Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 13
Fréttir 13Miðvikudagur 11. september 2013 Verða kannski hengdir fyrir hópnauðgun n Fjórir sakfelldir fyrir hópnauðgun á Indlandi F jórir karlmenn voru á þriðju- dag sakfelldir fyrir hrottalega hópnauðgun í strætó í Nýju-Delí í desember í fyrra. Þolandinn var 23 ára háskólanemi sem lést af áverkum sem hún hlaut í árásinni sem varði í nokkrar klukkustundir. Mennirnir voru fundnir sekir um nauðgun og morð en búast má við því að refsing þeirra verði kunngjörð í dag, miðvikudag. Þeir eiga allir yfir höfði sér að verða hengdir fyrir glæp- inn. Foreldrar stúlkunnar sem lést felldu tár við dómsuppsögu í dómsal í Nýju-Delí á þriðjudag þar sem þau sátu aðeins nokkrum metrum frá morðingjum dóttur sinnar. Fyrir utan voru fjölmargir mót- mælendur samankomnir sem söngl- uðu „Hengið þá!“ þegar niðurstaðan lá fyrir. Fimmti maðurinn sem ákærður var í málinu svipti sig lífi í fangelsi og þá var unglingspiltur fundinn sekur um aðild að málinu í ágúst síðastliðn- um. Málið vakti óhug um víða veröld þegar frá því var greint og varð í kjöl- farið mikil vitundarvakning á Ind- landi um þá nauðgunarmenningu sem þar þrífst. Mennirnir voru farþegar í strætó sem ekki var á leið í Nýju-Delí þann 16. desember síðastliðinn. Þeir nörr- uðu konuna og vin hennar um borð, börðu vin hennar og hófust síðan handa við að nauðga konunni hver á fætur öðrum. Við árásina beittu þeir meðal annars járnstöng sem þeir þvinguðu upp í leggöng hennar með þeim afleiðingum að hún hlaut inn- vortis áverka sem síðan drógu hana til dauða tveimur vikum síðar. n mikael@dv.is Hommapör aðskilin í breskum fangelsum n Brotið á réttindum samkynhneigðra n Stíað í sundur fyrir að leiðast S amkynhneigðum föngum sem stunda saman kynlíf er iðulega stíað í sundur og refs- að ef upp um þá kemst. Þetta er á meðal niðurstaðna sér- stakrar rannsóknarnefndar um að- stæður fanga í fangelsum í Englandi og Wales. Fangar sem komu fyrir nefndina telja að með þessu sé brot- ið á rétti þeirra sem opinberlega eru samkynhneigðir. National Aids Trust hefur varað við tilraunum til að koma í veg fyrir að fangar stundi saman kynlíf á heil- brigðan máta. Slíkt geti grafið undan því markmiði að hvetja til þessa að fangar stundi heilbrigt og öruggt kyn- líf. Þannig gæti enn dregið úr notk- un smokka sem aftur gæti aukið tíðni HIV-smits í fangelsum. Lítið um rannsóknir Rannsóknarnefnd um kynlíf í fang- elsum, sem stofnuð var af Howard League for Penal Reform, var meðal annars sett saman af sérfræðingum á sviði heilbrigðismála, fyrrverandi fangelsisstjórum og fyrrverandi ráð- herra fangelsismála. Nefndin komst að því að jafnvel þó ljóst sé að nokk- ur hluti karlkyns fanga stundi kynlíf, sé afar erfitt að afla gagna um tíðni þess og eðli. Lítið hafi verið athugað þegar kemur að kynmökum þar sem báðir aðilar eru samþykkir. Fátt ann- að en munnmælasögur og orðróm hafi verið hægt að styðjast við Auðveldara reyndist að fá upplýs- ingar og vitnisburð um kynlíf kven- fanga. Karlkyns fangar hafi hins vegar virst vera í afneitun þegar þeir hafi komið fyrir nefndina. Fordómar og skömm væru ríkjandi í tengslum við kynlíf karla sín á milli. Þetta kemur fram í fyrstu drögum að skýrslu sem nú er í vinnslu. Fram kemur í drögunum að fanga- verðir séu sammála um að nokkuð algengt sé að fangar stundi kynlíf en það kæmi sjaldan upp á yfirborðið. Fangar séu sjaldan gripnir við slíka iðju. Almennt sé hómófóbía útbreidd í fangelsum, sérstaklega á meðal yngri fanga. Eldri fangar, sem afplána langa dóma, eru líklegri til að viður- kenna að þeir stundi kynlíf í fangels- um en þeir sem yngri eru eða afplána styttri dóma. Rannsóknarnefndin notaði orðið „heteroflexible“ eða „gagnkynsveigjanlegur“ í hrárri þýð- ingu, um menn sem líta á sig sem gagnkynhneigða en eru sveigjanlegir þegar kemur að kynlífi þegar þeir eru í fangelsi. Fangaverðir banna kynlíf Engar reglur eru til í breskum fang- elsum sem banna föngum að stunda kynlíf. Fangaverðir banna hins vegar slíkt. Yfirmenn fangelsanna segja að ómögulegt sé fyrir fangaverði að vita hvenær samræði tveggja fanga eða fleiri sé með samþykki allra aðila – og hvenær um nauðganir sé að ræða. Einn þeirra sem kom fyrir nefndina hafði setið inni í fjórum mismunandi fangelsum. Hann sagðist aldrei hafa orðið var við að fanga væri refsað fyrir að stunda kynlíf með félaga sínum í klefa. „Ég hef hins vegar orðið vitni að því að samkynhneigðum körlum í ást- arsambandi hefur verið stíað í sund- ur – jafnvel þó þeir hafi aldrei stundað kynlíf innan veggja fangelsisins.“ Annar fangi, sem átti í ástarsam- bandi í fangelsinu, bar að fanga- verðir hefðu sífellt reynt að standa menn að verki. „Þeir opnuðu ítrek- að hjá okkur dyrnar fyrirvaralaust til þess að reyna að grípa okkur í bólinu. Það tókst auðvitað aldrei en við vor- um alltaf á nálum. Eldri fangavörð- ur kom einu sinni að okkur í klef- anum þar sem við sátum hlið við hlið og héldumst í hendur og horfð- um á kvikmynd. Hann skipaði okkur að hætta að leiðast, að öðrum kosti myndi hann veita okkur áminn- ingu með það að markmiði að svipta okkur áunnum réttindum.“ Erfitt að fá smokka Fangar sem reyndu að fela kynlífs- athafnir sínar fyrir fangavörðum sögðust oft eiga í vandræðum með að verða sér úti um smokka. Misjafnt er hvernig aðgengi að hreinlætisvörum, smokkum og sleipiefnum er háttað. Í sumum fangelsum geta fangar sótt í slíkt að vild en í öðrum þarf fangi að hitta lækni til að fá slíkar vörur. Chris Sheffield, fyrrverandi fang- elsisstjóri og formaður nefndarinn- ar, segir að fangelsi verði að passa vel upp á þá fanga sem eru berskjaldaðir fyrir öðrum. Fangelsi séu staðir þar sem mikil hætta sé á kynferðislegri misnotkun – og þannig smiti sjúk- dóma. „Þörfin á skaðaminnkun og innleiðingu reglna um kynlífsathafn- ir í fangelsum er afar mikil. Ekki bara fyrir fanga heldur samfélagið allt.“ n Samkynhneigð í fangelsum Þeir sem hafa setið inni lengi, og eru eldri, viðurkenna frekar að þeir stundi kynlíf með samföng- um sínum. Mynd: REutERS Lokkaði ljón inn í lögreglubíl Óvenjulegt mál kom upp í Persaflóaríkinu Kúveit á dögun- um þegar ljón slapp úr búri sínu og gerði íbúum Kúveitborgar líf- ið leitt. Það var óbreyttur borgari sem náði að fanga dýrið en það gerði hann með því að lokka það inn í lögreglubíl og loka dyrun- um. Talið er að ljónið, sem var sem betur fer ekki orðið full- orðið, hafi sloppið frá moldríkum eiganda sínum í borginni, en þar eru framandi dýr til merkis um góða stöðu viðkomandi. Flækings- hundar verði drepnir Hundruð íbúa Búkarest, höfuð- borgar Rúmeníu, hafa krafist þess að átak verði gert til að útrýma flækingshundum í borginni. Ástæðan er sú að einn slíkur hundur varð fjögurra ára dreng að bana í borginni í síðustu viku. Borgarstjórinn, Sorin Oprescu, segir að málið verði lagt í dóm kjósenda þann 6. október næst- komandi en þá munu íbúar borg- arinnar verða spurðir hvort þeir vilji að flækingshundum verði útrýmt. Að sögn yfirvalda urðu um 1.100 manns fyrir árásum flækingshunda í borginni á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs. Áhyggjur af auknu ofbeldi Borgarstjórn Gautaborgar í Sví- þjóð kom saman á fundi á mánu- dag þar sem tíðar skotárásir í borginni voru til umræðu. Tveir létust í síðustu viku og tveir voru fluttir með skotsár á sjúkrahús, en talið er að skotárásirnar tengist stríðandi fylkingum í undirheim- um borgarinnar. „Við þurfum að herða vopna- löggjöfina. Ástandið er gjörsam- lega óásættanlegt,“ sagði Anneli Hulthén, fulltrúi Jafnaðarmanna- flokksins í borgarstjórn Gauta- borgar, á blaðamannafundi að loknum fundinum. Fulltrúar lög- reglu voru boðaðir á fundinn og þar voru ræddar mögulegar leið- ir til að stemma stigu við þessu aukna ofbeldi í undirheimunum. „Hengið nauðgara“ Mótmæl- endur komu saman fyrir utan réttarsalinn í Nýju-Delí á þriðjudag þegar fjórir menn voru sakfelldir fyrir hópnauðgun í desember. Mynd: REutERS Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is „Þeir opnuðu ítrek- að hjá okkur dyrn- ar fyrirvaralaust til þess að reyna að grípa okkur í bólinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.