Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.06.1974, Page 26
24
Helztu niðurstöóur um framlei&ni virmu í iftnaði 1966 til 1972.
Við mat á þeim niðurstöðum um meðalframleiðni vinnu, sem
hér verða raktar, er rett að hafa í huga þá skilereiningu á
framleiðni, sem að framan er lýst, oe þá sérstakleea, að skv.
þessari skilgreiningu innifelur breyting á framleiðni vinnu
samanlögð áhrif breytinga á afköstum vinnuafls og fjármagns
og áhrif breytinga á hlutfalli fjármagns og vinnuafls. Þannie
getur framleiðni vinnu, skilgreind með þessum hætti, í reynd
aukizt eða minnkað, þó raunveruleg, sérgreind afköst vinnu-
aflsins séu óbreytt, allt eftir því, hvernig afköst fjár-
magnsins breytast og/eða hlutfall fjármagns á vinnueiningu
breytist.
Æ tímabilinu 1966 til 1972 er heildaraukriing framleiðni
vinnu x þeim iðngreinum, sem MIF nær til, 36,4% (álframleiðsla
undanskilin, sjá töflu 7.1.), sem samsvarar 5,3% árlegri meðal-
aukningu. Heildaraukning framleiðni vinnu í þessum sömu iðn-
greinum m.v. framleiðslubreytingar skv. endurmetinni MIF
(sjá töflu 7.3.) er 32,8% yfir tímabilið, sem samsvarar 4,8%
árlegri meðalaukningu.
Niðurstöður um framleiðni vinnu í öðrum iðngreinum (sjá
töflu 7.3.) á þessu tímabili eru verulega frábrugðnar framan-
greindum niðurstöðum um framleiðni vinnu í þeim iðngreinum, sem
MIF nær til. í fyrsta lagi er framleiðniaukningin miklu minni,
en hún er 9,7% yfir tímabilið, sem samsvarar 1,6% árlegri meðal-
aukningu. í öðru lagi er framleiðniþróunin mjög ólík, sér-
staklega fyrstu fjögur ár þessa tímabils (sjá töflu 7.3.).
Lokaniðurstaðan um framleiðni vinnu í iðnaðinum í heild
(undanskilið: Fiskiðnaður, slátrun og kjötiðnaður og álvinnsla,
sjá töflu 7.3.) er sú, að heildaraukning yfir tímabilið er
20,5%, sem jafngildir 3,1% árlegri meðalaukningu. Þróun fram-
leiðninnar er á þann veg, að fyrstu tvö árin, frá 1966 til 1968,
er aukningin engin (minnkun um 0,6% hvort ár), næstu tvö árin,
frá 1968 til 1970, er aukningin um 4% hvort árið, á árinu frá
1970 til 1971 er aukningin 8,2% og er það mesta aukningin á
þessu sex ára tímabili, en á síðasta árinu milli 1971 og 1972
er framleiðniaukningin mjög áþekk aukningunni á árunum 1968-
1970 eða 4,2%. Þegar þessar tölur eru skoðaðar þarf að líta
til þess, að á þessum sex árum jókst fast framleiðslufjármagn,