Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2013, Side 13
Fréttir 13Mánudagur 2. september 2013
Buxurnar þóttu of þröngar
n Fjórtán ára stúlka send heim úr skólanum
A
nnalise Wilks, fjórtán ára bresk
stúlka, var send heim úr skól-
anum á fyrsta degi skólaársins,
fyrir brot á reglum um skóla-
búninga. Svartar síðbuxur, sem eru
hluti af skólabúningi Beaumont Leys
School í Leicester, þóttu of þröngar
að mati kennara skólans. Anna Lísa
var ein 25 barna sem tekin voru af-
síðis vegna brota á ströngum reglum
skólans um skólabúninga. Börnun-
um voru settir þeir afarkostir að skipta
um föt þegar í stað, ellegar skyldu
þau hypja sig heim. Börnin voru ekki
með auka föt með sér og héldu heim
– þau sem ekki gátu brugðist við fyr-
irskipununum. Börn þeirra foreldra
sem ekki náðist í voru sett í einangrun
í skólanum. Frá þessu er greint á vef
Daily Mail.
Denise er móðir Önnu Lísu. Sam-
band var haft við hana á fimmtudag
og henni tilkynnt að dóttir hennar
fengi ekki kennslu út daginn. Hún er
ósammála því að buxurnar hafi verið
of þröngar, eins og reyndar meðfylgj-
andi mynd rennir stoðum undir. „Þær
passa mjög vel á hana og eru alls ekk-
ert þröngar. Mér finnst þetta ógeðsleg
framkoma. Hún er hlunnfarin um
menntun.“
Denise segist vita um foreldra fleiri
barna sem séu brjálaðir. „Gátu þeir
ekki bara kennt börnunum til klukkan
þrjú og sent þau svo heim með bréf?“
spyr hún örg.
Yfirkennarinn Liz Logie, sem sendi
börn heim fyrir ofangreindar sakir,
segir nauðsynlegt að halda uppi aga í
skólanum. Hún sagði að ekkert barn
hefði verið sent heim án vitundar for-
eldra þess. Foreldrarnir hafi, áður en
skólinn hófst, fengið nákvæmar leið-
beiningar um það hvernig skólabún-
ingurinn eigi að vera. Frá þeim reglum
verði ekki vikið. Hún segir að aginn
skipti miklu máli í „krefjandi hverfum“.
„Við vitum að foreldrar eru óá-
nægðir vegna skólabúningsins en við
erum sannfærð um að þeir verði ekki
eins óánægðir þegar börnin koma
heim með góðar einkunnir.“ n
Frumleg
smygltilraun
Þrjátíu og sex ára karlmaður var
handtekinn í Washington-ríki á
dögunum eftir að hafa reynt að
koma nokkrum grömmum af
marijúana inn í Whatcom-fang-
elsið. Tilraunin var í senn óvenju-
leg og frumleg því pokann með
efnunum festi hann á ör og skaut
henni svo með boga yfir fangels-
isgirðinguna. Fangaverðir sáu til
mannsins og höfðu hendur í hári
hans. Maðurinn gaf þá skýringu
að hann hafi verið á íkornaveið-
um. Honum var ekki trúað og á
yfir höfði sér ákæru.
V
erð á olíu gæti náð sögu-
legu hámarki ef hernað-
araðgerðir gegn Sýrlandi,
vegna efnavopnaárásarinn-
ar fyrir tæpum tveimur vik-
um, verða að veruleika. Bandaríkja-
menn og Frakkar hafa lýst yfir vilja
sínum til slíkra aðgerða en breska
þingið felldi þó tillögu þess efnis á
föstudag. Þrátt fyrir það lýsti Francois
Hollande Frakklandsforseti því yfir
að árás gæti verið gerð, með eða án
þátttöku Breta.
Toppurinn toppaður
Efnahagsleg áhrif slíkra hernaðarí-
hlutana gætu orðið mikil, þá sérstak-
lega á olíumörkuðum. Heimsmark-
aðsverð á olíu hefur hækkað talsvert
undanfarna daga. Á miðvikudag í
síðustu viku hækkaði verð á tunnu á
svonefndri Brent Norðursjávarolíu
um sex prósent, í 117 Bandaríkjadali.
Í júní var verðið á tunnunni sléttir
hundrað Bandaríkjadalir.
Greiningaraðilar hjá Societe
Generale, einum stærsta banka
Frakklands, hafa gefið það út að ef
loftárásir verða gerðar á Sýrland gæti
verðið farið í 125 Bandaríkjadali. Ef
hernaðaríhlutanir vesturveldanna
hafa áhrif á olíuframleiðslu í Mið-
Austurlöndum gæti verðið hins vegar
farið í 150 Bandaríkjadali tunnan.
Ef það gerðist yrði olíuverð hærra
en krísuárið 2008 þegar verðið fór í
sögulegt hámark, 147 Bandaríkjadali.
50 þúsund tunnur á dag
Aðrir greiningaraðilar eru þó ekki jafn
svartsýnir og Societe Generale. Bank
of America Merrill Lynch spáir því að
verðið muni þó hækka enn frekar og
tunnan fari í 120 til 130 Bandaríkja-
dali. Þetta mun gerast þó olíuútflutn-
ingur Sýrlands sé tiltölulega lítill; áður
en borgarastyrjöldin braust út var
framleiðslan um 150 þúsund tunn-
ur á dag í samanburði við tíu milljón-
ir tunna í Sádi-Arabíu og 92 milljón-
ir tunna á heimsvísu. Eftir að átökin
brutust út árið 2011 voru Sýrlendingar
beittir viðskiptaþvingunum og er
framleiðslan þar í landi talin vera um
50 þúsund tunnur á dag.
Hið mikilvæga Hormuz-sund
Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins,
BBC, um þetta mál kemur fram að
fjárfestar hafi áhyggjur af því hvaða
áhrif hernaðaríhlutun vesturveld-
anna hafi á nágrannaríki Sýrlands,
þá einna helst Írak sem framleiðir
þrjár milljónir tunna á dag, eða rúm
þrjú prósent af heimsframleiðslunni.
Sömuleiðis ríkir óvissa hvað varðar
viðbrögð Írana við hernaðaríhlutun
í Sýrlandi. Íranir, sem framleiða um
2,7 milljónir tunna á dag, eru banda-
menn Bashar al-Assad Sýrlands-
forseta. Íranir hafa varað við áhrif-
um hernaðaraðgerða gegn Sýrlandi
og hefur Ali Khamenei, æðsti klerk-
ur Írans, sagt að „árás hefði skelfileg
áhrif“ á Mið-Austurlönd. Meðal þess
sem menn óttast er að Íranir kynnu
að loka Hormuz-sundi, en sundið
tengir Persaflóa í vestri við Ómanflóa
og Arabíuhaf í austri. Sundið er í land-
helgi Írana, en um það fara 17 millj-
ónir tunna af olíu á dag. Íranir hafa
áður hótað að loka sundinu ef landið
yrði sjálft fyrir árásum frá Bandaríkja-
mönnum eða Ísraelsmönnum.
Ofmetin áhætta
Þó svo að markaðsspekingar hafi til-
efni til að óttast hið versta eru aðr-
ir á því að hernaðaraðgerðir muni
ekki hafa teljandi áhrif á heimsmark-
aðsverð á olíu. Þannig hafi olíuverð
hækkað áður en borgarastyrjöldin
braust út í Sýrlandi. Ástæðan sé átök
í Líbíu og aukin eftirspurn frá Evrópu
og Bandaríkjunum eftir efnahags-
niðursveifluna, að ógleymdri auk-
inni eftirspurn frá Kína. „Okkar mat
er það að hernaðaraðgerðir muni
ekki koma ójafnvægi á öll Mið-Aust-
urlönd. Áhættan er því ofmetin,“ seg-
ir Eugen Weinberg, sérfræðingur hjá
þýska Commerzbank. n
Olíuverð gæti náð
sögulegu hámarki
n Háð því hvort vesturveldin geri árás á Sýrland n Verð hefur farið hækkandi
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Harðnandi átök Greiningar-
aðilar spá því margir að árás á
Sýrland gæti haft slæm áhrif.
Olíuverð gæti rokið upp að nýju.
Skelfileg áhrif Ali Khamenei, æðsti
klerkur Írans, segir að árás á Sýrland hefði
„skelfileg áhrif“.
Reið móðir Denise
er þeirrar skoðunar að
buxurnar sem Anna Lísa
klæðist á myndinni passi
henni vel. Mynd daily Mail
Tók kærustuna
af lífi
Einræðisherra Norður-Kóreu, Kim
Jong-un, lét nýverið taka fyrrver-
andi kærustu sína af lífi. Kærastan
sem var með vinsælli söngvurum
landsins hafði unnið sér það til
saka að hafa komið fram í klám-
mynd. Hljómsveit söngkonunnar
eru sögð hafa tekið upp kynlíf sín
á milli með það að markmiði að
selja innanlands. Hljómsveitin var
neydd til að horfa á meðan söng-
konan var skotin með hríðskota-
byssu og voru meðlimir hennar
svo sendir rakleiðis í fangabúðir.
Söngkonan er sögð vera æskuást
einræðisherrans.
Nýfætt barn
í ruslahrúgu
Nýfætt barn fannst á lífi í plast-
poka í ruslahrúgu á bakvið fjöl-
býlishús í New Jersey í Bandaríkj-
unum á laugardag. Læknar segja
barnið hafa fæðst ellefum vikum
fyrir settan dag og sé aðeins 1,3
kíló að þyngd. „Við heyrðum eitt-
hvað gráta í pokanum og héldum
fyrst að þetta væri einhverskonar
dýr,“ sagði hinn fimmtán ára gamli
Keyshaun Wiggins við bandarísku
fréttastofuna WABC um málið en
hann var í hópi táninga sem fundu
barnið. „Við fórum því að pokanum
og sáum barnið.“
Hópurinn lét húsvörð fjölbýl-
ishússins vita sem hafði samstund-
is samband við neyðarlínuna. „Ég
opnaði pokann að neðan og sá þá
að barnið var ennþá með nafla-
strenginn á sér,“ sagði eiginkona
húsvarðarins við bandaríska dag-
blaðið The Jersey Journal um mál-
ið. Hún sagðist ekki vita til þess
að einhver í húsinu hefði átt von á
barni. Yfirvöld í New Jersey leita nú
að móður barnsins en WABC benti
á í frétt sinni að hún hefði geta
skilið barnið eftir við sjúkrahús,
lögreglustöð eða slökkviliðsstöð
án þess að eiga það á hættu að
verða ákærð samkvæmt lögum í
borginni. Það gerði hún hins vegar
ekki og á því yfir höfði sér ákæru.