Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 26
26 Fólk 11. september 2013 Miðvikudagur „Ég hætti að borða“ B andaríski leikarinn Jared Leto missti 18 kíló fyrir hlutverk sitt í myndinni Dallas Buyers Club sem frumsýnd var á kvik- myndahátíðinni í Toronto um helgina. Í myndinni fer Leto með hlutverk transkonu sem smitast hefur af HIV- veirunni og berst við alnæmi og var töluverðs þyngdartaps því krafist af leikaranum. „Ég hætti að borða,“ sagði Leto í viðtali við vefsíðuna The Wrap. „Þetta voru þrjátíu eða fjörtíu pund. Eftir það hætti ég að telja.“ Leto fór niður í 50 kíló fyrir hlut- verkið og segir hann þyngdartapið hafa haft mikil áhrif á sig auk þess sem þetta hafi síður en svo verið auðvelt. „Þetta breytir því hvernig þú gengur, hvernig þú situr, hvernig þú hugsar.“ Leto var þó ekki sá eini sem þurfti að grennast fyrir myndina því Matthew McConaughey, sem ásamt Leto og Jennifer Garner, fer með eitt aðalhlutverka myndarinnar, þurfti einnig að missa álíka mikla þyngd. McConaughey leikur rafvirkjann Ron Woodruff sem smitast af HIV-veirunni og er staðráðinn í að finna lækningu við sjúkdómnum en til þess þarf hann að beita ýmsum brögðum. Leto hefur ekki leikið í kvikmynd í fimm ár en hefur í staðinn einbeitt sér að ferli sínum sem söngvari rokk- hljómsveitarinnar Thirty Seconds to Mars. Sagði hann í viðtali á dögunum að Dallas Buyers Club hafi verið fyrsta myndin sem var þess virði að taka pásu frá tónlistinni fyrir en aldrei væri að vita hvað framtíðin bæri í skauti sér. n horn@dv.is n Missti 18 kíló fyrir hlutverk Launahæstu leikarar Hollywood 1 Robert Downey Jr. The Avengers er þriðja tekjuhæsta kvikmynd allra tíma og fékk Downey Jr. sannarlega væna sneið af kökunni því leikarinn er sá launahæsti í Hollywood. Tekjur hans á árinu nema 75 milljónum Bandaríkjadala, eða rúmum níu milljörð- um íslenskra króna. 2 Channing Tatum Tatum fjármagnaði sjálfur kvikmyndina Magic Mike og þegar þessi sjö milljóna dollara mynd sló í gegn í kvikmyndahúsum fékk leikarinn væna summu. Tekjur hans á árinu nema 60 milljónum dollara, eða 7,3 milljörðum króna. 3 Hugh Jackman Hugh Jackman er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Wolverine í X-Men en í fyrra sló hann í gegn sem Jean Valjean í söngleiknum Les Misérables. Árstekjur hans nema 55 millj- ónum dollara, eða rúmum 6,7 milljörðum íslenskra króna. 4 Mark Wahl­berg Wahlberg fór með eitt aðalhlut- verkanna í myndinni Ted sem sló rækilega í gegn í fyrra. Leikarinn hefur halað inn 52 milljónir Bandaríkjadala, eða um 6,4 milljarða króna. 5 Dwayne Johnson Þessi fyrrverandi glímukappi hefur skapað sér nafn sem leikari og er nú meðal þeirra launahæstu í Hollywood en árstekjur hans nema 46 milljónum dollara, eða um 5,6 milljörðum króna. topp 5 Dallas Buyers Club Leto og McConaughey í hlutverk- um sínum í myndinni. MynD © www.splashnews.CoM Ældi eftir tæklingu Það var ekki stjörnumeðferð sem One Direction-drengurinn Louis Tomlin- son fékk á góðgerðaleik í knattspyrnu um helgina. Leikurinn fór fram á Celtic Park í Glasgow, heimavelli knattspyrnuliðsins Celtic, og var leik- inn til styrktar krabbameinsfélagi sem stofnað var af Stiliyan Petrov, fyrrver- andi leikmanni Aston Villa sem sjálf- ur hefur barist við hvítblæði. Tomlin- son lenti í samstuði við Gabriel Agbonlahor, leikmann Aston Villa, og ældi í kjölfarið en söngvarinn þurfti að sitja hjá það sem eftir var leiks. Horfinn n Miley Cyrus orðin fullorðin B andaríska ungstirnið Miley Cyrus hefur heldur betur vakið athygli og umtal undanfarið vegna djarfrar hegðunar en söngkon- an, sem skaust upp á stjörnu- himininn fyrir hlutverk sitt sem Hannah Montana í samnefnd- um þáttum á Disney-rásinni, virðist staðráðin í að sýna heim- inum að hún sé orðin fullorðin. Gekk með skírlífishring Miley Ray Cyrus fæddist í Nas- hville í Tennessee, árið 1992. Hún er dóttir Letitiu Jean Cyrus og kántrísöngvarans Billy Ray Cyrus og guðmóðir hennar er engin önnur en kántrísöngkonan Dolly Parton. Miley var alin upp í kristinni trú og eru foreldrar hennar mjög trúaðir. Á uppeldisárunum mætti hún iðulega í kirkju og gekk auk þess með skírlífishring (e. purity ring), en slík- ir hringar eru ekki óalgengir í Banda- ríkjunum og eru merki um að hring- berinn ætli sér að lifa skírlífi fram að hjónabandi. Ekki er vitað með vissu hvernig það hefur gengið, en ljóst þykir að söngkonan hefur fetað tals- vert aðra braut í lífinu og þykir hegð- un hennar undanfarin misseri til marks um það. hóf ferilinn ung Miley ólst upp á sveitabæ í ná- lægð við Nashville en þrettán ára flutti hún til Hollywood til að fylgja eftir draumum sínum um frægð og frama. Það er ljóst að Miley ætlaði sér alltaf frægð og frama því hún var aðeins níu ára þegar hún þreytti hún frumraun sína í sjónvarpi. Þá fór hún með minniháttar hlutverk í lækna- dramanu Doc, sem faðir hennar fór einmitt með eitt aðalhlutverkanna í. Tveimur árum síðar lék hún svo í sinni fyrstu kvikmynd, Big Fish. Miley lærði söng og leiklist í Armstrong Acting Studio í Toronto í Kanada, en þangað flutti fjölskyldan á meðan Billy Ray var við tökur á fyrrnefnd- um læknaþáttum. skjótur frami Það var svo árið 2006 sem Miley skaut upp á stjörnu- himininn en þá sló hún í gegn sem Miley Stewart í þáttun- um Hannah Montana sem sýndir voru á Disney-stöðinni í Bandaríkjunum. Þættirn- ir fengu gríðarlegt áhorf, meira en nokkur annar þáttur á Disney-stöð- inni hafði áður fengið, og varð fljót- lega meðal þeirra vinsælustu í bandarísku sjónvarpi. Þeir urðu einnig til þess að Miley varð ein skærasta stjarna Hollywood og fyrirmynd margra ungra drengja og stúlkna en söng- og leikkonan varð sú fyrsta í sögunni til að landa samningi við Disney á fjórum svið- um; í sjónvarpi, kvikmyndum, tón- list og neytendavarningi. Þættirnir luku göngu sinni árið 2011 og síðan þá hefur Miley einbeitt sér að tónlist annars vegar og kvikmyndum hins vegar. Verður ekki tamin Líkt og með flestar barnastjörnur biðu margir eftir því að Miley sýndi á sér aðrar hliðar en á Disney-rásinni. Þeim hefur svo sannarlega orðið að ósk sinni því upp á síðkastið hefur Miley ítrekað komist í fréttirnar fyrir djarfa sviðsframkomu, mögulega eitur lyfjanotkun og sífellt meira ögr- andi tónlistarmyndbönd. Segja má að ný ímynd Miley hafi hafist með útgáfu plötunnar Can‘t Be Tamed en hún kom út árið 2010 og þótti tónlistarmyndbandið við ti- tillagið sem og framkoma söngkon- unnar á tónleikum í djarfara lagi. Allar götur síðan hefur Miley verið óhrædd við að koma fram fá- klædd og virðist hún nú staðráðn- ari en nokkru sinni fyrr í að breyta ímynd sinni úr krúttlegri Disney- stjörnu í fullþroska kyntákn. Fleiri skandalar Í byrjun árs 2012 vakti mikla athygli er Miley lét síðu lokkana fjúka og litaði hár sitt ljóst. Sagði hún í viðtali í kjölfarið að henni hefði aldrei liðið jafnmikið eins og hún sjálf og að klippingin hefði breytt lífi hennar. Þessari nýju klipp- ingu skartaði hún einmitt í umdeildu söngatriði hennar og söngvarans Robin Thicke á VMA-verðlauna- hátíðinni fyrir skemmstu. Þar kom Miley fram á nærfötun- um einum saman og setti sig í stell- ingar sem mörgum þóttu heldur djarfar. Fjölmiðlar vestanhafs voru vart farnir að anda þegar Miley vakti athygli á ný með myndbandinu við lagið Wrecking Ball en þar kemur hún nakin fram og sýnir kynferðis- lega tilburði með sleggju. Lagið er af væntanlegri breiðskífu söngkonunn- ar sem nefnist Bangerz og er vænt- anleg í október næstkomandi. n Á VMa Miley dillar sér upp við Robin Thicke. er Hringur skírlífis Djörf Miley sýnir djarfa sviðsframkomu. saklaus Lengi vel gekk Miley með skírlífishring á fingri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.