Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Síða 26
Vikublað 21.–23. janúar 201426 Lífsstíll
Bókahillur
fyrir þá sem
elska bækur
Á meðan flest okkar geyma
bækurnar í Billy-bókahillum frá
IKEA hugsa aðrir út fyrir kassann.
Á vefsíðunni pinterest er hægt
að fá ótrúlegar hugmyndir fyrir
heimilið og hér eru nokkrar sem
tengjast bókum.
Tré Hríslurnar geyma bækurnar.
Tvær flugur í einu höggi Með svona
bókahillu er hæglega hægt að stunda
líkamsrækt við lesturinn
READ Hugmynd fyrir þá sem eru með
nóg pláss.
Flott Falleg bókahilla.
Plássið nýtt Ef bókaherbergið er undir
súð er þetta sniðug lausn.
Blóm Fallegar bókahillur sem mynda blóm.
„Mér hefur verið
líkt við páfagauk“
Ó
lafur Helgi Móberg flutti til
Ítalíu og hóf nám í ítölsku fyr-
ir átta árum. Þetta nám átti
eftir að nýtast honum vel því
ári síðar hóf hann nám í fata-
hönnun þar í landi. Hann útskrif-
aðist síðastliðinn október og tekur
þátt í stórri keppni sem haldin er á
vegum ELLE Magazine og er til mikils
að vinna. Hann er eini íslenski karl-
maðurinn sem keppir og getur al-
menningur kosið á netinu til 24. jan-
úar. Ólafur hefur hannað fyrir hina og
þessa eftir að hann flutti heim og má
nefna að hann hefur hannað nokkra
kjóla fyrir Sigrúnu Lilju, sem er kennd
við Gyðju Collection.
Litskrúðugur
„Mér hefur verið líkt við páfagauk,
litskrúðugur og hávær. Ég fíla pönk í
bland við glæsifatnað. Skapandi kjóla
eins og sést á rauða teppinu, kvik-
myndir, tónlistarmyndbönd og leik-
hús og svo eru brúðarkjólar í miklu
uppáhaldi hjá mér og er mér líkt við
Disney-prinsessu og póníhesta,“ seg-
ir Ólafur þegar hann er spurður um
stíl hans.
Hvað varstu lengi á Ítalíu og hvern-
ig komstu í tæri við þennan skóla?
„Ég flutti fyrst út árið 2006 og byrj-
aði í málaskóla. Ég kunni ekkert í
ítölsku nema „ég heiti Ólafur Helgi“
og auðvitað „ciao“, sem þýðir hæ. Ég
kynntist skólanum þegar ég var í fjöl-
braut í Breiðholti og NABA (Nuova
Accademia di Belle Arti Milano)
komu í heimsókn í FB til að kynna
skólann. Þetta var útskriftarárið mitt
í FB svo ég var að leita að áfram-
haldandi námi.“
Hvernig er tískan í ár að þínu mati?
„Ég upplifi tískuna í dag svolítið
pönkaða bæði hjá körlum og konum.
Í dömutískunni gætir áhrifa úr kvik-
myndum og frá miðöldum. Þar sem
jakkar og pils skapa línurnar. Mittis-
hnepptir jakkar og víð pils sem eru í
anda húsmæðra frá 1950 má sjá í tísk-
unni í dag. Loðfeldurinn kemur líka
sterkur inn og er ég þá að tala um
gerviloðfeld, ekki alvöru mink, svo-
lítið villt hár, þar sem hann er tekin
og hannaður á dramatískan hátt eins
og jakkar með ermum úr öðru efni og
jafnvel bara vesti.“
Hvert sækir þú innblástur?
„Í tónlist, kvikmyndir, sögur og
ævintýri. Mér finnst mjög gaman að
sjá hvað mikið er um ævintýri í kvik-
myndaheiminum síðustu ár því mér
finnst mjög gaman að hanna ævin-
týralegan fatnað.“
Hvernig er þessi keppni?
„ELLE Style Awards er árleg verð-
launahátíð sem er haldin af tísku-
tímaritinu ELLE. Í ár kynna þau nýjan
flokk, New Nordic Talent 2014, og leita
þau að næstu hönnarstjörnu Norður-
landanna í samstarfi við MUUSE. Nú
standa yfir undanúrslit á netinu þar
sem yfir hundrað hönnuðir sóttu um
að fá að vera með en aðeins 25 kom-
ast áfram í úrslit til dómnefndar sem
samanstendur af skandinavískum
tískuritstjórum ELLE. Tilnefnir dóm-
nefndin svo þrjá hönnuði sem eru
líklegir til að vinna, en tilkynnt verð-
ur um það þann 2. febrúar. Svo í vor
á ELLE Style Awards-viðburðinum
verður kynntur sigurvegari. Sigur-
vegarinn fæ opnu í tímaritinu ELLE
í Danmörku og samning hjá MUUSE
um að gefa út línu í samstarfi við þá.“
Hvetur fólk til þess að kjósa
Ólafur hvetur alla til þess að fara inn
á vefsíðu keppninnar og kjósa. Net-
kosning fer fram á síðunni muuse.
com/ellestyleawards og allir gefið
hverjum hönnuði eitt atkvæði.
„Við erum sex frá Íslandi sem
keppum í undanúrslitum og er ég
eini strákurinn. Hægt er að leita að
hönnuði eftir nafni, landi eða skóla.
Það var opnað fyrir kosningu 2. janúar
og verður hægt að kjósa til 24. janúar.
Þetta er rosalega gott og stórt tækifæri
fyrir nýja hönnuði þar sem MUUSE
tekur að sér allan framleiðslukostnað
og að fá tækifæri til að selja vörur sín-
ar út í heim. Ég vil hvetja alla til þess
að kjósa því til mikils er að vinna fyrir
okkur hönnuðina.“
Hvað er á döfinni?
„Það eru hlutir í vinnslu sem ég
get ekki talað um eins og er. En ég
er nú samt að leita mér að atvinnu-
tækifærum og er ég opinn fyrir svo
mörgu. Draumurinn væri að verða
búningahönnuður, listrænn stjórn-
andi fyrir tískufyrirtæki, tískutímarit,
tónlistarmyndbönd og leiksýningar
eða annars konar viðburði. Gaman
væri líka að geta verið með mitt eig-
ið merki og myndi ég þá vilja hanna
brúðkaupsfatnað og gefa brúðkaups-
ráðgjöf.“
Hægt er að kjósa Ólaf Helga með því
að fara inn á elle.muuse.com/#!vote/
96-olafur-helgi-olafsson n
iris@dv.is
Glamúr Ólafur
heillast af glæsi-
legum kjólum.
Ævintýri Hér gætir
áhrifa frá Rauðhettu
og úlfinum.
Litríkt Ólafur Helgi
stefnir langt með
hönnun sína.
Dramatískt Hér
eru litir og dramatískt
form í forgrunni.
n Tekur þátt í keppni á vegum Elle n Ævintýrin heilla
Starina „Þessi mynd er af mér sjálfum sem
Starina, samanber línu mína sem ber heitið,
Starina Couture by Ólafur Helgi. Ég ákvað á
síðustu stundu að vera módel hjá sjálfum mér
þar sem þessir kjólar eru ævintýrakjólar æsku
minnar og eitthvað sem mig dreymdi um að
klæðast og það var dragið sem ýtti mér út í
tískuhönnun,“ segir Ólafur Helgi.
„Mér finnst mjög
gaman að hanna
ævintýralegan fatnað.
S
ophia Webster, Jackie JS
Lee og Nasir Mazhar eru
þeir hönnuðir sem hlutu
Fashion Forward-verðlaunin
í ár. Verðlaunin eru veitt af Breska
tískuráðinu og felast í fjárstyrk og
stuðningi til að setja upp tískusýn-
ingu á tískuvikunni í London en
þau eru gjarnan veitt hönnuðum
sem hafa þegar skapað sér nafn í
tískuheiminum í London og þykja
líklegir til frekari afreka. Webster,
Lee og Mazhar fá því aðstoð við
að kynna haust- og vetrarlínurn-
ar sínar fyrir árið 2014 sem og vor-
og sumarlínurnar fyrir 2015 og að
auki fjármagn til að setja upp tísku-
sýningar.
Sophia Webster er breskur
hönnuður sem hefur vakið athygli
fyrir litríkan og öðruvísi skófatnað
og handtöskur. Hin suðurkóreska
Jackie JS Lee er hins vegar þekkt
fyrir bein snið og litlausan fatnað
sem þykir bæði klassískur og ein-
faldur á meðan Nasir Mazhar hef-
ur einbeitt sér að höttum, töskum
og öðrum fylgihlutum. Þessir þrír
hönnuðir eru því afar ólíkir og það
verður spennandi að fylgjast með
því sem þeir gera á næstu tískuviku.
Fashion Forward-verðlaunin
voru fyrst veitt árið 2009 og hafa
verið fjölmörgum upprennandi
hönnuðum stuðningur við að
koma hönnun sinni á framfæri en
dæmi um verðlaunahafa eru Mary
Katrantzou, Henry Holland og
David Koma. n
horn@dv.is
Fashion Forward-verðlaunin afhent
Þrír hönnuðir fá fjárstyrk fyrir tískuvikuna í London
Sophia Webster
Webster hefur vakið
athygli fyrir litríkan
og skemmtilegan
skófatnað.