Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2013, Blaðsíða 19
Sport 19Mánudagur 2. september 2013
Meiri breidd og betra gengi Liverpool
n Hallgrímur Indriðason, fréttamaður og ritari Liverpool-klúbbsins, gerir sér engar titilvonir enn
V
ið vorum mjög þéttir, sér-
staklega í fyrri hálfleik og
gáfum þar engin færi á okk-
ur,“ segir Hallgrímur Ind-
riðason, fréttmaður á RÚV og ritari
stuðningsmannaklúbbs Liverpool
á Íslandi. Liverpool hafði betur
gegn Manchester Untied í risaslag
á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á sunnudag. Leiknum
lauk með 1–0 sigri heimamanna.
Daniel Sturridge skoraði eina mark
leiksins á fjórðu mínútu en með
sigrinum situr Liverpool á toppi
deildarinnar – með þrjá sigra í jafn
mörgum leikjum. Liðið hefur enn
ekki fengið á sig deildarmark.
Félagið hefur ekki byrjað bet-
ur í deildinni í heil nítján ár. Hall-
grímur segir, beðinn um álit á
leik sinna manna á sunnudag, að
mjög ánægjulegt hafi verið að sjá
hversu vel liðið hafi varist. „Það
var svo ekkert leiðinlegt að sjá
hvað van Persie var orðinn pirrað-
ur – og í raun heppinn að hanga
inn á – þarna undir lok fyrri hálf-
leiks.“ United sótti í sig veðrið í síð-
ari hálfleik og skapaði sér nokk-
ur hættuleg marktækifæri. „Seinni
hálfleikurinn var ansi stressandi
og Mignolet bjargaði okkur stund-
um mjög vel. Í heildina er ég mjög
sáttur við leikinn,“ segir Hallgrímur
við DV.
Spurður hvort hann hafi skýr-
ingar á batnandi gengi liðsins nefn-
ir Hallgrímur að breiddin í leik-
mannahópnum hafi aukist. Með
nýjustu viðbótum við hópinn,
leikmönnunum Mamadou Sak-
ho, Tiago Ilori og Victor Moses hafi
hópurinn styrkst mikið auk þess
sem liðið eigi eftir að endurheimta
Luis Suárez úr leikbanni. Varnar-
maðurinn Kolo Toure og markvörð-
urinn Simon Mignolet hafi til dæm-
is báðir komið sterkir inn í liðið í
sumar. Félaginu hafi í sumar tekist
mun betur upp á leikmannamark-
aðnum en í fyrrasumar.
Hallgrímur segir að fyrir leikinn
gegn United hafi hann haft áhyggj-
ur af vörninni í fjarveru Kolo Toure.
Martin Skrtel hafi hins vegar stað-
ið vaktina með prýði og því sé út-
litið nokkuð gott. „Það er stund-
um talað um að Liverpool-menn
séu alltaf bjartsýnir í ágúst,“ svarar
hann hlæjandi spurður hvort Liver-
pool-menn séu farnir að gera sér
miklar væntingar í ljósi góðrar byrj-
unar. Hann segir væntingarnar hóf-
legar, enn sem komið er. „Menn eru
ekkert farnir að missa sig í titilvon-
ir,“ segir hann léttur í bragði. n
baldur@dv.is
F
yrir tveimur árum var atvinnu-
mannaferill sænska kylfingsins
Henrik Stenson svo í vaskin-
um að hann ákvað að láta gott
heita, halda heim á leið og taka
þátt í meistaramótinu í sínum gamla
klúbbi á Skáni. Það var sneypuför;
hann sigraði ekki einu sinni þar.
En það er einkenni besta íþrótta-
fólks að gefast ekki upp og sérstaklega
ekki þegar á móti blæs. Það má Henrik
Stenson, sem var um tíma fjórði besti
kylfingur heims, eiga að það gerði
hann ekki. Slælegur árangur um tíma
gerði ekkert nema efla hann til dáða
og Stenson er nú aftur kominn á pall
með þeim bestu, hefur átt skrambi
gott ár á bestu mótaröð heims og verið
nálægt því að sigra á risamóti.
Hvað er málið með Svíana?
Stenson tilheyrir merkilegum fjölda
sænskra kylfinga sem leika á PGA-
mótaröðinni en vakið hefur athygli
hversu margir þeir hafa verið þar
undanfarin ár. Enn fjölgar hægt en
bítandi í hópnum. Allir hafa þeir stað-
ið sig þokkalega vel og sem dæmi má
nefna að fjórir Svíar komust í úrslita-
keppnina um FedEx-bikarinn sem nú
stendur yfir. Til samanburðar var þar
að finna aðeins einn kylfing frá Spáni,
einn frá Ítalíu, einn frá Þýskalandi og
alls sex frá Bretlandi. Með öðrum
orðum eru sænskir keppendur einna
fjölmennastir útlendinga á PGA-
mótaröðinni þrátt fyrir að þjóðin sé
tiltölulega fámenn og golfaðstaða í
Svíþjóð ekki á pari við það sem best
gerist – þó góð sé.
Hinir níu fræknu
Það þarf reyndar ekki að leita langt
eftir sænskum keppanda sem gert
hefur garðinn frægann í golfinu. Nafn
Anniku Sörenstam er heimsþekkt úr
kvennagolfinu þar sem hún var nán-
ast einráð á toppnum um árabil og
vann til fleiri verðlauna en auðvelt
er að telja. En þó karlarnir hafi stað-
ið sig vel hefur enginn þeirra unnið
risamót enn sem komið er. Þeir eru
samt níu talsins Svíarnir sem unnið
hafa sér inn stig á árinu fyrir að hafa
náð ofarlega á mótum á PGA. Sten-
son er þeirra efstur en ekki langt
undan er hinn eiturflinki Jonas Blixt
sem golffræðingar telja nú einn allra
besta „járnaspilara“ á mótaröðinni.
Aðrir kunnuglegir sem eiga misjafn-
ari daga eru Robert Karlsson, Henrik
Norlander, Peter Hanson, Carl Pett-
ersson, Freddie Jacobson, nýliðinn
David Lingmerth og auðvitað gamla
skrautlega brýnið Jesper Parnevik. Þó
Stenson sé þeirra þekktastur í dag er
það Parnevik sem komist næst því að
sigra risamót en hann varð tvívegis í
öðru sætinu á Opna breska meistara-
mótinu á sínum tíma.
Hæfileikar og Bandaríkin
En það þarf kannski ekki að skoða
sérstaklega hvað sé í sænska vatninu
sem gerir að verkum að þaðan koma
hæfileikaríkir kylfingar í röðum. Það
nægir að skoða feril þessara kylfinga
sem allir annaðhvort æfðu golf við
bestu hugsanlegu aðstæður í banda-
rískum háskólum strax á unglingsár-
um eða héldu þangað fljótlega eftir
að þeir náðu árangri í heimalandinu
eða á evrópsku mótaröðinni. All-
ir níu sem nefndir eru að ofan búa
nú í Bandaríkjunum og hafa gert um
tíma. Flestir í Flórída þar sem ekki
þarf að huga að veðurspá mikið áður
en haldið er út á völl til æfinga eða
keppni. n
Lykillinn að velgengni
sænskra kylfinga
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Blixt og Stenson Báðir
hafa spilað fantavel allt
árið á PGA-mótaröðinni
og báðir verið nálægt því
að vinna sigur á risamóti.
Carl Pettersson Kannski vita ekki margir
að það er Carl Pettersson sem er sá Svíi að
frátöldum Jesper Parnevik sem oftast hefur
sigrað á PGA-móti eða alls fimm sinnum á
ferlinum.
Engin eftirsjá
Steven Gerrard, fyrirliði Liver-
pool, segist alls ekki sjá eftir því
að hafa verið hliðhollur félagi
sínu gegnum þykkt og þunnt en
þessi 33 ára enski landsliðsmað-
ur sér fram á að farsæll ferill hans
líði senn undir lok. Í viðtali við
helgarblað Guardian viðurkenn-
ir Gerrard að hann hafi lengi get-
að farið annað og til stærri klúbba
og fengið meiri peninga en innst
inni sé hann ánægður með val
sitt og að hafa tekið klúbbinn sinn
fram yfir gylliboð sem oft bárust.
Hjartað slái með Liverpool og þá
bæði borginni og félagsliðinu og
þar eigi hann eftir að búa alla sína
ævi. „Hérna er klúbburinn og fólk-
ið sem er mikilvægast í lífi mínu.
Ég tók mína ákvörðun á sínum
tíma og sé ekki eftir neinu.“
Ánægður Hallgrímur Indriðason
fréttamaður er ánægður með leik-
mannahópinn. Mynd af faCeBook
fagnað Daniel Sturridge skoraði mark
Liverpool í leiknum. Mynd ReuteRS
FH-ingar fóru
illa að ráði sínu
Fjórir leikir fóru fram í Pepsi-
deild karla í knattspyrnu á
sunnudag. FH-ingar fóru illa
að ráði sínu í Kaplakrika þegar
þeir gerðu 2-2 jafntefli við Vík-
ing Ólafsvík sem situr í 11. sæti
deildarinnar. FH er í öðru sæti
og í harðri baráttu um titilinn
við KR-inga sem sitja á toppi
deildarinnar með 40 stig. FH-
ingar eru aðeins þremur stig-
um á eftir KR-ingum en þeir
eiga tvo leiki til góða. Vinni KR-
ingar leikina sem þeir eiga inni,
eru þeir svo gott sem búnir að
vinna mótið.
Í öðrum leikjum sunnudags-
ins fóru leikar þannig að Fylk-
ismenn unnu Breiðablik óvænt
4-1 á Kópavogsvelli. Þór og
Fram gerðu 1-1 jafntefli á Akur-
eyri en Fram er í áttunda sæti
með 19 stig og Þór í níunda sæti
með 17 stig. Keflavík tapaði á
heimavelli fyrir Stjörnunni 0-2.
Leikjum ÍA og KR var fre-
stað, rétt eins og viðureign ÍBV
og Vals.
n Margir sænskir kylfingar á PGA-mótaröðinni n Slá stórþjóðum við