Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Síða 25
Vikublað 21.–23. janúar 2014 Neytendur 25
E
inungis munar rúmum
9 krónum á lítraverði á
heimagerðu sódavatni og
Bónus sódavatni sem selt
er í 2 lítra flöskum, að því
gefnu að umbúðunum sé skilað
til endurvinnslu. Útreikningarnir
miðast við að notast sé við Wasser
maxx eða Sodastreamtæki.
Tvö merki eru mest áberandi á
markaðnum þegar kemur að því
að búa til sódavatn heimafyrir,
Wassermaxx annars vegar og Soda
stream hins vegar. Sodastream
var breytt fyrir um það bil 5 árum
en margir eiga eldri tæki og eru
þau enn þjónustuð. Jafnframt má
stundum finna þau á nytjamörk
uðum eins og Góða hirðinum og
kosta þau oft á milli 1.500 og 2.000
krónur.
DV gerði verðsamanburð á
bæði tækjum og áfyllingum og
kom í ljós að lítill munur er á verði
Sodastream og Wassermaxx
tækjanna. Ódýrasta sódavatnið er
búið til í eldri gerðum Sodastream,
að því gefnu að áfylling á hylkin sé
keypt hjá Vífilfelli.
Nokkrar mismunandi tegund
ir eru til af Sodastreamtækjun
um og kosta þau frá 8.995 krónum
til 29.995 króna í Elko en gashylkin
þarf að kaupa sérstaklega og kosta
þau 4.650 krónur. Tækjunum fylgja
eins lítra flöskur en hægt er að fá
minni flöskur líka. Tvær gerðir eru
seldar af Wassermaxx og kosta
þau 19.999 krónur og 24.990 krón
ur en tækjunum fylgja bæði 1 lítra
flöskur og gashylki.
Búa þarf til 119 lítra af sódavatni
áður en ódýrara Wassermaxxtæk
ið er farið að borga sig. Þannig þarf
að kaupa meira en 238 flöskur af
0,5 l. Egils sódavatni í Bónus áður
en það borgar sig að kaupa tæk
ið. Fyrir dýrara tækið eru þetta 145
lítrar af sódavatni eða 297 flöskur,
en verðið miðast við að umbúðirn
ar sé sendar í endurvinnslu.
Ef miðað er við Bónus sódavatn
þarf að búa til 1.436 lítra af sóda
vatni svo ódýrara Sodastreamtæk
ið borgi sig eða kaupa 718 2 lítra
flöskur. Þetta getur því tekið dágóð
an tíma að borga sig, en hjá þeim
sem drekka mikið sódavatn er þetta
fín leið til lengri tíma litið. n
Löður er með
á allan bílinn
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti
U
m 150 prósenta verðmunur
er á sama sælgæti, í sömu
verslun, eftir því hvað það
er kallað og hvernig um
búðirnar líta út. Þannig kosta 150
grömm af Möndlum frá sælgætis
gerðinni Freyju 349 krónur í einni
af verslunum Olís á meðan 150
gramma poki af sama sælgæti,
merktum Icelandic Lava Sparks,
kostar meira en tvöfalda þá upp
hæð eða 879 krónur. Það er rúm
lega 150 prósentum hærra, en
kílóverð á sælgætinu með erlend
um merkingum er 5.860 krónur.
Fyrirtækið Iceland Treasures
selur sælgætið með erlenda nafn
inu en það var stofnsett gagngert
til framleiðslu minjagripasælgætis
hérlendis. Auk fyrrnefndra vara
selur fyrirtækið Icelandic Puffin
Eggs, Icelandic Lava Pebbles og
Icelandic Northern Lights. Þá
var Icelandic Horse Doo Doo,
eða hrossatað, framleitt fyrir
heimsmeistaramót íslenska hests
ins í Þýskalandi í fyrra. Icelandic
Puffin Eggs eru hvítar kúlur með
súkkulaði og lakkrísfyllingu sem
framleiddar eru hjá Kólus. Kólus
selur þær ekki í neytendaum
búðum heldur selur í heildsölu á
nammibari og víðar.
Vörur Iceland Treasures eru
einnig seldar í Fríhöfninni í Flug
stöð Leifs Eiríkssonar þar sem al
gengt verð á 150 gramma poka er
699 krónur á meðan algengt verð
íslensks sælgætis í sömu pakkn
ingum er 233 krónur eða þriðj
ungur af því sem erlenda sælgætið
kostar. n
fifa@dv.is
Sælgæti tvöfaldast í verði
Þrefalt dýrara að kaupa Möndlur sem heita Icelandic Lava Sparks
Möndlur Icelandic Lava Sparks eru í raun
möndlur frá Freyju, markaðssettar fyrir
ferðamenn.
Heimagert sódavatn
lengi að borga sig
n Verðkönnun á sódavatnstækjum n Sparnaður til lengri tíma litið
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Hvað er í bíó?
Einfaldari leit að bíósýningum
með nýrri heimasíðu
„Hugmyndin var að það væri
ekkert drasl í kring, þetta væri
minimalískt og verkefnið var
einfalt, sjá hvað væri í bíó.“ Þetta
segir Hugi Hlynsson en heima
síða hans hvaderibio.is fór í loft
ið í lok desember. Þar má með
einföldum hætti komast að því
hvað er í bíó en notendur geta
aðlagað upplýsingar á síðunni
að eigin þörfum á örskotsstund,
valið kvikmyndahús, sýningar
tíma og eins er hægt að leita eft
ir einkunnum sem myndunum
hafa verið gefnar á kvikmynda
vefnum imdb.com.
„Gögnin
koma frá apis.
is,“ segir Hugi.
„Þetta eru
sömu gögn og
birtast und
ir bíóflipan
um á kvikmyndir.
is. en með nútímalegri hönnun
sem virkar til dæmis mjög vel á
símum.“
Síðan er afrakstur áfanga í
vefforritun í Háskóla Íslands
sem Ólafur Sverrir Kjartans
son hafði umsjón með nú á
haustönn. „Ég hef fengist aðeins
við vefforritun áður þannig að
ég ákvað að reyna að gera mitt
besta í áfanganum og tók þetta
verkefni aðeins lengra en gert
var ráð fyrir. En ég skilaði þessu
verkefni sem sagt og svo var ég
yfir jólin að dunda mér við að
fínpússa síðuna og klára hana og
ákvað svo að henda henni í loft
ið,“ segir Hugi sem segir umferð
um síðuna aukast stöðugt.
Á síðunni er
að finna upp
lýsingar um
sýningar í
Sambíóunum
Álfabakka,
Kringlunni,
Egilshöll, Akur
eyri og Keflavík,
Bíói Paradís, Smárabíói,
Laugarásbíói, Háskólabíói og
Borgarbíói.
Eftir að mynd hefur verið
valin er jafnframt hægt að sjá
hvar hún er í sýningum og
hvenær.
Tæki
n Wassermaxx, gashylki innifalið
(Byggt og búið): 19.999 kr.
n Wassermaxx stál, gashylki innifalið
(í Byggt og búið): 24.990 kr.
n Sodastream Jet + gashylki: 13.645 kr.
n Sodastream Source + gashylki: 24.645 kr.
Áfylling fyllingar
n Wassermaxx: 2.880 kr. 60l.
(Byggt og búið)
n Sodastream: 2.895 kr. 60l. (Elko)
n Sodastream (eldra): 1.100 kr. 20l.(10-11)
n Sodastream (eldra): 565 kr. 20l.
(Vífilfell)
Lítraverð
n Wassermaxx: 48 kr.
n Sodastream: 48,25 kr.
n Sodastream (eldra)10-11: 55 kr.
n Sodastream: Vífilfell: 28,25 kr.
n Bónus sódavatn 2 l (Bónus):
57,5 kr. (129/2 – 14 kr. skilagjald
af umbúðum)
n Egils sódavatn 0,5 l (Bónus):
216 kr (2x122 kr. – 2x14 kr. skila-
gjald af umbúðum)
Tekur tíma
Sparnaðurinn kemur
varla fram fyrr en
eftir nokkra mánuði.