Rauða krossi Íslands, Hjálpar stofnun kirkjunnar, fulltrú­ um Háskóla Íslands og fleirum gaf út á síðastliðnu ári skýrsluna Farsæld þar sem bent er á nýjar leiðir í bar­ áttunni gegn fátækt. Skýrslan kemst að þeirri niður­ stöðu að þrátt fyrir að meginþorri landsmanna búi við góðar aðstæður, lífskjör og hagsæld, þá sé of stór hluti landsmanna í erfiðri stöðu og njóti ekki ásættanlegra lífsgæða. Skýrslan leggur áherslu á að ís­ lensk þjóð eigi að gera sáttmála um að bæta lífsgæði þess hóps sem býr við lökust kjörin. Leggja ber áherslu á að vinna gegn fátækt með já­ kvæðri nálgun, stuðningur samfé­ lagsins verði ekki í formi ölmusu heldur stuðli að mannlegri reisn og virðingu og efli hvern og einn til þátttöku í samfélaginu. Allir þurfa að leggjast á eitt til að bæta ástandið, einstaklingar, ríki, sveitarfélög, at­ vinnulífið og félagasamtök. ný ríkisstjórn verður að breyta um stefnu Þrátt fyrir fagrar yfirlýsingar og ræð­ ur er fátt í fjárlögum ríkisins fyrir árið 2014 og þeim áherslum sem ný ríkisstjórn hefur kynnt og verk­ um hennar hingað til, sem bendir til að úrbætur fyrir þá tekjulægstu, þá sem búa við fátækt, verði forgangs­ verkefni. Það er sameiginlegt verk­ efni okkar allra að sjá til þess að há­ tíðarræðurnar breytist í aðgerðir til að bæta kjör þeirra sem minnst hafa og að hindra að ójöfnuður aukist að nýju á Íslandi. Þar er lögfesting Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, vinna vel­ ferðarvaktarinnar og skýrslan um Farsæld góður grunnur til að byggja á samfélagssáttmála um að eyða fá­ tækt á Íslandi. n Hættulegar afleiðingar ójöfnuðar guðbjartur Hannesson þingmaður Samfylkingar Kjallari „Börnum líði almennt vel á Íslandi og jafnvel betur en fyrir hrun. Könnun gekk Björn Bragi of langt? 17,5% 14,9% 12,2% 11,5% 43,9% n Nei, þetta var mjög fyndið n Nei, þetta var allt í lagi n Alveg sama n Já, hann þarf að biðjast afsökunar n Já, þetta var mjög ósmekklegt Spurningin Hver er bestur í handbolta- landsliðinu? „Ég veit ekkert hvað þeir heita, ég veit bara að þeir vinna.“ Savie Sahadeo 42 ára sjoppudama „Aron Pálmarsson. Það skiptir engu máli hvort hann er meiddur eða ekki; hann er alltaf bestur.“ Lara Acosta 22 ára nemi „Aron.“ Ilmur Kristjánsdóttir 10 ára nemi „Aron.“ Karlotta Karlsdóttir 10 ára nemi „Aron Pálmarsson er bestur.“ Margrét Ólafsdóttir hótelþerna Ég ætlaði að segja upp Margrét Erla Maack um uppsögnina á RÚV. – DV Ég var illa upplögð og ósofin Jónína Benediktsdóttir fyrir dómi vegna ölvunaraksturs. – DV.is Þú rændir hann áhyggjuleysinu sem eiga að vera hans sjálfsögðu mannréttindi. Ársæll níelsson, íbúi við Álftamýri í opnu bréfi sem hann skrifaði til manns sem reyndi að nema son hans á brott. – DV.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.