Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.06.1974, Page 13
11
5. Efnai6na6ur.
Her er aðallega um að ræða framleiðslu á hreinlætisvörum,
málningu, plastvörum, áburði og kxsilgúr. Á árinu 1972 störfuðu
872 menn við þennan flokk iðnaðar eða um 8,2% heildarmannafla
í vörugreinum iðnaðar. Virðisaukinn nam 619,7 m.kr. á árinu
1972 eða 9,9% af virðisauka í vörugreinum iðnaðar alls. Efna-
iönaði er skipt í heimamarkaðsiðnað og útflutningsiðnað, og er
meö útflutningsiðnaði átt við framleiðslu kísilgúrs og málningar.
Ötflutningur kísilgúrs nam 194,1 m.kr. og málningar 50,6 m.kr.
eða samtals 244,7 m.kr. á árinu 1972, sem var 21,0% af heildar-
útflutningi iðnaðarvara annarra en áls. Afkoma efnaiðnaðar var
góð á árinu 1972. Vergur hagnaður fyrir skatta sem hlutfall af
vergum tekjum var 12,2% samanborið við 4,7% í vörugreinum iðnaðar
alls. Þá var afkoma ÖM heldur betri en afkoma HM. Vergur
hagnaður fyrir skatta sem hlutfall af vergum tekjum var 14,9%
í ÖM samanborið við 11,6% í HM.
6. Steinefnaiðnaður■
Her er aðallega um að ræða sementsgerð, steinsteynu,
grjót- og sandnám, leirsmíði og gleriðnað. Fjöldi starfsmanna
var 797 á árinu 1972 eða 7,5% af heildarmannafla í vörugreinum
iðnaðar. Virðisaukinn nam 579,8 m.kr. á árinu 1972 eða 9,2%
alls virðisaukans í vörugreinum iðnaðar. Steinefnaiðnaöur
framleiðir nær eingöngu fyrir heimamarkað, en vísir að útflutningi
er í einni grein hans, b.e. í leirsmíði. Ötflutningur leirmuna
nam 4,1 m.kr. á árinu 1972, og er reksturinn að baki þessa
útflutnings hér flokkaður sem útflutningsiðnaður. Afkoma stein-
efnaiðnaðar var nokkru betri á árinu 1972 en meðalafkoma í
vörugreinum iðnaðar. Vergur hagnaður fyrir skatt sem hlutfall
af vergum tekjum var 7,3% samanborið við 4,7% í vörugreinum
iðnaðar alls. Afkoma HM var miklu betri en afkoma ÖM. Vergur
hagnaður fyrir skatt sem hlutfall af vergum tekium var 7,5% í
HM, samanborið við -0,3% í ÖM.
7. Álframleiðsla.
Fjöldi starfsmanna álverksmiðjunnar var 491 á árinu 1972
eða 4,6% af heildarmannafla £ vörugreinum iðnaðar. Virðisaukinn
nam 490,6 m.kr. á árinu 1972 eða 7,8% af virðisauka í vörugreinum