Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2014, Qupperneq 38
Vikublað 21.–23. janúar 201438 Fólk
Hitti „hinn“ úr Wham
Ívar Guðmundsson skíðar með stjörnum á Ítalíu
H
ann er hérna með okkur á
hótelinu og er hinn hress-
asti,“ segir útvarps- og
vaxtarræktarmaðurinn Ívar
Guðmundsson sem hitti söngv-
arann og gítarleikarann Andrew
Ridgeley í móttökunni á Hotel
Aaritz í Selva á Ítalíu en Ridgeley er
þekktastur fyrir að vera „hinn“ úr
hljómsveitinni Wham.
Ívar, sem segist alltaf hafa verið
meira fyrir Wham en erkióvin-
ina í Duran Duran, segir tónlistar-
manninn hafa verið hinn þægileg-
asta í umgengni og fékk meira að
segja mynd af sér með stjörnunni.
Hann viðurkennir að hafa ekki
þekkt Ridgeley strax enda gjör-
breyttur frá því sveitin var upp á
sitt besta. „En þeir sem eru hér
með mér þekktu hann því hann var
hérna líka í fyrra,“ segir Ívar sem er
í skíðaferð á Ítalíu eins og Ridgeley.
Ívar birti myndina af þeim fé-
lögum á Facebook þar sem vin-
ir hans og aðdáendur Wham fara
mikinn. Hermann Guðmundsson,
bróðir Ívars og fyrrverandi forstjóri
N1, vildi fyrst og fremst vita hvort
tónlistarmaðurinn vissi hver Ívar
væri og hvort að hann hefði fengið
Hámark. Aðrir töldu nokkuð ljóst
að útvarpsmaðurinn Siggi Hlö ætti
eftir að verða grænn af öfund og
höfðu mikið um breytt útlit Ridgel-
ey að segja.
Andrew Ridgeley fæddist 26.
janúar 1963 og var ásamt George
Michael í dúettinum Wham. Í dag
býr Ridgeley í Bretlandi ásamt
kærustu sinni, Keren Woodward.
Hann og George Michael stefndu á
að koma aftur saman fyrir tónleik-
ana Live 8 árið 2006 en Ridgeley
hætti við á síðustu stundu. n
Fimmtíu spurningar
fyrir hverja keppni
Ekkert kemur Steinþóri Helga á óvart í Gettu betur
Manuela til
Frakklands
Manuela Ósk Harðardóttir er
á leiðinni til Frakklands í vik-
unni en þar kemur hún til með
að vera í sex vikur. Manuela fer
á vegum Listaháskóla Íslands
en þar stundar hún nám í fata-
hönnun. Manuela er á leiðinni
í starfsnám og mun vinna hjá
franska fatahönnuðinum Soniu
Rykiel. Í samtali við Lífið á Vísi
segir hún að börnin hennar tvö
verði eftir heima og aðskilnaður-
inn komi til með að verða erfiður
en börnin muni heimsækja hana
til Frakklands meðan á starfs-
náminu stendur.
Í tökum í London
Leikarinn Björn Hlynur Haralds-
son er nú staddur í London þar
sem tökur fara fram á sjónvarps-
þættinum Fortitude. Tökur hófust
á mánudag en þættirnir eru í
anda Twin Peaks og fjalla um
smábæinn Fortitude sem talinn
er einn öruggasti bær í heimi.
Það breytist fljótt þegar vísinda-
maður í bænum er handtekinn.
Björn Hlynur fer með burðarhlut-
verk í þáttunum. Tökur fara að
mestu fram í London en einnig
á Reyðarfirði. Björn Hlynur fékk
hlutverkið í gegnum breskan um-
boðsmann sinn.
Flottir Ívar Guðmunds var meira fyrir
Wham en Duran Duran.
Wham Allir þekkja George Michael en færri
muna eftir Andrew Ridgeley.
Hanna Birna
í göngutúr
Hanna Birna Kristjánsdóttir inn-
anríkisráðherra er í hópi þeirra
fjölmörgu sem strengdu ára-
mótaheit fyrir skemmstu, en
þessi kjarnakona greinir frá því á
Facebook-síðu sinni að eitt þeirra
heita hafi verið að fara oftar út
með hundinn.
„Eitt af áramótaheitunum var
að segja oftar JÁ þegar maðurinn
minn leggur til góðan göngutúr
með hundinn. Var að ljúka við
aðra slíka göngu á nýja árinu – og
þrátt fyrir að eiginmaðurinn segi
að ég þurfi nú varla mikið fleiri til
að ná „árangri“ síðasta árs – veit
ég að betur má ef duga skal.“
S
purningahöfundarnir Stein-
þór Helgi Arnsteinsson og
Margrét Erla Maack þurfa að
semja um 1.500 spurningar
fyrir spurningakeppni fram-
haldsskólanna Gettu betur. Það vefst
þó ekki fyrir þeim og segir Steinþór
stærstan hluta spurninganna vera
tilbúinn. Nú styttist í að spurninga-
keppnin færist á sjónvarpsskjáinn
en fyrstu umferðirnar eiga sér stað í
beinni útvarpsútsendingu.
Sigurvegari og þjálfari
„Maður er búinn að vera í kringum
þetta í fimmtán ár, eitthvað svoleiðis.
Það er ekki margt sem kemur á
óvart,“ segir Steinþór Helgi aðspurð-
ur hvernig gangi í Gettu betur. Hann
vann sjálfur keppnina þegar hann var
í liði Borgarholtsskólans árið 2005 en
Steinþór Helgi hefur líka unnið sem
þjálfari. Það gerði hann með liði
Kvennaskólans í Reykjavík árið 2011
sem hann þjálfaði ásamt öðrum.
Steinþór Helgi segist þó ekki gera
upp á milli skóla þrátt fyrir að hann
hafi tengsl við tvo þeirra. „Ég reyni
nú að gæta jafnræðis þannig að ég sé
ekki að hygla neinum,“ segir hann.
Bæði Borgarholtsskóli og Kvenna-
skólinn eru enn meðal keppenda í
Gettu betur eftir sínar fyrstu viður-
eignir.
Samið í hverri viku
„Við erum að semja í hverri viku
en meirihlutinn er tilbúinn fyrir-
fram,“ segir Steinþór en hann segir
að spurninganna sé vel gætt. Flestar
spurningarnar, eða 750 talsins,
komu í fyrstu umferð sem kláraðist
um síðustu helgi. Fimmtán viður-
eignir áttu sér stað en þrjátíu skólar
mættu til leiks í ár.
„Þetta er vandasamt verkefni en
það er ekki bara magnið. Við þurf-
um að leggja okkur fram, keppend-
ur eru kröfuharðir og allir í kringum
þetta. Maður þarf að þóknast mörg-
um,“ segir Steinþór Helgi aðspurð-
ur hvort verkefnið sé erfitt. „ Fyrir
hverja keppni erum við að semja
fimmtíu spurningar þannig að þetta
er hátt í fimmtán hundruð spurn-
ingar.“
Sextán skólar eru komnir áfram
í aðra umferð keppninnar sem fram
fer um næstu helgi á Rás 2 en átta
lið komast svo áfram í fjórðungs-
úrslit sem verða í beinni útsendingu
í sjónvarpinu frá 31. janúar til 14.
mars. n
Þjálfaði Steinþór Helgi þjálfaði lið
Kvennaskólans í Reykjavík þegar skólinn
vann Gettu betur árið 2011.
Sigurvegarar
síðustu ára
Ár Skóli
2000 Menntaskólinn í Reykjavík
2001 Menntaskólinn í Reykjavík
2002 Menntaskólinn í Reykjavík
2003 Menntaskólinn í Reykjavík
2004 Verzlunarskóli Íslands
2005 Borgarholtsskóli
2006 Menntaskólinn á Akureyri
2007 Menntaskólinn í Reykjavík
2008 Menntaskólinn í Reykjavík
2009 Menntaskólinn í Reykjavík
2010 Menntaskólinn í Reykjavík
2011 Kvennaskólinn í Reykjavík
2012 Menntaskólinn í Reykjavík
Annar af tveimur Steinþór Helgi
er spurningahöfundur og dómari
ásamt Margréti Erlu Maack.
Spurningaflóð Margrét og Steinþór sömdu um 1.500 spurningar.