Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Qupperneq 6
6 Fréttir 11. september 2013 Miðvikudagur Vætutíð hafði lítil áhrif n Margir Íslendingar héldu sig á landinu í sumar U m 36 þúsund Íslendingar fóru til útlanda um Flug- stöð Leifs Eiríkssonar í ágúst, lítið færri en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í tölum sem Ferðamálastofa birti á dögunum. Að því er fram kemur á vef Grein- ingar Íslandsbanka er þetta þriðji mánuðurinn í röð sem samdráttur á sér stað í brottför Íslendinga á milli ára, en í júlí nam hann átta pró- sentum og í júní fimm prósentum. „Þessi þróun kemur mjög á óvart, enda skýtur hún skökku við það óhagstæða tíðarfar sem var ríkj- andi hér á landi í sumar, a.m.k. á því landsvæði þar sem meginþorri landsmanna er búsettur. Alla jafna ætti ótíð heima fyrir að auka spurn eftir ferðum til sólríkari staða. Er því spurning hvort vætutíðin í sumar muni endurspeglast í að fleiri Ís- lendingar haldi erlendis nú á haust- mánuðum en gerðu á sama tíma í fyrra,“ segir í umfjöllun um málið á vef Greiningar. Þó að Íslendingar virðist halda að sér höndum verður ekki það sama sagt um útlendinga. Í ágúst fóru 132 þúsund erlendir ferða- menn frá landinu um Flugstöð Leifs Eiríkssonar, eða 16.500 fleiri en í sama mánuði í fyrra. Fjölg- unin nemur 14,4 prósentum og er þetta metfjöldi ferðamanna í einum mánuði. Á vef Ferðamálastofu kem- ur fram að ef litið sé til fjölda ferða- manna í ágúst á því tólf ára tímabili, frá 2002 til 2103, sem Ferðamála- stofa hefur haldið úti talningum megi sjá umtalsverða fjölgun ferða- manna. Þannig hafi þeim fjölgað um 82 þúsund á tímabilinu, farið úr 50 þúsundum árið 2002 í 132 þús- und árið 2013. n einar@dv.is Fann síma og notaði Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt ungan karl- mann til að greiða 60 þúsunda króna sekt til ríkissjóðs fyr- ir ólögmæta meðferð fundins fjár. Maðurinn var ákærður fyr- ir að slá eign sinni á GSM-síma af gerðinni Iphone 4S sem hann fann í Hafnarstræti í miðbæ Ak- ureyrar í lok maí á þessu ári. Tók maðurinn símann til notkunar sem sína eign. Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til þess að hann hefur ekki sætt refsingu áður, þá sé hann ungur að árum og lýsti yfir iðrun vegna gjörða sinna. Stakk mann í ölæði Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir sér- staklega hættulega líkamsárás á Húsavík aðfaranótt 2. júní síð- astliðinn. Var maðurinn ákærð- ur fyrir að stinga annan mann í síðuna og í upphandlegg. Maðurinn bar fyrir dómi og í skýrslutöku hjá lögreglu að hann gæti lítt greint frá atvik- um málsins vegna nær algjörs minnisleysis vegna ölvunar. Sagði hann þó að fórnarlambið í málinu væri góður vinur hans og þeim hefði ávallt komið vel saman. Dómurinn er óskilorðs- bundinn en auk þess var manninum gert að greiða fórn- arlambi sínu rúmar 500 þúsund krónur í skaðabætur og 760 þúsund krónur í sakarkostnað. Ferðamenn Þó Íslendingar hafi haldið sig mikið til heima í sumar streyma erlendir ferðamenn til landsins sem aldrei fyrr. Situr á 200 milljónum n Einkaaðilar væna Þjónustumiðstöð bókasafna um spillta viðskiptahætti S jálfseignarstofnunin Þjón- ustumiðstöð bókasafna situr á eignum upp á rúmlega 200 milljónir króna sem fyrir- tækið hefur safnað á síð- ustu áratugum. Meðal þeirra eigna er fasteign á Laugavegi sem hýsir skrifstofu félagsins. Kennitala stofn- unarinnar er frá árinu 1978 og sér- hæfir hún sig í að selja ýmsar vörur, meðal annars danskar bókahillur, til bókasafna. Nánast engar skuldir eru inni í stofnuninni á móti þessum eignum. Stofnunin var upphaflega stofnuð sem milliliður í viðskiptum íslenskra bókasafna með ýmis bókasafnsgögn. Einkaaðilar deila á þá sem sjá um innkaup fyrir bókasöfn fyrir viðskipti þeirra við Þjónustumiðstöðina sem alfarið er stýrt af bókasafnsfræðing- um. „Okkur finnst spillingarlykt af þessu,“ segir ónafngreindur stjórn- andi hjá fyrirtæki sem meðal annars selur bókahillur sem gerðar eru hér á landi. Hann segir að fyrirtæki hans sé hætt að gera tilboð í bókahillur og annað sem bókasöfn kaupa inn þar sem söfnin versli nær eingöngu við Þjónustumiðstöðina. Góðar vörur Nanna Bjarnadóttir, bókasafns- fræðingur og stjórnarformaður Þjón- ustumiðstöðvar bókasafna, segir að það sé „algjört bull“ að stofnunin sé með einokunarstöðu í viðskiptum við bókasöfn. „Nei, þetta er algjört bull. Menn geta keypt hvar sem þeir vilja. En það eru náttúrulega mjög miklar gæðavörur sem Þjónustumið- stöðin er með. Það eru vissir einkaað- ilar sem eru óánægðir með þetta en þeir hafa kannski ekki verið að bjóða þær vörur sem bókasafnsfræðingar eru að leita eftir,“ segir Nanna sem er einn af stofendum Þjónustumið- stöðvarinnar – hún er komin á átt- ræðisaldur. „Þetta þarf að vera sér- hannað og dálítið endingargott til að þola það álag sem er á bókasöfnun- um,“ segir Nanna sem bendir á að fé- lagið sé ekki rekið með gróðasjónar- mið að leiðarljósi. Þá segir hún að stofnunin hafi vitanlega aldrei greitt arð og heldur ekki stjórnarlaun. Kenning einkaaðilanna gengur því út að bókasafnsfræðingar á bókasöfnum landsins hygli Þjón- ustumiðstöð bókasafna í viðskiptum með bókahillur og annan varning. Einn af ónafngreindum viðmælend- um DV segir um þetta: „Okkur skilst að miðstöðin sé í eigu bókasafns- fræðinga sem taka ákvarðanir um innkaupin í mörgum tilfellum. Spilling er „að vera báðum megin borðsins“.“ Samkeppniseftirlitið áhugalítið Einn af viðmælendum DV, sem reyndi að selja bókasafnshillur sem framleiddar voru á Íslandi til safn- anna, segir að hann hafi fljótlega hætt að reyna að selja söfnunum hillurn- ar eftir tilkomu Þjónustumiðstöðv- arinnar. „Þeir byrjuðu sjálfir að flytja inn hillur frá Danmörku, bókasafns- fræðingarnir, en alls kyns krítík hafði komið frá þeim á íslensku hillurnar. Þeir hættu svo bara að kaupa ís- lensku hillurnar og keyptu bara þess- ar dönsku í staðinn. Ég hætti svo bara alveg að hafa áhyggjur af þessu og lét þá bara eiga sig. Við komumst ekk- ert áfram með þetta,“ segir viðmæl- andinn. Hann segist meðal annars hafa reynt að benda Samkeppnis- eftirlitinu á Þjónustumiðstöðina en áhuginn þar hafi verið lítill. „Það þýddi ekkert að hrófla við þeim, tala við Samkeppniseftirlitið eða neitt.“ Endalokin íhuguð Nanna segir að nú sé komin upp sú staða að ekki sé almennilega vitað hvernig eigi að slíta stofnuninni. Staða hennar er sterk en Nanna seg- ir að hugsanlega sé komið að leiðar- lokum hjá henni. „Þetta hefur verið rekið á kvenna vegum,“ segir Nanna þegar hún er spurð um góða stöðu félagsins og bætir við: „Auðvitað er spurning með allar svona stofnanir hvenær þær verða óþarfar. Upp- haflega áttu ríkið og sveitarfélag að koma að þessu en þau gerðu það ekki þannig að við sátum uppi með þetta. Það eru til einhverjar reglur um það hvernig á að slíta svona sjálfseignar- stofnunum, meðal annars hvað á að gera við eignirnar og annað slíkt,“ segir Nanna en líklegt má telja að á endanum muni eignir stofnunarinn- ar renna til bókasafna landsins en til- gangur stofnunarinnar, samkvæmt stofnskrá hennar, er einmitt: „Að bæta bókasafnsþjónustu á Íslandi og vinna að framgangi upplýsinga- tækninnar.“ n „Þetta hefur verið rekið á kvenna vegum Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Félag bókasafnsfræðinga situr á gulli Félags bókasafnsfræðinga sem selur bókahillur til slíkra safna á Íslandi á rúmar 200 milljónir. Landsbókasafnið er stærsta bókasafn landsins. DAGUR KARTÖFLUNNAR Dagskrá: 14:00-14:15 Áslaug Helgadóttir Norrænt samstarf 14:20-14:40 Hildur Hákonardóttir Áhrif kartöflunnar á þéttbýlismyndun á Íslandi 14:45-15:05 Brynhildur Bergþórsdóttir Nýting kartöflunnar 15:15-16:00 Tekið upp úr kartöflu - garðinum og úrslit í kartöfluréttarkeppni kynnt Samkeppni um besta kartöfluréttinn: Allir geta tekið þátt og komið með kartöflurétt, dómnefnd velur besta réttinn - vegleg verðlaun. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, aðgangur ókeypis. Opið alla daga frá 15. maí til 15. sept. milli kl 11–18. Á öðrum tímum eftir samkomulagi. sími 483 1504 | husid@husid.com | www.husid.com Dagur kartöflunnar Málþing í Húsinu á Eyrarbakka 14. september 2013 kl. 14:00–16:00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.