Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2014, Qupperneq 17
Vikublað 10.–11. september Fréttir Erlent 17
n Þakkar fyrir að vera á lífi n Ný tækifæri eftir óhappið
Þ
egar 22 ára Ástrali, Ben
McMahon, vaknaði eftir að
hafa verið meðvitundarlaus
í viku komst hann að því að
hann gat talað kínversku
reiprennandi. Þegar McMahon vakn-
aði á sjúkrahúsinu fannst honum
hjúkrunarfræðingurinn sem stóð yfir
honum vera asískur í útliti og sagði í
kjölfarið: „Afsakaðu, en ég er virkilega
aumur,“ á kínversku.
Hann bað hjúkrunarfræðinginn
því næst að rétta sér blað og penna
og skrifaði mandarínsku: „Ég elska
mömmu mína, ég elska pabba minn,
ég mun ná mér.“ Læknar og fjölskylda
hans klóruðu sér í höfðinu yfir þessari
uppgötvun. Þrátt fyrir að hafa numið
kínversku í skóla hafði hann aldrei
náð almennilegum tökum á málinu.
Ekki meðvituð ákvörðun
„Það var ekki meðvituð ákvörðun
hjá mér að tala kínversku, mér þótti
það hins vegar eðlilegast þegar ég
þurfti að tjá mig,“ sagði Mahon um
þetta mál í samtali við breska dag-
blaðið The Mirror.
Það tók Ben tvo til þrjá daga eftir
að hann vaknaði úr dái að rifja upp
enskuna. Það má segja að þetta hafi
verið lán í óláni því fjölmörg tæki-
færi hafa fylgt þessari nýfengnu
tungumálakunnáttu. Hann hefur til
að mynda gerst leiðsögumaður fyrir
kínverska ferðamenn í heimabæ
sínum og var kynnir í kínverskum
sjónvarpsþætti.
Núna hefur hann flutt frá heima-
borg sinni Melbourne til Sjanghaí
í Kína þar sem hann hóf háskóla-
nám í viðskiptafræði. Hann segist
lánsamur að vera á lífi í dag og tala
kínversku.
Króatísk stúlka talaði þýsku
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem
þetta gerist. Árið 2010 var greint frá
króatískri stúlku sem talaði þýsku
þegar hún vaknaði úr dái. Eitthvað
sem hún gat ekki áður en hún féll í
dá. Mál hennar er ekki ósvipað máli
McMahons að því leytinu til að hún
hafði skömmu áður hafið þýskunám
í skólanum sínum en var ekki farin að
tala málið.
Kani talaði sænsku
Þá var frægt í fyrra þegar Bandaríkja-
maðurinn Michael Boatwright fannst
meðvitundarlaus á vegahóteli í Kali-
forníu. Þegar hann vaknaði úr dái var
hann minnislaus en gat talað sænsku.
Læknar brugðu á það ráð að fá sænsk-
an túlk á svæðið sem gat komið á
samskiptum við Michael Boatwright.
Boatwright sagðist heita Johan Elk en
það var í algjörri mótsögn við öku-
skírteini hans og greiðslukort sem
voru stíluð á Boatwright. Eftir að
gömul kærasta bar kennsl á hann í
sjónvarpinu fluttist hann til Evrópu
til að reyna að grafast meira fyrir um
fortíð sína.
Vaknaði með skoskan hreim
Fyrr á þessu ári voru fluttar fréttir af
hinni kanadísku Sharon Campell-
Rayment sem missti meðvitund eftir
að hún hlaut þungt höfuðhögg eftir
að hafa fallið af hestbaki. Þegar hún
vaknaði úr dái talaði hún ekki leng-
ur með kanadískum hreim, heldur
skoskum. Þetta gerðist þrátt fyrir að
þessi fimmtuga kona hefði aldrei
komið til Skotlands.
Það eru um sextíu þekkt dæmi af
fólki sem þjáist af hreimheilkenninu
svokallaða.
Fyrsta þekkta dæmið af hreim-
heilkenninu á rætur sínar að rekja
til síðari heimsstyrjaldarinnar þegar
norsk kona fékk sprengjubrot í höf-
uðið í loftárás með þeim afleiðingum
að hún hlaut heilaskaða. Í kjölfarið
mælti hún með hnausþykkum þýsk-
um hreimi sem varð til þess að henni
var úthýst úr samfélaginu árið 1941
enda Þjóðverjar ekki vinsælir á þeim
tíma. Eitt þekktasta dæmið er eflaust
Sarah Colwill frá Plymouth í Banda-
ríkjunum sem vaknaði upp einn
morguninn eftir alvarlegt mígrenikast
og talaði með kínverskum hreim. n
Vaknaði úr dái og
talaði kínVersku
Kani talaði sænsku Michael Boatwright er Bandaríkjamaður sem var minnislaus eftir að
hann vaknaði úr dái í fyrra. Hann þekkti ekki sjálfan sig í spegli og talaði sænsku. Í kjölfarið
fluttist hann til Svíþjóðar en fannst látinn á heimili sínu þar í landi fyrr á árinu.
Kanadísk með skoskan hreim Sharon
Campell-Rayment vaknaði úr dái og talaði
með skoskum hreim. Hún er frá Kanada og
hefur aldrei til Skotlands komið.
Birgir Olgeirsson
birgir@dv.is
Tala tungum þegar þau vakna
Þeir sjúklingar sem fjallað er um í greininni
eiga það allir sammerkt að mál þeirra
breyttist eftir höfuðhögg. Mynd ShuTTErSTOcK
Splundraðist
í loftinu
Vél malasíska flugfélagsins
Malaysia Airlines sem hrapaði
við landamæri Rússlands og
Úkraínu í sumar splundraðist
þegar fjölmörg málmkennd
brot hæfðu hana af gríðarlega
miklum krafti.
Þetta kemur fram í skýrslu
hollenskrar rannsóknarnefnd-
ar sem birt var á þriðjudag.
Þykja niðurstöðurnar renna
stoðum undir þá kenningu að
loftvarnareldflaugar hafi grand-
að vélinni. 298 manns voru um
borð og fórust allir. Ekki er fjall-
að neitt um hugsanlega ger-
endur í skýrslu nefndarinnar
en bæði úkraínsk og bandarísk
stjórnvöld hafa sakað rússneska
aðskilnaðarsinna í Úkraínu um
að hafa skotið vélina niður.
Hákarl varð
manni að bana
Fimmtugur Breti lést eftir að
hann varð fyrir árás hákarls und-
an ströndum Ástralíu á þriðju-
dag. Atvikið átti sér stað á Byron
Bay, vinsælli baðströnd í Nýju
Suður-Wales. Maðurinn sem
lést hét Paul Wilcox en að sögn
BBC var hann bitinn í fótlegginn
með fyrrgreindum afleiðingum.
Vitnum tókst að bjarga honum
úr sjónum en þegar sjúkraflutn-
ingamenn komu á staðinn var
hann látinn. Ákveðið var að
loka ströndum í nágrenninu í 24
klukkustundir vegna atviksins.
Schumacher
kominn heim
Þýski ökuþórinn Michael
Schumacher, sem slasaðist alvar-
lega í skíðaslysi þann 29. des-
ember síðastliðinn, er kominn
heim til sín til að halda endur-
hæfingu sinni áfram. Þetta kom
fram í yfirlýsingu frá talsmanni
fjölskyldunnar á þriðjudag.
Schumacher dvaldi á sjúkra-
húsi í Grenoble í Frakklandi
þar til í júní í sumar er hann var
færður til Lausanne í Sviss til að
vera nær heimili sínu og fjöl-
skyldu sinnar. Í yfirlýsingunni
er ekki farið nánar út í heilsufar
Schumachers að öðru leyti en því
að endurhæfingin muni nú fara
fram á heimili hans.