Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2014, Side 21
Umræða 21Vikublað 17.–19. júní 2014
E
f gjaldeyrishöft yrðu los-
uð hér á landi snögglega er
sennilegt að miklir fjármun-
ir flyttust úr landi á stuttum
tíma. Fyrstu afleiðingar þess
kæmu fram í lítilli spurn eftir krón-
um, verðfalli krónunnar og hækk-
un á innfluttum vörum. Í kjölfar-
ið fylgdi verðbólga, verðtryggð lán
myndu hækka og kjör almennings
versna. Skellinn tækju að mestu
þeir sömu og tóku skell vegna efna-
hagshrunsins.
Slík skyndilosun gjaldeyris-
haftanna yrði því nýtt áfall ofan á
áfallið af hruninu og gæti gert að
engu þær varnarráðstafanir sem
gripið var til vegna þess. Senni-
lega yrði það áfall ofviða mörgum
heimilum sem illa standa. Að vísu
er líklegt að ástandið lagist smám
saman á nokkrum árum en fórn-
arkostnaðurinn yrði mikill. Ef los-
un gjaldeyrishafta er á hinn bóginn
of hæg bitnar það einnig á kjörum
almennings, einkum vegna brott-
hvarfs fyrirtækja sem myndu frekar
kjósa að vaxa erlendis.
Þegar kostir og gallar aðferða við
losun gjaldeyrishafta eru skoðað-
ir við núverandi aðstæður þarf að
taka mið af samspili vaxta, verð-
bólgu og gengis og áhrifa þessara
þátta á kjör fólksins í landinu. Þetta
samspil sýna sviðsmyndir sem
KPMG hefur sett fram á mynd-
rænan hátt nýverið og finna má á
heimasíðu fyrirtækisins.
Kostnaður vegna krónunnar
Það er kostnaðarsamt fyrir þjóð-
ina að halda uppi minnsta gjald-
miðli í heimi. Enn hef ég ekki heyrt
nein haldbær rök fyrir að halda því
áfram. Einu rökin sem heyrst hafa
eru þau að með krónunni sé hægt
að rýra kjör launafólks án þess að
semja við það sérstaklega. Það get-
ur ekki talist vera kostur fyrir al-
menning en ágætt fyrir sum fyrir-
tæki og stjórnmálamenn sem falið
geta mistök sín með slíkum aðgerð-
um. Erfitt er að sjá fyrir sér heil-
brigða þróun fjölbreytts atvinnu-
lífs með alþjóðlegum tengingum,
sem er eftirsótt fyrir kraftmikil ung-
menni, í því umhverfi sem krónan
skapar. Ómögulegt er að sjá slíka
framtíðarsýn fyrir unga Íslendinga
rætast með krónuna í höftum. Litl-
ar líkur eru á öðru en að krónan
verði til frambúðar í einhvers konar
höftum og því ástandi fylgja slæm-
ar aukaverkanir.
Hvert fara krakkarnir?
Þjóð sem sér fram á staðnað at-
vinnulíf og sem getur ekki skapað
fjölbreytt og krefjandi verkefni fyr-
ir unga fólkið er í miklum vanda.
Með krónuna sem gjaldmiðil og
í höftum er líklegt að það fari eins
fyrir unga fólkinu og fyrirtækj-
unum. Þau munu kjósa að vaxa í
öðrum löndum. Það er framtíðar-
sýn sem ekki má una við. Til þess
að breyta þessari mynd sótti ríkis-
stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur um
aðild að Evrópusambandinu fyrir
Íslands hönd, eftir ályktun Alþing-
is. Sú umsókn stendur enn. Ef þar
nást ásættanlegir samningar sem
þjóðin samþykkir, og með þátttöku
í ERM II fastgengissamstarfi og síð-
an upptöku evru, mun myndin
breytast. Þar eru möguleikar sem
nýst gætu til kjarabóta fyrir fólkið í
landinu.
Samspil vaxta, verðbólgu og
gengis yrði með öðrum hætti með
evru en krónu. Vaxtarskilyrði fyr-
irtækja, ekki síst í nýjum atvinnu-
greinum, og framtíðarmöguleikar
ungmenna hér á landi færu batn-
andi. Líkur ykjust á því að þau vilji
vera og vaxa hér á Íslandi.
Gagnlegt væri að fá greiningu
þessarar sviðsmyndar og stilla
henni upp með myndrænum hætti
við hlið sviðsmynda KPMG um los-
un gjaldeyrishafta.
Til þess að halda þessum
möguleika opnum þurfum við
að klára aðildarviðræðurnar við
Evrópusambandið og bera niður-
stöðuna undir þjóðina. Annað er
óásættanlegt. n
Krónan og krakkarnir
„Með krónuna sem
gjaldmiðil og í
höftum er líklegt að það
fari eins fyrir unga fólkinu
og fyrirtækjunum. Þau
munu kjósa að vaxa í öðr-
um löndum.
Hann heitir
Markús Árelíus
Björgvin Halldórsson kattavinur á þrjár kisur. - DV
Bestur þeirra
er Davíð
Magnús Ingi Magnússon skreytir veggi Texasborgara með átrúnaðargoðum sínum. - DV
Það er
óþolandi
Vigdís Hauksdóttir kvartar undan umfjöllun DV. - DV
Myndin Stuð og stemning Leikskólinn Sólborg er 20 ára og af því tilefni var haldin sumarhátíð. Leikhópurinn Lotta var fenginn til að skemmta börnum og fullorðnum og er óhætt að segja að glatt hafi verið á hjalla. Mynd SIgtryggur ArI
Oddný g. Harðardóttir
alþingismaður
Kjallari
Könnun
Hefur þú misst stjórn
á skapi þínu í golfi?
37,5%
62,5%
n Já
n Nei
n Ég spila ekki golf 241 AtKVÆÐI
28,2%
1 Glata einokunarstöðu eftir milljarðs arðgreiðslu
Fyrirtækið Já hf., sem á síðustu árum
hefur greitt meira en milljarð króna í arð
til hluthafa sinna, mun á næsta ári missa
þá einokunarstöðu í meðferð símaupplýs-
inga sem fyrirtækið hefur haft síðustu ár.
14.765 hafa lesið
2 Schumacher vaknaðurÞýski ökuþórinn Michael
Schumacher er vaknaður úr dái sem
hann hefur verið í frá því að hann lenti í
alvarlegu skíðaslysi
í frönsku Ölpunum í
desember. Hann er nú
farinn af spítalanum í
Grenoble í Frakklandi
og hefur verið fluttur
á endurhæfingarstöð,
þar sem hann mun
hefja „langa vegferð sína til bata“, að því
er fram kemur í tilkynningu frá umboðs-
manni hans, Sabine Kehm.
13.065 hafa lesið
3 Útburðarmál höfðað gegn Ágústi Þór Fyrirtaka í
aðfararmáli Íbúðalánasjóðs gegn Ágústi
Þór Árnasyni, aðjúnkt og deildarformanni
lagadeildar Háskólans á Akureyri, hófst á
föstudag í Héraðsdómi
Norðurlands eystra. Í
daglegu tali er um að
ræða útburðarmál.
Í samtali við DV segir
Ágúst Þór að umrædd
eign sé heimili hans
í miðbæ Akureyrar.
„Það er ekkert komið í ljós hvort þetta
verði útburðarmál, ég á eftir að taka til
varna. Þessu er ekki enn lokið, en þetta er
nógu óþægilegt fyrir svo ég vil ekki ræða
þetta meira,“ segir hann.
10.015 hafa lesið
4 Safnari lést eftir að gólfið gaf sig: „Hún henti aldrei
neinu“ Beverly Mitchell, 66 ára gömul
bandarísk kona, fannst látin á heimili sínu
í Cheshire í Connecticut í Bandaríkjunum
á laugardag eftir að gólfið hrundi á fystu
hæð hússins undan þunga rusls sem hún
hafði sankað að sér í gegnum árin.
8.523 hafa lesið
5 Lést eftir fall fram af fossi í gljúfrinu Pino
Becerra Bolaños, konan sem fannst látin
í Bleiksárgljúfri í síðustu viku, lést eftir að
hafa fallið þrjátíu metra fram af fossi í
gljúfrinu, að sögn Sveins K. Rúnarssonar,
yfirlögregluþjóns á Hvolsvelli. Krufning
leiddi í ljós að konan lést ekki af völdum
drukknunar eins og talið var í fyrstu, held-
ur af áverkum sem hún hlaut við fallið.
8.165 hafa lesið
Mest lesið
á DV.is